Morgunblaðið - 13.06.1957, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 13.06.1957, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 13. júni 1957 MORGVWBl AÐIÐ 9 Urvai tékkneskra knattspyrnumanna yngri en 23 ára kemur á sunnudaginn Leikur hér 4 leiki í boði Víkings ASUNNUDAGINN kemur hingað 20 manna flokkur Tékka. Þetta eru knattspyrnumenn, sem hingað koma í boði Víkings. Þeir munu leika hér að minnsta kosti fjóra leiki og er sá fyrsti þeirra n. k. þriðjudagskvöld og mæta þeir þá íslandsmeisturum Vals. Þetta tékkneska lið dvelur hér í níu daga, en íslandsförin er liður í keppnisferð um Þýzkaland, England og Danmörku auk íslands, svo allir mega sjá að hér eru ekki neinir aukvisar á ferðinni. „LANDSLIГ Þetta tékkneska lið er skip- að ungum mönnum. Það er úrvalslið sent lit af örkinni af tékkneska knattspyrnu- sambandinu og af því kallað landslið yngri manna — eða manna yngri cn 23 ára. Meðal aldur liðsmanna er um 22 ár. ★ Tékkar eru mjög góðir knatt- spyrnumenn og skipulagning knattspyrnumála sem annarra íþróttamála er hjá þeim mikil og eftir fylgt af hálf- eða alopin- berum stofnunum, sem í öðrum eustur-Evrópuríkjum. Það er tryggt að þegar lið frá þessum löndum fará út fyrir landamærin, þá eru þar á ferð góð lið. Lið það sem hingað kemur mætti kannski kalla „framtíð Tékka“ í knattspyrnu. Þetta eru yngri mennirnir, en þó allt að því eins gamlir og okkar beztu og reyndustu menn. inn 25. júní gegn úrvalsliði lands- liðsnefndar KSÍ, sem hefur borið nafnið „Úrval Suð-Vesturlands.“ G<M)UR ÁRANGUR Forráðamenn Víkings sögðu í gær, að þeir vonuðust til að í þessum leikjum fengju á- horfendur að sjá það bezta í ísl. knattspyrnu og því hefðu mótherjar Tékkanna verið þannig valdir. Sjálfir kváðust þeir ekki efast um getu Tékk- anna, þeir hefðu á keppnis- Abranes og ★ UEIKURINN Liðið leikur hér 4 leiki, sem fyrr segir. Fyrsti leikurinn er gegn Val, þriðjudaginn 18. júní. Fimmtudaginn 20. júní keppa þeir við Akranes. Sunnud. 23. júní mæta þeir Hafnarfjarðar- liðinu og lokaleikurinn sam- kvæmt áætluninni er þriðjudag- Miðskóli Slykkishólms STYKKISHÓLMI, 4. juní — Starfi 3. bekkjar Miðskólans í Stykkishóhni lauk 1. júní s. 1. Skólanum hafði verið slitið fyrr. 10 nemendur luku miðskólaprófi þar af 6 landsprófi. Hæsta eink- unn fékk Reynir Vilhjálmsson frá Narfeyri á Skógarströnd, 9,02 við landspróf og 9,15 við miðskóla- próf og eru það hæstu einkunnir, Bem gefnar hafa verið við skól- ann síðan hann byrjaði. Rotaryklúbburinn í Stykkis- hólmi veitti Reyni viðurkenningu og auk þess fékk hann verðlaun úr sjóði Egils Hallgrímssonar kennara fyrir ágæti í stærðfræði- xiámi. Auk þess veitti skólinn verðlaun fyrir dugnað við nám, umsjón, félagsstörf og stundvísi. Hafnar eru framkvæmdir við byggingu heimavistarhúss við Mið skólann. —Á. H. í KVÖLD kl. 20,30 fer fram 5. leikur 1. deildar og eigast þá við Valur og Akurnesingar. Verður það 1. leikur íslands- meistaranna, Vals, í mótinu, en 3. leikur Akurnesinga, sem eru efstir með 4 stig í 2 leikum. í fyrra kom Valur mjög á óvart með að sigra Akurnesinga 3:2 og ruddi sá sigur brautina til ís landsmeistaratitilins. Eftir þennan leik verður gert hlé á mótinu til 27. júní. Þróttur á Sauðár- króki SAUÐÁRKRÓKI, 12. júní: — Á annan í hvítasunnu háði knatt- spyrnufélagið Þróttur frá Reykja vík þrjá kappleiki hér á íþrótta- vellinum við UMSS og Tindastól. Úrslit urðu þau að í 1. fl. knatt- spyrnu sigraði Þróttur með 3 mörkum gegn 2, 3. fl. Þróttar sigr aði með 1 marki gegn engu. Hand knattleik kvenna sigraði Þróttur einnig með 5 mörkum gegn 2. Veður var hið bezta. Eftir að keppendur höfðu setið við kaffi- drykkju héldu Þróttarfélagar til Reykjavíkur. — Jón. Syndið 200 metra Kaupendur Höfum kaupendur að 4ra til 5 herbergja íbúðum, fokheldum eða komnum undir tréverk. Útborgun getur orðið mjög mikil. Málflutningsskrifstofa VAGNS E. JÓNSSONAR, Aftisturstræti 9, Sími 4400. ferð sinni það sem af er náð góðum árangri. Kváðu Vík- ingar að Tékkarnir hefðu leik- ið við B-landslið Þýzkalands í Þýzkalandi og lauk þeim leik 1:1.1 Englandi keppti liðið við B-landslið enskra atvinnu- manna og tapaöi með 2:0. — Liðið kemur flugleiðis frá Kaupmannahöfn og leikur í Höfn annað hvort áður en Is- landsferðin hefst eða eftir, en til Hafnar fljúga Tékkarnir héðan 26. júní. Enn skal áherzla á það lögð, að tékkneska liðið er ekki félags- heild, heldur úrvalslið sem knattspyrnusamband Tékka stendur að. Þetta er í fyrsta sinn sem tékkneskir knattspyrnumenn koma hingað og verður gaman að sjá landann í keppni við þeirra efnilegustu menn. - " Krislleifur víSavangs hlaupsmeistari REYKJUM í Mosfellssveit, 12. júní: — Víðavangshlaup meistara móts íslands 1957 var haldið í nágrenni íþróttavallar Aftureld- ingar í Mosfellssveit og sá Ung- mennasamband Kjalarnesþings um mótið. Úrslit urðu þau, að fyrstur varð Kristleifur Guðbjörnsson, KR, á 14.37,8 mín., 2. Hafsteinn Sveinsson, HS. Skarphéðinn, 15.09,8 mín., 3. Margeir Sigur- björnsson, ÍBK. Veður var sæmilegt. Rigninga- laust en suð-austan strekkingur og leiðin lögð fjölbreytt og skemmtilega þannig að sást til hlauparanna alla leið. sAð afloknu hlaupinu afhenti Gunnar Sigurðsson, varaformað- ur UMSK, verðlaunapeninga, en viðstaddir áhorfendur fögnuðu íþróttamönnunum. — J. Fyrir nokkru var hinu gamla en stórglæsilega heimsmeti Varmer- dans í stangarstökki, 4,77 m, hnekkt. Var þar að verki ungur Banda- ríkjamaður af pólskum ættum, Gutowski að nafni. Hann stökk 4,78 m, en er líklegur til stærri afreka, því framfarabraut hans hefur verið óslitin og glæsileg. Hér sést Gutowski í metstökkinu. „fÚBssmót^ skí^amanRa í Siglufiarðarslcarði Siglufirði, 11. júni — Frá fréttaritara Mbl. EÐAN undirbúningur undir síldarvertíð sumarsins stendur sem hæst, brugðu skíðamenn sér um hvítasunnuhelgina upp í Siglufjarðarskarð og þar var haldið „júnímót“ í skíðaíþróttum með þátttöku ýmissa beztu skíðamanna landsins. M1 ★ ÚRSLIT Á mótinu var keppt í svigi og stórsvigi. Hófst keppnin er 15 ára stúlka, Kristín Þorgeirsdóttir, sem kalla mætti skíðadrottningu Siglufjarðar, hafði opnað braut- ina. Ný reglugerð um íslands- mófið í bridge ÁRSÞING Brldgesambands ís- lands var haldið í Borgarresi um síðustu mánaðamót, og sátu það fulltrúar frá flestum sambands- félögunum. Helztu samþykktir þingsins voru þessar: Samþykkt var ný reglugerð um íslandsmótið í Bridge. Samkvæmt henni skulu öll fél. innan sambandsins eiga þess kost að senda sveitir til þátt- töku, sem fer eftir félags- mannafjölda, að undangeng- inni keppni innan hvers félags. Samþykkt var að koma á fót sérstakri keppni, nú þegar á næsta hausti, um þátttökurétt í Evrópumeistaramótinu 1958. Samkvæmt þeirri samþykkt er öllum meistaraflokkssveit- um heimil þátttaka í undirbún ingskeppninni, og skal keppt aðeins í fjögra manna sveitum. Beint var til sambandsstjórn arinnar að athuga um mögu- leika að fá hingað erlenda sveit, eða par, á næsta starfs- ári. Ennfremur hvort fært væri að gefa út tímarit um bridge. í stjórn voru kosnir: Ólafur Þorateinsson, forseti, og með- stjórnendur Laufey Þorgeirsdótt- ir og Júlíus Guðmundsson frá Reykjavíkurdeild, Björn Svein- björnsson og Óli Örn Ólafsson frá Suðvesturlandsdeild, og Karl Friðriksson og Sigurður Krist- jásson frá Norðurlandsdeild. í sambandi við ársþingið var haldið sumarmót í bridge, þar sem keppt var bæði í tvímenn- ings- og sveitakeppni. í tvímenn- ingskeppninni tóku þátt 44 pör. Hæstir urðu Lárus Karlsson og Sigurhjörtur Pétursson, og næstir Baldur Bjarnason og Sigurður Guðbrandsson, og þriðju Björn Sveinbjörnsson og Brandur Brynj ólfsson. f sveitakeppninni tóku þátt 23 sveitir, og var spilað eftir Mitchell-kerfinu. Sigurvegari varð sveit Ólafs Þorsteinssonar, en með honum voru í sveit Hallur Símonarson, 'Símon Símonarsson og Þorgeir Sigurðsson. Keppnistjóri mótsins var Eirík- ur Baldvinsson. KAISER 7952 Til sölu er góður Kaiser, ný sprautaður. Skipti á 4ra manna bíl koma til greina. Verður til sýnis kl. 1,30—6 í dag. — Fasteignasalun Vatnsstíg 5, sími 5535. Opið kl. 1,30—7 e.h. Úrslit í stórsvigi urðu þessi: 1. Svanberg Þórðarson, Rvík, 101,0 sek., 2. Ásgeir Eyjólfsson, Rvík, 3. Hjálmar Stefánsson, Ak- ureyri. — Brautarlengd var 1600 m og hliðin 73. Keppendur í stór- svigi voru 11. Svigbrautin var 1000 m löng með 55 hliðum. Keppendur voru 10 talsins og sigurvegari varð Hjálmar Stefánsson, Akureyri. Tími hans varð 45,1 sek. í fyrri ferð og 43,8 í síðari. Annar varð Ólafur Njlsson, Rvik, og 3. Ás- geir Eyjólfsson, Rvík. Veður var bjart og gott og var keppnin hin ánægjulegasta. Kepp endur sátu boð bæjarstjórnar Siglufjarðar á 2. dag hvítasunnu. — Stefán. Fram sigraði ísfirðinga tvívegis U M hvítasunnuhelgina fóru Reykjavíkurmeistarar Fram í knattspyrnu til ísafjarðar í keppnisferð. Kepptu þeir tvíveg- is við lið ísfirðinga. Fyrri leikurinn var á laugar- dag fyrir hvítasunnu og lyktaði með sigri Reykj'avíkurmeistar- anna 4 mörk gegn 3. Síðari leik- inn — á hvitasunnudag — vann Fram einnig, en þá með 3 mörk- um gegn 2. fsfirðingar eru nú öðru sinni með í 2. deildarkeppn- inni en eins og kunnugt er mættu þeir Hafnfirðingum í fyrra i úr- slitaleik um það hvaða lið skildi fara upp í 1. deild. Jens Sumar- liðason, sem lék með Víking fyr- ir nokkrum árum þjálfar nú ís- firðinga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.