Morgunblaðið - 13.06.1957, Side 11

Morgunblaðið - 13.06.1957, Side 11
Fimmtudagur 13. júní 1957 MORCVNBLAÐIÐ 11 Dýrtíbarskrúfu-konungurinn eftir Jón Pálmason í ELHÚSDAGSUMRÆÐUNUM 27. f.m. vék ég nokkuð að þeim aðferðum og framkomu, sem reynslan hefir sýnt hjá þeim ráð- herra, sem lengst hefir verið í ríkisstjórn hér á landi Eysteini Jónssyni. Það sannaðist í ræðu ráðherr- ans hið fornkveðna, „að sannleik- anum verður hver sárreiðastur“ svo bólginn var hann af reiði, þá er hann fór að svara, að hann gætti sín ekki svo sem rosknum og stjórnvönum manni œtti að hæfa. Þar sem ég hafði ekki tækifæri til andsvara þykir mér rétt að minnast nokkuð frekar á þau at- riði sem til mála koma, enda þó í blaðagrein sé eigi hægt að ná til allra sem á útvarp hlýða. Ráðherrann taldi það heldur óeðlilega ásökun frá minni hálfu, að minna á það, að hann gæti verið í öllum stjórnum og samið og svikið sitt á hvað, af því að ég hafði verið stuðningsmaður Nýsköpunarstjórnarinnar 1944— ’46. Sú rikisstjórn sprakk af ágreiningi um utanríkismál, enda þó i þeirri tíð væri allt annað ástand i heimsmálum, en síðan hefir verið, þar sem Vesturveldin voru í samvinnu við Rússa gegn Þjóðverjum í stríðinu. Keflavíkur samningurinn 1946 Atlantshafs- samningurinn 1949 og hervarnar- samningurinn 1951 voru allir gerðir í fullri andstöðu við kommúnista. Um þá stóðu saman þrír flokkar og þegar árásin var gerð á Alþingi 30. marz 1949 töldu margir að kommúnistar hefðu lokað hurðum á hæla sér, ættu því ekki að óbreyttu ástandi í heimsmálum aftur kost á stjórn arsamvinnu við aðra flokka. Aðstaðan 1944 og 1956 var bví algerlega ósambærileg. En Ey- stein Jónsson er þekktur að því, að taka ekkert tillit til stefnu eða stjórnmála siðferðis. Gildir það jöfnum höndum um innanlands og utanríkismál. Þau hátíðlegu loforð sem hann og fleiri gáfu í síðustu kosningum um að vinna aldrei með kommúnistum, var hann manna fljótastur að svíkja, enda sá af okkar stjórnmála- mönnum sem sízt er hægt að treysta, þegar völdin eru annars vegar svo sem reynslan hefir sannað. f öðru lagi blés þesi ráðherra sig ákaflega út af þeirri ófyrir- leitni frá minni hálfu að kenna honum um hækkun ríkisgjald- anna skattanna tollanna o.s.frv. hafa miklu hærri. Þetta 7 ára blóðugu stríði við Sjálfstæðis- menn út af því, að halda niðri gjöldum, sem þeir hefðu viljað hafa miklu hærri þetta 7 ára stríð ráðherrans er mikil þörf að ræða nánar. Ætti honum ekk; að vera fjarri skapi, að fá tækiíæri til að skrifa söguna af sínum frækilega vopnaburði á þeim vettvangi. Hinar gífurlegu kröfur frá ráð- herrum Sjálfstæðisflokksins um sífellt aukin ríkisgj., er það sem hin blóðuga orusta ráðherrans hefir staðið gegn, að hans eigin dómi. Þó ég sleppi nú öllu gamni í tilefni af þessari grobbsögu ráð- herrans, þá má nú byrja á því, að minna á, að síðasta árinu af bess- um 7 er honum óhæltt að sleppa, því áður en það byrjaði var hann búinn að svíkjast aftan að sínum samstarfsmönnum Sjálfstæði- mönnum og farinn að semja við andstæðinga stjórnarinnar um þingrof, kosningalagabrot, stjórn arskrárbrot og nýja stjórnarsam- vinnu á kommúnistískum grund- velli. Hin 6 árin voru frá því um miðjan marz-mánuð 1950 til jafn- lengdar 1956. Á þeim tíma var þessi maður fjármálaráðherra í samstjórn með Sjálfstæðismönn- um. Á því tímabili stóð hans blóðuga stríð, sem hann mundi þó allra manna sízt hafa viljað hverfa frá með því að segja af sér. Víst hækkuðu útgjöldin mikið á þessum tíma, óþarflega mikið. Er sú saga á þessa leið: Sam- kvæmt ríkisreikningi fyrir árið 1949, og sem Eysteinn gekk frá, en ekki fyrrverandi fjármálaráð- herra Jóhann Þ. Jósefsson, voru öll gjöldin á sjóðsyfirliti 403 millj. króna. Fjárlögin fyrir árið 1956 sýna áætluð útgjöld á sama yfir- liti 661 milljón króna. Þau voru afgreidd af fyrrverandi ríkis- stjórn. Hækkunin er 258 millj. króna. Við þetta er svo óhætt að bæta áætluðum útgjöldum „Fram leiðslusjóðs" sem voru 152 millj. króna. Hækkunar upphæðin á þessu 6 ára timabili er því ljót. Hún er 410 milljónir króna, eða sem svarar 68,3 milljónum króna að meðaltali á ári. Þetta þótti Eysteini Jónssyni hrein óhæfa. „Ómögulegt að leysa efnahagsmál með Sjálf- stæðismönnum“ lét hann sam- þykkja á flokksþingi Framsókn- arfl. í marz 1956. Sjálfsagt þótti því að stofna til þingrofs og kosn- inga, brjóta kosningalögin og stjórnarskrána. Ganga síðan í samvinnu við andstæðinga fyrri stjórnar, sem maðurinn var sjálf- ur fjármálaráðherra í. Þar með skyldi blóðuga stríðinu vera lok- ið. Nýtt tímabil skyldi hefjast. Tímabil „varanlegra ráða í efnahagsmólum", með allsherjar vinnufriði og stöðvun allrar dýr- tíðar m. m. Síðan þetta gerðist er eitt ár. Það er ár mikilla lærdóma í fjár- málum og atvinnulífi íslendinga. Þetta ár hefir líka sýnt nokkuð ljósar inn í hugskot Eysteins fjár- málaráðherra, en almenningur hafði áður séð. Allt að því eins langt og við sumir vorum búnir að renna grun í. Fjárlög fyrir árið 1957 voru afgreidd. Þau sýna á sjóðsyfirliti 811 milljónir króna. „Framleiðslusjóður" var skýrður upp. Hánn heitir nú „Útflutningssjóður“. Tekjur hans eru áætlaðar 500 milljónir króna. Þar af er ætlað inn í fjárlögin 108 milljónir. Eftir standa til út- gjalda 392 milljónir króna. Gjöld- in því samtals áætluð 1203 millj. króna. Hækkunin frá fyrra ári samtals 390 milljónir króna. Við það er svo bætt stóreignaskatti sem áætlaður er 80 milljónir kr. auk margvíslegra annara smærri útgjalda. En á þessu ári var ekki að tala um blóðuga stríðið við ráðh. Sjálfstæðisflokksins gegn hærri gjöldum. Nú voru það ást- arhótin og blíðmælin frá ráðherr- um Alþýðuflokksins og Alþýðu- bandalagsins. Nú mátti fjármála- ráðherrann ráða öllu sem hann vildi. Hann fékk að hækka út- gjöldin eftir vild. Þá hækkuðu þau um 390—470 milljónir króna á einu ári eftir því hvort stór- eignaskatts^ böggullinn er með eða ekki. í hinu blóðuga stríði við Sjálfstæðismenn var hækk- unin ekki nema 68 milljónir á ári að meðaltali í 6 ár. Hvernig átti slíkur maður sem Eysteinn Jóns- son, að geta unað slíku. Hann sem alltaf segist vera að stöðva dýrtíðina og bjarga framleiðsl- unni. Það er líka mér og mörgum öðrum kunnugt fyrir löngu, að hann er einn þeirra manna, sem alltaf talar og skrifar mest um það hve nauðsynlegt sé að forðast þau verk, er hann ætlar að vinna og vill vinna. Því til sönnunar er það, að enginn maður Lefir oftar talað um að stöðva dýrtíð- ina. En enginn einn maður á fs- landi hefir skrúfað dýrtíðina eins upp og Eysteinn Jónsson. — Hann er líka búinn að vera allra manna lengst í ríkisstjórn hér á landi. Það er óhætt að fullyrða, að hann er afdráttarlaust mesti dýrtíðarskrúfu konungur sem þjóðin hefir eigi\azt. Það skal verða betur sannað þó að síðar verði. Reykjavík, 2. júní ’57 J. P. Stórt og fjölbreytt nýtt heftiaf Stefni komið út N’ ÝTT HEFTI er komið út af Stefni. Það er fyrsta hefti þessa árgangs og er tvöfalt að stærð. Flytur það óvenjumikið og fjölbreytt efni, bæði greinar um þjóðmál, smásögur, ljóð og ýmis konar gagnrýni. Dr. Franklin. í þessu nýútkomna hefti Stefn- is birtast m. a. ljóð eftir þrjú ung skáld og ljóðaþýðingar eftir tvö. Eftir Hannes Pétursson er það kvæðið — Ekki hefur sólin. Jón Dan á tvö Ijóð í heftinu, sém nefn ast Ókveðið ljóð og Hönd þín. Þrjú kvæði eftir Gylfa Gröndal nefnast Morgunbæn, Hraðíerð og Skógur. Þá eru ljóðaþýðingar eft- ir Matthías Jóhannessen. Athyglisverðar eru einnig þýð- ingar Málfríðar Einarsdóttur á ljóðum eftir Ezra Pound, sem fylgja grein er Sigurður A. Magn- ússon ritar um þetta höfuðskáld nútímabókmennta. En Þórður Einarsson skrifar grein um kynni sín af enska skáldinu Dylan Hér eru óvenju góð skilyrði til vírusarannsókna segir hinn kunni brezki dr. Franklin skurðlœknir UNDANFARIÐ hefur dvalizt hér á landi kunnur hrezk- ur skurðlæknir, Mr. Franklin að nafni. Er hann hingað kominn á vegum British Council og í boði íslenzkra lækna til þess að flytja hér fyrirlestra um læknis- fræði. ★ Richard H. Franklin er kunn- ur skurðlæknir í heimalandi sínu. Hann er nú einn af aðalkennur- um brezka sérfræðingaskólans, London Postgarduate School, auk þess sem hann er aðalskurðlækn- ir við Hammersmith Hospital og Kingston Hospital. Hann er einn- Vestur-íslendingar í heimsókn VÆNTANLEGIR eru n.k. föstu- dag í hópferð til landsins eftir- taldir 18 Vestur-íslendingar: Sigurður og Kristín Sigurðs- son, Elfros, Sask; Páll Guð- mundsson, Leslie, Sask; Vilborg Anderson, St. James, Man.; Gerða Ólafsson, Winnipeg; Kat- rín Brynjólfsson, Winnipeg; Kristín Johnson, Winnipeg; Anna Árnason, Winnipeg; Ólafur Bjarnason, Gimli, Man.; Guðrún Davíðsson, Pickle Lake, Ont.; María Sigurðsson, Winnipeg; Kristín Johnsin, Winnipeg; Guð- rún Árnason, Gimli, Man.; Guð- finna Svein dóttir, Glenboro, Man.; Kristín Þorsteinsson, Gimli Man.; Jakobína S. Hallsson, Winnipeg; Jakob og Steinunn Kristjánsson, Winnipeg. í sambandi við þessa heimsókn gengst Þjóræknisfélagið fyrir samkomu n.k. föstudagskvöld kl. 8,30 í Tjarnarcafé, uppi. Ennfremur eru allir Vestur-ís- lendingar, svo og aðrir íslend- ingar búsettir erlendis, sem nú kunna að vera staddir hér á landi hérmeð boðnir til samkomunnar. Sérstaklega er skorað á allt félagsfólk, einnig á frændur og vini gestanna að fjölmenna. (Tilk. frá Þjóðræknisfél. ís- lendinga). ig prófdómari í skurðlækningum við sérfræðipróf brezku skurð- lælcnisstofnunina, Royal College of Surgery. Fréttamaður Mbl. hitti dr. Franklin að máli fyrir féum dögum og spjallaði við hann stutta stund. Hann er mjög yfirlætislaus og viðkunnanlegur maður á miðjum aldri, og þegar talið berst að íslandsdvölinni læt- ur hann hið bezta yfir henni. — Eg hefi komið bæði á Lands- spítalann og Landakot, segir hann og einnig heimsótt Reykja- lund. Eg hefi hrifizt af því sem ég þar hefi séð og mér þykir ís- lenzk læknisfræði standa framar- lega. Sérstaka athygli mína vakti Reykjalundur og það brautryðj- endastarf sem þar hefir verið unnið. í mínum augum er það mjög athyglisvert, og áhrifamik- ili þáttur í þeirri baráttu ykkar að útrýma berklaveikinni að fullu og öllu. Einnig kom ég að Keldum og skoðaði þar rann- sóknarstofurnar og þangað þótti mér fróðlegt að koma. Mér þykir þið íslendingar vera mikil framfaraþjóð. Eg hygg, að hér séu góð skilyrði til þess að stunda vírusrannsóknir sökum fjarlægðarinnar og einangrunar- innar, mun betri skilyrði en eru í hinum þéttbýlli löndum svo sem Englandi. Eg hefi hrifizt af því að koma hingað til lands, og það er strax auðséð að hér fer mikil bylting fram og miklar breytingar verða á fáum árum. 1 London hefi ég kynnzt nokkrum ungum íslenzk- um læknum og til mín hafa leit- að allmargir íslenzkir sjúklingar, víst um 30 talsins. Mér hefir ver- ið mikil ánægja að því að koma hingað til lands og hitta marga þeirra aftur, hressa í bragði. Talið berst að vélindaaðgerðum dr Franklins en fyrir þær hefir hann hlotið mikla frægð í Eng- landi og víðar. Var hann sam- starfsmaður próf. Gray Turner, sem var mikill brautryðjandi á þessu sviði. Dr. Franklin var fyrsti enski læknirinn til þess að gera skurðaðgerð á meðfæddri vélindislokun í Bretlandi og fyrsti maðurinn utan Bandaríkj- anna sem þá aðgerð gerði. Var það árið 1948. Meinsemd þessi er algengari en menn halda, segir dr. Franklin en stundum uppgötvast hún ekki en barnið deyr skömmu eftir fæðinguna. Aðgerðina verður að gera örskömmu eftir að barnið fæðist, og er fyrsti sjúklingur dr. Franklins nú 9 ára gamall. Alls hefir hann framkvæmt þessa vandasömu aðgerð um 25 sinn- um. Bandaríkjamenn hófu fyrst- ir að framkvæma skurðaðgerðir við þessari meinsemd, síðan dr. Franklin og þá skömmu seinna sænskur skurðlæknir, dr. Sand- blom. Höfuðtilgangurinn með kómu þessa kunna brezka skurðlæknis hmgað til lands var að halda fyr- irlestra fyrir íslenzka lækna um skurðaðgerð þessa en hér á landi hefir hún ekki verið gerð. Hefir dr. Franklin bæði flutt fyrir- lestur fyrir lækna Landsspítalans um skurðaðgerðina og einnig fyrir lækna í Háskólanum. Kona dr. Franklins, Helen, er í för með honum hingað til lands. Thomas, sem eins og kunnugt er, drakk sig í hel. GREIN UM DAVÍ® STEFÁNSSON Þá er í heftinu upphaf merki- legrar greinar Önnu Z. Oster- man, um kveðskap Davíðs Stef ánssonar. Anna er sænskrar ættar. Kom hún hingað til lands 1938, sem sendikennari, en hefur síðan fest tryggð við landið og unnið merkilegt starf til kynna á islenzkum rithöfundum í Svíþjóð. Hefur hún e. t. v. kannað skáldskap Davíðs betiur en nokkur annar maður, og kemur fram í grein Ezra Found hennar bæði víðtæk þekklng og ást á skáldskap hans. SMÁSÖGUR OG GREINAR Smásögur eru í Stefni eftir Jakob Thorarensen (Erfið ferð), Einar Inga, Gisla J. Ástþórsson og Svavar Gests, en Sverrir Har- aldsson hefur þýtt smásögu eftir Kelvin Lindemann. Þá er í heftinu Víðsjá, eftir Magnús Jónsson alþingis- mann, mjög athyglisverð ræða eftir sr. Þorstein Björnsson, en Þorsteinn Ó. Thorarensen skrifar greinina Nehru og Ungverjaland, þar sem skýrt er frá undarlegri afstöðu Ne- hrus í hinum veigamiklu Ung verjalandsmálum.Þykir í fram komu Nehrus þar skjóta nokk uð skökku við það réttlætis- hlutverk, sem hann ætlar sér í heimsstjórnmálunum. Margt annað efni er í heftinu, sem er hið stærsta og fjölbreytt- asta, sem enn hefur komið út af Stefni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.