Morgunblaðið - 13.06.1957, Blaðsíða 12
12
M O R C U 7V B l. 'A ÐIÐ
Fimmtudagur 13. júní 1957
Mikill undirbiiningui
undir síldarvertife
á Raufarhöfn
RAUFARHÖFN, 11. júní. — Mik-
ill undirbúningur fer fram á
Raufarhöfn undir komandi síld-
arvertíð. Verið er að byggja nýja
söltunarstöð dótturfélags KEA á
Akureyri. Unnið er að stækkun
stöðvanna, t. d. Óðins, Haf-
silfurs og Hólmsteins Helgason-
ar. Þá er unnið að endurbótum á
síldarverksmiðjum ríkisins, þeim
mestu sem verið hafa síðan nýja
verksmiðj an var byggð 1940.
Yfir hvítasunnuhelgina lágu
hér 3 flutningaskip og biðu los-
unar. Á annan dag hvítasunnu
var unnið á öllum vinnustöðum.
í dag losar Drangajökull tunnu-
farm og 2 önnur skip væntanleg
næstu daga með tunnur og salt.
Munu allar stöðvarnar verða til-
búnar til síldarmóttöku um
næstu mánaðamót. — Karl.
Fjórðungsþing ungra
Sjálfsfœðismanna
á Norðurlandi
Sigmundur Magnússon kosinn formaður
sambandsins
Frú Þórunn Jakobsdóttir afhendir Karli Karlssyni, vararæðismanni,
skrautritað þakkarávarp færeysku björgunarmönnunum til handa.
Fœreyingum þokkuð
björgun Coðanessmanna
Virðulegur sjémannadagur í Neskaupstað
hlaut merkasta afreksmerki sjó-
mannadagsins í Reykjavík, björg
unarafreksmerkið. Var það fyrir
hina frækilegu björgun skips-
hafnarinnar af vélbátnum Skúla
fógeta, en hann sökk í Faxaflóa í
nóvembermánuði s. 1.
—Fréttaritari.
SAUÐÁRKRÓKI, 4. júní: —
Fjórðungsþing ungra Sjálfstæð
ismanna á Norðurlandi, var hald-
ið hér á Sauðárkróki laugardag-
inn 1. júní sl. í Félagsheimilinu
Bifröst. Þingið sóttu fulltrúar úr
Eyjafjarðar- og Húnavatnssýsl-
um og frá Akureyri, Ólafsfirði,
Siglufirði og héðan úr Skaga-
firði, alls yfir 60 manns.
Var þetta fjölmennasta þing,
sem Fjórðungssambandið hefur
haldið til þessa. Á þinginu fóru
fram umræður um stjórnmál,
skipulagsmál sambandsins o. fl.
Ragnar Steinbergsson, formaður
sambandsins, baðst undan endur-
kosningu, en í hans stað var Sig-
mundur Magnússon frá Hjalteyri
kosinn formaður.
Um kvöldið var almenn
skemmtun í Bifröst á vegum
F.U.S. í Skagafirði. Formaður fé-
lagsins, Jón Björnsson í Bæ,
setti samkomuna, en Kristján
Skarphéðinsson stjórnaði henni.
Þorvaldur Garðar Kristjánsson
lögfr. og Stefán Friðbjarnarson
frá Siglufirði, fluttu ræður og
Neskuapstað, 3. júní.
HÁTÍÐAHÖLD sjómannadagsins
í Neskaupstað hófust klukkan 10
árdegis með hópsiglingu báta úr
flota Norðfirðinga. f siglingunni
tóku þátt 7 trillubátar og 14
stærri skip allt að 100 lesta skip-
um.
Nokkur af stærri skipum bæj-
arins eru í slipp til aðgerða fyrir
síldarvertíð og gátu því ekki tek-
ið þátt.
Flotinn lagði af stað frá bæj-
arbryggjunum kl. 10 og safnaðist
saman innst inni á Norðfirði. Þeg-
ar merki var fengið lagði allur
flotinn af stað, fremst smæstu
bátarnir og aftast þeir stærstu.
Réðu litlu bátarnir ferðinni og
var siglt hægt út allan fjörð,
framhjá bryggjunum og út fyrir
Eyri. Þar snéru bátarnir við, og
á bakaleiðinni voru þeir látnir
fara eins og þeir komust. Dróg-
wst þá litlu bátarnir aftur úr, en
samt virtust sumir þeirra ganga
mjög vel.
Mikill gangur var á stóru nýju
bátunum, og fallegt að sjá þá
bruna marga í hóp á fullri ferð.
SJÓMANNAMESSA
í kirkjunni var sjómannamessa
sem hófst klukkan tvö. Sr. Þor-
geir Jónsson, prófastur á Eski-
firði prédikaði, en sóknarprestur
Nessóknar flutti messu á Eski-
firði.
VBÐ SUNDLAUGINA
Klukkan fjögur hófst sarnkoma
við sundlaugina. Fór þar fram
keppni 1 stakkasundi og öðrum
gundgreinum, reiptog milli skips-
faafna og milli vélaverkstæðis-
manna og skipasmiða. Skipshöfn
Bjargar, NK-102, dró skipverja
af Þráni, NK-70, út í sundlaug-
ina, og hið sama gerðu vélaverk-
stæðismenn við skipasmiði. Þá
var og sýnt björgunarsund.
FÆREYINGUM FÆRT
ÞAKKARÁVARP
Við sundlaugina flutti frú
Þórunn Jakobsdóttir, formaður
kvennadeildar Slysavarnafélags-
ins í Neskaupstað ávarp til Fær-
eyinga og þakkaði þeim fórnfúst
starf við björgun skipbrotsmann-
anna af b.v. Goðanesi, sem fórst
við Færeyjar 2. janúar s. 1.
Færði frú Þórunn Færeyingum
skrautritað ávarp frá deildinni.
Ávarpið er svohljóðandi:
ÞAKKARÁVARP TIL
FÆREYINGA.
f nafni okkar kvennanna í
Neskanpstað, Norfirði ogr í
nafni alira aðstandenda skip-
verja af íslenzka togaranum
Goðanesi, er fórst við Færeyj-
ar 2. nýársdag 1957. Færum
við hér með færeysku björg-
unarmönnunum og öllum þeim
er aðstoðuðu við þessa björg-
un og veittu skipverjum hina
beztu aðhlynningu og hjálp,
okkar aluðarfyllstu og inniieg-
ustu þakkir.
Færeysku bræðraþjóðinni
árnum við allra heilla og bless
unar í framtíðinni.
Slysavarnadeild kvenna
Norðfriði.
Ávarpið var í fallegum ra*nma.
Umboðsmaður færeysku þjóð-
arinnar í Neskaupstað, Karl
Karlsson, vararæðismaður Dana,
veitti ávarpinu móttöku. Flutti
ræðismaðurinn stutt 'ávarp og
þakkaði Norðfirðingum þennan
viðurkenningarvott, sem frænd-
þjóðinni Færeyingum væri sýnd-
ur með þessu.
Lúðrasveit Neskaupstaðar lék
milli atriða við sundlaugina und-
ir stjórn Haralds Guðmundsson-
ar. — Samkoman við sundlaug-
ina var mjög fjölsótt, þrátt fyrir
óhagstætt veður. Kalt var í lofti,
og þegar reiptogið fór fram fór
að snjóa, en allan daginn var loft
skýjað, með upprofum þó.
Um kvöldið var dansleikur í
barnaskólahúsinu. H.G.-sextett-
inn lék fyrir dansinum. Var hann
fjölsóttur að vanda þenna dag.
Má segja, að öll hátíðahöld
þessa sjómannadags hafi verið
með virðulegum blæ, og ekki dró
það úr ánægju Norðfirðinga, að
einn úr hópi sjómanna þeirra,
Ásmundur Jakobsson, skipstjóri,
Skógræktoifékg Suðuraesja
gróðursetti 4 þús. plöntur s.l. úr
AÐALFUNDUR Skógræktarfé-
lags Suðurnesja var haldinn
fimmtudaginn'l23. maí s.l. í Barna
skóla Keflavíkur.
í fundarbyrjun sýndi Snorri
Sigurðsson, ráðunautur skóg-
ræktarkvikmyndina, og á eftir
söng Karlakór Keflavíkur, en kór
félagarnir höfðu horft á - þessa
fallegu kvikmynd.
Merkjasalan til eflingar Skóg-
ræktarsjóði Suðurnesja, sem
hófst síðasta sunnudag í maí 1956,
hefur gengið, vel og virðist áhugi
manna í skógræktarmálum fara
vaxandi þar syðra, sem í öðrum
landshluíum.
Á árinu Voru gróðursettar
nærri 4000 trjáplöntur í fjórum
skógræktargirðingum, og mörg
börn úr Gerðaskóla hafa gróður-
sett trjáplöntur við heimili sín
með góðum árangri.
Ný girðing var sett upp í Sól-
brekkum á Vogastapa s.l. vor og
önnur í vor við Grindavík.
Byrjað var s.i. vor á þvi að sá
grasfræi og bera áburð í flög og
mela innan girðinganna. Bar það
góðan árangur og hefir því verið
haldið áfram í vor í vaxandi
mæli. Þessa starfsemi félagsins
hefur Egill Hallgrímsson, kennari
frá Vogum stutt með ráðum og
dáð.
Hagur félagsins er góður, enda
má svo heita, að öll störf séu unn-
in endurgjaldslaust.
Tvær nýjar skógræktardeildir
hafa verið stofnaðar í vor á
félagssvæðinu: Skógræktarfélag
Miðnesinga 19. maí, og Skógrækt-
arfélag Grindavíkur 28. maí, svo
að félagsdeildirnar í Gullbringu-
sýslu eru nú orðnar sex. Nýir
menn frá hinum nýstofnuðu deild
um hafa nú tekið sæti í stjórn
sýslufélagsins, en hana skipa: Sig
uringi E. Hjörleifsson formaður,
Huxly Ólafsson varaformaður,
Ragnar Guðleifsson, ritari, Þor-
steinn Gíslason, gjaldkeri, og
meðstjórnendur: Árni Hallgrims-
son, Gísli Guðmundsson og Svaf-
ar Árnason.
í varastjórn voru kjörnir: Her-
mann Eiríksson, Ingvar Guð-
mundsson og 'Sólveig Ólafsdóttir.
— Endurskoðendur: Rögnvaldur
Sæmundsson og Karl Björnsson.
Snorri Sigurðsson, skógræktar-
ráðunautur sat fundinn og leysti
greiðlega úr margvíslegum fyrir-
spurnum fundarmanna.
var máli þeirra beggja prýðilega
tekið.
Skemmtiatriði önnuðust þeir,
Kristinn Hallsson, Sigurður Ól-
afsson, Fritz Weisshappel og
Skúli Halldórsson. — Að lokum
var dansað af miklu fjöri til kl.
2. e. m. Skemmtanirnar sóttu um
400 manns. Var það einróma álit
allra er þingið og skemmtanirnar
sóttu, að hvorutveggja hafi verið
ungum Sjálfstæðismönnum til
hins mesta sóma. Sérstaklega var
unga fólkið ánægt með hið fjöl-
menna þing, sem sannaði ótví-
rætt, að Sjálfstæðisflokkurinn á
sívaxandi fylgi að fagna í Norð-
lendingafjórðungi. — Jón.
Innheimfa L. f.
flyfur bráðlega
INNHEIMTA Landssímans mun
bráðlega flytja í hið nýja hús-
næði sitt í Landssímahúsinu, ný-
byggingunni, og verður gengið
þangað inn frá Aðalstræti.
í sambandi við þetta verður
ýmissi tilhögun breytt, m.a. verða
næstu tveir ársfjórðungsreikn-
ingar fyrir umframsímtöl miðað-
ir við 4 mánuði í stað 3 áður,
Þannig miðast júlíreikningurinn
við umframsímtöl í jan., íebr.,
marz og apríl s. 1. Þess má geta,
að í júlíreikningnum koma fram
umfram-símtöl, sem fóru fram f
febrúar s. 1., þegar breytingar
fóru fram á sjálfvirkju stöðinni,
er orsökuðu talsvert af skökkum
númerum. Mun verða athugað,
hvort umframsímtöl einstakra
notenda hafa þá orðið óeðlilega
mörg, og hvort þess vegna telj-
ist réttmætt að gefa afslátt á
reikningum þeirra.
liddari af Pálmaorðunni
FRANSKA ríkisstjórnin hefir
útnefnt Sigurjón Markússon,
fyrrverandi embættismann, bú-
settan í Reykjavík, Riddara
Pálmaorðu frönsku Akademíunn-
ai fyrir starf hans í þágu Menn-
ingarsambands Islendinga og
Frakka.
Heiðursskjalið og heiðursmerk-
ið voru voru afhent honum af
Ambassador Frakklands á ís-
landi, herra Henri Voillery, við
móttökuathöfn, sem gerð var í
sendiráðinu í þessu tilefni.
Guðmundur á Hvítárbakka
— ICveðja
Þú lyftir þér á herðar bóndans
byrði
og brást ei trú á líf og heima-
svörð,
Norðfirðingar fjölmenntu við hátíðahöld Sjómannaðagsins.
að sýna grönnum hvers er vert
og virði
að varða leið og bæta tun og
hjörð.
Það tókst að kotsð konungsgarður
yrði
með karlmannlegri athöfn þinni
og gjörð
svo allra hugir upp í Borðarfirði
við útför þína standa heiðurs
vörð.
Eg stenð í f jarlægð fátækur af
orðum,
en finn og skil að það er gæfa
min
að eiga með þér nokkra fundi
forðum
og fá að muna bros og handtök
þin.
Það skal ei mitt þér erfiljóð að
yrkja,
því efni skortir til og snillibrag.
Drag skó af fótum, krjúpum, hér
er kirkja,
við kistu göfugs manns við
sólarlag. A. G. E.