Morgunblaðið - 13.06.1957, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 13.06.1957, Qupperneq 14
14 M O RGU N BL AÐIÐ Fímmtuclagur 13. júní 1957 Peningaskápur (Lips) stór og vandaður, til sölu. IVSjólkurfélag Reykjavtkur Læknastofur I.æknir óskar eftir að kaupa húsnæði fyrir lækninga- stofur. í>arf að vera vel staðsett í bænum. Uppl. gefur Málflutningsskrifstofa VAGNS E. JÓNSSONAR, Austurstræti 9, Sími 4400. Vörumerkið „CELLOPHANE" Athygli er hér með vakin á því, að British Cellophane Limited, Bath Road, Bridgwater, Somerset, Englandi, t iðjurekendur, eru skráðir eigendur á Islandi að neðan- greindu vörumerki: „CELLOPHANE“ sem er skrásett nr. 175/1947, fyrir arkir úr cellulose og cellulose umbúðir og innpökkunarpappír. Notkunin á orðinu „CELLOPHANE“ fyrir ofangreindar vörur þýðir, að slíkar vörur eru frá British Cellophane Limited, og notkun þess fyrir sérhverjar aðrar slíkar vörur er brot á rétti British Cellophane Limited. Aðvörun. Slíku réttarbroti verður mætt með lögsókn í þágu við- skiptavina og notenda, og af eiganda ofangreinds vöru- merkis. Aðeins litib eitt rtægir... þvi rakkremið er frá til að fullkomna raksturinn. Það freyðir fljótt og vel . . . og inniheldur hið nýja K34 bakteríueyðandi efni, sem einnig varðveitir mýkt húðarinnar. Reynið eina túpu í dag. Gillette „Brush!ess“ krem, einnig fáanlegt. Heildsölubirgðir: Globus h/f. Hverfisgötu 50, sími 7148. Nauðsyntegt að efla atvinnulíf Sauðárkróks „Skagfirðingi" svarað Eftir Kristmund Bjarnason, Sjávarborg i. HINN 1. MARZ sl. sendir „Skag- firðingur" mér kveðju sína í Tím anum og auglýsir mér að kostn- aðarlausu, að ég sé „eitthvað kunnur fyrir að þýða rómana", en lætur þess jafnframt getið, að svo virðist sem mér láti „öllu miður“ „samtíma sagnritun". Láir mér víst enginn, þótt ég sé ekki jafnfær á svo óskyld við- fangsefni sem að íslenzka skáld- rit og semja sagnfræðirit. En höf. fer um þetta allt líknarhöndum, ber smyrsl á sárið með því að kalla mig „sagnritara". Hér er mikið sagt, svo mikið, að mér er nær að ætla, að höf. hafi af misgáningi orðið á að rita „rom- an“ (slcáldrit) fyrir orðið „reyf- ari“, sem notað er um minni háttar skáldsögur, enda mætti þá segja að hann hefði riðið bagga- mun af skáldfákinum. Höf. skipar sagnfræðinni veg- legri sess í greinarkorni sínu, enda þar fremur umvöndunar þörf, að hans hyggju. Hann segir: „Sá hefur jafnan þótt einn aðal- kostur sagnaritara að vera vand- ur að heimildum og skýra hlut- laust frá atburðum". Ég er alveg á sama máli og sýslungi minn, og ég get bætt því við, að ekki er vandfýsin ein nóg um val heimilda, heldur verður sá, sem notar, að kunna með þær að fara og brengla þær ekki. Á þessu hefur orðið nokkur misbrestur hjá greinarhöf. Ég nefni dæmi: Hann hefur grein sína með því að segja, að undirritaður hafi skrifað grein í Tímann 5. febr., „sem hann nefnir þætti úr at- vinnu- og framfarasögu Sauðár- króks“. Þetta er rangt. Sögu- rannsóknin hefur gleymzt. Fyr- irsögn greinarinnar og greinar- gerð hennar er samin á ritstjórn- arskrifstofum Tímans, og mun ritstjórinn geta staðfest það. Ef höf. hefði verið lítið eitt kunnari blaðamennsku og beitt sögurann sókninni, hefði hann farið nærri um, að blaðamenn setja fyrir- sagnir oft og einatt að geðþótta sínum — og er engin goðgá, þeg- ar ekki er sérstaklega mælzt til hins gagnstæða. Grein mín hét: Siguröur Sigfússon og atvinnulíf á Sauðárkróki, og ber nafn grein- arinnar með sér, að aldrei var ætlun mín að rita um önnur fyrirtæki en þau, sem S.S. stjórn ar ,enda kemur þetta og glögg- lega fram í greininni. Er þá burtu fallin, að því er virðist, uppi- staðan fyrir grein „Slcagfirðings“, en ívafið er af líkum toga. Ekki tekst höf. betur að fara rétt með heimildir, sem hann hefur aflað sér. Hann vitnar í gamalt kvæði eftir Isleif vin minn Gíslason, birtir eina Ijóð- línu og tekst að rangfæra hana: „Sauðárkrókur er sérleg borg“ í stað „séleg borg“. Slík brengl- un bendir til þess, að höf. sé ósýnt um að lesa kvæði sér til gagns, enda gat honum naumast hlálegar farið en að bera fyrir sig þetta hálffertuga skopkvæði ísleifs, og er raunar óhugsandi, að hann hefði gert það, ef hann hefði kunnað kvæðið allt. Svona „sérlegur" maður ætti að forð- ast húmoristiskan kveðskap sem heitan eldinn. Enn segir collega minn, sagnritarinn, að tilefni greinar minnar virðist vera „orða skipti þeirra Hjálmars Theódórs- sonar og Sigurðar Sigfússonar í Tímanum 5. og 30. janúar sl.“. — Maðurinn virðist hafa lesið alla grein mína sem ónefnd per- sóna biblíuna, þar eð ég tek fram í Tímanum, hvers vegna grein mín sé rituð og þess getið, að hún sé skrifuð 28. jan. eða tveim- ur dögum áður en grein S.S. birtist í blaðinu. Enn er sá sagn- fræðilegi galli á grein höf., að honum láist að geta nafns, og er ég hræddur um, að slíkt þyki draga úr gildi heimildar, sem nota á við „samtíma sagnaritun", enda þótt sumum þyki nafnleynd benda á lítillæti og hæversku, þegar gjafir eru gefnar. Ég end- urtek því: „Sá hefur jafnan þótt einn höfuðkostur sagnritara að vera vandur að heimildum og skýra hlutlaust frá atburðum". II. En sagnritarinn er ekki af baki dottinn, og er furða, hvað hann situr klárinn. Hann segir: „K.B. gefur í skyn, að Sigurður Sig- fússon hafi verið eini atvinnu- rekandi á Sauðárkróki síðan 1945“. Á öðrum stað vitnar hann þó orðrétt í grein mína, þar sem ég get þess, að sláturhús K.S. geti tekið á móti helmingi fleira fé til daglegrar slátrunar en slát- urhús S.S. Og þó segir hann: „Einhverja mun nú ef til vill reka minni til þess, að kaupfé- lagið hafi verið starfandi á Sauð- árkróki um áratugi, þótt sagna- ritaranum hafi sést yfir það smá- ræði“. Aumingja maðurinn. í greinni hefur mér og láðst að geta um „rafveitur, hitaveitu og vatnsveitu o. fl.“. Ég veit ekki til, að nefnd fyrirtæki séu í svo nánum tengslum við S.S. og fyr- irtæki, sem hann stjórnar, að ég hefði átt að geta þeirra. Þá telur höf. það frumlega kenningu hjá mér, að sá, sem tekur að sér byggingaframkvæmd ir sé atvinnuveitandi, „en ekki sá, sem kostar bygginguna“. Skv. kenningu „Skagfirðings“ hafa þá flestir fjölskyldufeður á landi hér verið atvinnuveitend- ur, ef þeir þá ekki eru það alltaf, Ég tel t.d. að telja megi bygg- ingafyrirtæki S.S. atvinnuveit- anda á Sauðárkróki, en það send- ir vinnuflokka þaðan til starfa við byggingar svo og svo margra íbúða- og peningshúsa í hérað- inu. Með sama rétti má kalla fyrirtæki, sem tekur að sér fram- kvæmdir í ákvæðisvinnu, at- vinnuveitanda. Annars mætti margt um þetta segja, en ég læt við það sitja, sem ég sagði í fyrri grein minni um þróun atvinnulífsins á Sauðárkróki. Það stendur enn óhaggað. Hitt er svo auðsætt, að þetta vefst allt fyrir höfundi, þar eð hann talar um hinn raunverulega atvinnuveit- anda, rétt eins og óraunveruleg- ur atvinnuveitandi væri með f leiknum, og ef hann vill telja S.S. óraunverulegan, er það reiðilaust af mér. III. Síðan víkur „Skagfirðingur" aS sláturhúsmálum héraðsins og sér allt tvöfalt eins og við mátti búast. Hann nefnir nokkrar tölur um sláturfé hjá sláturfélögunum, en forðast eins og heitan eldinn að minnast á hrossaslátrun á undanförnum árum, enda hefði reikningurinn þá orðið óhagstæð- ari að mun. Svo klykkir hann út með þessari setningu: „Þannig hljóðar nú helmingareikningur K.B. um slátrunina". Þeir, sem lesið hafa grein mína, mega gerzt vita, að ég minnist hvergi á helm- ingareikning um slátrun. Ég sagði, að sláturhús S.S. gæti tek- ið á móti 600 fjár á dag eða helmingi á móts við sléturhús K.S. Höf. virðist rugla saman afköstum og afkastagetu fyrir- tækja, og er það að vonum. Hitt veit greinarhöf. vafalítið fullt eins vel og ég, að fjöldi bænda er bundinn við K.S. vegna skulda og fyrirfram gefinna loforða um fjölda sláturfjár, og sætir ekki furðu, þótt ríkt sé gengið eftir, að slík loforð séu efnd. Það er von mín, að sláturhús S.S. eigi enn eftir að hlaupa undir bagga með bændum, er með þarf, en ef eitthvað er að marka upplýs- ingar greinarhöf. um slátrun þar sl. haust, gætu þær bent til þess, að fyrirtækið sé að draga saman seglin og ætlun þeirra félaga sé nú að snúa sér einvörðungu að útgerðinni. IV. Loks eru verzlunarmálin reif- uð, og enn er höf. við sama hey. garðshornið. Hann segir: „Þegar feitfiskvélar þær, sem S.S. fékk frá Dagverðareyri, stóðu þar uppi í verksmiðjunni, töldust þær MAGMETUR ^2-4^1- Nýkomið mikið af varahiutum: Dynamoar í Austin 8 Dynamoar í Prefect. Kveikjur í Prefect. Anker, margar gerðir. Coil 6—12 volt Cutout 12 volt Þurrkurofar o. m. fl. af varahlutum. Verzlun Friðriks Bertelsen TRYGGVAGÖTU 10 — SÍMI 2872.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.