Morgunblaðið - 16.06.1957, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 16.06.1957, Blaðsíða 2
2 MORCVyBLAÐIÐ Sunnudagur 16. júnl 1957 16 þjóðir í heimsmeist- arakeppni stúdenta í skák Mólið verður hér - Rússar sferkastir 4 HKIMSMEISTARAKEPPNI stúdenta í skák verður haldin í Reykjavík dagana 11.—26. júlí n. k. — 16 þjóðir hafa tilkynnt þátttöku og verið getur að 2 bætist við. Verður þetta stærsta kapp- Kiót sem hér hefur verið haldið, því hingað koma um 100 erlendir skákmenn til keppninnar. Teflt verður í Gagnfræðaskóla Austur- bæjar dag hvern frá 7.—12. að kvöldi en biðskákir tefldar að morgni. — * ÞÁTTTÖKU ÞJÓÐIRNAR Þessar þjóðir hafa nú tilkynnt þátttöku: Bandaríkin, írland, ísland, England, Danmörk, Sví- þjóð, Finnland, A.-£>ýzkaland, Tékkóslóvakía, Pólland, Rúmen- ia, Ungverjaland, Búlgaría, Rúss land, ísrael og Ytri-Mongólía. — Auk þess hafa Equador og Júgó- slafía gert fyrirspumir og má búast við að Júgóslavar komi, en þeir eru nú í keppnisför í Banda- ríkjunum. Ef þátttökuþjóðimar verða 16 ekis og nú horfir, verður teflt í einum riðli, það er allar við eina eg em við allar, en verði þær fleiri verður skippt í tvennt og keppt í A og B flokki. ★ FRÆGIR SKÁKMENN ' Margir frægir skákmenn eru aoeðal keppendanna en þó liggja enn ekki fyrir endanleg- ar upplýsingar um þá alla. Rússneska sveitín verður án efa sterkust, en hana skipa 1. borð Spasskí, heimsmeistari unglinga, 2. borð Tal, núver- andi Rússlandsmeistari, 3. borð Nikitin og 4. borð Polug- ajavski. Danska sveitin verður og sterk, Bent Larsen á 1. borði tefla annars þessir ma.: meistari á 2. borði. Á fyrsta borði tefla annar þessir m. a.: England: Persitz, Tékkósló- vakía: dr. Filip, Ungverja- land: Benkö, A-Þýzkalandi: Dittmann, Bandarikin: Lom- bardy, ísland: Friðrik Ólafs- Svefnlausi brúðgum- inn á Akureyri HAFNARFIRÐI — Leikfélag Hafnarfjarðar fer 20. þ. m. i leik- för til Akureyrar og mun sýna, þar hinn bráðsnjalla gamanleik Svefnlausa brúðgumann, eftir Arnold og Bach í þýðingu Sverris Haraldssonar. Leikurinn var sýndur 35 sinn- um hér syðra við geysilegar vin- sældir og frábærar undirtektir áfaorfenda, enda af kunnugum tal iun einn bezti gamanleikur þess- ara góðkunnu höfunda. Klemens Jónsson hefir sett leik inn á svið, en leiktjöldin málaði Lothar Grundt. Leikendur eru Friðleifur Guð- mundsson, Þóra Borg, Margrét Magnúsdóttir, Sólveig Jóhanns- dóttir, Eiríkur Jóhannesson, Sig- urður Kristins, Sverrir Guð- mundsson, Eyjalín Gísladóttir, Nlna Sveinsdóttir, Kristín Jó- hannsdóttir, Sína Arndal og Jó- hannes Guðmundsson. Fyrsta sýningin á Akureyri verður á fimmtudagskvöldið 21. júní. — Ekki þarf að efa, að Svefnlausi brúðguminn mun afla sér áþekktra vinsælda á Akur- eyri og hér syðra, og mun því ráðlegt fyrir þá Akureyringa, sem hafa hug á að sjá leikinn, að tryggja sér aðgöngumiða tíman- lega, því að sýningar nyTðra geta ekki orðið nema örfáar. í júiímánuði mun svo L. H. heimsækja Rangæinga, Árnes- inga, Borgfirðinga og Akumes- inga með Svefnlausa brúðgum- ann, svo þeim gefist kostur að hlæja ósvikið eina kvöidstund. í ★ STÓRT MÓT OG DÝRT Skákmennirnir koma 9. og 10. júlí flugleiðis. Greiðir ísland sem svarar 2/3 af ferðakostnaði 4 manna sveita frá hverju landi frá Kaupmannahöfn. Mótið er því dýrt fyrirtæki og kostar langt umfram það sem bær og ríki hafa styrkt stúdentaráð og skáksam- bandið, sem sjá um mótið. Margir hafa svo hlaupið undir bagga, en vonast er eftir að enn fleiri geri það. Ýmis tengslafélög íslands og annarra landa hafa boðist til að greiða kostnað við dvöl skák- sveitar viðkomandi lands d. t. greiðir félagið Suomi dvöl Finn- anna og fleiri slík félög hafa lof- að hinu sama eða eru að athuga möguleika á að gera svo. Skákmennirnir búa í heimavist Sjómannaskólans og borða í mat- sveinaskólanum í sama húsi. Sérstök nefnd sér um mótið og er Pétur Sigurðsson háskóla- ritari, formaður hennar,, en hún er að öðru leyti skipuð fulltrúum háskólans, rík isstj órna r: nnar, bæj arstjórnarinnar, skáksambands- ins og stúdentaráðs. 100 nýstúdentar kvöddu Menntaskólann í gærdag 452 nemendur við skólann í veiur. IGÆR lauk 111. skólaári Menntaskólans í Reykjavik. — Skóla- slitaathöfnin var rétt að byrjá þá er blaðið var tilbúið til prentunar, svo ekki er unnt að birta mynd af nýstúdentum eða rekja skólaslitaræðu hins nýskipaða rektors Kristins Armanns- sonar. I gær brautskráðust frá skólanum 100 stúdentar. í upphafi skólaársins voru nem endur alls 452, þar af 174 stúlkur og 278 piltar. Flestir nemendur eru héðan úr Reykjavík eða ná- grenni. Undir árspróf gekk 361 nem- andi, 336 luka prófi, og stóðust það 311, en 25 féllu, flestir'í III. bekk. STÚDENTSPRÓF Undir prófið gengu 95 skóla- nemendur, 5 utanskóla, þar af 69 í máladeild, 31 í stærðfræðideild. Fjórir stúdentar eru með ág. eink. 50 I. eink., 45 II. eink. og 1 III. eink. Hæstar einkunnir hlutu þessir: í máladeild: Jónatan Þórmunds son, 6 B, ág. eink. 9.66 (prófs- eink. 9.75). Er þetta hæsta eink- sem tekin hefur verið við skól- ann síðan núv. eink. stigi var tekinn upp. Gísli Þorsteinsson, 6 B, ág. eink. 9.47. Hinn 17. júní árið 1953 brauzt út uppreisnin í A-Berlín, hin nafntogaða uppreisn a-þýzkrar æsku gegn rússnesku oki. Víða er þessa dags minnzt í virðing- arskyni við þær fjölmörgu þjóð- ir, sem sitja í hlekkjum kommún- ismans. Rússneski herinn í A- Þýzkalandi hefur og sérstakan viðbúnað til þess að berja niður uppreisnartilraunir, því að komm únistar hafa allt frá því að upp- reisnin i Ungverjalandi var brot- in á bak aftur á svo eftirminni- legan hátt óttazt, að a-þýzkt æskufólk gerði örvæntingarfulla tilraun til þess að hrynda drottn- urunutn af höndum sér. Þorsteinn Þorsteinsson, 6. B, I. eink. 8,93. Svanhildur Sigurðardóttir, 6. A, I. eink. 8,64. v f stærðfræðideild: Gylfi Guðnason 6. X, ág. eink. 9.04. Tryggvi Ásmundsson, 6. X, I. eink. 8,72. Sigurður Bjömsson, 6. Y, I. eink. 8.70. Heiðar Hallgrímsson, 6 Y, I. eink. 8,24. Tólf stúdentanna hlutu verð- laun úr hinum ýmsu sjóðum, sem viðurkenningu veitta fyrir náms- afrek, iðni, siðprýði og framfarir. Myndin er tekin á Kastrup-flugvellinum í Kaupmannahöfn, er leikflokkur Þjóðleikhússins kom þangað. Á myndinni eru frá vinstri: Brynjólfur Jóhanncsson, Arndís Björnsdóttir, Guðlaugur Rósinkranz og Leikflokki Þjóðleikhúss- ins vel fagnað í Höfn KAUPMANNAHÖFN, 15. júní. — Einkaskeytí tíl Mbl. HÚSFYLLIR var í „Folketeatret“ í gærkveldi, er leikflokkur Þjóð- leikhússins sýndi „Gullna hliðið", enda þótt leikurinn væri flutt- ur á íslenzku. í leikslok voru höfundar og leikarar kallaðir fram á sviðið með dynjandi fagnaðarlátum. Thorvald Larsen, framkv.stj. „Folketeatret“ steig upp á sviðið og flutti ræðu. Þakkaði hann leik flokki Þjóðleikhússins fyrir kom una. „Ég þakka Þjóðleikhúsinu fyrir að hafa opnað ævintýraríki „Gullna hliðsins“ fyrir okkur í kvöld“ — mælti hann að lokum — og afhenti Guðlaugi Rósin- kranz lárvlðarsveig. Þjóðleikhússtjóri þakkaði fyrir móttökurnar og sagði það mikinn viðburð fyrir hið sjö ára islenzka Þjóðleikhús að heimsækja hið 100 ára „Folketeater". Hæstiréttur dæmir ■ frægu landhelgismáli Þór fékk leyfi forseta til að veita landhelgisbrjótum eftirför á haf út FRÆG varð etfirfor sú úr lofti og af sjó, er belgiski togarinn van Dyck var tekinn fyrir að hafa verið að veiðum í land- helgi við Ingólfshöfða. Þrjár flugvélar og varðskipið Þór tóku þátt í þessum aðgerðum gegn togaranum. Hefir skipstjóri hans nú verið dæmdur í Hæstarétti í 75 þús. króna sekt og þar með staðfest dóm undirréttar í málinu. Þeta gerðist í júnímánuði 1955. Starfsmenn strandgæzlunnar, und ir stjórn Guðm. Kærnested, lóru þá í könnunarflug í einum Fax- anna, og var flogið austur að Ingólfshöfða, en þar komu þeir að belgiska togaranum í landhelgi og var hann þar að veiðum. Land helgisgæzlumönnum mældist tog arinn vera um 3 mílur fyrir innan fiskveiðitakmörkin. Fram til kvölds var togarinn stöðugt að veiðum, ýmist innan landhelgis eða þá rétt utan. Skipta varð um flugvélar, þvi að sú, er fyrst fór, hafði ekki nóg eldsneyti. Varðskipið Þór var þennan dag í Vestmannaeyjum, en þangað hafði það flutt forsetann, sem var í opinberri heimsókn þar. For- stjóra landhelgisgæzlunnar, Pétri Sigurðssyni, og skipherranum Eiríki Kristóferssyni, bárust fregnir um hinn belgiska togara, og var beðið um aðstoð varð- skipsins til þess að taka skip- stjórann. Barst þessi orðsending þá er þeir hlýddu messu í Landa- kirkju og var þá þegar brugðið skjótt við. Forsetinn gaf leyfi til þess tafarlaust að varðskipið færi á vettvang. Á meðan á þessu gekk og allt til klukkan 10 um kvöldið var togarinn að veiðum í og við land- helgina, en þá setti hann á fulla ferð og hélt til hafs. Kom nú þriðja flugvélin á vettvang, kata linabátur Flugfélagsins, sem elti togarann til hafs, sveimaði stöð- ugt yfir honum. Gott sjóveður var. Togarinn silgdi með fullri ferð og einnig Þór sem var mun gangmeira skip og brátt minnk- aði bilið milli slripanna. Þannig var hinn belgiski skipstjóri á flótta fram undir klukkan 3 um nóttina, en þá nam hann staðar eftir að skotið hafði verið stöðv- unarskotum að skipi hans, en það var þá komið 60 míl. á haf út. Þór flutti síðan togarann til Reykjavíkur, en þar viðurkenndi skipstjórinn fyrir rétti að hann j hefði verið fyrir innan 4 mílna friðunarsvæðið, hina gömlu frið- unarlínu. f forsedadóm Hæstaréttar segir m.a., að ekki hafi getað hjá því farið að skipstjóranum hafi verið það ljóst, að um gæzluflugvélar var að ræða. Rétturinn taldi kl. lögsögu taka til skipsins, þótt það hafi verið komið svo langt frá landi, þar eð flugvélin hafi stöð- ugt fylgt togarnum, unz varð- skipið tók við eftirförinni og gat stöðvað togarann. Ellen Malberg flutti íslenzku leikurunum þakkir og kveðjur danska leikarasambandsins og af- henti Arndísi Björnsdóttur mik- inn blómvönd í íslenzku litun- um. ★ í „Berlingske Tidende", segir Carsten Nielsen í morgun, að gestaleikurinn hafi verið mik- ill viðburður á leiklistarlíf- inu í Kaupmannahöfn. Þetta var fyrsta heimsókn Þjóðleik- hússins til okkar, heimsókn, sem við fögnum, segir hann. Leikrit Davíðs Stefánssonar er frekar skáldleg opinberun en dramatískt skáldverk. — Frá dönsku sjónarmiði er bygging leiksins ábótavant, þar vantar æskilega þróun og vaxandi þunga. En persónulýsingar — þar sem hin íslenzku skapein- kenni koma fram — eru mjög frábærar. Nielsen lofar sér- staklega leik Arndísar Björns- dóttur. „Socialdemokraten“ segir, að sýningin í heild hafi ekki haft mikið listrænt gildi. Ópercttan „Sumar í Týroól** nýtur mikilla vinsælda meðal bæjarbúa og hefur verið uppselt á flestar sýningarnar. Þessi skemmtilegi söngleikur verður sýndur i aðeins tvær vikur enn, því um mánaðamótin lýkur leikári Þjóleikhússins. Myndin er tekin úr þriðja þætti óperettunnar og sýnir Rósu Sigurðardóttur og Helga Skúla- son í hlutverkum sinum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.