Morgunblaðið - 16.06.1957, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 16.06.1957, Blaðsíða 13
Sunnudagur 16. júní 1957 MORCVTSUL Afíir 13 Erfitt að dæma hver er fegurst Örstutt samtöl v/ð fegurðar- dísirnar úr Tivolí þar um falla, að fyrr mætti nú vera dauðans heimskan, að byggja svona dýrt á þessu koti, þar sem aldrei væri hægt annað en svelta! Ég get sagt frá því líka, að einn mætur og merkur maður, sem Jóhann Jensson hét,-sagði við mig, að það væri leiðinlegt, að ég. svona góður maður, eins og hann orðaði það, skyldi verða til þess að ráðast í þessa vitleysu og fara svo á hausinn með allt saman. Ég spurði hann hvprt þetta væri svo alvarlegt. Ég yrði áreiðanlega ekki fyrir þeim, sem farið hefðu á hausinn á undan rr ér, enda væri alls ekki víst að svo færi, en þá sagði hann: „Farir þú ekki á hausinn með þetta „Christian", þá ertu göldróttur." En þegar ég leit við og ætlaði að svara, þá var hann horfinn. Hefur víst ekki búizt við, að á svarinu væri mikið að græða. 1 þriðja lagi var það ákvæði í lögunum um byggingar, en hann hafði lánað fé til bygging- arinnar, að eignir þær, serp sjóð- urinn lánaði út á, mætti ekki selja, leigja eða framvísa til erfða nema með leyfi sjóðsstjórnarinn- ai, og verðið mætti aldrei vera hærra en fasteignamatsverð. Þeg- ar stjórn Sparisjóðs Bolungarvík- ur varð kunnugt um þetta á- kvæði, þá kippti hún algerlega að sér hendinni með 1 án til framkvæmda, enda þótt hún hefði áður lofað, að verkið yrði ekki stöðvað af fjárhagsástæðum, og hefði hún vitað um þetta á- kvæði áður, þá hefði hún aldrei lánað í það eina krónu, og bygg- ingin þá sennilega aldrei orðið, er.da gerði ákvæðið eignina al- gerlega óveðhæfa. Samhliða þessu kipptu allir að sér hendinni, bæði hvað vinnu snerti og efnissölu, nema greitt væri eftir hendinni, sem ekki var hægt. Eg get bent á sem dæmi, að um áramótin 1930 og ’31, þá var verkið eiginlega stöðvað af fjár- hagsörðugleikum. Þá var ekki hægt að borga smiðunum og öðr- um, sem við bygginguna unnu, og lánstraust til efniskaupa virt- ist vera þrotið. SYNJAÐ DM 150 KRÓNA VÍXIL, Nú var lángreiðslum frá bygg- ingar- og landnámssjóði þannig háttað, að fyrsti hlutinn er greidd ur: þegar efni var komið á bygg- ingarstað, annar, þegar húsin voru komin undir þök, og hinn þíáðji, þegar byggingarmeistari hafði tekið bygginguna út. Nú stóð þannig á, að járnið, sem átti að fara í þökin var innifrosið á afgreiðslu Djúpbátsins. Honum skuldaði ég 150 krónur fyrir flutninga, og afgreiðslumaður Djúpbátsins á ísafirði hafði fyrir- skipað afgreiðslumanni hér í Bolungarvík að láta selja járnið ti) greiðslu á flutningsgjöldum. Þá fór ég til Sparisjóðsstjórans í Bolungarvík og bað hann lána mér 150 króna víxil, mætti vera til eins mánaðar, og hann mætti nefna hvaða ábyrgðarmenn, sem hann vildi, svo hægt væri að leysa út járnið, koma þökum á húsið og fá greiddan annan hlut- ann úr bygigngar- og landnáms- sjóði. En hann sagði nei. Þá stakk ég upp á eitt hundrað krónum, og bað hann leggja þá beiðni fyr- ir stjórn Sparisjóðsins, en þá sagði hann: „Með mínu samþykki færð þú enga krónu, meir en þú hefur fengið út á þessa bygg- ingu. Og ég get sagt þér, að í gærkvöld kom hingað maður, sem þig getur líklega grunað hver var, sat yfir mér fram á rótt. Hann lamdi hér allt fast og laust og sjálfan sig líka og sagði, að ef ég lánaði eina krónu meira í þessa vitleysu, þá myndi hann og öll sín fjölskylda, taka út hverja krónu, sem það ætti inni í sjóðnum". Þetta voru nátt- úrlega engin gleðitíðindi, en þó fannst mér, að það væri eitthvað hressandi við þessa yfirlýsingu. Mér fannst þarna vera óafvit- andi einhver ógnandi storkun til þess að gefast aldrei upp við þetta verk, enda hafði mér aldrei dottið það í hug. Byggingunni varð þó haldið áfram og í marzmánuði 1931 vár flutt í húsið með fólk og búfén- að að nokkru leyti og þá um haustið eru öll húsin tekin í notk- un og fullgerð að heita mátti og tekin út af byggingarmeistara, sem lauk lofsyrði á styrkleika þeirra og frágang. Þá er jörðin virt til fasteignamats á kr. 30.000 1940 á svo að gera nýtt fasteigna- mat. Þá höfðu matsmenn fengið þau fyrirmæli frá yfirfasteiga- matsnefnd að byggingar skyldu aldrei metnar á hærra verði en landið. Þegar þeir komu til mín að segja mér frá þessu, þá mátti á þeim skilja, að erfitt væri að framfylgja þessum fyrirmælum hér. Ég sagði við þá: „Nú gerið þið annað hvort að meta þessar eign- ir eins og þið teljið réttmætt eða fylgið algerlega fyrirmælum nefndarinnar11. En þeir gerðu hvorugt. Þeir mátu eignina á kr. 13.000.00. ÁTXI AÐ SELJA JÖRÐINA Þetta líkaði yfirfasteignamats- nefnd ekki. Hún lækkaði matið niður í kr. 8.000.— og þá fór nú fyrir alvöru að syrta í álinn. Ég skrifaði Bjarna heitnum Ás- geirssyni bréf, en hann var for- maður nefndarinnar. Ákaflega hógvært bréf að ég taldi, og ósk- aði leiðréttingar eða skýringar á slíkri matsgerð. Þessu bréfi svar aði Bjarni aldrei. Ári síðar fæ ég svo bréf frá bankastjóranum, þar sem hann skýrir mér frá því, að hann hafi beðið sýslumann á Isafirði að selja eign mína vegna vanskila við bankann. Til þeirrar sölu kom ekki, þar eð hagur minn hafði þá batnað það, að mér var unnt að gera bankanum full skil. 1942 kom svo út nýtt fasteigna- mat og þá hafði matið hækkað í rúm 20.000.—. „Hvað er þá töðufallið orðið núna af jörðinni, Kristján?" „Ég taldi mig hafa fengið árið 1955 um 900 hesta af henni, en 1956 var það mun minna, enda var þá lVz hektari í flögun og lélegasta grasár“. „Hvað hyggur þú um framtíð landbúnaðarins almennt?“ MISKUNARLAUS SAMKEPPNI „Því er ekki að neita, að við heyjum harða og jafnvel misk- unnarlausa baráttu í samkeppni við aðra atvinnuvegi, svo sem fiskveiðar, iðnað og siglingar. Þar er landbúnaðurinn einlægt í vörn, aðstöðu sinnar vegna. Ég vildi samt sem áður vona, að það verði alltaf einhver hluti hinnar íslenzku þjóðar, sem landbúnað- urinn laðar að sér, þótt hann sé sá atvinnuvegur, sem er skuld- binding um að þola þrautir, en þrátt fyrir það, felur hann líka í sér loforð um lífshamingju, því að fleira er nú gott en gull, og fleiri sjónarmið eiga rétt á sér, en þau stærðfræðilegu, og ein- lægt er það einhvers virði, að standa fótum í frjálsri jörð, en það vona ég að íslenzkum bænd- um auðnist meðan landið bygg- ist“. „Og svo að lokum, Kristján, hvað hyggur þú um framtíð Bol- ungarvíkur?“ „Um framtíð Bolungarvíkur hef ég aldrei efast, enda hefur hún frá náttúrunnar hendi þau skilyrði, sem til þurfa að lifa menningarlífi á við önnur byggð arlög, og vil ég þá fyrst og fremst minna á hið mikla uppland hennar, sem hentað getur til ým- issa framkvæmda auk ræktunar. 10 bændur í Bolungarvík eiga nú ræktuð tún og í ræktun um 150 hektara, eða 15 hektara á býli. Auk þess eigum við 100 hektara sandgræðslusvæði, og næstum því jafnstórt land undir grunnu vatni, sem hægt er að ræsa fram, fyrir mjög ltíið verð. Auk þess er nægilegt athafna- svæði í kauptúninu til allra nauð- synlegra byggingaframkvæmda, bæði til íbúðar- og atvinnurekst- ur. Ekki þarf að benda á hin auðugu fiskimið, sem hún hefur greiðari aðgang að, en nokkur UM fátt var meira rætt í bænum í gær en úrslitin í fegurðarsam- keppninni. Flestum fannst þau réttlát, Bryndís Schram er gull- falleg stúlka, sem býr yfir mikl- um yndisþokka. En þar með er ekki sagt að hinar stúlkurnar fjórar séu ekki einnig gullfal- legar og elskulegar stúlkur. Mbl. annar staður á Vesturlandi, og myndi fyrir löngu hafa tekið forystuna í fiskveiðum eins og hún áður hafði, ef hafnarleysi ekki bagaði, en þar sem nú eru sífellt að opnast leiðir til skjótra og mikilla átaka við hafnargerð- ir, þá er hægt að vona, að þeir tímar séu ekki langt framundan, að hún hafi í þeim efnum náð sömu aðstöðu til fiskveiða og siglinga og aðrir staðir, þar sem skilyrðin eru bezt. BJARTARI DAGUR Reynslan hefur og sýnt það og sýnir, að hér býr dugmikið fólk, sem aldrei horfir í að beita hörð- um átökum í harðri baráttu við alla erfiðleika og fólk, sem hef- ur í þeirri baráttu náð góðum árangri miðað við aðstöður, enda sýnir það bezt, að menn hafa trú á framtíð byggðarlagsins, að fólkinu fer fjölgandi hér, og ég vona, að sú lægð, sem myndast á athafnaloft Bolungarvíkur, sem hinn mikli stormsveipur vélaork- unnar olli, ef ég má tala á máli veðurfræðinnar, þegar hann gekk hér yfir, sé nú farinn að grynn- ast, og við eigum í því efni von á bjartari og betri dögum“. ----o---- Með þessum orðum lauk sam- tali mínu við hinn aldna, en sí- unga heiðursmann. Þegar ég ók frá Geirastöðum sendi sólin geisla sína heim að bænum og ég veit, að það er bjart yfir heim- ili ICristjáns þessa dagana, bæði í tilefni afmælisins, og þá ekki síður vegna þess, að sonarsonur þeirra Geirastaðarhjóna, sonur séra Þorbergs Kristjánssonar sóknarprests í Bolungarvík, og konu hans frú Elínar Þorgilsdótt- ur, hefur hlotið nafn afa síns, og heitir Kristján Ásgeir. Eg vil að lokum persónulega þakka Kristjáni Ólafssyni gott samstarf á undanförnum árum að margskonar störfum og ekki síð- ur fyrir góð ráð, og færa honum innilegustu heillaóskir okkar hjónanna, og veit ég með vissu, að ég mæli þar fyrir munn allra Bolvíkinga, ungra sem gamalla, og ekki sizt fyrir þá ungu, því að einlægari barnavin en Kristján hef ég sjaldan fyrir hitt. Lifðu heill, góði vinur. Bolungarvík, 11. júní 1957, Friðrik Sigurbjörnsson. hitti þær stuttlega að máli og fara samtölin hér á eftir. FERÐ TIL MEGINLANDSINS Anna Þ. Guðmundsdóttir, sem varð númer tvö, hlýtur að verð- launum flugferð til meginlands- ins og heim aftur. Forráðamenn keppninnar áskilja sér rétt til þess að bjóða þesari stúlku þátt- töku í keppninni um titilinn „Miss Europe“, sem fer fram á næsta vori. Anna er elskúleg 17 ára gömul stúlka, sem vinnur í Sveinsbaka- rii. ForeTdrar hennar eru þau hjónin Guðmundur Ágústsson bakari og Þuríður I. Þórarins- dóttir, Vesturgötu 46. — Hvað langar þig nú til þess að „verða?" — Mig langar mest af öllu til þess að verða gluggútstillingar- dama. Og mig langar til þess að fara á skóla í Danmörku eða Englandi. ER ÁNÆGÐ VIÐ RITVÉLINA Guðlaug Gunnarsdóttir sem hlaut þriðju verðlaun, en það er flugfar til Lundúna og heim aft- ur. Hún er 19 ára, dóttir Helgu Einarsdóttur og Gunnars Sigur- jónssonar, Hringbraut 41. — Hvar vinnur þú? — Ég vinn á fjölritunarskrif- stofu Daníels Halldórssonar við vélritun og prófarkalestur. — Hvað langar þig til þess að gera að framtíðarstarfi þínu? — Ég kann svo prýðilega við mig í núverandi starfi mínu. — Mér finnst gaman að vélrita, svo ég held, að ég haldi mig við hana í framtíðinni. — Varstu taugaóstyrk, er þú áttir að mæta í sundbolnum? — Nei, þess gætti furðanlega lítils, en mér var voða kalt? Svanhvít Ásmundsdóttir SELUR SUMARKÁPURNAR Sú, er hlaut 4. verðlaun, sem er gullúr frá Kornelíusi Jóns- syni, heitir Vigdís Aðalsteins- dóttir, er dóttir Kristínar Gests- Bryndís Schrarn dóttur og Aðalsteins Jónssonar lögregluþjóns, sem nú er látinn, Bárugötu 37. —, Vigdís er ekki nema 17 ára gömlu. — Hvaða atvinnu stundar þú? — Ég vinn í Kápubúðinni á Laugavegi og á kvöldin í Þjóð- leikhúskj allaranum. — Hvað langar þig til þess að „verða?“ — Það er svo ótal margt, en til þess að nefna eitthvað, t. d. flug- Ireyja. VILL HALDA ÁFRAM AÐ VERA SÝNINGARSTÚLKA Svanhvít Ásmundsdóttir, sem hlaut 5. verðlaun, er 19 ára göm- ul, dóttir Guðbjargar Þorbjarn- ardóttur og Ásmundar Vilhjálm*- sonar, Holtsgötu 21. Hún vinnur í skóverzlun Lárusar G. Lúðvígs- sonar á daginn, en í Þjóðleikhús- inu á kvöldin. — Hvað langar þig til þess a6 „verða?“ — Það er svo margt, sem mig langar til þess að verða. Ég hef fengið tækifæri til þess að sýna kjóla á tizkusýningu, og það finnst mér voða gaman og vildi gjarnan halda því áfram, ef þess er nokkur kostur-----“ Verðlaunin, sem Svanhvít hlaut, Vigdís Aðalsteinsdóttir eru snyrtivörur frá hinu þekkta fyrirtæki Max Factor frá verzL Remediu, Autsurstræti. ★ Það hefur verið erfitt verk, sem dómnefndin og áhorfendur höfðu með höndum að dæma, hver af þessum fimm ungu stúlk- um væri sú fallegasta. Þær eru allar með tölu fallegar og elsku- legar og framkoma þeirra óað- finnanleg. Það er gaman að vera á fegurðarsamkeppni með svona fallegum stúlkum, og áhorfendur í Tívolí á föstudagskvöldið klöpp- uðu stúlkunum óspart lof í lófa þar sem þær stóðu í kalsa-vindi og rigningu fáklæddar í sviðs- ljósinu á blómskrýddu sviðinu. Framköllun Kopiering Fljót og góð vinna. — Afgr. í Orlof sbúðinni, Hafnarstræti ZÚ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.