Morgunblaðið - 16.06.1957, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 16.06.1957, Blaðsíða 19
Sunnuðagur 16. júní 1957 MOTt.cvynr.AjnB 19 — Reykjavlkurbréf Framh. af bls. 11 á m. Hannibal Valdimarsson, og að í vetur lenti flokkur þeirra í slíkum raunum, að enzt hefði honum til aldurtila, ef hann hefði ekki notið skjóls í Stjórnarráði Islands. Björgunarstarf Eysteins Jónssonar á kommúnistum á eftir að verða honum og þjóðinni dýr- keypt. í þessu efni talar eng- inn um Hermann Jónasson. Hann er skoðanalaus, og til hans eru engar málefnakröfur gerðar. Til skamms tíma var til annars ætl- azt af Eysteini, en vel má vera, RAÐSKONA Ungur ekkju maður með tvö börn, hefur góða íbúð stutt frá miðbænum, öil heimilis- tæki. Óskar eftir hreinlegri og reglusamri stúlku. Sér herbergi. Kaup eftir sam- komulagi. Tilboð sendist af- greiðslu Mbl. fyrir 20 þ. m. merkt: „2108 — 5519“. að hann hafi nú brotnað svo, að eigi megi við miklu af honum búast. Lágmarkskröfur ÞEIR, sem höfðu Eystein Jóns- son fyrir augunum meðan á Al- þingi stóð, sáu að vísu, að þar fór maður mjög miður sín. Sem betur fer, er það ekki vegna lík- amlegra veikinda, heldur af því, að maðurinn veldur ekki þeirri byrði, sem á hann hefur verið lögð. Þá lágmarkskröfu verður þó að gera til svo margreynds og að ýmsu leyti mikilhæfs stjórn málamanns sem Eysteins Jóns- sonar, að hann láti ekki nota sig tii beinna ósanninda. Það gerði hann þó, þegar hann fullyrti, að ekki hafi verið mögulegt að fá lán til virkjunar Sogsins ffrir kosningarnar í sumar og ósatt væri, að tilboð um lán hafi legið fyrir frá Þýzkalandi. Um hið Samkomur Fíladelfía Bæn og fasta £ dag. Brotning brauðsins kl. 4. Fórnarsamkoma kl. 8.30 — vegna hússbyggingar safnaðarins. Ræðumenn: Þórar- inn Magnússon og Ásmundur Eiríksson. Einsöngvari: Hertha Magnússon. Allir velkomnir. Bræðraborgarstigur 34 Almenn samkoma í kvöld kl. 8.30. — Allir velkomnir. Almennar samkomur Boðun fagnaðarerindisins Austurgötu 6, Hafnarfirði, á Mr. Bolt flytur erindi í kvöld, sunnu- dag, í Guðspekifélagshúsinu, kl. 8.30. Erindið nefnist: Kenningin um himnesk áhrif. Öllum heimill aðgangur. Hjálpræðisherinn Sunnudag kl. 11: Helgunarsam koma, kl. 16 útisamkoma, kl. 20.30 kveSjusamkoma fyrir lautinant Toraiv Kristofferscn. Velkomin! 17. júní Kaffisala hefst kl. 15 í sal Hjálp ræðishersins. Styrkið starfsem- ina. Zion Almenn samkoma í kvöld kl. 8.30. Hafnarfjörður. — Samkoma í dag kl. 4 e. h. Allir velkomnir. Heimatrúbog leikmanna. Félagslíf íþróttabandalag Reykjavíkur beinir þeirri áskorun til íþrótta félaganna að vanda til skrúð- göngunnar á íþróttavellinum 17. júní. Þátttakendur mæti kl. 15 á íþróttavellinum. Framkvæmdastjórn Í.B.R. Reykjavíkurmót 3 fl. B sunnudaginn 16. júni i Vals- vellinum. Kl. 9.30 Valur—Fram. Mótanefndin. Reykjavíkurmót 2 fl. B sunnudaginn 16. júní á Vals- vellinum. Kl. 10.30 KR—Valur. Dómari: Arnar Jörgensen Mótanefndin. Rcykjavikurmót 3. fl. A sunnudaginn 16. júnl á Háskóla vellinum. Kl. 9.30 Fram—KR. Kl. 10.30 Valur—Víkingur. Mótanefndin. Vinna Hreingerningar Sími 2173. Vanir og liðlegir menn. Gomulka Frh. af bls. 1. usiunnar rússnesku—og erfitt verður Rússunum að kalla hann heim. Ilann er mjög hátt settur í rússneska kommún- istaflokknum og er talinn einn af nánustu vinum og stuðn- ingsmönnum Krúsjeffs. — O — Ponomarenko er meðlimur mið stjórnar kommúnistaflokksins og áður en hann gerðist ambassador í Varsjá fyrir tveim árum var hann 1. ritari flokksins í Kasak- stan, þegar Krúsjeff lögleiddi hina stórfelldu landbúnaðaráætl- un sína í „nýju héruðunum“. Síðast á stalinstímabilinu var hann æðstur embættismanna í Hvíta-Rússlandi — og um tíma var hann ráðherra í Moskvu. Það orkar ekki tvímælis, að Ponom- arenko var sendur til Póllands sem „landsstjóri" í „pólsku hjá- leigunni". — O — Nú vill Gomulka losna við hann og fá í staðinn óbreyttan starfsmann utanríkisþjónust- unnar, sem ekki væri líklegur til þess að vera jafn „fram- kvæmdasamur" og fyrirrenn- arinn. Þetta er vafalaust hættu legur leikur hjá Pólverjum, en hvernig hann endar veit enginn. síðartalda er alveg öruggt, að Eysteinn Jónsson vissi, að tilboð lé fyrir, enda eru til um þetta gögn í Stjórnarráðinu, sem hann áreiðanlega hefur kynnt sér. — Varðandi Sogslánið er ekki jafn víst, að Eysteinn hafi fylgzt með því. Hann var burtu langan tíma fyrir kosningar, ferðaðist um lándið á vegum flokksins og var í framboði í erfiðu kjördæmi. Þess vegna er hugsanlegt, að fram hjá honum færi, þó að í ljós kæmi, að kostur var á láni, sem ekki var talið fært að taka eins og á stóð, aðallega vegna þess að skuldbinda átti sig um orku- sölu frá Soginu árum saman. — Vanþekking á þessu getur verið fyrirgefanleg, en óskiljanlegt er, að maður eins og Eysteinn Jóns- son skuli fá sig til að lýsa þetta ósannindi og leyfa Tímanum að hamra á þeirri fjarstæðu æ of- an í æ. Menn mega aldrei láta nota sig til að bera rangar sakir á gamla samstarfsmenn, þó að ásakanirnar kunni að koma sér vel í bili. Heggur nærri sjálfum sér EYSTEINN JÓNSSON heggur og býsna nærri sjálfum sér, þegar hann fullyrðir, eins og hann gerði í eldhúsræðu sinni á döguniun, að hann hafi aldrei unnið með mönn um, sem hafi verið heimtufrekari um fjárframlög til sinna ráðu- neyta en sumir ráðherrar Sjálf- stæðismanna. Af hverju segir Eysteinn Jóns- son ekki í hverju þessar kröfur voru fólgnar? Framsóknarmenn hafa stöðugt klifað á því, að meira hafi verið um framkvæmd- ir í þeim ráðuneytum, sem þeir stóðu fyrir en í ráðuneytum Sjálfstæðismanna. Hvernig kem- ur þetta heim við frásögn Ey- steins Jónssonar nú? Notuðu Sjálfstæðisráðherramir þessar gífurlegu fjárhæðir handa sjálf- um sér, sem þeir píndu undan blóðugum nöglunum á Eysteini, eða var þeim varið til þess að gera mögulegan framgang góðra mála? Ef Eysteinn Jónsson stöðv- aði eyðslu Sjálfstæðismanna, er þá „athafnaleysið" í ráðuneytum þeirra, sem Tíminn talaði svo oft um, að kenna Sjálfstæðismönn- um eða Eysteini Jónssyni? Rétt er, að Eysteinn Jónsson stóð oft á móti kröfum Sjálfstæð- ismanna um fjárframlög. Sjálf- stæðismönnum varð þó furðan- lega mikið ágengt eins og um framlög til skólabygginga, sem núverandi menntamálaráðherra hefur þolað að væri stórlega skorlh niður frá því sem áður hafði áunnizt. Sjálfstæðismenn urðu stöðugt að sækja á, til að koma góðum málum fram. Þetta er eðlilegt, vegna þess, að þeir eru málsvarar framfara og at- hafna í landinu, en Framsókn kyrrstöðu og athafnaleysis, nema þar sem hún telur sjálfri sér færi á áð nota einstakar fram- kvæmdir til pólitísks framdrátt- Volkswogen 1957 nýrri gerð, til sýnis og sölu oð Hofteig 21 i dag og á morgun I Ð N O Dansleikur í kvöld kl. 9. Þar sk»WMHtir í fyrsta sinn á dansleik í Reykjavík ERLA ÞORSTEINSDÓTTIR HAUKUR MORTHENS HLJÓMSVEIT KIDDA VILHELMS 1, 2, 3, 4 allir í pep, 5, 6, 7, 8, rokkum nú pep, fáðu þér dömu og vöggum og veltum fram á nótt. Aðgöngumiðar seldir í Iðnó frá kl. 5 — Sími 2350. Þórscafe DAINiSLEiaOJR AÐ ÞÓRSCAFÉ í KVÖLD KL. 9 K.K.-SEXTETTINN LEIKUR Söngvarar: Sigrún Jónsdóttir og Ragnar Bjamason. Silfurtunglið GÖMLU DANSARNIR í K V Ö L D Hljómsveit RIBA leikur. Aðgöngumiðar seldir eftir kl. 8. í síðdegiskaffitímanum í dag og á morgun 17. júní skemmtir hinn bráðsnjalli Rock ’n' Roll söngvari ÓLI ÁGÚSTSSON, sem gjarnan maetti nefna hinn íslenzki Presley. Danssýning: Lóa og Sæmi. — Hljómsveit hússins leikur. SÍMI 82611. SILFURTUNGLIÐ. Útvegum skemmtikrafta sími 82611. 82965 og 81457 Móðir okkar INGUNN ÞORKELSDÓTTIR frá Skúfslæk í Flóa, lézt 13. júní 1957, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 18. þ. m. kl. 1.30. Jónína Steinsdóttir, Þorkell Steinsson. JÓN JÓHANNSSON bóndi í Mýratungu í Reykhólasveit, andaðist í Landspítal- anum fimmtudaginn 13. júní. Kveðjuathöfn fer fram í Fossvogskirkju kl. 10 f. h. þriðju- daginn 18. júní. Vandameu. Útför móður minnar og tengdamóður GUÐRÚNAR JÓNSDÓTTUR ÍSFJÖRÐ fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 18. júní kl. 1,30. Sturlína Þórarinsdóttir, Ilaraldur Frímannsson og barnabörn. Hjartans þakkir fyrir alla samúð, er okkur var sýnd vi® andlát og jarðarför SIGRÍÐAR JÓNSDÓTTUR frá Stykkishólmi. Halldór Jónsson, Þórunn Jónsdóttir, Jóhanna Halldórsdóttir. Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð Við andlát og jarðarför móður minnar, tengdamóður og ömmu okkar SIGRÉÐAR GUBMUNDSDÓTTUR Guðrún Eggertsdóttir, Sigurðnr Guðmundsson og synir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.