Morgunblaðið - 16.06.1957, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 16.06.1957, Blaðsíða 15
Sunnudaguí1 16. júní 1957 MORGVNBLAÐIÐ 15 Magnús B. Jónsson bóndi i Brekku 70 ára HINN 18. júní nk. er einn merk- asti bóndi í' Húnavatnssýslu 70 ára. Þessi maður er Magnús Bjarni Jónsson bóndi í Brekku í Þingi. Hann er fæddur á Gilsstöðum í Vatnsdal 18. júní 1887, en þar bjuggu þá foreldrar hans: merk- ishjónin Þórkatla Guðmundsdóttir og Jón Jóhannsson. Að Brekku flutti þessi fjöl- skylda árið 1891 og ólst Magnús þar upp. Hefir þar verið hans heimili alla ævi, að undanskildum HÉRAÐSGAGNFRÆÐASKÓL- ANUM að Skógum var slitið sunnudaginn 2. júní árdegis að viðstöddum nemendum, kennur- um og skólanefnd. Athöfnin hófst með því að nem endur sungu skólasönginn. Sr. Sigurður Einarsson, sem verið hafði prófdómari við gagn- fræðapróf og landspróf, flutti bæn og að hans máli loknu sungu allir „Á hendur fel þú honum“. Þá flutti skólastjórinn, Jón R. Hjálmarsson, skýrslu um skóla- starfið sl. vetur og afhenti skír- teini. f skólanum höfðu alls ver- ið 97 nemendur. í I. bekk voru 28 nemendur og í II. bekk 31 nemandi og einn bættist við ut- anskóla til prófs, svo að úr yngri bekkjunum brautskráðust 58 nemendur. Yngri bekkirnir höfðu brautskráðst 28. apríl. Eftir höfðu þá orðið í skólanum nemendur þeir, sem gengust undir gagn- fræðapróf 25 að tölu og lands- próf 15 að tölu. Hæstu einkunn í 1. bekk hlaut Ingvar Árnasori, Skógum ág. eink. 9.00. Á unglingaprófi var hæst- ur Arnaldur Árnason, Skógum, með 8.61. Á gagnfræðaprófi var hæstur Gylfi Sigurjónsson, Vestmanna- eyjum, með 8.87. í landsprófs- greinum varð hæstur Albert Valdimarsson, Hreiðri, Holtum, með 8.38, en úr öllum greinum þeirrar deildar hlaut Sigurður Sigurðsson, Hemlu, Landeyjum, hæstu einkunn, 8,47. Allir þessir nemendur hlutu bókaverðlaun úr verðlaunasjóði skólans. Aðra hæstu einkunn á gagn- fræðaprófi hlaut Pétur Brynjólfs son, Bíldudal. Verðlaun fyrir ágætiseinkunn í íslenzkum stíl hlutu þau Guðrún Björnsdóttir, Hvolsvelli og Baldur Óskarsson, Vík í Mýrdal. Ennfremur hlutu verðlaun fyrir trausta og ágæta framkomu i skólanum þau Sig- urður Eymundsson, Hornafirði, og Ólöf K. Celín, Táknafirði. Sérstök verðlaun fyrir hæstu einkunn í búnaðarfræði hlaut Lárus Valdimarsson, Kirkjubæj- arklaustri, bókaverðlaun frá vel- unnara skólans, sem ekki vildi láta nafns síns getið. Að endaðri skýrslu skóla- stjóra ávarpaði hann hina nýju gagnfræðinga og landsprófsfólk og hvatti til trúmennsku í starfi og jákvæðra lífsviðhorfa. Þakk- aði samveru og samstarf og árn- aði öllum heilla og sagði skólan- um slitið. Þá var sunginn sálmurinn „Faðir andanna". Síðastur tók til máls formað- wr skólanefndar, Björn Björns- son sýslumaður í Rangárvalla- Einar Ásmundsson liæstaréttarlögmaður. Hafsteinn Sigurðsson liéraðsdóinslögniaður. Skrifstofa Hafnarstræú 5. Sími 5407. S árum 1914—’17 er hann bjó á Arnþórsholti í Lundareykjadal. Árið 1914 kvongaðist Magnús, Sigrúnu Sigurðardóttur, prests, Jónssonar á Lundi í Lundareykja- dal. Er það ágæt kona. Fyrir- myndar húsfreyja, prúð og skemmtileg. Gæfan hefir líka allt- af fylgt þeirra heimili, og gert þar garðinn frægan. Fimm sonu eiga þau hjón. Eru þeir allir fullt'ða menn og kvænt- ir. Fer það saman um þá alla, að þeir eru efnismenn miklir, vel gefnir og vinsælir. sýslu. Þakkaði öllum, sem eitt- hvað höfðu lagt af mörkum til eflingar Skógaskóla og árnaði brautskráðum nemendum heilla og hamingju. Heilsufar í Skógaskóla hefur verið mjög gott sl. vetur, félags- líf nemenda hefur verið með ágætum og skólastarf allt með blóma. í skólalok gróðursettu nemend- ur með aðstoð kennara 1200 trjá- plöntur í skógrækt skólans. Magnús Jónsson í Bakka vakti strax á æskuárum mikla athygli, sem gáfaður maður og frábær af- kastamaður til verka, ósérhlífinn og kappsfullur. Hann hefir líka alla ævi verið mikill framtaks- maður og mörgu góðu til leiðar komið. Hefir hvert það mál er hann hefir beitt sér að, átt í hon- um liðsmann sem mikið munar um. Frá honum er aldrei að vænta tví- veðxangs eða hálfvelgju, hroki í felagslífi, eða persónulegum skipt- um. Hann er með eða móti heil- steyptur, stefnufastur og mark- viss. Hann er sá maður, sem hugs- ar sjálfur hvert mál er hann læt- ur til sín taka, enda er maðurinn skarpgreindur og rökvís. Annara sjónarmið tekur hann því aðeins til greina, að óyggjandi rök sanni, að þeir hafi á réttu að standa. Hreinskilni og drengskapur eru hans einkenni. Hann er öruggur og traustur vinur vina sinna, en getur verið þykkjuþungur ef honum finnst sér misboðið. Hræsni, blekkingar og fláttskapur eru honum andstyggð. 1 búskap sínum hefir Magnús verið mikill umbótamaður í rækt- un og húsabyggingum. Byrjaði hann á að slétta túnið og tók síð- an til við, að rækta stór flæmi utan túns, bæði heima við og við beitarhús er hann byggði upp í nokkurri f jarlægð í svonefndu Geitabóli. Jörðin Brekka er orðin stórbýli. Mun þar vera orðin um 100 dagslátta tún alls. Stórt íbúð- arhús úr steinsteypu byggði Magn ús 1923 og 1924 og nú hefir hann reist stórt fjós steinsteypt með hlöðu og áburðargeymslu. Hann var meðal þeirra fyrstu er hóf stórstígar framkvæmdir nér um sveitir og átti þeirra hlut" vegna stundum örðugt þegar fjárkrepp- an var mest. En vel hefir hann hreinsað sig, af því öllu. í félagslífi sveitar og héraðs hefir þessi bóndi tekið verulegan þátt, en þó minni en skyldi eftir því sem efni standa til. Koma þar einkum til sveitarmál, samvinnu- mál og búnaðarfélagsmál. Hann var um 6 ára skeið í hreppsnefnd Sveinsstaðahrepps-, þar af 3 ár oddviti. Fórst honum það starf mjög vel úr hendi en losaði sig frá því við fyrstu hentugleika. Taldi það eigi samrýmanlegt sínum miklu heimilisönnum. Formaður búnaðarfélagsins í sveit sinni var hann lengi og mætti nokkuð oft sem fulltrúi á fundum Búnaðarsambands Húna- vatnssýslu. Fulltrúi á fundum Kaupfélags Húnvetninga og Slát- ursfélags Austur-Húnvetninga hefir hann oft verið og þar sem annarsstaðar lagt gott til mál- anna. Við stofnun og starfsemi „Á- veitufélags Þingbúa" var Magnús £ Brek’ u einn af helztu braut- ryðjendum og mörg eru þau dags- verkin, sem hann hefir þar unnið. Hann hafði allra manna mest for- ystu fyrir því mikla verki að Iræsa fram hin stóru og votlendu engjalönd áveitufélagsins. Var og manna lengst formaður félagsins og aðal brautryðjandi. Vann hann þar af miklum áhuga og fórnfýsi, enda hefir starf hans og þýðing- armikil forysta á því sviði borið mikinn árangur. Margt fleira mætti telja er þessi ágæti maður hefir að unnið bæði heima og utan heimilis og allsstað- ar af miklum dugnaði og áhuga. Má það helst að finna, aí hann hefir verið allt of ósérhlífinn við sjálfan sig og lagt að sér harðara í mikilli vinnu, en hyggilegt má telja. Er hann bví meira slitinn af vinnunni, en ella hefði mátt vera. En þannig fer fleirun. kapps fullum framkvæmdamönnum, sem aldrei unna sjálfum sér nægilegr- ar hvíldar. Slíkir menn sem Magn- ús í Brekku vinna líka oft margra meðalmanna verk. Á þessum tímamótum ævinnar þakka ég þessum vini mínum fyr- ir ágæta samvinnu, margar á- nægjustundir, langa og trausta vináttu og þýðingarmikla starf- semi. Ég þakka honum og hans prýðilegu konu mikla gestrisni og margvíslega hjálpsemi mér og öðrum nágrönnum til handa. Ég óska konunni, sonunum, tengda dætrunum, barnarbörnunum og öll um nágrönnum og vinum þeirrar hamingju, að fá ennþá lengi að njóta þessa mikilhæfa manns. Sjálfum honum óska ég góðrar heilsu og ánægjulegrar æfi, það sem fram undan er í félagi og samvistum við sína f jölskyldu, sem hann er þegar búinn að greiða vel fyrir með öllum sínum umbóta- verkum og manndómi. Jón Pálmason. DAGSKRÁ hátíðahaldanna 17. júní 1957 I. Skrúðgöngur: Kl. 13.15 Skrúðgöngur að Austurvelli hefjast frá þrem stöðum í bænum. Frá Melaskólanum, Skólavörvðutorgi og frá Hlemmi. Lúðrasveitir og fánaberar ganga inn á Austurvöll kl. 13.50 II. Hátíðahöld við Austurvöll: Kl. 13.55 Hátíðin sett af formanni Þjóðhátíðarnefndar, Þór Sandholt. Kl. 14.00 Guðsþjónusta í Dómkirkjunni. Prédikun: Sr. Jón Þorvarðarson. Einsöngur: Guðmundur Jónsson, óperusöngvari. Organleikari: Dr. Páll Isólfsson, tónskáld. Kl. 14.30 Forseti íslands, herra Ásgeir Ásgeirsson, legg- ur blómsveig frá íslenzku þjóðinni að minnis- varða Jóns Sigurðssonar. Kl. 14.40 Forsætisráðherra, Hermann Jónasson, flytur ræðu af svölum Alþingishússins. Kl. 14.55 Ávarp fjallkonunnar af svölum Alþingishúss- ins. Kl. 15.00 Lagt af stað frá Alþingishúsinu suður á Iþróttavöll. Staðnæmst við leiði Jóns Sigurðs- sonar. Forseti bæjarstjórnar, frú Auður Auð- uns, leggur blómsveig frá Reykvíkingum. —• Karlakór Reykjavíkur og Karlakórinn Fóst- bræður syngja. III. Á íþróttavellinum: Kl. 15.30 Ávarp: Gísli Halldórsson, form. Í.B.R. — Skrúðganga íþróttamanna. — Stúlkur úr Ár- manni sýna fimleika með gjörðum. Stjórnandi frú Guðrún Nielsen. Undirleikari: Carl Billich. — Sýningar- og bændaglíma. Glímumenn úr Ármanni og U. M. F. R. — Sjtórnandi: Guðmundur Ágústsson. — Fimleikasýning. Kvennaflokkur úr ÍR undir stjórn frú Sigríðar Valgeirsdóttur. — Frjálsar íþróttir. Keppt verður um bikar þann ,sem forseti fslands gaf 17. júní 1954. — Keppni og sýningar fara fram samtímis. Leik- stjóri: Jens Guðbjörnsson. IV. Barnaskemmtun á Arnarhóli: Stjórnandi og kynnir: Ævar Kvaran. Kl. 16.00 Lúðrasveitir barnaskólanna leika. Stjórnend- ur: Karl O. Runólfsson og Paul Pampichler. — Ávarp: Séra Bragi Friðriksson. — Ballett úr óperettunni „Sumar í Tyrol“. Anna Guðný Brandsdóttir og Helgi Tómasson. Undirleikari: Ragnar Björnsson. — Skemmtiþáttur: Árni Tryggvason og Bessi Bjarnason. — Fimleikar. Telpur úr Ármanni sýna undir stjórn frú Guð- rúnar Nielsen. Undirl.: Carl Billich. — „Leik- ur dýranna“. Nemendur úr leiklistarskóla Ævars Kvarans. V. Tónleikar við Austurvöll: Kl. 17.00 Sinfóníuhljómsveit íslands leikur. Stjórnandi: Páll ísólfsson. Einsöngvarar: Kristinn Halls- son og Þorsteinn Hannesson. — Karlakórinn Fóstbræður syngur. Stjórnandi: Ragnar Björnsson. VI. í TÍVOLÍ: Kl. 15.00 Skemmtigarðurinn opnaður. Aðgangur ókeyp is. — Lúðrasveit Barnaskóla Austurbæjar.- Stjórnandi: Karl O. Runólfsson. — Skemmti- þáttur: Árni Tryggvason og Bessi Bjarnason. VII. Kvöldvaka á Arnarhóli: Kl. 20.00 Lúðrasveit Reykjavíkur. Stj.:. P. Pampichler. Kl. 20.20 Kvöldvakan sett: Ólafur Jónsson, ritari Þjóð- hátíðarnefndar. — Lúðrasveitin leikur: „Hvað er svo glatt“. Kl. 20.25 Karlakór Reykjavikur. Stj.: Dr. Páll ísólfsson Kl. 20.40 Borgarstjórinn í Reykjavík, Gunnar Thorodd- sen, flytur ræðu. — Lúðrasveit Reykjavíkur leikur Reykjavíkurmarz eftir Karl O. Run- ólfsson. Höfundurinn stjórnar. Kl. 21.00 Áhaldaleikfimi: Piltar úr fimleikaflokki KR. Kl. 21.15 Einsöngur og tvísöngur Evy Tibell og Guð- mundur Jónsson. Undirl.: F. WeisshappeL Kl. 21.40 Gamanþáttur: Helgi Skúlasor Kl. 21.40 Þjóðkórinn syngur. Stj. Dr 5áll ísólfsson. VIII. Dans til kl. 2 eftir miðn^ti: , Erlendur Ó. Pétursson stjórnar dansinum. Að kvöldvökunni lokinni varður dansað á eftirtöldum stöðum: Á Lækjartorgi: Hljómsv,-Kr. Kristjánssonar. í Aðalstræti: Hljómsv. Björns R. Einarssonar. I Lækjargötu: Hljómsv. Óskars Cortes. Hljómsveit Aage Lorange Isi .ur til skiptis á öllum dansstöðunum. Kl. 02.00 Dagskrárlok. Hátíðahöldunum slitið frá Lækj- artorgi. Skógarskóla slitið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.