Morgunblaðið - 16.06.1957, Side 20

Morgunblaðið - 16.06.1957, Side 20
Veðrið M-T kaldi víða léttskýjað ttttttttlriðMfr 132. tbl. — Sunnudagur 16. júní 1957. Reykjavíkurbréf Sjá bls. 10. Þjódhátíöar- höldin á morgun AMORGUN er þjóðhátíðardagurinn 17. júní. — Verður þá að venju efnt til mikilla hátíðahalda, sem hefjast með skrúðgöng- um kl. 13.15, en um kl. 13.50 ganga skrúðgöngurnar inn á Austur- völl. Kl. 13.55 setur Þór Sandholt, form. Þjóðhátíðarnefndar há- tíðina en síðan verður gengið í kirkju. Hátíðahöldin á íþróttavellin- um hefjast kl. 15.30 og fer þar fram úrslit í 17. júní-mótinu. — Barnaskemmtunin á Arnarhóli hefst kl. 16.00, og kl. 17.00 hefj- ast tónleikar Sinfóníuhljómsveit- ar íslands við Austurvöll. — Skemmtun í Tívóli hefst kl. 15.00. K1 20.00 hefst kvöldvaka á Arn- arhóli og að lokum verður dans- að á þrem stöðum í miðbænum til kl. 2 eftir miðnætti. Þjóðhátíðarnefnd vill mælast til þess að fólk verði ekki með ölvun á almannafæri eða óspekt- ir og ómerkja þannig þjóðhátíða- daginn. □-------------□ Loust embætti er forseti Islands veitir. Embætti aðalbankastjóra í Seðlabanka 'Islands samkvæmt lögum nr. 33/1957, um breyting á lögum nr. 10 frá 15. apríl 1928, um Landsbanka Islands, er laust til umsóknar. Umsóknarfrestur til 6. júlí 1957. Veitist frá 15. s. m. Forsætisráðuneytið, 4. júní 1957. (Augl. úr Lögbirtingabl. 15/6.) □--------=------------□ Brezku ævintýramennirnir við Austin-bílinn áður en lagt var upp frá Reykjavík í fyrradag. Frá vinstri: Cyril Cooper, Kathlyn Tootill og Brian Forsey. í 3 kajökum niður Þjórsá Brezkir ævintýramenn ætla a<5'leika Jboð dirfskuhragð llJrEÐ GULLFOSSI síðast komu allóvenjulegir ferðalagnar til -!*■* íslands. Það voru þrír Bretar, sem hafa ákveðið að fara í kajökum niður einhver af straumhörðustu fljótum landsins. Fólk þetta kom með lítill Austin-bíl með sér og hyggst ferðast með honum inn í óbyggðir, leysa þar af honum kajakana, sem liggja samanvafðir á bílþakinu, skilja bílinn eftir og setjast í kajakana með allt sitt hafurtask og sendast svo niður ána til sjávar. Fá sér síðan hesta eða bíl og sækja Austin-bílinn þangað sem hann var eftir skilinn. Hér er ekki um neina hálfvita eða viðvaninga að ræða, heldur þaulvana ræðara, sem hafa farið í kajökum sínum niður flest stór- fljót í Evrópu, allt frá Bretlandi til Þýzkalands, Frakklands, Aust- urríkis, Póllands og Júgóslavíu. Árnar í Júgóslavíu voru straum- harðastar og mest spennandi, sögðu ferðalangarnir. STJÓRNARMEÐLIMIR Þremenningarnir eru meðlim- ir í stjórn félagsskapar þess, sem skipuleggur svipaðar ferðir og I>að eru kajakar af þessari gerð, sem þremenningarnir ætla að nota á Þjórsá. hér um ræðir í Bretlandi og nefnist „British Canoe Union“. Konan í hópnum heitir Kathlyn Tootill og er kennari í Manchest- er. Hún er jafnframt ritstjóri mánaðarritsins „The Canoe- Camper". Félagar hennar eru Cyril Cooper, verkfræðingur frá Cambridge og Brian Forsey lög- fræðingur frá Doncaster. MARGAR FERÐIR Kathlyn Tootill tjáði frétta- manni Morgunblaðsins, að hún hefði alls ferðazt rúma 4500 km. í kajaki eftir ýmsum fljótum Evrópu. Brian Forsey kvaðst hafa „róið“ 57 fljót í Englandi og eitt í Þýzkalandi, en Cyril Cooper hefur róið fleiri fljót utan Eng- lands. Þau eru öll þaulvön slík- um ferðalögum, enda æfa þau allan veturinn bæði á enskum ám og innan húss. T:1 dæmis er það þeim leikur einn að velta kajaki í hring að hætti Eskimóa. Þau geta vel farið niður fossa, sem eru 2 til 3 metra háir, en þegar kemur að hærri fossum ganga þau einfaldlega á land og taka kajakinn undir handlegg- inn. Þau verða hér aðeins 16 daga og hafa mestan hug á að reyna Þjórsá og einhverja ána norð- anlands. Ætla þau fyrst að aka að Gullfossi og Geysi, síðan að Heklu og eftir það að líkind- Kórar á Akureyri ’ AKUREYRI, 15. júní. — Mikil sönghátíð verður hér um þessa helgi. 8 kórar héðan úr bænum, frá Ólafsfirði, úr Húnvatnssýsiu, Skagafirði og Þingeyjarsýslu halda söngskemmtanir á vegum Sambands norðlenzkra karlakóra. Þeir syngja tvísvar á Akureyri í kvöld og austur í Mývatnssveit á morgun. — Job. Sfúdenfablaðið STÚDENTABLAÐIÐ, 1957, er komið út. Er það mjög fjlöbertytt að efni eins og vanalega og fram- an á kápusíðu eru litmyndir af skjaldarmerkjum ísiands frá upp hafi. — um upp að Svartakrók, en það an hyggjast þau „róa“ niður að Þjórsárbrú, en sækja síð- an bílinn og reyna að aka norð ur Kjöl. FENGU ENGAR UPPLÝS- INGAR ÚTI Hafa þau meðferðis tvær kvik- myndatökuvélar, sem verða ó- spart notaðar á ferðalaginu. Kváðust þau ekki hafa fengið neinar upplýsingar um ísland í Hœttulegur 6000 volta EFTIRLITSMENN frá Rafmagns eftirliti ríkfeins, sem í gær voru á ferð meðfram háspennulínu sem liggur frá aðallínunni skammt frá Hólmsárbrú og niður að barnaheimilinu að Silunga- polli, komu þar að sem -skó kippa hékk uppi í háspennuvír- unum, yfir veginum heim að barnaheimilinu. Spotti lá úr kipp unni og var hann bundinn í girð ingu. í kippunni voru eingöngu kvenskór og kvenbomsur allt notað. Eftirlitsmennirnir bentu á, er þeir afhentu rannsóknar- Verkfall- ENN er verkfail skollið á. Á mið- nætti í nótt átti að koma til fram kvæmda verkiallsboðun sú er Farmannasambandið hefur boðað til vegna sambandsfélaga sem starfa á verzlunarflotanum. Sið- asta skip úr höfn hér í Reykjavík var Gullfoss á hádegi í gær lét úr höfn áleiðis til Leith og Kaup- mannahafnar. Var Rcykjavíkur- höfn alveg tóm ; gærdag, að öðru leyti en því að einn togari var inni og nokkur erlend skip. Að því er Mbl. fregnaði í gær munu samnigaumleitanir hefjast væntanlega aftur á þriðjudagi- inn eða miðvikudaginn. Með sáttasemjara, Torfa Hjartarsyni eru komnir í sáttanefnd þeir Gunnlaugur Briem ráðuneytis- stjóri og Jónatan Hallvarðsson hæstaréttardómari. Bretlandi aðrar en þær, sem þau fundu í tveimur bókum, „Land of Ice and Fire“ og „Rivers of Iceland" eftir Stewart. Þau hlökk uðu mjög til að sjá þetta óvenju- lega land og lögðu upp þegar í fyrradag, nokkrum tímum eftir að þau stigu á land. Voru þau alveg örugg um að koma til Reykjavíkur heil á sál og líkama, en fréttamaðurinn efaðist um að kajakar þeirra þyldu meðferð ís- Ienzkra straumfalla. Við höfum allt sem til þarf, ef þeir rifna, sagði Cooper. Þeir eru allir stag- bættir, og við erum engir við- vaningar. Hittumst heil eftir tvær vikur. leíkur með rafstraum ! lögreglunni skóna, að þetta uppá tæki gæti verið lífshættulegt. — 41 stúdent frá M.A. AKUREYRI, 15. júní — Árdegis á þjóðhátíðardaginn fara fram skólaslit í Menntaskólanum á Ak- ureyri. Vegna fjarveru skólameist ara, Þórarins Björnssonar, mun Brynjólfur Sveinsson, sem gegnir störfum hans, afhenda nýbökuð- um stúdentum prófskírteinin. Að þessu sinni eru stúdentarnii 41, 27 úr máladeild og 14 úr stærð-. í vetur voru nemendur skólans alls 318, sem skiptast þannig, að í miðskóladeild voru 94, og í menntadeild 224, utanbæjarmenn voru 213 og í heimavist voru 154. Undir landspróf gengu í vor 28 nem. og stóðust það 26, þar af 19 með framhaldseinkunn. — Job. Jtt0rQuublabi& kemur næst út n.k. mið- vikudag 19. júni. Bakaraverkfallið ALLT er tíðindalaus frá bakara- verkfallinu og þar situr allt við hið sama. Litlar sem engar til- raunir hafa farið fram til lausnar verkfallinu. Ráðgert mun vera að eitthvað verði aðhafzt í þessari viku. Léttir til síðderis , c REGNSKYIN grúfðu yfir bæn- um í gær, er Mbl. spurði veður- stofuna hvernig þjóðhátíðardags- verðrið myndi verða. í dag verður sennilega þurrt veður, en skýjað. — Á morgun þjóðhátíðardaginn má búasl við að hér í Reykjavík verði einhver úrkoma framanaf degi, en með kvöldinu létti til, svo búast má við að bezta veður verði á kvöld- vökunni við Arnarhól og þegar byrjað verður að dansa á götum bæjarins. 27 stúdentar frá Laugarvatni UM ÞAÐ leyti sem verið var að ljúka blaðinu í gær, fóru fram skólaslit Menntaskólans að Laugarvatni. f vetur hafa verið 107 nemendur við skólann, þar af sjö í búnaðardeild, sem er undirbúningsdeild fyrir fram- haldsdeild bændaskólans á Hvanneyri. Undir stúdentspróf gengu nú í vor 27 og fimm þeirra utanskóla nemendur. 17 stúdentanna hlutu 1. einkunn, sjö II. og tveir þriðju einkunn. Einn utanskóla nemend- anna á ólokið prófi. Hæsta próf yfir skólann allann tók Eysteinn Pétursson frá Höfn í Hornafirði, 9,04. Hæstir á stúdentsprófi úr mála- deild voru þeir, Kristinn Krist- mundsson frá Jaðri í Hruna- mannahreppi, 8,78 og Hreinn Að- alsteinsson, Vestmannaeyjum, 8,29. — Úr stærðfræðideild var með hæsta einkunn Sigurjón Helgason, Háholti, Gnúpverjahr. 8,88 og næstur Ásgeir Sigurðs- son frá Reykjum í Lundareykja- dal, 8,87. Rigning var í gær sem kunnugt er og ef spottinn hefði blotnað mjög, þá hefði hann leitt há- spennt rafmagn í gegnum sig og í girðinguna. Hefði það orðið hverjum að bana samstundis sem komið hefði við kaðalinn eða girð inguna. Einkum gat þetta verið hættulegt fyrir börnin á barnaheimilinu og einnig fyrir skepnur. Eftirlitsmennirnir telja senni- legt að þessari skókippu hafi ver- ið kastað þarna upp á háspennu- vírana í gærmorgun. Vill rann- sóknarlögreglan eindregið mæl- ast til þess að þeir sem uppl. geta gefið um þetta stórhættu- lega uppátæki, geri aðvart hið fyrsta. Somið við verkfræðinga t GÆR voru taldar góðar horfur á því að yfirvofandi verkfalli verkfræðinga um land allt, sem starfa hjá því opinbera og einstaklingum, yrði afstýrt. í fyrrinótt náðist samkomu- lag milli samninganefnda vinnuveitenda annars vegar og nefndar frá stéttarfélagi Verkfræðinga. Samkomulag- ið var háð því skilyrði, að það yrði samþykkt á almennum fundi deiluaðila, þannig að I gær lágu ekki fyrir upplýsing- ar um efni þessa nýja sam- komulags við verkfræðing- ana. Fyrrnefndir fundir munu verða haldnir nú um helgina.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.