Morgunblaðið - 05.07.1957, Qupperneq 3
Föstudagur 5. jálí 1957
MORCVTSBLAÐ1Ð
3
„Bráðuheimilið“ frumsýnt
í Þjóðleikhúsinu í kvöld
Leikflokkur frá Riksfeafref sýnir víðs vegar um landið
HINGAÐ til Reykjavíkur kom sl.
miðvikudagskvöld leikflokkur
frá Riksteatret í Noregi. Er hann
kominn á vegum Bandalags ísl.
leikfélaga, en Alþingi veitti 50
þús. kr. styrk til þess að þetta
yrði kleift. Flokkurinn sýnir
„Brúðuheimilið“ eftir Ibsen og
verður frumsýning í Þjóðleik-
húsinu í kvöld. Fararstjóri er
Karl Eilert Wiik, leikstjóri er
Gerald Knoop, og einnig er með
í förinni leikhússtjóri Riksteat-
ret Frits von der Lippe og norsk
blaðakona frá „Dagbladet“ í Osló.
Henrik Ibsen.
Ræddu þeir við fréttamenn í gær,
ásamt stjórn Bandal. ísl. leikara.
Leikflokkurinn sýnir „Brúðu-
heimilið“ á 10 stöðum utan
Reykjavíkur. ' Á sunnudaginn
verður sýning á Akranesi, síðan
Ferðafélaj*ið
NÆSTKOMANDI helgi verða
þrjár ferðir farnar á vegum Feiða
félags Islands. Verður lagt af stað
í þær á laugardaginn, sama tíma
og venjulega, kl. 2 frá Austur
velli.
Farið verður að Hvítárvatni og
í Kerlingarfjöll og að Hveravöll
um. Er það fyrsta ferð Ferða-
félagsins norður Kjalveg á þessu
sumri.
Þá verður farið í Þórsmörk og
þriðja ferðin í Landmannalaugar.
Á sunnudagsmorguninn kl. 9 verð-
ur farið í gönguför á Esju.
á Sauðárkróki 8. júlí, Siglufirði
10. júlí, Akureyri 11. og 12. júlí,
á Húsavík 13. júlí, í Skjólbrekku,
Mývatnssveit 14. júlí, á Vopna-
firði 16. júlí, Eskifirði 18. og 19.
júlí, Reyðarfirði 20. júlí og loks
lýkur leikförinni á Seyðisfirði 21.
júlí.
Hafði Sveinbjörn Jónsson, fram
kvæmdastj. Bandalagsins orð á
því, að þeim þætti leitt að Vest-
firðirnir skyldu verða útundan,
en ekki hefði verið hægt að koma
því við að sýna þar.
Leikararnir sem fara með hlut
verkin í Brúðuheimilinu eru 10,
en þar af leikur fararstjóri eitt
hlutverkið. Nóru, sem er aðal-
hlutverkið, ledkur Liv Strömsted,
sem er ein af hæfileikaríkustu
leikkonunum við norska þjóðleik
húsið, Lars Nordum leikur Helm-
er, en hann er einnig þekktur
leikari. Olafr Havrevold leikur
dr. Rank, en hann er einn af
mestu „karakterleikurum“ Norð-
manna.
Önnur hlutverk eru frú Linde,
leikin af Gerd Wiik, Krofstad
málafærslumaður leikinn af Karl
Eiler Wiik, Anne-Marie, barn-
fóstra leikin af Helge Backe,
þjónustustúlkan er Eva Knoop
og sendisveinn Svein Byhring.
Riksteatret í Noregi hefur
því hlutverki að gegna að fara
í sýningarferðir um landið og
flytja þannig leiklistina til fólks-
ins í sveitunum. Það sýnir yfir-
leitt aldrei í bæjum, sem hafa
sitt eigið bæjarleikhús. Þá fer
leikhúsið í sýningarferðir til Sví
þjóðar og sýnir sænska Rikste-
atret þá í Noregi í staðinn. Þá
sýnir Riksteatret í Kaupmanna-
höfn í ágúst og hefir einnig haft
leiksýningar fyrir norska sjó-
menn bæði í Antwerpen, Rott-
erdam og London.
Fritz von der Lippe gat þess í
viðtalinu í gær, að það væri hinu
norska Riksteater sérstök ánægja
að koma til íslands • og leikar-
arnir hefðu góðfúslega eytt hluta
að sumarleyfi sínu í förina. Gat
hann þess að í Noregi væri geysi-
mikil aðsókn að sýningunum úti
á landi, og -vænti hann þess, að
svo myndi einnig fara hér.
Stjórn Bandalags fsl. leikfé-
laga skipa nú: formaður Ævar
Kvaran, ritari Lárus Sigurbjörns
son, gjaldkeri Sigurður Kristins-
son og framkvæmdastjóri Svein-
björn Jónsson.
Gera verður annað tveggia
lagfæra Dragháls eða loka
MAÐUR nokkur kom að máli
við Morgunblaðið í gær og
kvað hann það vera með öllu
óforsvaranlegt fyrir vegamála-
stjórnina að gera ekki annað
tveggja að loka Draghálsleiðinni
alveg, eða þá að gera þar við
hálf-ófæran veginn.
Yfir hásumarið er Dragháls
mikið farinn, sem kunnugt er.
Snemma í vor var meá naum-
indum fært á jeppabíl um veg-
inn og urðu bílstjórar þá að fara
úr bílum sínum og kanna leiðina,
því á alllöngum kafla var vegur-
inn undir svo djúpu vatni.
Núna er vatnið sigið mikið á
veginum. En þar sem það var
dýpzt, hafa bílarnir farið niður
úr, svo þar er nú bráðófært
svað. Hafa bílar, sem þarna hafa
farið því orðið að fara út af
veginum, út í móana. Það er að
sjá sem margir hafi orðið fastir
þar í bleytu, því mörg hjólförin
enda í feni. — Einhver hefur
fundið færa leið um móana, og
á henni mæðir nú allur umferð-
arþunginn. Má nærri geta hve
lengi hún mun að haldi koma
ef rigningu gerði.
Ég fullyrði það, sagði maður-
inn að með því að senda nokkra
menn úr vinnuflokknum við
Fossá í Hvalfirði dagstund upp
á Draghálsleiðina með bíla og
ofaníburð, þá væri hægt að lag-
færa veginn svo að hann yfir
hásumarið væri fær öllum venju-
legum bílum og tilkostnaður yrði
ekki mikill.
Eins og nú er, þá er Dragháls-
leiðin svo illfær, að enginn ætti
að hætta sér á fólksbílnum sínum
út í slíkt fen, sagði bílstjórinn
að lokum.
Æflar að gefa barna-
skólanum útvarp
GJÖGRI, Strandasýslu, 4. júlí —
Aðalfundur Verkalýðsfélags Ár-
neshrepps var haldinn s. 1. sunnu-
dag. Stjórnin var öll endurkosin,
en hana sltipa: Sörli Hjálmarsson
formaður, Helgi Jónsson ritari, og
Siggeir Jónsson gjaldkeri.
Samþykkt var einróma tillaga
formanns,að gefa barnaskóla Ár-
neshrepps vandað útvarpstæki áð-
ur en skólinn hefst á næsta
hausti. —Regína.
HAFNARFIRÐI — Þennan bikar
gefur Hafnarfjarðarkaupstaður
til keppni milli Reykvíkinga, Akur
eyringa og Hafnfirðinga innan
norrænu sundkeppninnar 1957.
Hlýtur það hæjarfélag bikarinn
til eignar, sem mestri þátttökú-
aukningu nær í 200 metra sund-
keppninni frá því 1954 miðað við
höfðatölu, en þá urðu úrslit þessi:
Hafnarf jörður 1541 þátttakandi
eða 28,1%.
Reykjavík 16478 þátttakendur
eða 27,6%.
Akureyri 1958 þátttakendur eða
25,0%.
Nú hafa þegar synt:
í Hafnarfirði 760 eða 10,6%.
í Reykjavík 6630 eða 10,2%.
Á Akureyri 816 eða 10,0%.
Vilja sundnefndirnar hvetja
alla, sem ekki hafa enn synt, að
hefja nú þegar undirbúning til
æfinga með það fyrir augum að
synda 200 metrana.
Hafnfirðingar: Sundhöll ykkar
er opin alla virka daga frá kl.
8—12 og 14—21,15, nema á laug-
ardögum, þá frá kl. 8—12 og
13—19. — Sunnudögum frá kl.
10—12; — Sértímar karla á mið-
vikudögum frá kl. 20—22. — Sér-
tímar lcvenna á fimmtud. frá kl.
20—22.
Reykvíkingar: Sundhöllin er
opin alla virka daga frá kl. 7,30—
21,15. — Sunnudögum frá kl.
8—14,15. — Sértímar kvenna á
mánud., þriðjud., miðvikud. og
fimmtud. frá kl. 21—21,45. —
Sundlaugarnar eru opnar alla
virka daga frá kl. 7,30—-20, nema
á föstudögum frá kl. 7,30—9. —
Sunnudögum frá kl. 8—15. — Sér
tímar kvenna alla virka daga frá
kl. 9—10.
Akureyringar: Sundhöllin ér op-
in alla virka daga frá kl. 8—21,15
Sunnudaga frá kl. 9—12 og 14—
16,30. — Sértímar kvenna eru á
mánudögum og fimmtudögum frá
kl. 21—22.
Miðsumarmót ÁrnesÍBgaiélugsius
œ Þingvöllum nm næstu helgi
NÆSTKOMANDI laugardag og sunnudag heldur Árnesingafélagið
í Reykjavík hið árlega miðsumarmót sitt á Þingvöllum. Há-
tíðahöldin hefjast kl. 7 í Valhöll með borðhaldi. Síðar um kvöldið
setur formaður félagsins, Hróbjartur Bjarnason mótið á sama stað.
SKEMMTIATRIÐI
Á laugardagskvöldið verður
ýmislegt til skemmtunar í Val-
höll. Séra Sigurður Pálsson að
Selfossi flytur ræðu, kvartett
Árnesingafélagsins í Keflavík
syngur og síðan verður dansað
til kl. 2 eftir miðnætti.
SUNNUDAGUR
Á sunnudagsmorguninn verður
gengið til Lögbergs kl. 11, Leið-
sögumaður verður dr. Guðni
Jónsson. Kl. 2 e. h. fer fram
guðsþjónusta í Þingvallakirkju.
Séra Jóhann Hannesson, þjóð-
garðsvörður prédikar.
FERÐIR
Ferðir verða frá BSÍ á laug-
ardaginn austur á Þingvöll kl.
4, 6 og 8. Þess er vænzt að Ár-
nesingar austan fjalls og vestan
fjölmenni á mótið.
t fyrrinótt fór fegurðardrottningin ungfrú Bryndís Schram áleiðis
til New York með Pan American. Fylgdarmaður hennar er Sigurður
A. Magnússon blaðamaður. Á myndinni sést, er fulltrúi Pan Ameri-
can í Keflavík afhendir Bryndísi farmiðann en fiugstjórinn og flug-
freyjan tóku á móti henni. Bryndís kom til New York kl. 9,30
í gærmorgun. Áður en hún lagði af stað fór Sjóvá þess á Ieit að mega
gefa henni ferðatryggingu. Henni barst fjöldi blóma.
(Ljósm.: G. Rúnar).
TAKSTEIMAB
Gengur lítt að leysa
vanda“
S.l. þriðjudag birti Tíminn
kvæði eitt, sem nefnist „Stjórnar
andstaðan“. Það hefst á þessum
vísum:
„Skipin okkar, góðu og glæstu
gjarna nefnd með stolti og hrósi,
bíða ég sé við bryggju næstu
bundin, eins og naut í fjósi.
Gengur lítt að leysa vanda,
og líkur til að fleiri strandi,
því auðveldlega öllu stranda
einnig má á þurru landi“.
Mun flestum þykja sannmæli
það, sem í vísum þessum segir.
Er nú auðsjáanlega farið að
grána gamanið á stjórnarheim-
ilinu, þegar málgagn forsætis-
ráðherrans birtir þvílíka lýsingu
á stjórnarfarinu. Virðist svo sem
helzta von stjórnarliðsins sé nú
sú, að stjórnarandstöðunni takist
að leysa þann vanda, sem ríkis-
stjórninni er bersýnilega um
megn. En víst er það veiga-lítil
afeökun fyrir Hermann Jónasson,
að minnt skuli á að
„auðveldlega öllu stranda
einnig má á þurru landi“.
Tíminn miður sín
Morgunblaðið minnti s.l. sunnu
dag á tilvitnun Hermanns Jónas-
sonar hinn 17. júní í orð Jóns
Sigurðssonar. Um þá tilvitnun
sagði blaðið orðrétt:
„Þessi orð eru sígild og er
sannarlega gleðiefni, að athygli
Hermanns Jónassonar skuli nú
hafa verið vakin á þeim“.
Þessi afdráttarlausu orð skilur
Tíminn á þann veg, að hann segir
s.l. miðvikudag:
„Morgunblaðið heldur áfram að
láta í ljós óánægju sína yfir því
að vitnað sé í orð Jóns Sigurðs-
sonar. Aðstandendum þess fellur
sennilega illa að heyra orð Jóns
forseta og þarfnast það ekki skýr-
inga. Slík er nú iðja þeirra.
Sá, sem er orðinn svo ruglaður
í ríminu, að hann snýr staðreynd
unum jafn-gersamlega við og
Tíminn hér, er meira en lítið
miður sín. E.tv. er það óttinn við
„strand á þurru Iandi“ undir leið
sögn Hermanns, sem fátinu veld-
ur.
Vesalmennska
Þjóðviljinn tekur s.l. miðviku-
dag til orða á þess leið:
„Nú sést í skæru ljósi stað-
reyndanna hve vesalmannlegar
og hættulegar blekkingar Bjarna
Benediktssonar, Ólafs Thors og
þeirra manna um „vernd íslend-
inga“’ „varnir íslands“ í sam-
bandi við Atlantshafsbandalagið
og bandarísku herstöðvarnar
eru‘.‘.
Fáryrði Þjóðviljans um and-
stæðinga kommúnista undrar
engan. Hitt er furðulegt, að for-
ráðamenn blaðsins skuli ekki
skilja, að öll svigurmæli þeirra í
garð annarra í sambandi við varn
armálin hitta þá nú sjálfa fyrir.
Dvöl erlends hers í landinu cr nú
haldið við með stuðningi og stjórn
skipulegri ábyrgð Ieiðtoga komm
únista. Ef þeir fara svo að gcgn
betri vitund, verður hlutur þeirra
að vesalli.
,Ekki erindi til sveita-
fólksu
t Þjóðviljanum s.l. miðvikudag
segir Skúli Guðjónsson:
„Hinir hryggilegu atburðir i
Ungverjalandi, -frá síðastliðnu
hausti, eru ekki þannig vaxnir,
að myndir af þeim eigi erindi tii
sveitafólks, þegar það kemur
saman til að skemmta sér eina
kvöldstund.“
Víst væri það gott, ef allir í
sveit og við sjó, gætu lokað aug-
unum fyrir þessum atburðum.
En því miður eru þeir eftirminni-
leg sta staðreynd þessa áratugs.