Morgunblaðið - 05.07.1957, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 05.07.1957, Qupperneq 8
8 MORCVTSBlAÐIÐ Föstudagur 5. júlí 1957 Nauðungaruppboð verður haldið á bifreiðastæðinu við Vonarstræti hér í bænum, laugardaginn 6. júlí n.k. kl. 11 f.h., eftir kröfu Gunnars A. Pálssonar hrl. Seld verður bifreið in R-9059. Greiðsla fari fram við hamarshögg. Borgarfógetinn I Reykjavík. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 44., 45., og 46. tbl. Lögbirtinga- blaðsins 1957 á v.s. Áslaugu R.E. 32, eign Hallgríms Oddssonar, fer fram eftir kröfu Landsbanka íslands, þar sem skipið liggur við Grandagarð, miðviku- daginn 10. júlí 1957 kl. 2 síðdegis. Borgarfógetinn í Reykjavík. Húsgagnaverzl. Laugav. 36 Sími 3131 (13131) Svefnherbergissett, ný gerð Svefnsófar Svefnbekkir Skrifborð, 4 gerðir Sófaborð Símaborð Spilaborð Fyrst um sinn getum við ekki annast viðgerðir og klæðmngar á gömlum húsgögnum. Húsgagnaverzl. Laugav. 36 Sími 3131 (13131) Skr if stof ustú I ka óskast að heildverzlun hálfan eða allan daginn. — Vélritunarkunnátta og einhver enskukunnátta nauð synleg. Hraðritun æskileg. — Upplýsingar sendist afgr. Mbl. fyrir 10. þ.m. merkt: Ábyggileg — 7818. Verkstjóra vantar Vanan verkstjóra vantar á réttingaverkstæði, sem getur tekið til starfa innan skamms. — Einnig getur komið til mála að leigja verkstæðið, að einhverju eða öllu leiti, gegn fyrirframgreiðslu, eða láni. Olíuhreinsunarstöðin hf., Sætún 4, sími 6227. Smurstoðin Sætúni 4 selur smuroliur frá öllum olíufélögum, og hina viðurkenndu endurhreinsuðu smuroliu. Fljót og góð afgreiðsla. — Sími 6227. TIL LEIGU Gott húsnæði, ea. 150 ferm. til leigu fyrir vöru- geymslu, verkstæði eða iðnað. Umsóknir sendist Mbl. fyrir næstkomandi miðviku- dagskvöld merktar: Steinhús — 730. Lokað vegna sumarlcyfa 24. júlí til 6. ágúst Getum ekki tekið við meiru verkefni, fram að þeim tíma. Þ. Jónsson & Co. Brautarbolti 6 — Símar 82215 - 5362 Skrifstofustúlka vön algengum skrifstofustörfum, m.a. vélritun á íslenzku og ensku, getur fengið atvinnu hjá heild- verzlun nú þegar. Umsóknir með tilheyrandi upplýsingum sendist afgr. Mbl. merkt: Vélritun — 7819. Gjaldkeri Reglusamur maður eða kona, sem hefur þekkingu á þókhaldi, óskast til gjaldkerastarfa strax hjá op- inberu fyrirtæki. Uppl. um menntun, aldur og fyrri störf, ásamt meðmælum ef fyrir hendi eru, sendist blaðinu fyrir n.k. þriðjudag merkt: Gjaldkeri 5734. Algerum trúnaði heitið. Valgerður Gísladóttir Hinning f DAG, 5. júlí verður Valgerður Gísladóttir borin til hinztu hvíld- ar. Það er aðeins hugur minn, er fylgir þér þennan síðasta spöl, Valgerður mín, kveður og þakkar samveruna.Þakkar alla þína still- ingu og prúðmennsku, er var mér fyrirmynd. Þú möglaðir ekki yfir erfiðum kjörum og hefur þó að líkindum verið mestan hluta æv- innar það sem almennt er kallað olnbogabarn lífsins. Þú notaðir ekki þitt ófullkomna málfæri til þess að tala illa um aðra. Þér var gleði að tala um fegurð móður náttúru. Skepnur og dýr voru vinir þín. ir. Og í þínum erfiðu kjörum gazt þú glaðzt af litlum geisla, eins og gott barn. Nú vona ég að Ijósgeislar eilííð ar umvefji þig og gleðji. Vertu sæl, Guð blessi þig Oft varst þú eftir í skugga, þá öðrum skein sólin, hver skilur þá hyldýpis harma er hugur þinn átti? Ég gat þér ekkert verið vina, minn veikbyggði þróttur brást, til að bæta þín kjörin í bágindum þínum. Samveru þér vil ég þakka, því skal ei gleyma að hetja í þjáingum þínum mér, þú sýndist vera. Misskilning mættir þú tíðum mun það nú breytast. Ég fel þig í föðurins arma í Frelsarans nafni. Guðrún Guðmundsdóttir. frá Melgerði. Bryggjan að Gjögri lengd GJÖGRI, Strandasýslu, 4. júlí — Nýbyrjað er að lengja bryggjuna á Gjögri. Á að lengja hana um 12 metra. Geta þá 20 lesta bátar lagzt að henni hvernig sem stend ur á sjó. I árus Eggertsson, kaf- ari frá Vita- og hafnarskrifstof- unni og Sörli Hjálmarsson, sjá um verkið. —Regína. Kaupstefnunnar í Reyljavík með þátttöku Tékkóslóvakíti, Þýrka alþýðuveldisins og Rúmeníu, verður opnuð í sýningarskála rið Austur- bæjarskólann laugardaginn 6. júlí n.k. klukkan 5 e.h. 2. vörusýntng Málíundaíélagið Óðinn Farið verður í skemmtiferð sunnudaginn 14. júlí um Krísuvík, Hreppa, að Gullfossi ogGeysi. Um Þingvöll til baka. — Nánara í bréfi og blöðum síðar. N E F N D I N

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.