Morgunblaðið - 05.07.1957, Síða 11

Morgunblaðið - 05.07.1957, Síða 11
Föstudagur 5. júlí 1957 MORKvivnr/ATnn 11 Cengið um Mýravarpið: Dúninn smátt — þarf að taka smátt og tvisvar til fprisvar á vori í Mýravarpinu eru á fimmta þúsund æðarkolIur Það er elzta heimasælan á Mýrilm, Þuríður Gísladóttir, sem þarna er að athuga hvort hreiðurbotninn sé þurr. Æðarkollan hreyfir sig ekki af eggjunum á meðan, heldur leyfir stúlkunni að fara með hendina inn undir sig og þreifa í hreiðrið. ÞESSX DÚNN er úr Mýravarp- inu, ágætis vara, þaðan kemur ævinlega góður dúnn. Það var verzlunarstj óri nokkur í Reykja- vík sem þessi orð mælti fyrir nokkrum árum er ég kom inn í verzlun hans og hafði hug á að koma mér upp hlýlegri yfirsæng. Úr Mýravarpinu, já, gaman væri að fá einhvern tíma að skoða það. Og tækifærið gafst í vor, að kvöldi annars hvítasunnudag. Bóndinn að Mýrum, Gísli Vagns- son átti erindi út að Núpi þar sem ég var stödd og það varð að ráði að ég fylgdist með honum inn að Mýrum og skoðaði varpið. KIRKJUSTABUR FRÁ ÖNDVERÐRI 12. ÖLD Mýrar liggja í um það bil miðj- um Dýrafirði norðanverðum, undir Mýrafelli sem áður var nefnt Sauðólfsfell. Býlið er kirkjustaður allt frá öndverðri 12. öld. Þar hafa verið ýmsir merk- ir búendur. Þar bjó um hríð Þór- dís dóttir Snorra Sturlusonar, og var þá ekkja eftir Þorvald Vatns firðing. Mýrar eru eftir gömlu mati 56 hundraða jörð og miklir eru þar landkostir. Mýra er nokkrum sinnum getið í fornsög- um og í Flateyjarbók er sagt frá viðskiptum Núpverja og bóndans á Mýrum á samkomu undir Gnúpi 1393. En slíkar erjur tilheyra öld- unum. Vinátta ríkir á milli bæj- anna og það var einmitt annar bóndinn að Núpi Valdemar Krist- insson, sem ók okkur Gísla inn að Mýrum. Valdemar er refa- skytta sveitarinnar og var ein- mitt á leið á greni í Hvallátur- dal, innarlega í Dýrafirði. Ætl- aði hann að freista þess þessa nótt, að vinna á rebba og öllu hans hyski, en mikið hafði borið á dýrbít undanfarið. GENGIÐ UM MÝRAVARPIÐ Húsmóðirin á Mýrum, kona Gísla Vagnssonar, Guðrún Jóns- dóttir, tók gestunum eins og hús- móðir á íslenzku sveitaheimili getur bezt gert. Og þótt klukkan væri farin að ganga 12 um kvöld- ið og stanzlaus gestastraumur yfir allan daginn, taldi hin önn- um kafna húsmóðir ekki eftir sér að ganga niður í æðarvarpið og segja mér frá hvernig lífinu þar væri háttað. Veðrið var dásamlegt. Kvöldsólarbjarminn speglaðist á tjörnum og pollum. Æðarfuglinn kúrði værðarlega á hreiðrunum, nema einstöku geld- fugl, sem enn var á kreiki. „Rabb- andi“, stuttstigir og fjaðurprúðir, vöguðu þeir um milli þúfnanna. Æðarkollurnar voru svo spakar, að þær hreyfðu sig ekki einu sinni þótt við gengjum framhjá þeim. Það lá við einum fimm sinnum, að ég stigi ofan á þær á hreiðrunum. Varplandið er á svonefndum Mýramel, en hann er að mestu gamlir sjávarkamb- ar, sem myndazt hafa af fram- burði lækja. Víða eru tjarnir og flóar enda eru áveitur þarna. Varpið nær yfir um það bii 2ja til 3ja ferkílómetra svæði og er þéttast á gröndum milli tjarn- anna. Þarna kúrðu á fimmta þús. æðarkollur, eins og flauelspúðar til að sjá á snoturlega gerðum hreiðrum. ÞARP MIKLA UMHIRDU — Það hlýtur að vera geysi- lega mikið verk að sinna varpinu, Guðrún? — Ójá, það er það nú. Ég hefi nú mest sinnt því með ungling- um og það kemur fyrir að við erum að rölta í kringum það allan daginn. •— Gefur það ekki mikinn dún af sér? — Það fer nú mikið eftir hve vel því er sinnt og hvernig veðr- átta er, en það má venjulega reikna með 75 kg. af dún eftir vorið. — Og hvað þarf dún úr mörg- um hreiðrum í eitt kg.? — Það er misjafnt, ætli meðal- talið sé ekki oftast um 60 í kílóið. —Hvenær byrja kollurnar að verpa? — Þegar tíð er góð, byrja þær oft fyrstu dagana í maí en það getur dregizt allan mánuðinn allt fram undir mánaðamótin maí og júní. Þær byrjuðu heldur seint í vor. Þær eru kenjóttar eins og mannfólkið. — Hvað er meðaltala eggja í hreiðri? — Það er algengast að séu 4—5 egg í hreiðri, en stundum sér maður allt að 9 eggjum í hreiðr- inu en þá hafa oftast nær tvær gert sambú. — Er ekki mikið verk að koma slíku varpi og þessu upp? — Jú, það er það víst. Eins og þú sérð er hér ágætt land fyrir fuglinn að hreiðra sig, en það var samt ekki byrjað að hlynna neitt að varpinu hér fyrr en 1903. Þegar við Gísli fórum að búa á Mýrum 1936 voru 1350 æðarkoll- ur hér í varpinu. Nú erum við búin að vera hér, í 21 ár, og kollugreyin orðnar á fimmta þúsund. — Varst þú kunnug æðarvarpi, áður en þú komst hingað? — Ætli það ekki, ég er nú ættuð úr Sauðeyjum á Breiða- firði og flestir Breiðfirðingar, eða minnsta kosti eyjafólk, kann- ast við æðarvarp og kann þar til verka. Annars erum við hjónin bæði Breiðfirðingar, maðurinn minn er frá Hallsteinsnesi í Gufu dalssveit. „ÞAÐ ER ÆÐARKÓNGUR f VARPINU" — Viltu segja mér hvernig vinnu í æðarvarpi er háttað, Guðrún? — Það er nú svo sem ekki miklu frá að greina, en það get- ur verið nógu tafsamt, en .... hvað ert þú að vitleysast asninn þinn, hypjaðu þig bara á þinn stað, já, hlýddu .... Það var ekki til mín, sem Guð- rún talaði, heldur til æðarkollu, sem þaut upp af hreiðri sínu með gargi og látum þegar við nálguðumst hana. Þetta var fugl sem orpið hafði í fyrsta skipti, og var ekki búinn að átta sig á því ennþá, að engin hætta staf- aði af mönnunum. En það sem verra var, kollurnar á næstu hreiðrum ókyrrðust einnig af þessum ólátum, því kollan hljóp hring eftir hring umhverfis hreiðrið og lét sér hvergi segj- ast, þótt húsmóðirin snupraði hana. — Já, þar hafði hún.það af að hrekja þessa af hreiðrinu, sagði Guðrún, og sérðu bara, hún hleypur af stað með tvo unga og skilur einn eftir blautan í hreiðr- inu. Við verðum að ná honum, því hann drepst ef hann fer blaut ur í vatnið á eftir þeim. Og þar með tók hún á sprett, náði blauta unganum og stakk honum undir hlýjan dúninn í hreiðrinu. — Þetta er svoddan óræktir stundum, þær hlaupa af stað með fyrstu ungana og skilja hina vesalingana eftir. Annars var það nú hin kolluskömmin, sem fældi hana upp. Já, þú varst að spyrja hvernig æðarvarpið gengi fyrir sig. Það skal ég segja þér, en við skulum koma þangað sem æðarkóngurinn er, þú mátt til að sjá hann, og svo skal ég segja þér frá varpinu á leiðinni. Við gengum áleiðis til æðar- kóngsins. DÚNNINN ER TEKINN SMÁTT OG SMATT — Starfið við varpið er í því fólgið, sagði Guðrún, að taka dún og skipta um í hreiðrunum ef blautt er í þeim. Þá er það blauta tekið en þurrt hey látið í hreiðurbotninn og þurr dúnn ofan á. Þetta þarf að gera minnst einu sinni í viku því annars fún- ar dúnninn. Svo þarf að skyggna eggin. Taka ófrjó egg, (kaldegg). Þau má maður taka til matar og eru þau ágæt ef þau liggja ekki lengi í hreiðrinu. Aðal verkið er þó að taka dúninn, en hann er tekinn smátt og smátt, tvisvar til þrisv- ar á vori úr hverju hreiðri. — En hvernig er svo farið með dúninn, þegar búið er að safna honum saman og hann kominn heim? — Þá er hann fyrst þurrkaður úti, síðan er hann hitaður mjög vel, eða þar til öll óhreinindi molna úr honum þegar hann er látinn í dúnhreinsunarvélina, sem gengur fyrir rafmagni. Dúnn inn er hitaður í rafmagnsofni í sérstökum kassa, svo hitinn not- ist sem bezt. Svo er náttúrlega undir þeim komið sem undirbýr dúninn í vélina og stjórnar henni hvort varan verður góð eða ekki. Til þess að framleiða góðan dún, þarf dúnninn fyrst og fremst að vera góður í eðli sínu, sem sagt, ekki tekinn úr ruslinu eða út- leiðslunni. Það er kölluð útleiðsla þegar ungarnir koma úr eggjun- um, og allt fer úr hreiðrinu, þá er ævinlega eitthvað eftir að dún í því. í öðru lagi þarf að þurrka hann sérstaklega vel, til þess að óhreinindin molni úr hon- um. í þriðja lagi má ekki hita of mikið í vélina. Sé það gert, þófnar hver hnoðri, hver dún- fjöður út af fyrir sig og sam- loðun dúnsins minnkar. Ekki má heldur hafa dúninn lengur í vél- inni en það að óhreinindin fari úr honum. í þessum efnum verður fólk að þreifa sig áfrapi, hver með sína vél og sinn dún, sem auðvitað er ákaflega misjafn upprunalega. Maður kappkostar vitanlega að fá dúninn sem bezt- an. Og þarna sérðu æðarkónginn. Þegar hér var komið vorum við staddir í þúfnamóa. Og mik- ið rétt, þarna var hann, stolt varpsins, grænlenzkur að ætt, með mikið fjaðraskraut, gulur, hvítur, grænn og blár. Hann rigs- aði drembilega umhverfis hreiðr- ið og leit með greinilegri fyrir- litningu til hinna blikanna, sem urðu sannarlega tilkomulitlir í nærveru hans. Æðarkollan hans var þó ekkert frábrugðin hinum kollunum, þarna í nágrenninu, meira að segja frekar rytjuleg og lítil. Já, það velst ekki alltaf saman sem er glæsilegast. Jæja, ég var sem sagt búin að fá að sjá einn hinna margumtöluðu æðarkónga. HÁLFS MÁNAÐAR VINNA FYRIR EINU DÚNKÍLÓI Klukkan var að verða tvö um Talið er, að við yfirstjórn gæzluliðsins taki bandaríski her- foringinn Leary, en sænskur her foringi muni taka við formennsku vopnahlésnefndarinpar. Hamm- arskjöld mun sjálfur hafa lagt svo fyrir, að formaðurinn yrði Svíi. Ástæðan til þess, að Burns læt- ur nú af störfum er sögð sú, að Hammarskjöld hafi lagzt gegn beiðni Burns um að gæzluliðið yrði styrkt til þess að hægt væri að herða eftirlitið og koma í veg fyrir árekstra á Gaza-ræmunni. Kanadiska stjórnin er sögð hafa komizt á snoðir um þennan mikla ágreining og farið þess á leit við Burns, að hann léti af störfum í þágu S.Þ. A nðttina þegar við snérum heim úr æðarvarpinu. Húsbóndinn var samt ekki genginn til náða þeg- ar við komum heim. Og þar sem setið var yfir ilmandi hressandi kaffinu á eftir, vír ennþá haldið áfram að ræða um æðarvarpið. Gísli bóndi komst þá svo að orði: — Dúnn er hreint ekki svo dýr miðað við margt annað. Hugsum okkur til dæmis, að yfirsæng úr góðum dún endist í tugi ára. En sé keypt flík, kjóll eða kápa fyrir sama verð og sængin, endist flíkin ekki nema í hæsta lagi í nokkur ár, ef hún gerir það þá. Sama er að segja ef gamli tíminn er borinn saman við þann nýja. Um og eftir alda- mótin og allt fram til 1914 þurfti karlmaður að vinna í hálfan mánuð fyrir einu dúnkílói. Nú er ég hræddur um að karlmanni þætti það lítið kaup fyrir sex daga vinnu að fá ekki nema eitt kíló af dúni fyrir, hvað þá held- ur ef hann ætti að vinna fyrir því í tvær vikur. ★ Klukkan var að verða þrjú, þegar ég sá sóma minn í því að halda ekki lengur vöku fyrir þessum breiðfirzku sæmdarhjón- um og koma mér af stað. Enda hafði ég þá einnig níðst á greiða- semi og bónþægni gamals skóla- bróður míns, Arngrims Jónsson- ar, kennara á Núpi og beðið hann að sækja mig í jeppanum sínum. Og nú var hann kominn. Það var samt tekið loförð af mér að koma aftur, en ég sveik það, óviljandi þó. — En mig langar til að koma aftur að Mýrum. —M. Th. Undanfarið hefur mjög verið þjarmað að gæzluiiðinu á landa- mærum Egyptalands og ísraels. S.Þ. hafa sífellt látið í minni pok- ann fyrir Egyptum. Hefur fram- kvæmdastjóri S.Þ. fallizt á það, að hermönnum S.Þ. væri óheim- ilt að skjóta á fólk, sem fer í leyf- isleysi yfir egypzk-ísraelsku landamærin. Ætlaði herstjórnin þá að láta 'krók koma á móti bragði og girða landamærin, en það féll Egyptum ekki vel. — Náðu kröfur þeirra um bann við uppsetningu girðingarinnar fram að ganga á æðri stöðum hjá S. Þ. Hermönnum S.Þ eru því allar bjargir bannaðar, þvi að þeim er meinac að hindra tíðai- ferðir skemmdarverkamanna yfir landa I mærin Úr æðarvarpinu á Mýrum. Beint fyrir neðan bæinn, niðri á grönd- unum er varpið mjög þétt. Mest ber á blikunum í varpinu vegna þess hve fjaðurskreyttir þeir eru. Þeir yfirgefa ekki æðarkoll- urnar fyrr en ungarnir eru komnir úr eggjunum, en kúra hjá hreiðrunum allan þann tíma sem þær liggja á. Misklíð milli Burns og Hammarskjölds Lætur Burns af störfum ? Haifa, 3. júlí: ¥»AÐ ER HAFT eftir áreiðanlegum heimildum, að Burns, yfir- * foringi gæzluliðs S.Þ. á Sinai-skaga og formaður vopnahlés- nefndarinnar, muni innan skamms láta af þeim störfum vegna ágreinings við Hammarskjöld, framkvæmdastjóra S.Þ.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.