Morgunblaðið - 05.07.1957, Síða 13
Föstudagur 5. júlí 1957
MORGUNBLAÐ1Ð
13
veiki og einkason sinn Sigurð,
mjög sviplega, af slysförum, 9
ára gamlan. Þrjár dætur þeirra
eru nú á lífi. Guðný, gift Jónasi
H. Traustasyni, sem tekið hefur
við skipaafgreiðslu Jakobs, Berg-
Ijót, sem staðið hefur fyrir búi
foreldra sinna nú seinni árin og
stundað þau í heilsuleysi þeirra
með þeirri fórnfýsi og kærleika,
sem fátítt mun vera nú á dögum,
og Kristbjörg, sem er gift Jóni
Finnssyni lögfræðing í Hafnar-
firði. Eina fósturdóttir, Margréti
Jónsdóttur, gifta Ágústi Jónssyni
á Blönduósi, ólu þau upp frá fæð-
ingu, sem sitt eigið barn.
Jakob Karlsson andaðist á
heimili sinu 22. júní s.l., eftir
tæpl. 5 ára erfið veikindi, sem
höfðu svipt han starfshæfni.
Eins og sést af framanskráðu
var Jakob óvenjufjölhæfur at-
hafnamaður, sem tók þátt í fjöl-
mörgum framfaramálum Akur-
eyrar.
Jakob var skarpgáfaður maður,
sem þrátt fyrir það, að hann
hafði ekki hlotið skólamenntun,
var víðlesinn og fjölfróður, enda
átti hann mikið og gott bókasafn.
Jakob var maður háttvis, lát-
laus og prúður í framgöngu, en
gat verið gamansamur, en græsku
laus. Hann var skapfestumaður
í mesta máta og skaphreinn, en
þó framúrskarandi sanngjarn og
mildur. Hann var tillögu- og
ráðagóður stuðningsmaður allra
góðra málefna. Hann var afkasta
maður hinn mesti til allra starfa
og ritaði svo góða hönd, að af
bar. Ekkert var fjær skapi hans,
en prjál og hégómi. Hann var i
eðli sínu hlédrægur og vildi
mjög ógjarnan hafa afskipti af
opinberum málum og kom sér
hjá þvi, ef hann gat, en taliö var
að enginn þyrfti að hugsa til að
etja kappi við hann í þing-
mennskuframboði, hefði hann
fengizt til þess, svo var hann vin-
isæll af öllum almenningi og
sterkt álit á heiðarieika hans og
réttsýni.
J'akob var hinn mesti höfðingi
heim að sækja, enda ætíð ge.it-
kvæmt á heimili þeirra hjóna.
Öllum þótti gott með honum að
vera og til hans sótti fjöldi manna
traust og hjálp, en því flíkaði
hann lítt. Hann var virtur og
dáður af öllum þeim skara verka-
manna, sem hann hafði í þjón-
ustu sinni hin mörgu starfsár og
í augum nánustu samverkamanna
hans, skrifstofu- og verzlunar-
fólks, var hann hínn bezti hús-
bóndi, er hugsanlegur var.
Akureyringar munu ætíð minn
ast Jakobs Karlssonar sem eins
síns nýtasta og bezta sonar, sem
var fyrirmynd annarra um alla
starfshætti, dugnað, hagsýni, góð
leik, réttlæti og tryggð við allt,
sem fagurt er og gott og mætti
verða bæjarfélagi þessu og þjóð-
inni allri til heilla og farsældar.
Hann mun ætíð bera einna
hæst sinna. samtíðarmanna, er
beztan settu svip á Akureyrar-
bæ.
Hann er nú farin til æðii
heima, „meira að starfa guðs um
geim“ og við samferðamenn hans
kveðjum hann með miklu þakk-
læti og virðingu.
Akureyri, 29. júní 1957.
Tómas Björnsson.
Góð Zja herb. kjallaraíbúð
með sér inngangi og sér hitaveitu við Freyjugötu
til sölu strax.
IMýja fasleignasalan
Bankastræti 7, sími 1518 og kl. 7,30—8,30 81546.
SÍMAVARZLA
Vér óskum eftir að ráða stúlku til símavörzlu nú
þegar. Skriflegar umsóknir, er greini aldur, mennt-
un og fyrri störf, skulu sendar skrifstofu vorri í
Lækjargötu 4 eigi síðar en 8. þ.m.
Fyrirspurnum ekki svarað í síma.
— Bezf að auglýsa í Morgunblaðinu —
FiSHING NET
Hinri langþráði draumur fiski-
mannsins hefir nú loksins rœtst
cfhúkai FISHING NET að þakka
Þvi:
1. Þau eru veiðnari en venjulegar gerðir neta.
2. Þau eru sterk og endingargóð og lækka þvi við-
haldskosinað.
Þau eru öllum netum léitari.
Þau ganga seint úr sér, eru afar endingargóð.
Þurrkun eða sérstök meðferð óþörf. Spara þvt
alla vinnu þar að lútandi. Varanet næstum óþörf.
Stöðugar veiðar eru möguleg^p netanna vegna.
Heimsins bezta vinna svo og áSurnefndir kostir
þessarra heimsþekklu „Amilan Fishing Net". Þau
bera ávallt merkið, sem sýnt er að ofan. „Amil-
an“ er vörumerki okkar nælons. Toyo fíayon Co.,
Ltd., du Ponl's einkaleyfi í Japan á nælon fram-
leiSslu.
Bæklingur um „Amalian Fishing Net“ er fóanleg-
ur og verður sendurvæntanlegum viðskiptavinum.
3.
4.
5.
6.
ASalframleiSendur neelons í Japan
Toyo Royon C«», IHL
No. 5, 3-chome, Nakanoshima, Kita-ku, Osaka, Japan
tiA^is Cable Address : “TOYORAYON DSAKA”
Vegna mikilla anna
hefur orðið að fresta lokun vegna sumarleyfa. —
Lokað verður frá 15. júlí til 6. ágúst.
Sími 5913.
BIEREIÐASTÖÐ STEIISiBÓRS
Nýju símanúmerin verða:
Sérleyfisbifreiðir:
24110 — 11585
Leigubifreiðir:
24100 — 11580
Steindór
Aríðandi tilkynning
til símanotenda
Nóttina milli laugardagsins 6- júlí
og sunnudagsins 7. júlí, breytast öll nú-
verandi símanúmér í Reykjavík, Hafn-
arfirði og Kópavogskaupstað, svo og
sjálfvirk símanúmer eftirfarandi síma-
stöðva: Akranes, Borgarnes, Brúarland,
Hveragerði, Keflavík og Selfoss. Sam-
tímis mun mikill hluti hinna nýju síma-
notenda fá samband.
Aðalbreytingin fer fram milli kl. 12 og 1 um nóttina, og
eftir þann tíma gengur hin nýja símaskrá í gildi, en nú-
verandi símaskrá 1954 verður ónothæf. Númerabreyting-
uni verður haldið áfram alla nóttina og fram eftir sunnu-
deginum 7. júlí, og eru símanotendur þess vegna vinsam-
legast beðnir um að nota símann sem allra minnst á þess-
um tíma.
Að lokinni aðalbreytingunni mega
nýir símanotendur leysa öryggissnúruna
af símatækjunum.
Bilanatilkynningum og umkvörtunum veitt móttaka í
síma 03.
Bæjarsími Reykjavíkur og
Hafnarfjarðar.
Símaskráin 1957
Til hagræðis fyrir þá símanotendur, sem
ekki hafa enn sótt hina nýju símaskrá,
í stað hinnar eldri, afhendir skrifstofa
hæjarsímans hana laugardaginn 6. júlí
kl. 1—5 og sunnudaginn 7. júlí kl. 9—12
og 1—5 í herbergi nr. 201 á 2. hæð í
landssímahúsinu, Thorvaldssensstræti 4
Bæjarsími Reykjavikur