Morgunblaðið - 05.07.1957, Page 14

Morgunblaðið - 05.07.1957, Page 14
14 MORCVIVBLAÐIÐ Fostudagur 5. júlí 1957 FRÁ S.U.S. RITSTJÖRI: ÞÓRIR EINARSSON Hátíðahöld U.M.F.Í. á Þing- völlum UM síðustu helgi var á Þingvöll- um háð 10. landsmót U.M.F.Í., sem jafnframt var 50 ára afmælis hátíð þess. Stóð það yfir á laugar- dag og sunnudag. Þegar mótið hófst, var þingí U.M.F.Í. nýlokið, en það var haldið á föstudaginn. Þingforsetar voru kosnir Þórar- inn Þórarinsson, skólastjóri, og Skúli Þorsteinsson, skólastjóri, en ritarar sr. Jónas Gíslason og Jón Hjartar. Sr. Eiríkur J. Eiríksson, hinn merki æskuiýðsleiðtogi frá Núpi, var endurkjörinn formaður, en hann hefur gengt formennsku í fjölda ára. Að öðru leyti er stjórn in skipuð þessum mönnum: Gísli Andrésson, Hálsi, Skúli Þorsteins son, Eskifirði, Stefán Ólafur Jóns son, Reykjavík og Ármann Pét- ursson. Varamenn í stjórn eru Hrönn Hilmarsdóttir og Gesfur Guðmundsson. Aðalmál þingsins var tvímæla- laust handritamálið. -Pétur Otte- sen, alþm. hafði framsögu um það og voru skeleggar ályktanir gerðar um endurheimt hand- ritanna, m.a. var ákveðið að leita Landsmótið fór fram við Fangbrekku. Áhorfendur standa í brekkunni en keppnin fer fram á völlunum fyrir neðan. Myndin sýnir keppendur á fyrsta hring 5 km hlaupsins. Fremstur er Hafsteinn Sveinsson, Skarphéðni, sem varð þriðji. Næstur er sigurvegarl hlaupsins, Jón Gíslason, úr Eyjafirði. Síðan kemur Margeir Sigurbjörnsson, Keflavík, sem varð annar. Þá er næstur Sveinn Jónssoa úr Eyjafirði og Jón Guðlaugsson, SkarphéðnL stuðnings dönsku ungmennafél-1 Landsmótið hófst á laugardags aðanna í málinu. I morguiin með skrúðgöngu íþrótta Frá sambandsféiögum VI: Mikið fjölmenni var komið saman á Þingvöllum um síðustu helgi en þá var háð þár 10. landsmót UJVf.F.t. og jafnframt 50 ára afmælishátíð þess. Veður var hlýtt og þurrt að mestu. Myndin sýnir tjaldborgina. (Ljósm.: Gísli Sigurðsson). manna um sýningarsvæðið. Þá flutti forseti íslands ávarp og setti mótið. Kl. 2 e.h. hófst svo íþróttakeppnin, sem stóð fram eftir degi. Um kvöldið var efr.t til útifundar. Að honum loknum voru sýndir vikivakar og að lokum var stiginn dans á palli. Á sunnudaginn var íþrótta- keppninni haldið áfram kl. 9 en kl. 13,30 var flutt guðsþjón- usta. Séra Eiríkur J. Eú'íksson prédikaði. Eftir messuna fluttu þeir Bern- harð Stefánsson, alþm. og sr. Jó- hann Hannesson, þjóðgarðsvörð- ur, ræður. Þá var flutt afmælis- kvæði og Kristinn Hallson söng. Milli þessara dagskrár lék lúðra- sveitin Svanur. F.US. Vörður á Akureyri F.U.S. VÖRÐUR á Akureyri er stofnað 10. febrúar 1929 og er því með elztu félögum ungra Sjálfstæðismanna. Fyrsta stjórn félagsins var þannig skipuð: Árni Sigurðsson, formaður, Vigfús J. Einarsson, ritari og Jón Guð- mundsson, gjaldkeri. Starfsemi Varðar hefur frá öndverðu verið þróttmikil og má vissulega telja það viðurkenn- ingu á dugnaði Varðarfélaganna, að einn úr þeirra hópi hefur verið valinn til framboðs fyrir Sjálfstæðisflokkinn við alþingis- kosningar undanfarin ár. Síðasti aðalfundur Varðar var haldinn 11. febrúar s.l. Á fund- inum gengu 82 nýir félagar í Vörð. Formaður var kosinn Magnús Björnsson. Aðrir í stjórn eru: Jóhann Egilsson, Bjarni Sveins- son, Ásmundur Einarsson, Gunn- laugur Jóhannsson, Bjarni Gests- son og Leifur Tómasson. Síðan aðalfundur var haldimt hefur félagið haldið eina fund* þar sem rætt var um stjórnmála- viðhorfið. Hafði Jónas O. Rafn- ar þar framsögu. Félagið gekkst fyrir stjóm- málanámskeiði í vetur og stóS það í tvær vikur. Jónas G. Rafn- ar veitti því forstöðu, en erindl fluttu þeir Gísli Jónsson, Ragnar Steinbergsson og Kristján Jóns- son. Stjórnmálanámskeiðið þóttl mjög vel heppnað og er ákveðið að halda annað í október í haust. Þá hefur félagið staðið að 9 spilakvöldum ásamt hinum sjálf- stæðisfélögunum, og voru þau öll sérstaklega vel sótt. Félaga- skrár hafa verið endurskoðaðar og undirbúningur hafinn að öfl- un nýrra félaga. F.U.S. Vörður á Akureyri er fjölmennasta félag ungra Sjálf- stæðismanna utan Reykjavíkur. Síðan fluttu fulltrúar erlendra I þrístökki sigraði Jón Pétursson úr Stykkishólmi. Arangur lians, 13,65 m, þótti svo góður, að hann var valinn í landsliðið í frjálsum íþróttum. í keppninni við Dani tryggði hann íslandi tvöfaldan sigur ungmennafélaga ávörp og kveðj- ur frá félögum sínum. Um kvöldið voru svo úrslit í íþróttakeppninni tilkynnt og verð laun afhent. Að lokum sleit for- maður U.M.F.Í. mótinu ;neð í þristökki. ræðu. Stjórn F.U.S. Varðar á Akureyri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.