Morgunblaðið - 05.07.1957, Page 19

Morgunblaðið - 05.07.1957, Page 19
Fðstudagur 5. júlí 1957 MQXGI'ISBLAÐIÐ 19 ísland heyr tvo landsleiki á nýtízku /jbróttaleikvangi Og tvö erlend landslið keppa hér FYRIR MEIRA en tveim árum tók KSÍ að undirbúa hátíðahöld í tilefni af 10 ára afmæli sambandsins fyrr á þessu ári. í tilefni afmælisins stendur nú fyrir dyrum stærsti íþróttaviðburður í knattspyrnusögunni síðan er fsland tók að leika landsleiki 1946. Landslið Dana og Norðmanna kom hingað og ísland gengur til landsleika við þau og þau leika hér sín á milli. Keppa landsliðin um bikar er menntamálaráðherra hefur gefið í tilefni þessa knatt- spyrnuviðburðar, og afhendir ráðherrann sigurvegurum bikarinn að mótinu loknu. Leikirnir fara fram á hinum nýja og glæsilega íþrótta- leikvangi í Laugardal. íþróttasvæðið er því miður hvergi nærri fullbúið, en unnið hefur verið af mikilli atorku und- anfarnar vikur að ganga svo frá því, að mót þetta geti farið fram þar. DÝR HEIMSÓKN Móttökunefnd er KSl skipaði ræddi við fréttamenn í gær. Form. nefndarinnar, Ólafur Jónsson, hafði orð fyrir henni, en auk hans eru í nefndinni Bragi Kristjáns- son, Sveinn Zoega, Jón Magnús- son, Hans Kragh, Sveinn Björns- son og Jón Guðjónsson., Ólafur sagði m. a.: Þar sem afgreiðsla fyrir sölu að- göngumiða við svæðið er enn ófull- komin, verða miðar seldir í miða- eölu íþróttavallarins við Suður- götu og úr bílum í Miðbænum. Viljum vér brýna fyrir fólki að nota forsölu aðgöngumiða sem mest, til þess að koma í veg fyrir þrengsli og önnur óþægindi við völlinn. I’ar eð allur kostnaður við mót þetta er helmingi meiri en við aðrar heimsóknir erlendra knatt- spyrnuflokka, (t. d. helmingi fleiri útlendir gestir en aðeins 3 leikir) hefur móttökunefndin ekki séð sér fært að framkvæma þetta hallalaust, án þess að hækka of- urlitið verð aðgöngumiða frá því sem áður hefur tíðkazt, og von- um vér, að áhorfendur skilji ráð- stöfun þessa, þegar tekið er tillit til þess, að knattspyrnusamtökin hafa enga sjóði upp á að hlaupa, til að greiða halla af slíkum heim- sóknum. Verð aðgöngumiða er sem hér segir: Stúka: Kr. 60,00, stæði: Kr. 25,00, og barnamiðar: Kr. 5,00. * TÍMAMÓT Þessir milliríkjaleikir munu marka tímamót í sögu íslenzkr Londsliðið móti Norðmönnum LANDSLIÐSNEFND hefur valið landslið fslands i 18. landsleik íslands sem fram fer á leikvanginum í Laugardal, 8. júlí 1957. Liðið er þannig: Helgi Daníelsson Jón Leósson Kristinn Gunnlaugsson Guðjón Finnbogas. Halld. Halldórsson Sveinn Teitsson Albert Guðmundsson Ríkharður Jónsson Skúli Nielsen Þórður Þórðarson Halld. Sigurbj.son © Varamenn: Björgvin Hermanns eon, Ólafur Gíslason, Reynir Karls son, Gunnar Guðmannsson, Helgi Björgvinsson. Eins og sjá má eru í liðinu „gamlir“ landsliðsmenn að ein- um undanteknum, sem nú leik- ur í fyrsta sinn með landsliðinu. Það er Skúli Nielsen Fram, sem verður vinstri útherji. Skúli er yngsti maðurinn í liðinu, tvítugur að aldri. Auk þess sem hann hef- ur þjálfað með Fram undanfar- in ár, var hann á knattspyrnu- námskeiði í Þýzkalandi um tíma. Skúli Nielsen Innilegt þakklæti til allra, sem glöddu mig á 85 ára afmæli mínu þann 1. júlí með skeytum, blóm- um, bókagjöfum og á annan hátt. Ég mun senda einstökum þakklæti síðar. Matth. Þórðarson. Innilegustu þakkir færi ég öllum þeim, er sýndu mér vinarhug með heimsóknum, gjöfum og skeyt- um á sextugsafmæli mínu. Árni Sæmundsson, Bala. ar knaltspyrnu fyrir margra hluta sakir, og kemur þá eink- um þrennt til: ýr Keppt verður í fyrsta skipti á nýtízku íþróttasvæði, þar sem fullkomnustu skilyrði eru fyrir því að áhorfendur geti notið lcikjarins, livar sem þeir eru á vellinum. Þetta verður í fyrsta sinn sem miliiríkjaleikur fer fram á gras velli hérlendis. Aldrei fyrr hafa tvö erlend landslið keppt saman á is- lcnzkri grund. ★ SIGUR? Engu skal hér um það spáð, hver úrslit þessa móts verða, en margir munu sjálfsagt óska, ekki sízt knattspyrnuforustan, að knattspyrnumenn vorir geti bætt hinni fjórðu nýjung við: að sigra frændþjóðir vorar í drengilegum leik. Skozkur milliríkjadómari, R. H. Davidson, mun dæma tvo fyrstu leikina, en hinn vinsæli milliríkjadómari, Guðjón Einars- son, mun dæma síðasta leikinn. ★ GÓÐ ADSTOÐ 6 manna fararstjórn frá hvoru landi mun fylgja landsliðs- mönnum, þeirra á meðal formenn knattspyrnusambanda beggja land anna, Hr. Floer frá Noregi og hr. Schwartz frá Danmörku. Móttökunefndin hefir reynt að skipuleggja heimsókn þessa á þann hátt, að gestirnir geti notið dvalarinnar sem bezt og fari heim með góðar endurminningar um land vort og þjóð. Stjórnir ríkis og bæjar hafa veitt oss kærkomna aðstoð til þess að svo megi verða. Menntamálaráðherra hefur boðið gestunum til Gullfoss og Þing- valla og borgarstjóri hefur boðið þoim til veizlu í Sjálfstæðishús- inu, eftir að þeim hefur verið sýndur bærinn og hitaveitan að Reykjum. Auk þess standa knattspyrnu- menn í mikilli þakkarskuld við bæjarsjóð fyrir hinar öru fram- kvæmdir á íþróttasvæðinu í Laug- ardal. Vill móttökunefnd færa mennta málaráðherra, hr. Gylfa Þ. Gísla- syni og borgarstjóra, hr. Gunnari Thoroddsen, beztu þalckir fyrir hinar góðu undirtektir í máli þessu. Valbjörn stekkur (t.v.) og Hilmar sprettir úr spori (t. h.) Tvö ný íslandsmet: HiSmar 10,4 sek Valbjörn 4,37 m Á „AUKAMÓTI" frjálsíþróttamanna í gær, sem segja má að sé ** síðasta stórmót frjálsíþróttamanna á þessu ári, voru sett tvö ísl. met í greinum þar sem fyrir voru mjög góð met. Hilmar Þorbjörnsson hljóp (og sigraði) í 100 m hlanpi á 10,4 sek. Gamla metið var 10,5 og áttu það fjórir, þeir Finnbjörn Þorvaldsson, Haukur Clausen, Ásmundur Bjarna- son og Hilmar. Valbjörn stökk (og sigraði) í stangarstökki 4,37 m 2 sm hærra en met Torfa Bryngeirssonar frá 1952. Mótið var mjög gott. Danski kringlukastarinn Munk Plum setti danskt met (og sigraði) í kringlukasti, kastaði 49,94. Thögersen setti vallarmet í 3000 m hlaupi, hljóp á 8:23,6 og næstu 4 menn voru danskir. Pétur vann 110 m grindahlaup á 14,9 og Mildh hafði sama tíma. Mildh vann 400 m grindahlaup á 53,0 en Guðjón annar á 55,6. Skúli vann kúluvarp, 15,72 m og Vilhjálmur langstökk 7,16 m, Frederiksen sleggjukast 55,72 m. En skemmtilegust var keppnin í stangarstökki. Larsen og Heiðar féllu úr eftir 4.00 m stökk. Piironen stökk 4,15 og Valbjörn fór 4,25 í annarri og var þá orðinn fyrstur. Hækkað var í 4,37 og Val- björn fór yfir, en stöng hans féll á rána og felldi. En hann flaug yfir í næstu tilraun og kom stönginni frá sér. Hækkað var í 4,45 m. Valbjörn fór yfir — en stöngin féll á rána og felldi. Nú var hann sýnilega þreyttur og var fjær því en áður að fara yfir. En hið nýja met er einnig vallarmet og 7 sm hærra en Torfi stökk heima, en met Torfa var sett í Svíþjóð 1952. Nafn þess góða drengs og mikla íþróttamanns Torfa Bryngeirs- sonar hefur því á þessum þremur síðustu dögum þurrkazt út úr metaskránni íslenzku. Félogslíl f.R. Skíðadeild. I.R.-ingar fjölmennum um helgina í Hamragili og vinnum að krafti, við byggingu hins nýja skála. Farið verður frá Varðar- húsinu kl, 2 e.h. á laugardag. Reykjavikurmót II. fl. B. á Háskólavellinum í kvöld kl. 20,30 Valur—Fram. Mótanefndin. Skátar: Piltar og stúlkur. Farið verður á laugóirdag á skátamótið í Botns dal. Farseðlar á föstudagskvöld kl 8%—9 Vá í Skátaheimilinu. Skátafélögin. Farfuglar, ferðamenn: Um næstu helgi verður farið í Kerlingafjöll. Gist verður í skála Ferðafélagsins. Skrifstofan er opin í kvöld kl. 8,30—10 að Lindargötu 50. Áskriítarlisti í sumleyfisferðirnar liggur frammi á skrifstofunni. Farfuglar — Ferðamenn Farið verður í Kerlingarfjöll um helgina. — Uppl. í skrifstof- unni, Lindargötu 50, föstudag kl. 8,30—10,00. Litli drengurinn okkar andaðist 3. júli Eyrún Snót Eggertsdóttir, Anton Arnfinnsson. Móðir okkar GUÐRÚN BRYNJÓLFSDÓTTIR BECH lézt í gær 4. júlí að heimili sínu Vesturgötu 40. Böm hinnar látnu. Móðir okkar GUBRÚN EINARSDÓTTIR, andaðist 3. júli. F. h. aðstandenda Ólöf Sigurðardóttir. Faðir minn LÁRUS VIGFÚSSON, Skúlaskeiði 4, Hafnarfirði, sem lézt 28. júní sl., verður jarðsunginn frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði laugardaginn 6. júlí klukkan 1,30 e. h. Jón Lárusson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.