Morgunblaðið - 10.07.1957, Síða 1

Morgunblaðið - 10.07.1957, Síða 1
44. árgangur 151. tbl. — Miðvikudagur 10. júlí 1957. Prentsmiðja Morgunblaðsini Mikilvægasta raðsfefnan Krúsjeff bregður um vanjjækklæti lancT* í fjölda ára Ungverjum verjum ykkur sem eigið „Við Gromyko er ekki með — Rétiarhöld í aðsigi f Kreml ? London, 9. júlí. FUNDUR ÞEIRRA KRÚSJEFFS og Búlganins í Prag með kommúnistaforingjunum í Xékkóslóvakíu er talinn hinn ör- lagaríkasti í A-Evrópu, síðan ákveðið var að reka Júgóslavíu úr Kominform. Áhrifa þessa fundar er beðið með mikilli eftirvænt- ingu, því að búast má við miklum hreinsunum í forystuliði lepp- ríkjanna í beinu áframhaldi af hreinsununum í Kreml. Það var í gær. gaman að vaða og synda í Nauthólsvíkinni í —Ljósm. Mbl.: sólskininu Ól. K. M. í dag óku þeir Búlganin og Krúsjeff ásamt yfirmanni leyni- lögreglunnar, Serov, í einkalest um Tékkóslóvakíu á leið til Prag. Móttökuathafnir og fagnaðarlæti hafa verið skipulögð víðs vegar á leið foringjanna — og hvar- vetna meðfram leið þeirra blakta rauðir fánar og borðar, sem á eru letruð ýmis slagorð um frið- arvilja Ráðstjórnarríkjanna og vináttu Krúsjeffs í garð Tékka. f Prag hefur verið unnið að skreytingum undanfarna daga. bátt Malenkov átti stærsfan Leningradhreinsununum I //j Krúsjeff fletti upp á blóðugum kafla i sögu Rússlands Moskva og London, 8. júlí. ALAUGARDAGINN hélt Krúsjeff mjög eftirtektarverða ræðu í Leningrad og lýsti því þar yfir, að þeir Molotov, Malenkov og Kaganovitj hefðu haft valdarán á prjónunum. Þeir hefðu ætlað að láta til skarar skríða i lok síðasta mánaðar, um það leyti, er Leningrad-hátíðin var haldin í tilefni 250 ára afmælis borgarinnar. Gat Krúsjeff þess, að hann hefði ekki getað verið viðstaddur aðal- bátíðahöldin vegna fyrirætlana þrímenninganna. 44 Þetta var fyrsta ræðan, sem Krúsjeff hélt eftir nýafstaðnar hreinsanir í Kreml — og þess vegna eins konar yfirlýsing hans um tilefni hreinsananna. Tvö aðalatriðin í ræðu hans voru: 1) Ásökun hans á hendur Malenkov um að hafa skipulagt „Lenin- grad-málið“ svonefnda, sem er eitt af mörgum blóðugum köflum í sögu Rússlands. Þessi ákæra bendir mjög til þess, að sýndarréttar- höld verði viðhöfð í máli Malenkovs. 2) Krúsjeff hét Rússum gulli og grænum skógum. Hann lofaði þeim meiri mat og auknum þægindum — auðsjáanlega til þess að uuka á vinsældir sinar meðal þjóðarinnar. Krúsjeff kom til Leningrad í fylgd með Bulganin og Voroshi- lov auk hinna þriggja nýju með- lima miðstjórnarinnar, Kuusinen, Furtzevu og Shverniks. Ræðuna flutti hann í „Elektrokraft" véla- verksmiðjunum eftir að hann hafði útbýtt heiðursmerkjum til vina og stuðningsmanna í Lenin- grad. Byrjaði hann á að afsaka fjar- veru sína frá aðalhátíðahöldun- um. En hann kvaðst seinna mundu skýra frá ástæðunni. Lýsti hann því síðan yfir, að kommúnistaflokkurinn óskaði einskis fremur en að þjóðir Ráð- Btjórnarríkjanna hefðu nóg að bíta og brenna, nóg af kjöti, smjöri og ávöxtum — og að verzl anahillurnar svignuðu af þunga fagurra klæða og annarra hluta, sem veita birtu inn í lífið, eins og hann orðaði það. Kommúnistaflokkurinn hef- ur nú gert ráðstafanir til þess að ósk þessi megi rætast einn góðan veðurdag — og við ná- um að framleiða jafnmikið og Bandaríkjamenn af þessum varningi. En öllum þessum áætlunum var stefnt í bráðan voða með starfsemi flokks- fjendanna, þeirra Molotovs, Malenkovs og Kaganovitj. — Þessir menn höfðu einangrað sig frá þjóðinni, þeir skildu hana ekki og þekktu ekki þarfir hennar. Þeir ætluðu að ná völdum með ofbeldi — og þá hefðu allar vonir verið úti. Þeir stefndu gegn öllum hags- munum fólksins. Afstaða þeirra og stefna í ut- anríkismálum var jafnóheilla- vænl. Þrímenningarnir, og þá sér staklega Molotov, unnu gegn hagsmunum Ráðstjórnarinnar út í frá. Þeir unnu gegn því að dregið yrði úr „spennunni“ milli austurs og vesturs. Afstaða þeirra til marx-leninismans var líflaus, þeir voru steinrunnir. Upp komst um svikarana, þeg- ar farið var að ráðgera Lenin- gradför í tilefni hátíðarinnar. Shepilov gerði bandalag við hina svikarana og þeir ætluðu að nota tækifærið, þegar „samvirka for- ystan“ héldi til Leningrad. Hvers vegna? Jú, af því að Malenkov var beinlínis hræddur að fara þangað. Hann var hræddur að koma til ykkar, vegna þess að hann var aðalskipuleggjandi „Leningrad-málsins" svo- néfnda, sagði Krúsjeff. (Hér átti Krúsjeff við réttarhöldin miklu í Leningrad árið 1948, þar sem margir háttsettir rúss neskóir kommúnistar voru líf- látnir og þar á meðal einn af Framh. á bls. 15. Þar blasa myndir af foringjun- um hvarvetna við, blóm, rauðir fánar og áletruð spjöld hanga á húsveggjum og í búðagluggum. Strætisvagnar bera og spjöld þar sem á er letrað: Lengi lifi Ráð- stjórnarríkin. Þegar þeir Krúsjeff og Búlgan- in óku yfir landamærin var þar mikill mannfjöldi til þess að taka á móti þeim. Um 50 þús. tékkneskir verkamenn hrópuðu margfallt húrra og forystumenn tékkneskra kommúnista voru mættir á staðnum og luku þeir miklu lofsorði á Krúsjeff vegna þess hve hann hefði losað flokk- inn við hættulega fjandmenn á giftusamlegan hátt. Síðar í dag stanzaði lest þeirra sem snöggvast í bænum Zilina og var þar blásið í lúðra og mikið hrópað til heiðurs ferðalöngun- um. Hélt Krúsjeff stutta ræðu Pólskur fréttamaður: Krúsjeff átti að vikja fyrir Molotov VARSJÁ, 9. júlí. — Moskvu- fréttaritari pólska blaðsins Try- buna Ludu skýrði svo frá í dag, að „flokksfjendurnir“ þrír hefðu ætlað sér að reka Krúsjeff úr aðalritarastöðunni í kominúnista- flokknum. Átti Molotov að taka við. Einnig átti Malenkov að taka við forsætisráðherraembættinu af Bulganin. Þá segir, að það hafi verið Malenkov, sem hafi beitt sér fyrir því að miðstjórnin kom saman til þess að ræða Lenin- grad-hátíðahöldin — og í því sambandi vildi hann, að afstaða Krúsjeffs væri rædd sérstaklega. Hafi Malenkov i upphafi ráðizt harkalega á stefnu flokksins og gagnrýnt mjög orðagjálfrið um að reynt yrði að ná Bandaríkj- unum í framleiðslu nauðsynja- varnings. „Marxistar eru vanir að einbeita sér að iðnaðinum", sagði hann. við það tækifæri. — og lét hann svo ummælt, að búskapurinn í Ráðstjórnarríkjunum gengi ágæt- lega. Nokkrir svartir sauðir hefðu samt verið á flækingi innan um úrvalsféð, en fyrir nokkrum dög- um hefði verið kippt í dindilinn á svörtu sauðunum og þeim varp- að út úr hjörðinni — „einmitt þegar þeir (svörtu) héldu að þeir væru að ná völdum" — sagði hann. o—O—o Kvað Krúsjeff tilganginn með för þeirra félaga vera þann aS styrkja vináttuböndin milli Rúss- lands og Tékkóslóvakíu, styrkja vináttuböndin milli friðelskandi þjóða, eins og hann komst að orði. Og slagorðin duga ekki einsömul. Nei, allt veltur á mönn- unum, sem með forystuna fara. Við reynum að sporna við því að styrjöld brjótist út. En það er ekki einungis komið undir okkur, því að hvernig fór ekki með Ungverjaland? Við gerðum allt til þess að hjálpa því, iðn- væddum landið. Ráðstjórnarrík- in eiga góðan her — og þau munu verja landamæri annarra sósíalistiskra ríkja, sem væru það eigin landamæri. „Við verj- um ykkur eins og eigið land“. Það vekur mikla athygli, að rússneski utanríkisráðherrann, Gromyko, er ekki í för með þeim félögum til Tékkó- slóvakíu. Endurtekur sig þar sama sagan og áður, er Molo- tov var utanríkisráðherra og fall hans var skammt undan. Þá fóru Krúsjeff og Bulganin allar meiri háttar ferðir án hans. Gromyko hefur einnig verið einn af nánustu sam- starfsmönnum Molotovs og ekki er talið ólíklegt, að Framh. á bls. 15. Forsetahjónin heimsækja þrjór sýslur í þessora raónuði FORSETI ÍSLANDS, herra Ás- geir Ásgeirsson, og forsetafrú Dóra Þórhallsdóttir fara í opin- bera heimsókn vestur í Snæfells- og Hnappadalssýslu nú um helg- ina. Verða þau í Stykkishólmi á laugardag, 13. júli, en munu síð- an ferðast víðar um héraðið á sunnudag og mánudag. Um helgina 20. og 21. júlf munu forsetahjónin fara í heim- sókn í Dalasýslu og Barða- strandasýslu. Verða þau í Búðar- dal á laugardag og í Bjarkar- lundi í Þorskafirði á sunnudag, og munu síðan koma víðar við í þessum sýslum á heimleiðinni. (Frá skrifstofu Forseta fslands) Nýtt frumefni STOKKHÓLMI, 9. júlí. — í dag var tilkynnt, að nýtt frumefni hefði fundizt. Er það hið 102. í röðinni og hefur hlotið nafnið Nobelium. Það eru vísindamenn frá Bandaríkjunum, Bretlandi og Svíþjóð, sem unnið hafa í sam- einingu að rannsóknunum, með framangreindum árangrt Fannst nýja frumefnið með tilverkan annars frumefnis, Curium, sem er hið 96. í röðinni. Hreinsað til LONDON, 9. júlí. — Miðstjórn rúmenska kommúnistaflokksins hefur birt tilkynningu þess efn- is, að tveir af meðlimum stjórn- málanefndar flokksins hafi nú verið gerðir brottrækir úr nefnd inni vegna þess, að þeir hefðu ætl að að notfæra sér atburðina í Ungverjalandi til þess að grafa undan öryggiskerfi landsins. Þeir hefðu setið á svikráðum við tlokkinn í samráði við Önnu Pauker, sem áður var utanrikis- •áðherra landsins og nánasti vin ur Stalins af forystumönnum leppríkjanna. STOKKHÓLMUR, 9. júlí. — Tveir pólskir sjómenn hafa leit- að hælis í Svíþjóð sem pólitískir flóttamenn. Voru þeir á pólskum tundurspilli, sem var í kurteis- isheimsókn í StokkhólmL

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.