Morgunblaðið - 09.08.1957, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 09.08.1957, Blaðsíða 6
m 6 MORCVNTtr4Ð1Ð Fðstudagur 9. ágúst 195? HVAÐ ER ORÐIÐ BULGANIN? UM UNDANFARNA daga hefur miklum getum verið að því leitt hvernig á því standi að Bulganin forsætisráð- herra Rússa hefur nú ekki verið nefndur á nafn í nokkurn tíma og að hann tók ekki þátt í ferð- um Krúsjeffs hvorki til Rúmeníu fundarins við Titó ellegar til Austur-Þýzkalands. Hafa sumir talið að hér væri um það að ræða, að búið væri að „hreinsa" Bulganin út úr stjórninni og i 'þessu sambandi á það minnt að um það var getið, þegar stjórn- arumbyltingin varð í Rússlandi fyrir stuttu síðan, að Bulganin hefði í fyrstu verið andvígur Krúsjeff en snúizt á sveif hans síðar. Hafa fréttaritarar skýrt svo frá, að í Moskvu hafi geng- ið orðrómur um, að Bulganin hafi aðeins á síðustu stundu gengið í lið með Krúsjeff þegar Ijóst varð, að hann mundi verða ofan á í deilunum innan stjórn- arinnar. Hefur verið bent á að Krúsjeff væri ekki sá maður, sem auðveldlega gleymdi mót- gerðum og hann mundi hafa talið sér Bulganin ótryggan og þar af leiðandi væri nú svo komið, að Bulganin mundi víkja úr stjórn- inni fyrir öðrum manni, sem stæði enn nær Krúsjeff. ★ Aðrir hafa talið, að ekki væri svo langt komið enn. Hefur ver- ið stungið upp á því, að Bulganin væri í fríi, að hann væri lasinn eða að hann hafi ekki getað farið frá Moskvu vegna þess að hann hafi þurft að vera viðstddur upp- sögn æskulýðsmótsins, sem þar hefur staðið. Hvað sem rétt er í þessu þá er það þýðingarmikil staðreynd, að Bulganin skyldi ekki fara til fundarins, við Titó, sem talið hefur verið að hafi verið sér- staklega mikilvægur, heldur skyldi Mikoyan fara í hans stað og ennfremur til Austur-Þýzka lands. Þegar menn hafa verið þessa síðustu daga að ræða um hver myndi vera líklegur eftir maður Bulganins, þá hefur yfir- leitt verið stungið upp á Mikoy- an og í því sambandi bent á, að hann hafi ætíð verið tryggur stuðningsmaður Krúsjeffs. Sumir hafa talið að Zhukov marskálk- ur mundi verða eftirmaður Bul- ganins og þar með yrði það stað- fest óumdeilanlega, að Rauði her inn hafi fengið úrslitaáhrif í stjórn Sovjet-Rússlands. Aden- auer kanslari V-Þýzkalands gat þess í ræðu um daginn, að svo mundi fara. Bulganin er nú maður nokkuð við aldur. Hann var á unga aldri starfandi í leynilögreglu komm- únistaflokksins, Tjekunni, sem kölluð var, en síðar gaf hann sig að ýmsum embættisstörfum og það er á því sviði, sem hann hef- ur unnið sér álit og stöðu. í styrj öldinni var það hann, sem stóð fyrir vopnun borgaranna í Moskvu og að nokkru leyti vörn borgarinnar þar til Zhukov mar- skálkur kom með liðsafla til hjálpar borginni en sá liðsafli var að verulegu leyti fluttur frá Siberíu, en unnt var að losa hann þaðan, þegar ljóst var að Japanir mundu ekki ráðast á Rússa að austan. Þegar styrjöldinni var lokið varð Bulganin eins konar tengiliður á milli stjórnarinnar í Kreml og yfirstjórnar hersins og fékk hann þá marskálkstign. Það var fyrst 1948, að hann kofn inn í flokksstjórnina og varð hann landvarnarráðherra eftir dauða Stalíns og var Zhukov varamaður hans þar til Krúsjeff gerði hann að forsætisráðherra árið 1955 og Zhukov að landvarn- arráðherra. Hvenær verður étið næst? SKÁK Ingi R. Jóhannsson: Norðurlandamótið 5. umferð Ingvar tefldi Sikileyjarvörn gegn kóngspeðsbyrjun hjá Sköld. Og í þriðja skiptið slapp Sköld fyrir horn, eins og Stáhlberg orðaði það. Ingvar hafði byggt upp vinningsstöðu og átti að- ~r"v ur shrifar daglega lifinu EIN N af stjórnarmeðlimum Fáks skrifar svo: „Mikill hestamaður" hefur komið að máli við Velvakanda og gert. það að umtalseíni, að hann ætti mikinn „gæðing“, sannkallaðan „kjörgrip". Væri hann í hirðu hjá Fák, en þar væri líðan hans slæm. Væri hann látinn standa inni, sem belja væri, á bás allan veturinn og lengur (!!!) án þess að vera svo mikið sem hleypt út undir bert loft einu sinni hvað þá meir — Slíkt væri þó alveg lífsskilyrði fyrir hesta og afbrot gagnvart hestinum að gera það ekki. Þess er fyrst að geta að enginn hestur hefur verið í hirðu hjá Fák síðan 7. júní, svo að pynd- ing sú, sem hér er gerð að um- talsefni, stendur þó a.m.k. ekki enn yfir, til mikils hugarléttis fyrir lesendur Velvakanda, sem vel gátu skilið, að ófrémdar- ástand þetta væri aðkailandi tii úrlausnar hið bráðasta, jafnvel í sambandi við væntanleg ferða- lög um verzlunarmannahelgina. Hestar, sem voru í hirðu hjá Fák í vetur, voru látnir út þá daga sem ekki eru venjuiegir notkunardagar, og þá undan- tekningarlaust einu siuni á dag, þegar veður ekki algjörlega hamlaði. Er sérstök girðing á hlaðinu að Laugalandi aðeins til þessa ætluð og hestarnir látnir í hana til skiptis. Þegar ljósmynd ari Morgunblaðsins heimsótti Laugaland í vetur í tilefni af 35 ára afmæli Fáks, tók hann ein- mitt mynd af hestum að leik í slíku útfararleyfi. Hefði blaða- maður Morgunblaðsins vel get- að munað það og bent hesta- manni á, að hér gæti ekki verið rétt með farið, því myndir Morg- unblaðsins ljúga ekki eins og menn vita. Meðan hestar eru í hirðu hjá Fák koma eigendur þeirra auk þess á laugardögum eða sunnudögum eða hvort tveggja. Fá sér sprett, stuttan eða langan eftir atvikum og öðr- um ástæðum, og þeir, sem eiga gæðinga eða jafnvel „kjörgripi" koma oft í miðri viku, dútla við kjörgripinn sinn, snurfusa hann og bursta og geta þá brugðið honum undir bert loft, ef það þykir mjög á skorta. Verðlag Fáks fyrir hirðinguna getur ekki orðið við það miðuð, að taka þetta verk af eigendun- um, enda er gæðingurinn þeim mun meiri gæðingur, fyrir eig- andann, þeim mun meira og ein- lægara sem sambandið er þeirra í milli. Gerum nú hins vegar ráð fyr- ir, að greinarhöfundur tali sam- kvæmt beztu vitund og telji sig vera að segja satt, en viti bara ekki betur, hver er þá frammi- staða hans, hins mikla hesta- manns, gagnvart kjörgrip sínum? Hann kemur honum fyrir hjá Fák, veit hann alltaf bundinn á bás, sem belju, sjáandi aldiei heiðan himinn né fáandi ferskt loft. Og þannig líður allur vetur- inn „og lengur“ eftir því sem hann lætur hafa eftir sér. Hann veit líka, ef fara má eftir grein- inni, að það er lífsskilyrði fyrir hestinn að komast undir bert loft, en það er bara látið ógert — ekki í eitt skipti allan vetur- inn. — Myndin í Morgunblaðinu hefur farið framhjá honum og hann veit af hestinum sínum allan veturinn án þessa nauð- synlega lífsskilyrðis. Hann læt- ur gæðing sinn eiga sig á góð- viðrisdögum vorsins og sam- vizkan sefur, og sefur fast, til sunnudagsins 4. ágúst, að verzl- unarmenn fara á stjá. Er þetta nokkur hestamaður? Hver á að ríða gæðingnum hans um helgar? Hver á að sjá um að hesturinn fái nauðsynlega hreyf- ingu og notkun við og við, svo að hann fái notið fóðursins og sé fær um að verða einhvers megn- ugur fyrir eigandann? Er nóg að vita sig eiga gæðing? Á ekki gæðingurinn að verða var við eigandann öðru hvoru? Er nokk- uð óeðlilegt við það, þó Fákur reikni beinlínis með því, í starfs- áætlun sinni, að í gegnum sam- band manns og hests (þó við sleppum nú hundinum að þessu sinni) hangi sá leyniþráður. sem skapi hestinum marga og góða útivistardaga, vetur jafnt sem sumar? Það skal ekki dregið í efa, að maðurinn eigi kjörgrip, þar sem hesturinn er. Hitt er jafnaugljóst, ef greinarhöfundur telur sig segja sannleikann í greinarkorni þessu, að hesturinn á engan kjör- grip, þar sem eigandinn er, og að um lítinn hestamann mun vera að ræða en ekki mikinn. — Jón Brynjólfsson. eins eftir að láta greipar sópa um stöðu andstæðingsins, þegar hann skyndilega fór að leika ó- nákvæmt og slapp naumlega með jafntefli. Ég hafði svart gegn Salo, sem tefldi kóngsindverskt með skiptum litum. Ég náði frjáls ara tafli út úr byrjuninni, en andstæðingurinn hafði engar veilur í peðastöðunni, og jafnað-- ist staðan því fljótlega og endaði í jafntefli. Stáhlberg vann Moe. Sterner vann Korning. Biðskákir hjá A. Nielsen og P. Möller og Böök og Rantanin. Lárus tapaði, Eggert vann, en Óli á jafnteflisbiðskák. í landsliðsflokki er staðan eft- ir 5 umferðir þessi: 1. K. Sköld 4y2. 2. T. Salo 4. 3.—4. Böök 3V2 og biðskák og Sterner 3%. 5. Rantanin 3. 6.—7 Ingvar og Stáhlberg 2%. 8.—9. Nielsen biðskák og Ingi R. 1Vz. 10. P. Möller 1 og biðskák. 11. Korning % vinn. 12. Moe eng- an vinning. Hvítt: K. Sköld. — Svar.t: Ingvar. Sikileyjarl. 1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 g6 5. c4 Bg7 6. Rc2 Rli6 14 0-0 15. h6 Bf6 16. Dd5 Re5 17. Rd4 Rg4 18. Dxf5 Rxf2! (Við þessum leik finnst ekki nema eitt svar). 19. Dxf2 Bxd4 20. Dg3t Kh8 21. Bf3 Dc5 (Betra var hér 21 Hg8, t.d. 22. Dh4, Haf8 og vinnur). 22. Hh4 Hg8? (Sjálfsagt var 22 Dxc4t). 23. Df4 Bf6 24. Hh5 Re5 25. Hf5 Haf8 26. Be3 Dxc4t 27. Dxc4 Rxc4 28. Bxa7 b6? (Hér fór síðasta vonin um vinn- ing. Rétt var 28 Bxb2. 29. Hxf8, Hxf8. 30. Hdl, Re5 með vinningsmöguleikum). 29. Ke2 Bxb2 30. Hxf8 HxfS 31. Hbl! e6 32. Bxb6 Kg8 (Hvítur hótaði Hxb2 og Bd4t). 33. Bc7 d5 34. Bg4 Hf6 35. a4 e5 36. Bd7 e4 37. Bb5 Bd4 38. Hfl Heli6 39. Hdl Bb6 40. Hxd5 Bxc7 41. Bxc4 Kf8 42. Ke3 Hg6 Samið jafntefli. (Þessi leikur er kenndur við Simagin. Markmið leiksins er að splundra hinu sterka miðborði hvíts með því að leika f5). d6 7. Be2 8. Rc3 9. h4(?) (Eðlilegra og Rxf5. 10. Re3, 9..... 10. h5 11. Rxe4 12. Rg3 (Ingvar hefur f5 betra O-O. er 11. 9. eXf5, 0-0). Rf7 fxe4 Bf5 Db6! notfært sér mjög vel hina fálmkenndu sókn hvíts á h-línunni. Hann hefur lokið við að koma mönnum sínum á framfæri, en hvítur á í erfiðleik- um með Bcl, sem kemur einnig í veg fyrir að Hal komist í leik- inn. Við komumst því að niður- stöðu um að svartur stendur bet- ur eftir aðeins 12 leiki!). 13. Rxf5 gxf5 14. Kfl? .... (Sjálfsagt var að hrókfæra). Ingi R. Jóh. Dauðaslys á 13. hverri mínútu WASHINGTON. — Yfirmaður FBI í Bandaríkjunum, J. Edgar Hoover, skýrir frá því í grein, sem hann skrifar í málgagn bandarísku lögreglunnar, Bulle- tin, að dauðaslys hafi orðið á þjóð vegum Bandaríkjanna á 13. hverri mínútu allt sl. ár. — Hoov er segir ennfremur, að óvarkárni og kæruleysi hafi átt sökina á langflestum þeirra 40 þús. dauða slysa, sem urðu fyrir vestan sl. ár. Hefir hann hvatt menn til að aka varlegar. Kveðja til Jóns Ingvars Arnasonar Fæddur 27. júlí 1924 Dáinn 31. júlí 1957 VINUM og ættingjum Jóns Ingv- ars kom fregnin um andlát hans mjög á óvart. Ungur og hraustur var hann fallinn í valinn. Þeir sem þekktu hann, áttu bágt með að trúa því að hann væri horfinn að fullu — en það er harmþung- ur sannleikur. En við minnumst góðs vinar, sem aldrei vildi styggja aðra. Nonni, eins og hann var oft kall- aður, var aðeins 33 ára gamall, er hann svo skyndilega var kall- aður til þess æðra. En enginn þekkir daginn frá morgni til kvölds. Góði Guð, legðu hönd þína yfir konu hans og litlu börnin og alla sem kveðja hann í dag. — G.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.