Morgunblaðið - 22.08.1957, Side 2
2
Moncvisnj. íoið
Fimmtudagur 22. Sgúst 1957
Þjóðviljinn ætti að hotta á
ríkisstjórnina og Rússa
8000 ungverskir flótta-
menn komnir til Svíþjóðar
ÞJÓBVILJINN brást Ula við í
gær út af því sem Morgunblaðið
hefur upplýst um sementsskort-
inn í bænum. Reynir blaðið nú
að skella skuldinni á fyrirtækin,
sem dreifa sementinu og segir að
þeim farist úthlutunin illa úr
hendi og komi hún misjafnt nið-
ur. Hafi t. d. einn aðili fengið 'að
kaupa 700 tonn á sama tíma sem
öðrum, sem miklar þarfir höfðu
hafi verið neitað. Blaðið hefur
aflað sér upplýsinga um þetta
mál og hefur eins og vænta mátti
komið í ljós, að staðhæfingar
Þjóðviljans eru uppspuni frá rót-
um. Skip það, sem nú kom sein-
ast, meðan skorturinn var sem
mestur, flutti einimgis 3000 tonn
og má því nærri geta að ekki
hefðu margir aðilar getað fengið
700 tonn af slíkum farmi! Skipt-
ing farmsins á milli H. Bene-
diktsson & Co. h.f. og J. Þor-
láksson & Norðmann var sú að
hið fyrmefnda fékk 2000 tonn í
sinn hlut til dreifingar en hið síð-
amefnda 1000. Sá aðili, sem mest
fékk af farmhluta fyrrnefnda
fyrirtækisins var Byggingarfélag
f GREIN um sementsvandræðin
i Þjóðviljanum í gær, eru eftir-
farandi staðhæfingar:
1) að í ár sé búið að flytja til
landsins ámóta magn af sementi
og á sama tima 1 fyrra.
2) að Sovétrikin séu búin að
afgreiða allt það magn af sem-
enti, sem gerður var fastur samn
ingur um.
★
Staðhæfingar Þjóðviljans koma
þó ekki heim við opinberar hag-
skýrslur. Því af Hagtíðindum fyr
ir fyrstu sex mánuði þessa og sl.
árs, kemur eftirfarandi skýrt í
ljós:
Á fyrstu sex mánuðum þessa
árs hefur verið flutt inn sement
frá Rússlandi fyrir 6,8 millj. kr.
Á fyrstu sex mánuðum sl. árs
var flutt inn sement frá Rúss-
landi fyrir 9 milljónir króna.
★
Munar því um 2,8 millj. kr.
hvað innfiutningurinn frá Rúss-
landi var meiri á sama tíma sl.
ár.
NÝLEGA er komin út Árbók
Ferðafélags íslands, 1957, sem er
þrítugasta árbók félagsins. Ár-
bókin fjallar að þessu sinni um
Austfirði, norðan Gerpis, og hef-
ur Stefán Einarsson prófessor
ritað meginhluta bókarinnar, en
þætti úr jarðfræði Austfjarða
hefur Tómas Tryggvason jarð-
fræðingur ritað.
Prýdd fjölda ljósmynda.
í bókinni er mikill fjöldi fag-
urra ljósmynda og hafa tekið
þær þeir Björn Björnsson, kaup-
maður á Norðfirði, Ámi Stefáns-
son, Páll Jónsson og Þorsteinn
Jósefsson. Þá er í bókinni skyndi-
mynd af Dyrfjöllum eftir Jó-
hannes Kjarval og einnif er
kápumyndin eftirmynd af Dyr-
fjallatindi, glæsilegu listaverki
eftir Kjarval. Yfirlitskort af
Austfjörðum eftir Ágúst Böðv-
arsson er í bókinni og aftan á
prentara, sem er að reisa stór-
hýsi og notar til þess skriðmót
og þurfti því á allmiklu magni að
halda í einu. Var hér einnig um
að ræða gamla pöntun og fékk
þessi aðili 200 smálestir. Næst
stærsti aðilinn var Reykjavíkur-
bær, sem fékk 114 smálestir til
sinna framkvæmda, sem eru ein-
hverjar hinar mestu í bænum.
Aðrir aðilar fengu langtum
minna og var auðvitað reynt að
skipta hinu litla magni eins jafnt
á milli og sanngjarnlega og mögu
legt var.
Þjóðviljinn ætti fremur að reka
á eftir ríkisstjórninni um að Ieyfa
að taka hluta af varnarliðs-
sementinu á Keflavíkurflugvelli
til að bæta úr vandræðunum, en
að skrökva sökum upp á þá sem
dreifa því litia sementi, sem
fengizt hefur. Ekki skaðaði held-
ur þó Þjóðviljinn ýtti á Rússa um
að afgreiða til okkar umbeðið
sement. Það væri ólíkt líklegra
til árangurs en að þjóðnýta H.
Benediktsson & Co. h.f. og J.
Þorláksson & Norðmann eins og
Þjóðviljinn stakk upp á i vand-
ræðum sínum i gær!
Einnig ber þess að geta, að
innflutningur á sementi frá Rúss-
landi hélt áfram allt sl. ár og
var að verðmæti fyrir allt árið
1956 um 26,8 millj. kr. Sam-
kvæmt því, er sementsinnflutn-
ingur' frá Rússlandi nú aðeins
orðinn um fjórðungur af innflutn
ingnum allt sl. ár og þykir því
undarlegt, ef sementskaup eru nú
skyndilega stöðvuð þaðan.
Cleymdist að
slökkva á elda-
vélimii
Á þriðjudagskvöldið var slökkvi-
liðið kvatt að húsinu nr. 14, við
Mávahlíð. Var kominn eldur í
súð í rishæðaríbúð. Var eldurinn
fljótt slökktur og ekki varð mik-
ið tjón af.
Orsök eldsins var sú, að
gleymzt hafði straumur á raf-
magnseldavél.
kápunni er teiknimynd af Gerpi
eftir Tryggva Magnússon.
í formála kveðst Stefán Ein-
arsson, prófessor, hafa notið að-
stoðar kunnugra manna á Aust-
fjörðum lun sveitalýsingar og
orðið gott til fanga. Hóf hann að
vinna að bókinni árið 1950 með
því að heita á kunnuga menn í
þessum fjörðum að senda sér lýs-
ingar staðanna, sem hann síðar.
bar saman við landið og kortið
árið 1954, er hann ferðaðist um
þessar slóðir. — Sérstaklega að-
stoðuðu hann við þetta Jón Sig-
fússon kaupmaður á Norðfirði,
Sigurður Vilhjálmsson bóndi á
Hánefsstöðum, séra Ingvar Sig-
urðsson á Desjamýri, Stefán Bald
vinsson bóndi í Stakkahlið og
Vilhjálmur Hjálmarsson alþing-
ismaður á Brekku. Eina heimild
enn kveðst hann hafa notað um
örnefnin í Fjörðunum og eru það
þjóðsögur Sigfúsar Sigfússonar. I
Fjárhagur Frakka
réltir við
PARÍS, 21. ágúst. — Felix Gaill-
ard, fjármálaráðherra Frakka,
sagði á fundi ríkisstjórnarinnar
í dag, viðskiptajöfnuðurinn við
útlönd hefði þegar batnað eftir
aðgerðir stjórnarinnar 11. ágúst,
sem höfðu m.a. í för með sér
nokkra gengisfellingu frankans
og höfðu að markmiði að auka
útflutninginn og minnka inn-
flutninginn. Formælandi stjórn-
arinnar sagði, að Gaillard hefði
tjáð stjórninni, að Frakkar
stæðu nú mun betur að vígi gagn
vart dollara-svæðinu og Evrópu-
markaðinum. Stjórnin kemur að
líkindum saman í vikulok til að
ræða nýjar aðgerðir, sem Gaill-
ard hefur á prjónunum með það
fyrir augum að koma í veg fyrir
frekari verðhækkanir.
— NTB-Reuter.
Morðinginn bað um
'sorglega jarðarför’
Frá NTB.
EINS og skýrt var frá í blaðinu
í gær, svipti morðinginn, sem
drap tvo menn í Stokkhólmi á
þriðjud., sig lífi í skógi einum við
borgina í fyrrakvöld. Það kom í
ljós í gær, að morðinginn, Rolf
Merlin; skrifaði pósthúsinu í
Stokkhólmi bréf, meðan hann
var á flóttanum, og fór þess á
leit, að öll bréf, sem send væru
heim til hans á Bandersgatan 48,
yrðu send um hæl, þar sem hann
mundi ekki verða á heimili sínu
framvegis.
í dag var opnuð innsigluð
erfðaskrá, sem hann var með í
vasanum, og var hún afrit af
erfðaskránni, sem fannst á skrif-
borðinu heima hjá honum. í
henni biður hann um „sorglega
jarðarför", en vill ekki, að hann
verði grafinn í grafreit fjölskyld
unnar. Hann hafði sagt skilið við
fjölskyldu sína fyrir mörgum ár-
um og breytt um nafn.
Á fjórða tugi aldarinnar erfði
Merlin um 100.000 sænskar krón-
ur. Hann vann aðeins með höpp-
um og glöppum, en var sérfræð-
ingur í meðferð IBM-véla. — í
þessu sambandi er fróðlegt að
vita, að annað fórnarlamb Merl-
ins, Aktuar Brandt, var yfirmað-
ur IBM-kortadeildarinnar á hag-
stofu Stokkhólmsborgar og hafði
sennilega átt einhver viðskipti
við Merlin í sambandi við störf
sín.
Verzlimarmaima-
félag Isaf jarðar
stofnað
NÝLEGA var stofnað á ísafirði
Verzlimarmannafélag Isafjarðar.
Á stofnfundinum mætti formað-
ur Landssambands ísl. verzlunar-
manna, Sverrir Hermannsson. —
Lagði hann fram og skýrði lög
félagsins. Ennfremur skýrði hann
frá hinum nýja Lífeyrissjóði
verzlunarmanna svo og stofnun
og tilgangi L.Í.V. A stofnfundin-
um var samþykkt að sækja Um
upptöku í L.Í.V.
í stjórn félagsins voru kosnir:
Jón Páll Halldórsson, formaður,
Konráð Jakobsson, Haukur Inga-
son, Gunnar Jónsson, Albert Karl
Sanders.
Varastjórn: Olga Ásbergsdóttir
og Steindór Þórisson.
Endurskoðendur: — Sigurður
Pálsson og Hörður Þorsteinsson.
Vara-endurskoðandi: Jón Karl
Sigurðsson.
Trúnaðarráð: Þorgeir Hjörleifs
son, Sigurður Pálsson, Hörður
Þorsteinsson, Jón Karl Sigurðs-
son og Magðalena Jónsdóttir. —
Varamenn: Birgir Valdimarsson
og Iljördís Hjartardóttir.
(Frétt frá L.Í.V.).
Stokkhólmi, 21. ágúst.
Frá NTB.
INNAN skamms koma til Sví-
þjóðar 400 ungverskir flótta-
menn, flestir þeirra frá Júgó-
slavíu. Upphaflega var ákveðið
að Svíar tækju ekki við fleiri
flóttamönnum, en samkvæmt
beiðni Sameinuðu þjóðanna hafa
þeir fallizt á að taka enn við
nokkrum fjolda.
Með þessum hópi eru þá alls
komnir til Svíþjóðar um 8000
ungverskir flóttamenn. Flestir
þeirra hafa komið beint úr flótta
mannabúðum, en 1300 þeirra
hafa fengið landvistarleyfi sam-
kvæmt eigin umsóknum, og áttu
þeir flestir ættingja í Svíþjóð.
Til að bæta menntunarskilyrði
PARÍS, 21. ágúst. — Norður-
Afrikunefndin svokallaða, sem
skipuð er frönskum ráðherrum,
náði í dag endanlegu samkomu-
lagi um þau atriði, sem liggja
skulu til grundvallar nýrri rikis-
skipan í Alsír. Samkvæmt opin-
berum heimildum í París mun
nefndin nú eiga viðræður við
helztu pólitíska flokka í Frakk-
landi, að undanskildum kommún-
istum og poujadistum, áður en
áætlun hennar verður lögð fyrir
rikisstjórnina.
Búizt er við, að Bourges-
Maunoury forsætisráðherra muni
þegar á morgun ræða málið við
flokksleiðtogana. Þegar náðst
hefur samkomulag um skilyrðin
fyrir nýskipaninni er talið senni-
legt, að forsætisráðherrann heim-
sæki Alsír.
Fara til Suður-Ameríku
og Asiu
Jafnframt mun Pineau utan-
ríkisráðherra leitast við að gera
Sameinuðu þjóðunum það ljóst,
þegar Allsherjarþingið kemur
saman, að Frakkar séu með raun-
hæfar áætlanir, sem eigi að upp-
fylla þær óskir, sem Allsherjar-
þingið lét í ljós I ályktunum sín-
um á fyrri árum, nefnilega, að
finna skuli friðsamlega, réttláta
og lýðræðislega lausn á Alsír-
vandanum. Pineau mun fyrst fara
til Suður-Ameríku, en Maurice
Faure aðstoðarutanríkisráðherra
fer til Asíu. Munu þeir báðir
skýra sjónarmið Frakka fyrir
stjórnum landanna, sem þeir
heimsækja, og reyna að sýna
fram á, að Frakkar séu að reyna
að finna lausn, sem bindi endi á
ófriðinn í Alsír og skapi þar
pólitískt réttlæti.
Helztu atriði áætlunarinnar
íhaldsblaðið „Paris-Presse"
segir, að hin nýja Alsír-áætlun
feli m. a. I sér, að Alsír verði
áfram hluti af franska ríkinu. —
Franska stjórnin beri efnahags-
lega, lagalega og hernaðarlega
ábyrgð á landinu. 1 fulltrúadeild
franska þingsins eigi að sitja um
30 fulltrúar frá Alsír. Skipta eigi
landinu í 6 eða 7 sjálfstæð um-
dæmi, sem hvert um sig hafi eig-
ið þing, sem kosið verði með al-
mennum kosningum. Auk þess
eigi að setja upp sérstakt ráð,
sem verði eins konar ríkisstjórn.
Þannig eigi að ganga frá kosn-
ingalögunum, að minnihlutahóp-
um verði tryggðir fulltrúar á
þingi. Með skiptingu landsins í
ákveðin umdæmi munu tvö
þeirra hafa evrópskan meirihluta
— Algeirsborg og Oran.
Eins konar sambandsþing fyrir
allt landið á að vera í Algeirs-
borg, og á því eiga að sitja fuU-
Itrúar frá öllum umdæmunum.
Verði misklíð milli þinganna
og hinna evrópsku eða múham-
flóttafólksins verður settur á
stofn menntaskóli fyrir 140 nem-
endur í Gautaborg í haust.
Ungversk hreinsun
VtNARBORG, 21. ágúst. — A
Miscolo-svæðinu í Ungverjalandl
hefur farið fram gagngerð
hreinsun meðal kennara. Komm-
únistaflokkurinn á staðnum rann
sakaði hoUustu allra 360 kennar-
anna við flokkinn, og voru 27
þeirra reknir. 20 voru dregnir
fyrir sérstakan dómstól. Þá ber-
ast fregnir um mótmælagöngur i
Györ og Pecs vegna fangelsana
siðustu daga.
edönsku íbúa í Alsír á fulltrúl
frönsku stjórnarinnar í Alsír og
sérstakur dómstóll, skipaður af
forseta Frakklands og með setu
í París, að miðla málum.
— E i senhower
Frh. af bls. 1.
frjálsa heim miklu máli, sagði
Eisenhower.
Margs konar kommúnlsmi
Þegar forsetinn var spurður
um afstöðu Bandaríkjanna til
kommúnistastjórnarinnar í Sýr-
landi, sagði hann, að til væru
ýmsar tegundir af kommúnisma.
Kommúnistastjórnin í Júgóslavíu
væri t.d. frábrugðin öðrum
kommúnistastjórnum í Austur-
Evrópu, og ekki væri hægt að
líta á hana sem verkfæri í hönd-
um alþjóðakommúnismans. Þetta
þýðir þó ekki, að Bandaríkin
leggi blessun sína yfir nokkra
tegund kommúnisma, sagði for-
setinn.
Verður þingið kvatt saman
til aukafundar?
Þegar talið barst að frumvarpi
forsetans um efnahags- og hern-
aðaraðstoð við vinveitt ríki, sagði
hann: „Ef öldungadeildin sam-
þykkir þá lækkun um 809 millj.
dollara, sem fulltrúadeildin hef-
ur þegar samþykkt, munu Banda
ríkin ekki geta veitt neinu ríki
þá aðstoð, sem nauðsynleg er til
að halda uppi hernaðarlegu ör-
yggi þess“.
Hann var hins vegar von-
góður um, að öldungadeildin
mundi samþykkja að veita a.m.k.
helming upphæðarinnar, sem full
trúadeildin felldi burt. En sam-
þykki öldungadeildin að lækka
aðstoðina um þessar 809 milljón-
ir dollara, verða hin einstöku
ráðuneyti að skera úr um það,
hvort nauðsynlegt sé að kalla
saman þingið til aukafundar til
að fá það til að veita einhverja
frekari hjálp.
Treystir almenningsálitinu
Eisenhower kvaðst sjálfur ekki
æskja þess að kalla þingið sam-
an til aukafundar, fyrr en bráða
nauðsyn bæri til, þar sem báðar
deildir hefðu þegar setið á rök-
stólum langt fram yfir venjuleg-
an tíma. Hann kvaðst þegar hafa
sent almenningi nógu margar á-
skoranir um að styðja frumvarp
sitt um aðstoð við aðrar þjóðir.
Það mundi tryggja Bandaríkj-
unum það forustuhlutverk í hin-
um frjálsa heimi, sem þau hefðu
haft hingað til. Hann kvaðst þess
fullviss, að bandaríska þjóðin
skildi betur hve mikilvægt þetta
væri en mennirnir, sem ræddu
málið í Washingtoa.
Semenfsinnflutningur frá
Rússlandi er nú aðeins V*
af því sem hann var 1956
Árbók Ferðulélugs íslonds ijoll-
or nm Austflrði norðon Gerpis
Höíundur er Stefán Einarsson prófessor
Frönsk áætlun um
nýskipan Alsír-mála