Morgunblaðið - 22.08.1957, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 22.08.1957, Blaðsíða 10
M MORCUNBLAÐ1Ð Hmmtudagur 22. ágúst 1957 Frá heimsmófi Ijósmœðra í Stokkhólmi: Haldið var með heimafœðingum og brjóstagjöfinni Samtal við frk. Jóhönnu Friðriksdóttur formann Ljósmæðrafélags Islands EXNN er sá félagsskapur hér á landi sem ekki lætur mikið yfir *ér en gegnir þó sínu þarfa hlut- verki, en það er Ljósmæðraféiag fsiands. í félaginu eru nú um 200 ljósmæður eða nær allar sem starfandi eru á landinu. Félagið var stofnað 2. maí 1919 og fyrstu stjóm þess skipuðu Þuríður Bárðardóttir, sem var einn af aðalbrautryðjendum að stofnun félagsins, I>órdís Carl- quist og Þórunn A. Björnsdóttir, en þær voru þá allar lögskipaðar ljósmæður í Reykjavík. Margir af stofnendum félags- ins eru enn á lífi og hafa ailtaf verið í félaginu, en meðal þeirra eru Sigríður Sigfúsdóttir, sem léngst af hefur verið gjaldkeri félagsins og Asa Asmundsdóttir meðstjórnandi. — Frk. Jóhanna Friðriksdóttir, núverandi formað ur félagsins, var ritari þess frá 1925 og til ársins 1949 er hún varð formaður. Fréttamaður Mbl. hrtti hana að máli nýlega er hún var nýkomin heim af alþjóða ljósmæðraþingi er haldið var í Svíþjóð í júní sl. og ræddi nokk- uð við hana um félagið, þingið og hlutverk Ijósunnar í þjóðféiag- inu í dag. Hluíverk Ljósmæðrafélagsins — Hvert er aðalhlutverk Ljós- mæðrafélags fslands, Jóhanna. — Ljósmæðrafélagið hefur lát- ið launamál og menntun ljós- mæðra mjög til sín taka. Þá hef- ur félagið greitt götu þeirra ljós- mæðra sem hafa vilj.að fara utan til framhaldsnáms. Utanfarasjóð- ur ljósmæðra var stofnaður í þessu skyni og hefur hann fé sitt af frjálsum framlögum og öðrum gjöfum. Félagið hefur látið sig varða lengingu námstímans í Ljósmæðraskólanum. ■— Er fé- lagið var stofnað, var námstím- inn ekki nema 6 mánuðir, en þá var hann lengdur í 9 mánuði. Síðar, 193Q, er fæðingardeildin var stofnuð, var námstíminn lengdur í 1 ár, sem hann er nú. En Ijóðmæðurnar teljast ekki fullgildar fyrr en þær hafa að námstima loknum unnið sem að- stoðarljósmæður í eitt ár. Þá hóf félagið, 1922, útgáfu Ljósmæðrablaðsins, sem flytur bæði frumsamdar greinar og þýddar og ýmsan fróðleik fyrir ljósmæður og er ef svo mætti að ®rði komast eini tengiliðurinn milli ijósmæðra á landinu. Eng- ia sérstök blaðanefnd sér um blaðið heldur er formanni félags- ins og ritara falið að sjá um út- gáfuna, en á hverju ári koma út t blöð. — Hafa ljósmæður á Norður- löndum gott samstarf sín í milli? — Jú, við höfum leitazt við að koma ljósmæðrum okkar, sem þess hafa óskað, til framhalds- náms á hinum Norðurlöndunum, en þar sem námstími ljósmæðra á Norðurlöndunum er mjög mis- munandi hefur stundinn ekki verið svo gott að koma þvi við. Árið 1950 var stofnað samband norrænna ljósmæðra í Lundi og *ótti ég, sem formaður félagsins, mótið fyrir okkar hönd, og var síðan haldinn annar fundur í Kaupmannahöfn, 1952. Vill sam- bandið vinna að samræmingu Ijósmæðranáms á Norðurlöndun- utn og að velferðarmálum ljós- mæðrastéttarinnar yfirleitt. — En hvenær var svo heims- sambandið stofnað? — Það var árið 1920 að sam- tökin voru stofnuð. Fundir voru haldnir á þriggja ára fresti, en siðasti fundurinn fyrir stríðið var í Genf 1938 og er hefja átti starf- ið að nýju eftir stríð fundust ekki neinir pappírar samtakanna, höfðu allir glatazt í stríðinu. En árið 1951 var aftur haldið reglu- legt þing*í London og hafa mótin verið haldin síðan reglulega. Mótið sem haldið var -í Stokk- hólmi dagana 23.—28. júní sl., var hið 11. í röðinni, en mótia eru haldin þriðja hvert ár. Næsta mót er ráðgert í Róm 1960. — Hvenær gekk ísland í sam- tökin? — Núna á þessum síðasta fundi vorum við teknar inn í alþjóða- félagið. Meðmæli höfðum við frá frk. Ellen Erup, sem er formaður norræna ij ósmæðrasambandsins. Var hún einnig kosinn fovíeti heimssamtakanna, International Confederation of Midwifes, og er það mikill heiður fyrir Norðurlöndin í heild. Frk. Erup var einnig sæmd æðsta heiðurs- merki Svía fyrir frábært starf sitt í þágu þjóðfélagsins. — Hvað voru þátttakendurmr margir? — Alls sendu 35 lönd fulltrúa sina, um 850 að tölu, þar af voru um 300 frá Svíþjóð. Sumar þjóð- ir sendu fáa fulltrúa, t. d. voru ekki nema_6 frá Bandaríkjimum og 5 frá Ástralíu. Við íslenzku fulltrúarnir vorum 7. — Hvernig höfðu Svíarnir undirbúið mótið? — Alveg skínandi vel. Það var haldið í Konserthuset í Stokk- hólmi og var þar mjög til alls vandað. Drottningin var vernd- ari mótsins ásamt Sibyllu prins- essu. Hin viðurkenndu tungumál íundarins voru enska, spænska og franska, ásamt sænsku af því að mótið var haldið í Sviþjóð. Við áheyrendastólana voru heyrnartæki og gat maður hlust- að á ræðumar sem fluttar voru á hverju þessara tungumála er maður kaus helzt. — Hvert var aðalumræðuefni fundarins? —- Mikið var fjallað um kjör og menntun Ijósmæðra og stöðu þeirra í þjóðfélaginu. Einna mest var rætt um brjóstgjöfina, hversu nauðsynleg hún væri fyr- ir barnið. Kom m. a. fram það sjónarmið að eins og barnið nærðist á blóði móðurinnar á meðan það væri í móðurkviði, ætlaðist náttúran til þess að það nærðist á brjóstamjólkinni eftir að það væri í heiminn fætt. — En nútímakonan vill helzt ekki þurfa að vera bundin yfir barni sinu og þar með taka þessa guðs- gjöf frá því, en hin frumstæða kona, t. d. í Indlandi og Afríku, skilur þessa nauðsyn og hefur barnið sitt á brjógti. Þá var rætt um hvort konan ætti að fæða heima eða á fæð- ingarstofnun og var haldið með heimafæðingunum. Og í því sam- bandi rætt um ljósmóðurina sem þátttakanda og heimilisvin — hún hjálpaði til þess að skapa sanna heimilishamingju og und- irbyggi jafnt föður og móður undir væntanlega fæðingu. — Var ekki rætt um afslöpp- unarkerfið? — Jú, sei, sei, jú. Mikið var rætt um það kerfi og meira að segja sýndi flokkur tilvonandi mæðra mæðraleikfimi. Svíþjóð hefur staðið mjög framarlega í að kenna tilvonandi mæðrum sínum þessar afslöppunaræfing- ar, en þrátt fyrir það þykja þær ekki gefa góða raun þar. Af til- raun sem gerð var með 344 mæðrum fannst aðeins 6 að æf- ingarnar hefðu hjálpað þeim til að fæða þjáningarlaust. Ánægjuleg ferð — Hverjar voru hinar íslenzku ljósmæður er mótið sóttu? — Ingibjörg Björnsdóttir, Dýr- leif Friðriksdóttir, Magnea Guðnadóttir, Ása Marinósdóttir, Þórdís Ólafsdóttir og ég, og einn- ig var á mótinu Anna Guðmunds dóttir, sem um 11 ára skeið hefur verið yfirljósmóðir á fæðingar- spítala í Svíþjóð. — Voruð þið ekki ánægðar með förina á mótið? — Jú, við vorum mjög ánægð- ar með förina. Á meðan á mótinu stóð bjuggum við frítt, fulltrú- arnir bjuggu á sænskum heim- ilum, en ég bjó í ljósmæðraskóla við Suður Sjukhuset, sem er 1100 rúma spítali, byggður 1950, ásamt formönnum hinna ljós- mæðrafélaganna. Það var mjög ánægjulegt að kynnast öllum þessum ljósmæðr- um frá hinum ýmsu stöðum í heiminum og kynnast því hvern- ig Ijósmæðrafræðsla og vinnu- skilyrði eru. T.d. var mjög gam- an að hitta Ijósmóðirina sem kom frá svertingjaríkinu Gana á Gullströndinni. Þarna voru e:nn- ig ljósmæður frá Egyptalandi, Formósu, Nýja-Sjálandi, Mar- okkó, Indónesíu o. m. fl. stöðum. Við töldum það mikla hamingju fyrir Ljósmæðrafélagið að það skyldi fá inngöngu I þessi heimssamtök ljósmæðra. Þar með höfum við hlotið viðurkenn- ingu á alþjóðavettvangi, sagði frk. Jóhanna Friðriksdóttir að lokum. A. Bj. fslenzku fulltrúarnir á Ijósmæðraþinginu, talið frá vinstri: Ingibjörg, Jóhanna, Þórdis, Dýrleif, Anna, sem búsett er í Sviþjóð, Magnea. — Á myndina vantar Ásu Marinósdóttur. - SKF Framh. af bls. 9 tveir fastráðnir læknar og einn sem vinnur hálfan daginn. Þeim til hjálpar eru sjö hjúkrunar- konur. Eigið lögreglulið, sem hefir með höndum allar varnir innan „borgarmúranna". í því er starf- andi 51 maður og þar af átta með lögreglumennt. Eigin tannlækningastofa, þar sem starfsfólkið fær fría tannvið- gerð. Þar eru starfandi fimm tannlæknar, tveir tannsmiðir. Þeim til aðstoðar eru sjö hjúkr- unarkonur. Þessi stofa hefir til umráða sex herbergi sem eru út búin öllum nýjustu tækjum. Eigin skóli. SKF hefir sinn eig- in iðnskóla, þar sem ungir menn fá fjögurra ára menntun á sviði kúlulegaframleiðslunnar. Einn- ig er skóli sem er ætlaður fólki i sem byrjar vinnu á skrifstofum fyrirtækisins. Slökkvilið, lið sem annast allt hreinlæti innan verksmiðjunnar, bókasafn fyrir stárfsmenn, banki. Matsalir eru margir og eru óspart notaðir, enda kostar mat- urinn ekki nema sem svarar 2,50 ísl. krónum. Er það smurt brauð, heitur réttur með kaffi á eftir. Fyrir utan múrana eru svo búðir fyrir starfsfólkið og barna heimili, þar sem starfsliðið get- ur skilið eftir börnin sín meðan á vinnu stendur. Þar að auki hefir fyrirtækið byggt yfir 2000 íbúðir. Gautaborg er stundum kölluð borg gjafanna og er það orð að sönnu, því fyrirtæki og auðkýf- ingar gefa ógrynni af peningum til alls konar góðgerðastofnana. Þar hefir SKF heldur ekki legið á liði sínu, því fyrirtækið hefir gefið 16 milljónir króna til skóla i og annarra stofnana. Ingi R. Jóhannsson: SKÁK x-ís: xxxvrrvrv.-f\iNJLfi sKaK var tefld á Norðurlandamótinu í Helsing- fors í síðustu umferð. Stáhlberg, sem hefur hvítt, veitist auðveli að ráða niðurlögum andstæðings síns, og tryggja sér um leið ann- að sætið. Hvítt: G. Stáhlberg Svart: Rantaninn Drottningarindversk-vörn. 1. d4 2. c4 3. Rf3 4. Bg5 (Stáhlberg vill vitaskuld forðas alfaraleiðir). 4...... 5. Rc3 6. Bh4 7. e3 (Mun betra var 7. ... svartur jafnar taflið lega). 8. cxd5 Rxd5 (Þessi leikur er engan vegin góður, þar sem hann gefur hvít miðborðspeðunum frjálsar henc ur. Nákvæmara er 8.......exdö; Rf6 b6 Bb7 h6 Be7 d5 Re4! oí auðveld 0-0 Rxc3? .. c5). c5 Dc8 9. Bg3 10. Bc4 (Sjálfsagt var 10. 11. bxc3 12. 0-0 (Svartur á þegar í erfiðleikurr en e.t.v. var 12......a6 betra) 13. De2 Rc6 (Sjálfsagt var að reyna 13. ... Ba6). 14. e4 Ra5 15. Bd3 Hd8 16. Ilacl Bf8 17. Bh4! .... (Þessi biskup á eftir að gegn mikilvægu hlutverki í sóknar aðgerðum hvits). 17..... 18. Hfdl 19. Bg3 .... (19. e5 hefði verið ótímabæi vegna 19. .... Re7). 19................... g6? (Eftir þennan leik er allt mikl auðveldara. Skárra var 19. .., Re7). 20. BÍ4! Kh7 21. h4 f5 (Nú er aðeins tímaspursmál h\ nær svarta staðan hrynur í rúst 22. h5! Re7 (Ekki dugar 22........ g5 vegr 23. exf5!, a) exf5. 24. Dc2! 1 gxf4. 24. fxe6t, Kg8. 25. d5 t svartur á erfitt um vik). 23. Bd6! .... (Biskupinn hefur ekki sagt si síðasta orð). 23.................... g5 24. Re5 a6 (Ekki 24 .... Rc6. 25. exfð! i Bxd6. 26. fxe6f, Kh8. 27. De b) .... exf5. 26. Dg4). He8 Rc6 25. Bxe7 Hxe7 26. exf5 exf5 27. Dg4 Be4 28. Rxe4 fxe4 29. Dxe4t Kg8 30. Dd5t Kg7 31. dxc5 bxc5 32. Rd7 Ha7 33. Rxc5 De8 34. Re6t í Kh8 (Ekki 34 Hxe6 vegna Dd4f). 35. Rxf8 Dxf8 36. Dd4t Kg8 37. Dc4f Kh7 38. Dd3t Kh8 39. Hbl De8 40. Dd8 Gefið. ★ Skókmófið í Hafnorfirði Nýhafið er í Hafnarfirði „al- þjóðlegt" skákmót með stór- meistaranum H. Pilnik og al- þjóðlegu meisturunum P. Benkö og Friðriki Ólafssyni. Eftir 2 umferðir eru Benkö og Ingi R. efstir með 2 v., en næstir þeim koma Friðrik og Pilnik með 114 vinning. í fyrstu umferð kom eftirfar- andi staða upp í skák Sigurgeir* sem hafði hvítt og Benkö: ABCDEFGH 1..... Bxf3! (Sigurgeir virtist sem Benkö tapaði manni eftir 2. Rxe6, Bxe2. 3. Rxg5 og lék því): 2. Rxe6? Rxh3 mát. Óneitanlega undarleg mátstaða. AKRANESI, 20. ágúst: — Hingað kom þýzkt skip í kvöld með vél- ar, sement og annað efni í Sem- entsverksmiðjuna. Annað skip erlent kom hér einnig í kvöld og mun það iesta hvalkjöt. —Oddur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.