Morgunblaðið - 22.08.1957, Side 15

Morgunblaðið - 22.08.1957, Side 15
Fimmtudagur 22. ágúst 1Ö5T Monr.rnsm. 4f>fÐ 15 Sigurður Bjarnason rafvirkjameisf. 60 ára SIGUR£>UR Bjarnason rafvirkja- meistari, Lindargötu 29, verður sextugur í dag. Sigurður sem er fæddur á Vattarnesi, gerðist ung ur sjómaður á mótorbátum frá Eskifirði. Á yngri árum stóð hug- ur hans til sjómennsku og hann lauk hinu minna fiskimannaprófi og gerðist formaður á bátum eystra um nokkurra ára skeið. Árið 1924 lá leið hans hingað til Reykjavíkur og hér hefur hann æ síðan starfað. Þegar hann kom til höfuðborgarinnar hætti hann sjómennskunni, en þó ekki fyrr en hann hafði um skeið ver- ið á togurum. Hann kom fljótt auga á það hér í Reykjavík hví- líka möguleika rafmagnsiðnaður hafði og því söðlaði hann um og hóf nám í rafvirkjun. Var Sigurð- in: rúmlega fertugur, er hann tók við úr hendi iðnskólastjórans prófskírteini skólans eftir aðeins tveggja vetra setu í skólanum. Síðan hefur Sigurður helgað sig iðn sinni og hefur um langt ára- bil annazt raflagnir í húsum hér í Reykjavík og einnig utan. Hef- ur ætíð farið orð af Sigurði sem góðum, vandvirkum og einstak- lega áreiðanlegum iðnaðármanni og hefur hann áunnið sér traust mikils fjölda manna. Kona hans er frú Ingibjörg Guðbjarnadóttir og eiga þau einn dreng, sem fermdur var í vor. Sigurður Bjarnason er maður yfirlætislaus, sem hefur látið sig mestu skipta velferð heimilis síns. Hann er hinn traustasti maður í hvívetna og er sæti hans vel skipað, þar sem hann kemur við sögu. Faðir Sigurðar, hinn erni öld- ungur Bjarni skrifstofustjóri Sig- urðsson, varð níræður fyrir skemmstu. Sigurður er líkur föð- ur sínum um margt, m. a. sýnast báðir mun yngri en þeir eru, og báðir eru fullir áhuga á fram- gangi Sjálfstæðisflokksins og stefnu hans. Sigurður á sæti fulltrúaráði flokksins hér í bæ, sækir fundi og skemmtanir flokks ins flestum betur og er vel virt- ur þar í hópi eins og hvarvetna annars staðar. Vinir Og fjölmargir kunningjar munu á þessum merkisdegi Sig- urðar senda honum hugheilar kveðjur og þakkir fyrir góða við- kynningu, og óska honum og heimili hans allra heilla um ó- komna framtíð. Kunnugur. Síðastliðið ár dvaldist 501 barn í sveit á vegnm Reykjavíkurdeildar Rauða kross Isiands AÐALFUNDUR Reykjavikur- deildar Rauða kross íslands var haldinn 13. ágúst síðastliðinn. Foiunaður deildarinnar, séra Jón Auðuns, dómprófastur, flutti skýrslu um starfið árin 1953—56. Minntist hann einnig á helztu verkefni deildarinnar á þessu tíniabili. 7914 sjúkraflutningar. Skýrði hann frá því, að á þessu tímabili hefðu 501 barn dvalizt í sveit á vegum deildarinnar. — Sjúkraflutningar voru 7914. Tvær nýjar sjúkraflutningabif- reiðir voru keyptar frá Banda- ríkjunum sl. ár. Þá hafa verið haldin námskeið í „Hjálp í við- lögum“ fyrir almenning og öflun hjúkrunargagna til útlána í heimahús í veikindatilfellum hef- ur gengið vel. Kjörnir voru 19 fulltrúar á að- alfund Rauða kross íslands. — Ný slys í Ölpunum SONDRIO, 21. ágúst: — Fjögurra þýzkra fjallgöngumanna er sakn- að í ítölsku ölpunum. Þeir voru að klífa hinn 4000 metra háa Bernina-tind. Höfðu þeir náð tindinum og voru á leið niður aítur. Á sunnudaginn komu þeir við í kofa nokkrum, en höfðu þar skamma viðdvöl. Síðan hef- ur ekki til þeirra frétzt. — 1 ítölsku ölpunum hefir verið mjög illt veður, stormar og hríðir, síð- ustu dagana. Óttazt er, að tveir þýzkir fjallgöngumenn hafi far- izt á Marmolada-f j alli í Dolomit- fjallahryggnum, eftir að þeir höfðu verið veðurtepptir þar uppi dögum saman. Það var tilkynnt seint í kvöld að Þjóðverjarnir fjórir í ítölsku ölpunum, 2 karlar og 2 konur, hefðu farizt. — Fundust lík þeirra seínt í dag. —NTB. Stjórn deildarinnar var endur- kjörin nema hvað frú Ragnheið- ur Guðmundsdóttir læknir, kom í stað frú Guðrúnar Bjarnadótt- ur hjúkrunarkonu. — Stjórnin er því þannig skipuð. Séra Jón Auðuns, formaður, Jón Helgason káupmaður gjald- keri, Gísli Jónasson skólastjóri, ritari, Jónas B. Jónsson fræðslu- fulltrúi, Jón Sigurðsson borgar- læknir, Óli J. Ólason kaupmaður og Ragnheiður Guðmundsdóttir, læknir. Varastjórn: Margrét Jó- hannesdóttir hjúkrunarkona og séra Þorsteinn Jóhannsson stjórn arráðsfulltrúi. Endurskoðendur eru Magnús Vigfússon og Víg- lundur Möller. Skipin Iesta frosna beitusild SIGLUFIRÐI, 21. ágúst: — í gær var reknetaveiðin hér 596 tunnur uppsaltaðar. í dag er betri veiði og eru sumir bátarnir með um 100 tunnur. Er veiðin skammt sótt um 2Yz klst. útsiglingu, en síldin er mjög misjöfn og virðist ekkert batna. Lengdin er frá 27 —37 sm., meðallengdin er 33 sm. I fyrra var meðallengd Norðurlandssíldarinnar 36 sm. Þetta er allt vorgotssíld. Síldin er öll floltkuð í tunn- umar og eru tvær stúlkur um hverja tunnu þegar saltað er. Mörg skip komu hér í nótt að austan og eru þau að hætta veið- um, gera upp og fara heim. Taka sum þeirra frosna beitusíld til næstu vertíðar. -—Guðjón. Jafntefli hjá Inga R. og Friðrik í ÞRIÐJU umferð skákmótsins í Hafnarfirði varð jafntefli hjá Inga R. og Friðrik, Pilnik vann Stíg og Árni Finnsson vann Sig- urgeir. Ólokið var skák Benkö og Jóns Pálssonar. Staðan var betri hjá Benkö, en hann var miklu tímahraki. Kári átti betra gegn Jóni Kristjáns. í kvöld 'mætast Jónarnir, Árni og Kári, Friðrik og Sigurgeir, Stígur og Ingi R. og Pilnik og Benkö. Sendiherra Sviss afhendir trúnaðarbréf HINN nýi sendiherra Sviss á ís- landi, Otto Seifert, afhent í gær (miðvikudaginn 21. ágúst 1957) forseta íslands trúnaðarbréf sitt við hátíðlega athöfn á Bessastöð- um, að viðstöddum utanríkis ráðherra. Að lokinni athöfninni snæddu sendiherrahjónin og utanríkisráð herra og frú hans hádegisverð í boði forsetahjónanna, ásarnt nokkrum öðrum gestum. Sendiherra Sviss á íslandi hef- ur búsetu í Ósló. (Frá skrifstofu forseta). Olíuskipið sokldð GÍBRALTAR, 21. ágúst. — OIíu- skipið „World Splendour“, sem er eign Níarkosar hins gríska en siglir undir fána Líberíu, sökk í dag fyrir utan Algeeiras á Spáni. Skipið, sem var aðeins 3 mán. gamalt, varð alelda í gær, þegar í því urðu tvær spreng- ingar. Á skipinu voru 78 menn, og í kvöld var 7 þeirra saknað. Ékki er þó víst, að þeir hafi allir farizt, þar sem þeim kann að hafa verið bjargað af einhverju þeirra skipa, sem komu á vett- vang. Skipstjóranui* og nokkrum mönnum öðrum tókst að ráða nið urlögum eldsins í nótt, og átti að draga skipið til hafnar, en þá tók það að sökkva. í kvöld sökk það. Skipið var 25.000 tonn. Orsakir sprenginganna eru ekki kunnar. Syndið 200 mefra Hurðarnaf nsp j öld Bréfalokur Skiltagcrðin, Skólavörðustíg 8. Kristján Guðlaugssor h«9U.réttarlögma&ur. Skrifstofutími kL 10—12 og 1—5. Austurstrseti 1. — Súni 13400. Samkomui Samkoma verður haldin í kirkjunni á Akranesi í kvöld, fimmtudaginn 22. þ.m. kl. 8,30. — Ölafur Björnsson, Stefán Runólfssou. Fíladelfía Almenn samkoma kl. 8,30. Ræðumaður Ellen Edlund o. fl. Allir velkomnir. Félagslíf Haf narfjörður! F.H. heldur innanfélagsmót í frjálsum íþróttum á Hörðuvöllum kl. 7 í kvöld. Keppt verður í 60 m. hlaupi, kúluvarpi karla og kvenna. Vinna Hreingerningar —— gluggahreinsun Sími 1-78-97. — Þórður & Geir. Hreingerningar Tökum að oklcur hreingeming- ar og utanhú&unálningar. — Sími 17417. — Hjartanlegar þakkir flyt ég öllum þeim, sem glöddu mig á margvíslegan hátt á sjötugsafmæli mínu. Jóhanna Jónsdóttir, Efstasundi 84. Fasfeignir og verðbréf s.f. Austurstr. I Til sölu 3 herbergja íbúð við Skipasund 4 herbergja íbúð við Framnesveg 4 herbergja íbúð í Laugarneshverfi 3 herbergja íbúð við Skipasund, jarðhæð Mjög falleg 5 herbergja íbúð við Gnoðavog 4 herbergja íbúð Gnoðavog. Stór húseign, tvær íbúðir og iðnaðarpláss á mjðg góðum stað í Kópavogskaupstað. Verð og greiðsluskilmálar hagstætt. Tveggja og þriggja herbergja fokheldar íbúðir við Álfheima. Uppl. í síma 13400, milli kl. 1—5. H úsgogn Smíðum alls konar húsgögn, eldhúsinnréttingar og viðgerðir á húsgögnum. Alfred JÖrgensen Njálsgötu 65 — sími 14022. Lokað til mánaðamóta vegna sumarleyfa Samábyrgð íslands Skólavörðustíg 16 Húsnæði til sölu Glæsilegt einbýlisliús í smíðum á eftirsóttum stað í bænum. Húsið er 8 herbergi, eldhús, bað, „hall“, forstofur og miklar geymslur. Skemmtileg 5 herbergja risíbúð við Bugðulæk til- búin undir tréverk. 4ra herbergja risíbúð við Kambsveg tilbúin undir tréverk. Hagstætt verð. 3 herbergja íbúð á hæð með 4. herb. í kjallara í húsi við Laugarneveg. Fyrsti veðréttur er laus. Á 2. veðrétti hvilir kr. 50.000.00. Sanngjarnt verð. Tilbúin undir tréverk. 2ja og 3ja herbergja íbúðir í húsi í Hálogalands- hverfinu, sem verið er að byrja að byggja. Hagstætt verð. Skemmtilegur staður. Höfum ennfremur til sölu íbúðir af ýmsum stærð- um, tilbúnar og í byggingu. Fasteigna og Verðbréfasalan, (Lárus Jóhannesson, brL) Suðurgötu 4. Símar: 1-3294 og 1-4314. Móðir okkar og tengdamóðir ELÍN GUÐMUNDSDÓTTIR andaðist að Bæjarsjúkrahúsinu 21. þ. m. Steinþór Eiríksson, Guðmundur Eiríksson, Guðríður Steindórsdóttir, Þuríður Markúsdóttir. Eginmaður minn, faðir og tengdafaðir OLAF FORBERG verður jarðsunginn föstudagihn 23. þ. m. kL 1,30 e. b. frá Fossvogskirkju. Ásthildur Forberg, Sandra Forberg, Olaf Forberg, Elfar Skúlason.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.