Morgunblaðið - 30.08.1957, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 30.08.1957, Qupperneq 3
Föstudagur 30. ágúst 1957 MORGU1SBTAÐ1Ð 3 FAO boðar til alþjóðaráðstefnu. um fjárhagsgrundvöll útvegsins Samtal við F. E. Popper, yfirmann hagfræði- skrifstofu fiskveiðideildar FAO. MATVÆLASTOFNUN Samein- uðu þjóðanna eða FAO eins og hún er kölluð á alþjóðamáli er nú að undirbúa merkilega ráð- stefnu sem á að fjalla um fjár- hagsmálefni sjávarútvegsins. Er búizt við að ráðstefna þessi verði haldin haustið 1958 í Lundúnum og að allar fiskveiðiþjóðir við norðanvert Atlantshaf eigi sína fulltrúa þar. Að undanförnu hefur dvalizt hér á landi. F. E. Popper sem er yfirmaður hagfræðiskrifstofunn- ar í fiskdeild FAO og hefur hann rætt við Davíð Ólafsson fiski- málastjóra og aðra íslenzka kunn áttumenn á sviði_ sjávarútvegs- ins um þátttöku íslands í fyrr- nefndri ráðstefnu. En þess er óskað að fulltrúar frá hinum ýmsu ríkjum birti skýrslur og flytji fyrirlestra um fjárhags grundvöll sjávarútvegsins í við komandi landi. Mr. Popper er Kanadamaður. Hann hefur í fjögur ár verið yfir maður hagfræðiskrifstofu FAO, en áður var hann starfsmaður í hagdeild kanadíska fiskimála- ráðuneytisins. Fréttamaður Mbl. kom sem snöggvast að máli við hann og innti hann eftir tilgang- inum með hinni fyrirhuguðu ráð- stefnu í Lundúnum. Hann komst þá svo að orði: NAUÐSYN UPPLÝSINGA Meðal allra fiskveiðiþjóða er vaxandi skilningur á því hver nauðsyn sé að fá sem nákvæm- astar skýrslur um fjárhagsgrund völl og hagnýti hinna ýmsu greina fiskveiðanna. Það er al- kunnugt að eftirtekjan er mjög mismunandi eftir því hvar fisk- veiðar eru stundaðar, með hvaðs. veiðarfærum, eftir tegund fisks og eftir verkunaraðferðum. Á síðustu árum hefur einnig verið að kreppa að sjávarútveg- inum. Hann ræður ekki sjálfur yfir verði aflans, heldur ákvarð- ast það á hinum frjálsa marka'ði í samkeppni við önnur matvæli. En allur tilkostnaður hefur stöð- ugt verið að aukast. ísland varð meðal fyrstu land- anna að semja skýrslur um fjár- hagsgrundvöll sjávarútvegsins. Síðan hafa fleiri lönd skilið nauð syn þess svo sem önnur Norður- lönd, Bretland og Kanada. Það er heldur ekki hægt að una við það lengur að rennt sé mikið til blint í sjóinn varðandi svo mikil- væga atvinnugrein. SÍFELLT VAXANDI KOSTNAÐUR — Hvaða þættir kostnaðarins hafa einkum aukizt? — Það eru flestir þættir. Nú eru fiskiskipin stærri og dýrari. Margs konar tæki hafa aukið kostnaðinn og svo ber að geta þess að vinnulaunin hafa hækkað verulega í flestum löndum. Sjáv- arútvegurinn hefur ekki verið samkeppnisfær við ýmiss konar iðnað um greiðslu vinnulauna. Og nú þegar iðnaðarfyrirtæki hafa risið upp nálægt fiskveiðiborg- unum fara kröfur sjómanna um hækkuð vinnulaun vaxandi. Allt þetta stuðlar mjög að því að far- ið sé að hyggja að fjárhagsgrund velli sjávarútvegsins. STUÐNINGUR RÍKISVALDSINS — Er þá ekki víða farið að tíðkast að ríkisvaldið styrki sjávarútveginn? — Það er ekki orðið óalgengt að ríkisvaldið reyni með ýmsum hætti að styrkja sjávarútveginn, svo sem með lánaívilnunum, trygg ingum og niðurgreiðslum. Þegar svo er, þá er ekki nema eðlilegt að ríkisvaldið vilji fá óyggjandi skýrslur um hagnýti hinna ýmsu greina útvegsins. M.a. til þess að sjá, hvaða fiskveiðar gefa beztan arð og eru þess verðar að fá styrk. Félög sjómanna vilja einnig fá sínar skýrslur um hvernig er var ið fjárhag útvegsins. Svo að úr öllum áttum er kallað á skýrslur, sem sannastar og nákvæmastar um afkomu þessa atvinnuvegar. BETUR SJÁ AUGU EN AUGA — En hvaða þýðingu teljið þér að alþjóðasamstarf í þessum mál- um hafi svo sem hin fyrirhugaða ráðstefna í Lundúnum? — Við v’onum að hún gæti kom ið að góðu gagni. í öllum fisk- veiðilöndum er verið að glíma við þennan sama vanda. Og það er gamalt máltæki, að betur sjá augu með auga. Á ráðstefnunni geta komið til umræðu allar að ferðir til sparnaðar og aukinnar hagkvæmdar. Þar má t.d. gera ráð fyrir að menn frá ýmsum löndum hug- leiði, hvaða stærð fiskiskipa sé hagkvæmust, hvaða dreifingarað- ferðir gefi bezta raun. Þar verð- ur rætt um hlutaskipti, hámarks- og lágmarksverð, tollverndun og ótalmargt fleira. STARFSEMI FAO Fréttamaður Mbl. bað Mr. Popper að greina nokkuð frá annarri starfsemi FAO á sviði fiskveiða. — Fiskveiðideildin er aðeins einn af mörgum þáttum í starf- semi matvælastofnunarinnar. Hún skiptist aftur niður í þrjá þætti. 1) Líffræðideild, 2) Tækni deild og 3) Hagfræðideild. Lífrfræðideildin hugar að lifn- aðarháttum fiskanna og fiskstofn inum, fylgist með sveiflum í fisk magninum í sjónum, bæði eðli- legum breytingum og þeim sem verða vegna ofveiði og fleiri or- saka af manna völdum. Það er m.a. eitt hélzta verkefni þess- arar deildar að fá yfirlit yfir fiskmagn í öllum höfum og reyna að stuðla að því að vanyrkt lönd taki að nýta fiskinn sem er við strendur þeirra. Tæknideildin skiptist í þrjá hluta. Einn hefur með höndum skipasmíðar, annar veiðarfæri og sá þriðji verkun aflans. Á þessum sviðum hefur FAO unnið víðtækt og merkilegt starf með því að miðla reynslu og þekk- ingu meðal fiskveiðiþjóðanna. Meðal annars má geta þess að í sambandi við skipasmíðar hefur FAO stuðlað að samstarfi sér- fróðra manna um smíði ranri- sóknarskipa. Veiðarfæradeildinni. stjórnar íslendingur, Hilmar Kristjóns- son og er hún að skipuleggja ráð stefnu, sem halda á í Hamborg í október n.k., þar sem sérfræð- ingar frá flestum fiskveiðiþióð- um heims ræða um flestar teg- undir veiðarfæra. Hefur þessi fyrirhugaða ráðstefna vakið al- heimsathygli og verður þátttaka mjög mikil í henni. f þessu sam- bandi vildi ég geta þess, að marg ir íslendingar hafa starfað á veg um FAO. Hafa þeir veitt tækni- legar leiðbeiningar í fiskveiðum m.a. í Tyrklandi, Indlandi og Ceylon og hefur framlag íslands til starfsemi FAO að þessu leyti verið hlutfallslega meira en fram lag nokkurs annars lands. • Að lokum kemur sú deild, sem ég veiti forstöðu, það er hag fræðideildin. Hún safnar fisk veiðiskýrslum frá öllum fisk veiðiþjóðum og gefur þær út ár lega. Þetta hefur aldrei vcrið gert fyrr og var við marga örðug leika að stríða. Nú tekst okkur að koma fiskiskýrslum út 10 mánuðum eftir að skýrsluári lýk ur. Samtímis þessu er enn verið að vinna að samræmingu í fiski- skýrslum hinna ýmsu þjóða, svo sem að stuðla að því að teknar séu upp samræmdar þyngdarein- ingar. En skýrslusöfnun þessi verður að teljast mjög mikilvæg, Hún er undirstaða þess að hægt sé að taka vandamál sjávarút- vegsins ákveðnum tökum á al- þjóðavettvangi. STAKSTEINAR Þekkfur vísindamaður kynnir sér hér búfé og búfjárrækf Veitir leiðbeiningar og heldur fyrirlestra í DAG kemur hingað til lands hinn heimsfrægi lífeðlisfræðing- ur dr. John Hammond á vegum Búnaðarfélags íslands og með til- styrk ICA-deildar bandaríska sendiráðsins hér. Hann hlaut menntun sína við Cambridgeháskóla og lauk þar meistaraprófi árið 1912, 23 ára að aldri, en stundaði þar fram- haldsnám við vísindarannsóknir næstu tvö árin. Eftir að hafa gegnt herþjónustu frá 1914— 1918, réðist hann sem lífeðlis- fræðingur að fóðurfræðideild Cambridgeháskólá og vann þar jafnhliða að kennslu við háskól- ann og vísindarannsóknum. — Hann lét af því embætti lyrir aldurssakir árið 1954. Frá 1946—1954 var dr. Ham- mond einnig yfirmaður stofnunar þeirrar i Cambridge, er vinnur að rannsóknum á æxlun búfjár á vegum Tilraunaráðs landbún- aðarins. Frá 1954 hefur dr. Ham- mond verið ráðgjafi brezka land- búnaðarráðuneytisins. Jafnframt kennslu við háskól- ann hóf dr. Hammond þegar a unga aldri sjálfstæðar vísinda- legar rannsóknir, einkum á sviði æxlunar- og vaxtalífeðlisfræði búfjár, en þekking á þeim fræði- greinum var þá mjög takmörkuð, einkum þeirri síðarnefndu. Dr. Hammond, sem er með afbrigð- um hugkvæmur og afkastamikill vísindamaður, lagði ótrauður út á nýjar brautir í rannsóknum sínum og lét sér aldrei vaxa í augum erfiði. Á skömmum tíma varð dr. Hammond heimsfrægur fyrir hin merku og margþættu vísindaaf- rek sín. Lagði hann grundvöllinn að vaxtarlífeðlisfræðinni, er hann sýndi fram á, að hin einstöku líf- færi, líkamshlutar og líkamsvefir vaxa með mismunandi hraða og í ákveðinni röð á hinum ýmsu stigum vaxtarskeiðsins og að bráðþroska líkamshlutar eða vef- ir hafa ætíð forgangsrétt að þeirri næringu, sem til umráða er hverju sinni, þannig að sein- þroska líkamshlutar verða ætíð harðast úti er skepnan býr við vaneldi. Með rannsóknum sínum skil- greindi dr. Hammond fyrstur manna m. a. hinn lífeðlisfræði- lega mun frumstæðra og rækt- aðra búfjárkynja og í hverju væri fólginn munur á bráð- þroska og seinþroska búfjár- kynjum með tilliti til kjötfram- leiðslu. Frægð dr. Hammonds varð til þess að búfjárkandídatar úr öll- um heimsálfum flykktust til Cambridgeháskóla til framhalds- náms undir handleiðslu hans. Dr. Hammond ásamt lærisvein um sínum markaði sérstaka stefnu í vísindarannsóknum, sem er við hann kennd og kölluð Hammondsskólinn. Vísindastörf dr. Hammonds hafa einkum einkennzt af því, að hann hefur unnið að lausn vanda mála, sem hafa brýnt hagnýtt gildi fyrir búfjárræktina, og hef- ur hann látið sér mjög annt um að koma niðurstöðum slikra rannsókna til bænda hvarvetna í heiminum. Dr. Hammond er orðinn kunn- ugur búfjárrækt fjölda þjóða í öllum heimsálfum. Hann heíur verið boðinn heim til margra landa til að kynna sér búfjár- rækt þeirra og til leiðbeininga á því sviði. Jafnframt hefur hann setið fjölmargar alþjóðaráðstefn- ur um búfjárræktarmál og verið forseti sumra þeirra. Dr. Hammond hefur meðal annars heimsótt Ástralíu, Nýja- Sjáland, Sovét-Rússland, Banda- ríkin, Suður-Afríku, Indland auk flestra ríkja í Vestur-Evrópu. Á ferðalögum sínum og al- þjóðafundum hefur hann flutt fjölda fyrirlestra ýmist um há- vísindaleg efni eða túlkað niður- stöður sínar á alþýðlegu máli, svo að bændum kæmi að sem mestu gagni. Dr. Hammond hefur ritað ara- grúa af vísindaritgerðum um John Hammond rannsóknir sínar og einnig fjölda greina um búfjárrækt í búfræði- tímarit. Ennfremur hefur hann skrifað bækur um umfangsmestu rannsóknir sínar, og má þar nefna bók um æxlun nautgripa (Reproductions in the Cow), aðra um kjötgæði sauðfjár (Mutton Qualities in the Sheep), sem er risaverk, og kennslubók í búfjárrækt (Farm Animals). Þá hefur hann séð um útgáfu á og verið ritstjóri að miklu riti um nýjungar í lífeðlisfræði búfjár (Progress in the Physiology of Farm Animals), sem nýlega hef- ur komið út. Dr. Hammond er félagi í kon- unglega enska vísindafélaginu og hefur hlotið doktorsnafnbót við háskólana í Iowa, Vín og Lou- vain. Þá var hann um skeið for- maður félaganna The Nutrition Society og The British Society of Animal Production. Hér mun dr. Hammond kynna sér íslenzkt búfé og aðstæður til búfjárræktar, stefnu Búnaðar- félags íslands í búfjárrækt og tilraunir á sviði búfjárræktar. — ★ Prófessor J. Hammond flytur eftirtalda fyrirlestra í 1. kennslu stofu Háskólans, á vegum Bún- aðarfélags fslands: Laugardaginn 31. ágúst, kl. 2 e. h.: Frjósemi nautgripa og sauð fjár. Sunnudaginn 1. september kl. 2 e. h. Lífeðlisfræði mjólkur- myndunar. Öllum er heimill aðgangur að fyrirlestrunum. (Frá Búnaðarfélagi fslands) ,,Bi*jóstmynd á stalli“. Mjög er Bjarni Beneðiktsson ofarlega í huga stjórnarliða. — Þeim nægir ekki að helga honum mest allt efni flestra blaða sinna, heldur fara þeir í eins konar píla- grímsgöngur um landið þangað sem hann hefur staldrað við. — Þessi umhyggja þeirra kemur glögglega fram í síðasta sunnu- dagsblaði Tímans, 25. ágúst. Þar stendur: „Ferðamenn, sem koma í grennd við Húsafellsskóg á þessu sumri spyrja kunnuga, hvar það hafi verið, sem Bjarni Benedikts- son flutti ræðuna í fyrra------. Þá var ríkisstjórnin eins dags gömul í starfinu-------færi vel á að reisa þarna brjóstmynd á stalli af ræðumanninum og lelra á hann fyrirheitið, sem hann gaf í ræðunni: „Við komum bráðum aftur“-------- Vilja þeir einnig prenta upp? Af þessu tilefni er rétt að birta hér að nýju það ágrip af ræðu Bjarna Benediktssonar í Húsa- fellsskógi, sem Morgunblaðið birti í fyrra, hinn 24. júlí, 2 dög- um eftir Varðarferðina: „Kvað hann þess engin dæmi á íslandi að nokkur stjórn hefði farið jafn ógiftusamlega á stað eins og sú, sem nú væri að taka við. Fyrst og fremst styddist hún við þing- fylgi, er fengið væri með brögð- um og í öðru lagi hefði það ver- ið Hræðslubandalagsins fyrsta verk að svíkja kosningaloforð sín. Seinustu hróp þess til kjós- enda fyrir kosningarnar hefði verið þau, að aldrei skyldi það ganga til samstarfs við kommún- ista. Mánuði seinna væri sam- starfið hafið, og með því hefði kjósendum verið sýnd meiri lítils virðing, en nokkur dæmi \a-ru til. — Þessir nýju menn hótuðu því nú aftur á móti, að ofsækja Sjálfstæðismenn á alla lund. Nú mundu þeir, til þess að vera inn- ræti sínu trúir, koma á alls kon- ar höftum og skerða frelsi ein- staklinganna. En ef þeir hygðust koma Sjálfstæðisflokknum á kné með því, þá skjöplaðsst þeim hraparlega. Þeir ættu ekki flokkn um einum að mæta, heldur helm- ing þjóðarinnar, og það afl gætu þeir ekki brotið á bak aftur. — Hann kvað þetta ferðalag Varðar- félagsins vera táknrænt fyrir komandi tíma. Förin hefði verið hafin í dimmviðri og ískyggi- legu útliti, en eftir stutta stund Ijómandi sól um land og sæ“. Allt, sem þarna er eftir baft, er óhaggað í dag. Erfiðleikar búnir til Hið sama á við það, sem Bjarni Benediktsson sagði í annarri ræðu tveimur dögum síðar: „Bjarni Benediktsson kvað þá erfiðleika sem nú væri við að etja, alla tilbúna af þeim mönn- um, sem nú væru að taka við stjórn landsins. Ætti þetta jafnt við um utanríkismál sem efna- hagsmál. í þeim málum væru flest vandkvæði sköpuð af komm únistum og aftaníossum þeirra í Alþýðuflokknum. Annars væri það mála sannast, að þessi rikisstjórn settist í blóm- legra bú en nokkur önnur ríkis- stjórn í þessu landi. — íslenzka þjóðin byggi aldrei við meiri vel- sæld en nú, og atvinnulífið hefði aldrei staðið á styrkari stoðum né meiri möguleikar verið ttl efl- ingar því um langa framtíð". Eru stjórnarliðar jafnfúsir til að prenta um sín fyrri ummæli og Sjálfstæðismenn?

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.