Morgunblaðið - 30.08.1957, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 30.08.1957, Blaðsíða 15
Föstudagur 30. ágúst 1957 M OítGWSBl 4Ð1Ð 15 Franska landsliðið komið 14 leikmenn, 8 tarar- stjórar og 3 bla&amenn sem telja franskan sigur erfiðari nú en í júní FYRSTA heimsmeistarakeppnin sem fram fer hér á íslandi í íþrótta- grein innan vébanda ÍSÍ fer fram á sunnudaginn. Þá mætast ísland og Frakkland í knattspyrnukappleik á Laugardalsleikvanginum. Franska liðið kom hingað í gærkvöld, 14 leikmenn og 8 manna far- arstjórn. Með í förinni voru og 3 blaðamenn. Löng ferð og erfið. Franska liðíð hafði langa ferð í gær og erfiða. Það lagði af stað frá París klukkan 6 um morgun- inn með flugvél. Hafði það við- komu í Dusseldorf og síðan Hamborg, þar sem það sté inn í islenzka flugvél — annan hinna nýju faxa Flugfélagsins. Síðan var viðkoma höfð í Kaupmanna höfn og Ósló. Liðið lét mjög vel af ferðinni með ísl. vélinni. Kvörtuðu þeir helzt undan því, hve oft þeir fengu að borða!! Sólin fagnaði þeim. í stuttu viðtali, sem Morgun- blaðið átti við blaðamennina þrjá, létu þeir í ljós ánægju yfir fyrstu kynnum af íslandi. Þeir kváðu það hafa verið undarlega tilfinningu að þegar þeir lentu hér klukkan langt gengin 9 um kvöld, þá brosti sólin við þeim. Þeir vissu.þegar glögg deili á breytingunni á ísl. liðinu frá því er það lék í Nantes, en allir þessir þrír blaðamenn fylgdust með þeim leik. Um leikinn í Nantes. Aðspurðir um hann sögðu þeir, að þeim hefði ekki fundist að Frakkar hefðu átti stærri sigur skilinn en þeir unnu. Þeir létu allir í Ijós þá skoðun, að hér myndi sigurinn verða Frökkum erfiðari. Talið barst að Franska liðinu og sögðu þeir að þó miklar breyt- ingar væru á því gerðar frá því í Nantes, teldu þeir það álíka sterkt. Þeir lýstu þeirri skoðun sinni að þetta lið sem hér væri væri eitt hið sterkasta sem Frakkar ættu. Það væru ef til vill til tveir eða þrír menn er eftir sætu heima af ýmsum or- sökum sem gætu gert það styrkara. Hissa á fjarveru Alberts Þeir lögðu áherzlu á það að þeim fannst Ríkharður Jónsson vera langsamlega bezti maður liðsins er það lék í Nantes. En all- ir voru þeir hissa á því að Albert skyldi ekki vera valinn, því þeir höfðu haft glöggar fregnir af því að hann kom nýju liði upp í fyrstu deild og það hafnaði þar í 4. sæti í ár. Þeir spurðu hverju það sætti, en áttu bágt með að skilja ástæðuna sem til voru greindar, því allir þekktu þeir Albert mætavel frá því að hann var stjarnan á knattspyrnuvöll- um Evrópu. Illakka til Þingvailafara Þeir spurðu margs um landið og vissu nokkur deili á sögu þess, þeim leist vel á Þingvallaferð þá sem í vændum er, en sögðu að ekki yrði hún farin á föstudag því þjáfarinn vildi hafa menn sína kyrra við æfingar og nudd. Hlégarður Mosfellssveit. Svor við yfirlýsingu K.S.Í. STJÓRN Knattspyrnusambands íslands birtir furðulega yfir- lýsingu í blöðunum í dag og telur sig þurfa að Ieiðrétta villandi um mæli okkar Atla Steinarssonar í sambandi við blaðamannafund stjórnarinnar sl. þriðjudag. öll blöð bæjarins hafa umrædd um- mæii eins eftir formanninum, en stjórnin telur aðeins okkur tvo greina villandi frá þeim (!) Yfirlýsing þessi mun eiga að vera huggun landsliðsnefndinni, í raunum sem hún hefur viljandi ratað í, og er líklega samin eftir pöntun. Það var tvennt, sem mesta at- hygli vakti á blaðamannafundin- um á þriðjudag; áherzla sú, sem formaður KSÍ lagði á alræðis- vald landsliðsnefndarinnar og yfirlýsing formanns landsliðs- nefndar um álit nefndarinnar á Albert Guðmundssyni. Hið fyira mátti taka svo, að stjórn KSÍ vildi þvo hendur sínar af hinu síðara. Ég býst við, að allir við- staddir hafi skilið þetta á þann veg, en þeim skilningi var samt hvergi á lofti haldið af minni hálfu, og vísa ég því á bug öllum aðdróttunum um villandi frétta- flutning. Mér finnst það engin frétt, þó formaður KSÍ léti það fylgja, að stjórn KSÍ bæri fullt traust til landsliðsnefndarmanna, og sá ekki ástæðu til að geta um svo sjálfsagðan hlut. Stjórn K'SÍ vel- ur einmitt menn í landsliðsnefnd og þegar menn velja sér hjú, ætl- ast þeir til að það sé staríanum vaxið. Ef svo reynist ekki, er það einfaldlega látið fara sína leið. Mér er óskiljanlegt, hvers vegna formanni KSÍ var svo tíð- rætt um alræðisvald landsliðs- nefndarinnar, ef það var ekki vegna þeirrar gagnrýni sem fyr- irsjáanleg var og stjórn KSÍ ótt- aðist. Læt ég það liggja milli hluta, en óska þess aðeins, að for- ráðamenn knattspyrnusambands- ins skýri mál sitt svo greinilega í framtíðinni að það verði ekki misskilið, og væri þá ekki úr vegi að stjórn KSÍ segi skorinort álit sitt á starfi landsliðsnefndar- innar nú, en læðist ekki eins og köttur í kringum heitan graut. Slíkt er ekki sæmandi æðstu stj órn knattspyrnuhreyfingarinn ar á íslandi. Reykjavík, 29. ágúst 1957 Sig. Sigurðsson. Syndið 200 metra eftir aðstoð Alberts Guðmunds- sonar við tæknilegar leiðbein- ingar um hvernig bezt megi byggja upp leikmáta íslenzka landsliðsins gegn frönsku lands- liði, eða teljið þér ef til vill ein- hvern annan færari til þess. Þorsteinn Sveinsson. Sparningar til Gnnnlangs Lórussonar ■ formanns landsliðs- nefndar KSÍ MÖRGUM knattspyrnumönnum komu mjög á óvart þau ummæli yðar um Albert Guðmundsson, að hans væri eigi að leita meðal 11 beztu knattspyrnumanna landsins. Af því tilefni vildi ég vinsamlegast fara þess á leit við yður, að þér , svöruðuð eftirfar- andi spurningum: 1) Getið þér bent á 11 íslenzka knattspyrnumenn sem byggja betur upp sókn og vörn kappliðs en Albert Guðmundsson? 2) Getið þér bent á 11 íslenzka knattspyrnumenn, sem þekkja betur franska knattspyrnumenn, knattleikni þeirra og knattmeð- ferð, eða var ekki einmitt Albert Guðmundsson talinn af frönsk- um knattspyrnumönnum eftir- sóttur leikmaður sökum þekk- ingar og leikni- í knattmeðferð? 3) Haldið þér eigi að franskir landsliðsmena muni undrast stór lega, er þeir frétta að Albert Guðmundsson er eigi tækur í ís- lenzkt landslið, sá maður, sem þeir eflaust hafa búizt við að sjá fyrirliða íslenzka landsliðsins, sökum frægðar sinnar, en eigi á áhorfendabekk? 4) Hefur landsliðsnefnd leitað Félagslíi FARFUGLAR Berjaferð í Þjórsárdal, um helg ina. Skrifstofan er a Lindargötu 50. Opin kl. 8—10 í kvöld. Þersmörlc Ferð á Þórsmörk laugardag kl. 2. — Ferðaskrifstofa Páls Arason- ar, Hafnarstræti 8. Sími 17641. Í.R. — Handknattleiksdeild Munið æfinguna í kvöld kl. 9 í K.R.-húsinu. Eftir æfingu verð ur áríðandi fundur. Mætum allir. — Stjórnin. Knattspyrnumenn K.R. 3. fl. A.: Unglingadagsleikur- inn gegn Þrótti verður í kvöld kl. 8 á félagssvæðinu. — Þjálfari. Árnienningar Sjálfboðavinna í Jósefsdal um helgina. Farið kl. 2,30 á laugar- dag. Stjórnin á öll að mæta. SkíSadeiId Ármanng. Mínar innilegustu þakkir til allra vandamanna og ann- arra vina, fyrir gjafir, skeyti og góðar kveðjur á 70 ára afmæli mínu þann 23. ágúst sl. Jón Jónsson, Sólbakka, Höfnum. DANSLEIKUR verður að Hlégarði laugardag 31. þ.m. kl. 9. Hljómsveit Skafta Ólafssonar leikur. Ferðir frá B. S. í. Ölvun bönnuð. Húsinu lokað kl. 11,30. Kvenfélagið. KENNSLA í íþróttaskóla Jóns Þorsteinssonar hefst að nýju mánudaginn 2. september. Lokað frá 29. ágúst til 9. september. K. þorsteinsson & Co« Vesturgötu 5. VefnaðarvöruumboH óskum eftir duglegum umboðsmanni fyrir framleiðslu vora á íslandi. A/S Nordlands forenede Uldvarcfabrikker Harstad, Norge TBL LEIGti 4 skrifstofuherbergi, einnig hentug fyrir lækna- stofur. — Tilboð merkt: „Aðalstræti — 6291““, sendist afgr. Mbl. fyrir 3. sept. Háseta, II. velstjóra og matsvein vaintar til reknetaveiða á m.s. Fróða- klett, strax. — Uppl. í síma 50165. LTSALA á pottablómum og ódýr afskorin blóm í dag og á morgun. BLÓM & ÁVEXTIR Símar 12717 og 23317. Maðurinn minn EYÞÓR EINARSSON Gerði, Sandgerði, lézt 27. þ. m. Jarðarförin ákveðin síðar. Fyrir hönd aðstandenda, Ólafía Ólafsdóttír.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.