Morgunblaðið - 30.08.1957, Side 16

Morgunblaðið - 30.08.1957, Side 16
2-24-8« 194. tbl. — Föstudagur 30- ágiíst 1957. 2-24-80 í setustofu frú Fisher. Leikendur taldir frá vinstri: Róbert, Herdís, Kristbjörg og Arndís. Frumsýning hjá Leikhúsi Heimdallar í kvöld Leikstjóri er Indriði Waage í KVÖLD kl. 8,30 frumsýnir Leikhús Heimdallar í Sjálfstæð- ishúsinu, gamanleikinn „Sápu- kúlur“ eftir George Kelly. Er þá að nýju tekinn upp sá háttur í skemmtanalífi Reykjavíkur, sem Heimdallur hóf fyrir tveimur ár- um. Eins og áður, er þessi gam- anleikur einþáttungur og tekur sýning hans tæpan klukkutíma. Síðan leikur hljómsveit Sjálf- stæðishússins fyrir dansi til kl. hins aumkunarverða Audry Piper. 11,30 og verða þá jafnframt seld- ar veitingar. Aðgöngumiðar að frumsýningunni verða seldir frá Á EVRÓPUMEISTARAMÓTINU í Bridge gerðust þau miklu tíð- indi í 15. umferð, að ítalir, sém unnið hafa hvert einasta spil fram til þessa töpuðu nú fyrir Austurríki með 39 gegn 53. ítalir eru þó enn efstir með 26 stig, næst koma Bretland og Austurríki hvort með 23 stig. í 15. umferð vann Finnland ísland með 73:41, Svíþjóð vann Libanon með 54:41. Jafntefli varð milli Danmerkur og Sviss 54:58. í 13. umferð urðu úrslit þessi: kl. 9 til 5 í Sjálfstæðishúsinu uppi, sími 17100. Höfundur gamanleiksins, George Kelly, er lítt þekktur hér á landi, en frægur í heima- landi sínu og fékk fyrir leikrit sitt „Graig’s Wife“ hin eftirsóttu Pulitzer-verðlaun. Kelly er raun sær í skáldskap sínum en hefir þó alltaf rúm fyrir gamansemi þar sem hún á við. Leikurinn hefur verið sýndur víða og jafn- an við hinar beztu undirtektir. Leikstjóri gamanleiksins „Sápu kúlur“, er Indriði Waage, en hann er að góðu kunnur fyrir leikstjórn sína á mörgum beztu leikritum, sem hér hafa sézt, og nægir að nefna Topaz og Sölu- maður deyr. Leikendur eru fjórir, af þeim eru þrír meðal fremstu leikara Þjóðleikhússins, þau Róbert Arnfinnsson, Herdís Þorvalds- dóttir og Arndís Björnsdóttir. Einnig leikur ung og glæsileg stúlka, Kristbjörg Kjeld, en hún er talin mjög vaxandi leikkona. Leiktjöld hefir Magnús Pálsson teiknað af sinni alkunnu smekk- vísi. Kirkjuhljómleikar i Stykkishólmi STYKKISHÓLMI, 29. ágúst. — Páll Kr. Pálsson organleikari í Hafnarfirði kom til Stykkishólms í dag og hélt orgeltónleika í kirkj unni kl. 9. Á hljómleikaskrá voru 7 verk eftir kunna erlenda höf- unda, m.a. Hándel, Bach og Schu- bert. Var hljómleikunum mjög vel tekið. Noregur vann írland 65:26, Finn- land Svíþjóð 65:58, Danmörk Pólland 61:50, Spánn ísland 61:51, Ítalía Sviss 81:29, Frakkland Belgía 69:46, Austurríki Þýzka- land 76:43 og England vann Holland 89:50. í 14. umferð urðu úrslit þessi: England vann Þýzkaland 36:31, Austurríki Belgía 66:59, Ítalía Frakkland 44:29, Sviss Spánn 53:46, Danmörk — ísland jafn- tefli 64:60, Pólland Finnland jafn tefli 59:57, írland Svíþjóð 62:24, Noregur Libanon 57:48. Bmn stórslasnst í biireiðoórekstri SJÚKRABÍL var ekið með ofsa- hraða út úr bænum um kl. 6,30. Slys hafði orðið á gatnamótum Sogavegs og Tunguvegar. Þegar sjúkraliðsmenn komu á vettvang var þar 3 ára drengur sem mikið hafði slazast. Hafði hann orðið fyrir bíl og við borð lá að annár fótur litla drengsins hefði kubb- ast sundur. — F'ótleggurinn sjálf ur var brotinn, opið brot. Litli drengurinn heitir Ólafur Sig- mundsson, Sogavegi 202. Var hann þegar fluttur í slysavarð- stofuna og þar var drengurinn enn í gærkvöldi, enda var áverk- inn á fæti hans mjög mikill. Rannsóknarlögreglan hafði ekki fengið boð um slys þetta frá götulögreglunni og var rannsókn slyssins því ekki hafin er þetta var skrifað. Ætla að færa kirkjum á Suður- nesjum gjafir FÉLAG Suðurnesjamanna hefir ákveðið að efna til íerðar fyrir félagsfólk suður í Innri-Njarðvík og Keflavík n.k. sunnudag til að hlýða messu í kirkjunum og af- henda þeim gjafir. Lagt verður af stað frá B.S.Í. kl. 1 e.h. á sunnu- dag. Þátttaka tilkynnist í síma 1-31-44 í kvöld kl. 6—8. Varð fyrir bíl og handleggsbrotnaði HAFNARFIRÐI. — í gærdag varð það slys á gatnamótum Reykjavíkurvegar og Tunguveg- ar, að 9 ára gamall drengur, Guðni Ragnar (sonur Eyjólfs Guðmundssonar kennara, Tungu vegi 2), varð fyrir bíl og hand- leggsbrotnaði og skrámaðist auk þess nokkuð í andliti. Þannig háttar til á umræddum stað, að verið er að vinna þar með stóran krana, sem notaður er til þess að tengja nýju vatns- veituna við hina gömlu, og voru nokkrir krakkar að leika sér þar. Tók Guðni sig allt í einu út úr hópnum og hljóp fram fyrir kran ann og út á götuna, en í sama mund bar þar að sendiferðabíl, sem var á leið inn úr. Skipti það engum togum, að drengurinn lenti á hurð bílsins með þeim af- leiðingum, er að ofan greinir. Mun bíllinn hafa verið á hægri ferð. — Var Guðni fluttur í Slysa varðstofuna í Rvík, þar sem gert var að sárum hans. — G.E. Austurríki vann Italíu Samf er ftalía enn hæsf á Bridge-móiinu Alvarlegur vatns- skortur í Reykjavík Bilunin ófundin seint í gærkvóldi STÓRHLUTI af Reykjavík varð vatnslaus laust eftir klukkan 1 í gærdag. Kom brátt í ljós að hér var um að ræða alvarlega bilun, því meðal stofnanna, sem ekkert kalt vatn höfðu í gær var Heilsu- verndarstöðin, sjúkrarúmadeild stöðvarinnar, þar sem eru 65 sjúklingar og Mjólkursamsalan. — í allan gærdag unnu starfs- menn Vatnsveitunnar að því að finna þessa bilun. Seint í gær- kvöldi höfðu ekki borizt fréttir að því að hún væri fundin. Klukkan rúmlega 1 byrjuðu símar Vatnsveitunnar að hringja og fólk í gamla hluta bæjarins spurði: Hvað er að vatninu? Þegar starfsmenn Vatnsveit- unnar komu í vatnsgeymana á Rauðarárholti kom í ljós, að þar var ekkert vatn. Hófst leitin þá þegar. Síðdegis höfðu starfsmenn irnir fullvissað sig um að ekkert var að aðalæðinni frá Gvendar- brunni að geymunum. Það kom brátt í ljós að svæði það sem vatnslaust var norðan hinna þriggja hæða: Rauðárholts, Skóla vörðuholts og Langholtshæðar- innar. Á þessu svæði eru margar stofnanir og fyrirtæki sem þurfa mikið vatn, og lagðist vinna þar niður meira og minna. Hvergi var þetta þó eins bagalegt og í sjúkra- deild Heilsuverndarstöðvarinnar. Sundhöllin varð að loka, svo þar var aðeins hægt að veita nokkr- um gestum mótttöku sem fóru i sólbað. f Mjólkursamsölunni kom vatnsskorturinn sér afarilla. Vinna lagðist öll niður er vatns laust var, ekkert var hægt að vinna við gerilsneyðingu eða flöskuþvott, en seint í gærkvöldi var þar vatn og var ekki búizt við að hörgull yrði á mjólk í dag. En starfsfólkið var boðað fyrr til vinnu en venjulega í morgun. í gær í -vatnsleysinu var tappað á flöskur þeirri mjólk er þá var gerilsneydd. I ýmsum iðnaði svo sem smjör- líkisgerð var og stöðvun af völd- um vatnsleysisins. Prentmynda- gerð tafðist mjög mikið og tókst fyrir það eitt að meðan verið var að leita að biluninni, var vatni hleypt á Laugaveginn um stund og því gátu Prentmyndir h.f. skil- að nokkrum myndum í Morgun- blaðið í dag. I gærkvöldi voru starfsmenn vatnsveitunnar að þreifa sig áfram í leitinni að biluninni hér í bæjarkerfinu og voru starfs- menn Vatnsveitunnar að smá- þrengja hringinn. Ekki verður hætt fyrr en tekizt hefur að finna bilunina, en það getur orðið æði seinlegt verk, meðan vatnslekinn í æðinni kemur hvergi fram á yfirborði jarðar. Búizt við að björgun af Pólarbirni lyki í gær ÞAÐ var búizt við því að þyril-'5 vængja bandaríska flughersins myndi Ijúka í gærkvöldi björgun allra skipverja af norska heim- skautsfarinu Pólarbjörn. Aðstæð- ur til björgunar voru allar hinar beztu, kyrrviðri og gott skyggni. Ljósari fregnir hafa nú fengizt af því að í fyrrakvöld flutti þyril vængján þegar fimm af áhöfn skipsins til danska varðbátsins Teisten, sem var um 70 sjómílur frá Pólarbirninum. Um nóttina hélt þyrilvængjan kyrru fyrir á ísnum rétt við Teist en, þar sem ekki þótti rétt að hætta á að fljúga í náttmyrkrinu. En strax í morgun lagði þyril- vængjan upp í aðra ferð sína til Pólarbjarnarins og síðan hverja af annarri. Síðustu fréttir bárust seinni hluta dags, þegar þyril- vængjan lagði af stað í næst-síð ustu ferð sína. Þá sendi John Gjævær skipstjóri á Pólarbirni svofellt skeyti til Noregs: — Björgun áhafnarinnar held- ur áfram. Veðurskilyrði eru ágæt og verður öllum bjargað í dag, ef allt gengur vel. Nú flýgur loft- skeytamaðurinn okkar. So long. Mjölnismönnum boðin sörnu kjör FULLTRÚAR vörubílstjórafélags ins Mjölnis í Árnessýslu, félags- ins sem meira hefur verið í frétt- um dagblaðanna en nokkurt annað efni undanfarið, hafa set- ið á samningafundum við full- trúa Vinnuveitendasambandsins vegna verktaka við Efra-Sog, um kaup og kjarasamninga vörubíl- stjóra sem hjá verktökunum starfa. Vinuveitendasambandið hefur boðið Mjölnismönnum sömu kjör og öðrum þeim bílstjórum hér í Reykjavík og nærsveitum, sem samniga hafa við Vinnveitenda- sambandið. Síðdegis í gær hófst enn samn- ingafundur. Stóð hann yfir er þetta er skrifað. Austur við Efra- Sog eru Mjölnismenn í verkfalli og á veginum upp að bækistöð verktakanna er verkfallsvörður Mjölnismanna sem lokar fyrir alla bílaumferð þangað. Matsveinar á flot- anum kref jast 10% hækkimar ENN er komið að skipafélögun- um í landinu að setjast að samn- ingaborðinu vegna nýrra kaup og kjarasamninga. Að þessu sinni eru það matsveinar á skipunum. Gildandi samningar renna út hinn 1. desemþer næstkomandi, en þeim verður að segja upp með 3 mánaða fyrirvara, sem sé um þessi mánaðamót. Samingaviðræður hafa þegar farið fram. Krefjast matreiðslu- menn beinnar kauphækkunar er nemur 10%, auk annarra krafna um aukin hlunninai og bætt kjör. 'Samningaviðræður þær er fram hafa farið hafa ekki enn sem komið er borið neinn árangui. SkákmótiÖ í Natnarfirði í ÁTTUNDU UMFERÐ skák- mótsins í Hafnarfirði, sem tefld var í gærkvöldi, vann Friðrik Ólafsson Jón Kristjánsson, en öðrum skákum varð ekki lokið. 9. umferð og sú síðasta verður á sunnudagskvöld.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.