Morgunblaðið - 14.09.1957, Blaðsíða 1
Bæjarstjórn Reykjavíkur mótmælir harðlega árás
Hannibals á sjálfsforræði bæjarfélagsins
Ný útsvarsskrá gefin út og nýr
kœrufrestur auglýstur
Liklegt að verklegar framkvæmdir
bæjarins tefjist vegna pólitiskrar
ofsóknar vinstri flokkanna á Reykjavik
IGÆR boðaði borgarstjóri til
aukafundar í bæjarstjórn
Reykjavíkur. Tilefnið var bréf
félagsmálaráðuneytisins til borg-
arstjóra þar sem ráðuneytið úr-
skurðar niðurjöfnun útsvara I
Reykjavík ólögmæta.
Gmræður urðu um málið á
fundi bæjarstjónarinnar og mót-
mælti Gunnar Thoroddsen borg-
arstjóri og fulltrúar Sjálfstæðis-
manna harðlega gjörræði Hanni-
bals Yaldimarssonar félagsmála-
ráðherra og hinni pólitísku of-
sókn hans á hendur stjórn
Reykjavíkurbæjar, sem í úrskurð
inum felst.
Eftirfarandi tillaga borgar-
stjóra var samþykkt á fundi bæj-
arstjórnarinnar en við atkvæða-
greiðsluna riðlaðist vinstri fylk-
ingin í bæjarstjórn. Var einn
liðurinn samþykktur samhljóða
með 10 atkvæðum, en nokkur
atkvæði á móti um hina.
Út af bréfi félagsmálaráðherra 11. sept. sl. ályktar bæjarstjórn
Reykjavíkur eftirfarandi:
1. Bæjarstjórnin mótmælir harðlega úrskurði félagsmálaráð-
herra og þeirri freklegu árás á sjálfsforræði bæjarfélagsins,
sem felst í aðgerðum hans.
2. Bæjarstjórnin bendir á, að niðurjöfnunarnefnd hafði óvéfengj-
anlega heimild til þess að jafna niður 199,4 millj. kr. í útsvör,
en þegar nefndin gekk endanlega frá niðurjöfnun var upp-
hæðin 198,1 millj., eða 1,3 millj. lægri en ráðuneytið sjálft
telur heimilt, og fær því sú ógildingarástæða ekki staðizt, að
útsvarsupphæðin sé hærri en löglegt er.
3. Bæjarstjórnin bendir á, að jafnað er niður „eftir efnum og
ástæðum“, þótt notaður sé útsvarsstigi, sem er stighækkandi
eftir tekjum og eignum og tekur ríflegt tillit til fjölskyldu-
ástæðna.
4. Bæjarstjórnin telur það fjarri lagi og spor aftur á bak, ef
banna á bæjar- og sveitarfélögum að nota nýtízku skýrslu-
vélar við niðurjöfnun útsvara.
5. Bæjarstjórnin telur, að hvort sem farin yrði sú leið að gera
nýja útsvarsskrá eða leita úrskurðar dómstóla um málið, myndu
af hljótast verulegar tafir á innheimtu útsvara, en það þýðir tafir
á verklegum framkvæmdum bæjarins, svo sem byggingu íbúða
til útrýmingar herskálum og öðru heilsuspillandi húsnæði,
byggingu skóla, bæjarsjúkrahúss, sorpeyðingarstöðvar, undir-
búningi lóða og lagningu hitaveitu í ný hverfi, og lýsir ábyrgð
á hendur félagsmálaráðherra af þeim sökum.
6. Þar sem dómstólaleiðin myndi taka marga mánuði og valda
óbætanlegum truflunum á útsvarsinnheimtu, telur bæjarstjórn-
in rétt að velja þá leið, sem veldur minni töfum fyrir verk-
legar framkvæmdir og minni baga fyrir borgarana, og er því
samþykk þeirri ályktun, sem niðurjöfnunarnefnd hefur gert í
dag og er svohljóðandi:
„Niðurjöfnunarnefnd hefur notað sömu starfsaðferðir við
álagningu útsvara í ár og undanfarin ár, án þess að félagsmála-
ráðuneytið eða aðrir hafi véfengt lögmæti þeirra starfsaðferða.
Þó að nefndin telji eftir atvikum ekki ástæðu til að hverfa
frá fyrri vinnubrögðum, telur hún rétt, þar sem viss forms-
atriði hafa verið véfengd, að gera skrá yfir útsvör gjaldenda í
bænum, samkv. IV. kafla útsvarslaga, og auglýsa kærufrest að
nýju“.
7. Bæjarstjórnin bendir á að í ár er notaður sami útsvarsstigi
og síðastliðið ár, að öðru leyti en því, að fjölskyldufrádrátt-
ur er verulega aukinn, og er útsvarsstiginn því raunverulega
lægri nú en í fyrra, einkum á barnafjölskyldum.
8. Bæjarstjórnin beinir þeim eindregnu tilmælum til Reykvík-
inga að greiða útsvör sem fyrst, til þess að nauðsynlegar
framkvæmdir bæjarfélagsins tefjist minna en til er stofnað
með bréfi ráðherrans.
Fyrr í gærdag hafði niður-
jöfnunarnefnd komið saman á
fund og rætt um mál þetta. Var
á fundi hennar samþykkt með
3:1 atkv. tillaga sem getið var
í tillögu borgarstjóra hér að fram
an um að gera nýja skrá yfir út-
svör gjaldenda í bænum.
Gunnar Thoroddsen borgar-
stjóri flutti ítarlega og rökstudda
ræðu á fundi bæjarstjórnar um
málið. Verða hér á eftir rakin
höfuðatriði hennar:
í bréfi félagsmálaráðherra,
sagði borgarstjóri, eru taldar
tvær ástæður til véfengingar á
álagningu útsvara í Reykjavík
í ár. Það atriði er þó óvíst hvort
ráðuneytið hafi lagaiegan rétt
til þess að ónýta útsvarsákvörð-
un niðurjöfnunarnefndar, svo
sem hér hefir verið gert. Um það
er enginn stafur í lögum. Varð-
andi upphæð niðurjöfnunarinnar
þá er það óvéfengt með öllu, að
niðu'rjöfnunarnefndin hafði ótví-
ræða heimild til þess að jafna
niður 199.4 millj. kr. upphæð, svc,
æm hún var tilgreind í fjárhags
Framh. á bls. 2
Borgarstjórinn: — Ég mótmæli.
Nkar Bulganin fyrir Mikoyan
LONDON, 13. sept.: — „Daily
Telegraph" staðhæfir, að Bulg-
anin muni láta af forsætisráð-
herraembætti Ráðstjórnarríkj-
anna fyrir lok þessa mánaðar, en
Mikoyan taka við. Telur blaðið,
að Bulganin verði skipaður í
embætti forseta. Það er rússlands
málasérfræðingur blaðsins, Dav-
id Floyd ,sem kveðst hafa þessar
fregnir eftir áreiðanlegum heim-
ildum í Varsjá. Bulganin er nú
á Krím sér til hvíldar að því að
sagt er, og gegnir Mikoyan þá
embætti hans á meðan. Segir
Floyd, að á næsta miðstjórnar-
fundi verði g«rðar meiriháttar
breytingar á stjórninni og flokks
forsætinu. Telur hann m.a. víst,
að Voroshilov, sem tekinn er að
eldast mjög, muni þá láta af for-
setaembættinu.
Faubus fer vonglaður til
fundar við Eisenhower
LITTLE ROCK 13. september. —
Faugus fylkisstjóri í Arkansas
hélt í dag áleiðis til Newport á
Rhode Island til þess að hitta
Eisenhower forseta og ræða við
hann atburði síðustu daga. Faub-
us hefur nú verið stefnt fyrir
rétt vegna þess að hann skipaði
þjóðvarnarliðinu að hindra
göngu svartra barna í skóla
hvítra. Bað Faubus Eisenhower
áheyrnar og vill hann skýra af-
stöðu sína fyrir forsetanum.
Er Faubus steig upp í flugvél-
ina í Little Rock í dag lét hann
svo um mælt, að hann væri von-
góður með erindisrekstur sinn.
Ekki vildi hann láta uppi hvernig
mann mundi flytja mál sitt, en
Indverski fulltrúinn
situr hjá
NEWYORK 13. sept. — í dag
var enn rætt um Ungverjalands-
skýrsluna á Allsherjaarþingi SÞ
og tillögu þá um vítur á Rússa,
sem 36 ríki standa að. Það bar
helzt til tíðinda á fundinum í
dag, að indverski fulltrúinn lýsti
því yfir, að hann mundi sitja hjá
við atkvæðagreiðslu um tillög-
una. Afgreisðla slíkrar tillögu
væri ekki í þágu hagsmuna ung-
versku þjóðarinnar. Fór fulltrú-
inn þess á leit við'Hammarskjöld,
að hann færi til Budapest og
fengi upplýsingar hjá ungversku
stjórnarvöldunum um ástandið í
landinu.
Júgóslavneski fulltrúinn kvaðst
ekki geta stutt tillöguna og kvað
Comet
flýgur á ný
LONDON, 13. sept. — BOAC
mun taka Comet aftur í notk-
un á næstunni og mun
flugvélin fljúga daglega a
flugleiðinni London—Beirut.
Meira en þrjú ár eru nú liðin
frá því að Comet I var tekin
úr notkun vegna hinna tíðu
>lysa, en síðar kom í Ijós, að
■ivokölluð málmþreyta olli
jim.
Ungverjalandsskýrsluna ekki
skýra rétt frá atburðarásinni.
Tillagan um vítur á Rússa og full
tingi við skýrsluna væri ekki í
þeim anda, að hún mundi líkleg
til þess að leysa vandann. Þá tók
til máls fulltrúi Norðmanna og
lýsti eindregnum stuðningi við
tillöguna um vítur á Rússa.
Fulltrúi Uruguay, sem var
meðlimur Ungverjalandsnefndar-
innar, tók til máls. Vakti hann
athygli á því, að fulltrúi Kadar-
stjórnarinnar á þinginu hefði
lýst yfir fullu samþykki sínu við
aðfarir Rússa í Ungverjalandi.
Samt hefði þessi sami maður ver-
ið formaður byltingarráðsins í
utanríkisráðuneytinu á meðan á
uppreisninni stóð. Þá hefði hann
fordæmt árás Rússa og hryllt við
blóðbaðinu. Beindi hann þeirri
spurningu til fulltrúans hvort
hann væri maður með tvær skoð
anir á hlutunum.
hins vegar sagði hann að ekki
væri ólíklegt að hann mundi
eiga fleiri en einn fund með for-
setanum. Margir binda vonir við
það, að viðræður þeirra Eisen-
howers geti orðið til þess að leysa
vandamálin að einhverju leyti —
ekki einungis deilurnar í Little
Rock, heldur öll slík vandræði í
Suðurrríkjunum. — Lögregl-
unni í Maryland var gert
viðvart er svertingi einn
fann ósprungna sprengju í húsa-
garði sínum. Tvö börn svertingj-
ans voru innrituð í skóla, sem
einungis hvít börn hefðu setið í
áður. Var sprengjan þegar fjar-
lægð. Við rannsókn kom í ijós,
að sprengjan var mjög öflugt og
hefði valdið miklum spjöllum,
ekki einungis á húsi negrans, held
ur og í öllu hverfinu. Kveikjuút-
búnaðurinn var ekki í lagi.
Liðssafnoður?
MOSKVA, 13. sept. — Bulganin,
forsætisráðherra Ráðstjórnar-
innar hefur sent Menderes, for-
sætisráðherra Tyrklands, orð-
sendingu vegna fregna um liðs-
safnað Tyrkja við sýrlenzku
landamærin. Kvaðst Bulganin
vera uggandi vegna fregna þess-
ara. Segir í orðsendingunni, að
Ráðstjórnin geti ekki liðið slík-
an liðssamdrátt vegna þess að
hann stofni friðinum í hættu. —
Ógnun við friðinn í þessum hluta
heims sé ógnun við heimsfrið-
inn. —
SAN FRANCISCO 13. sept.: — 1
dag var lokið við lögn lengsta
sæsímastrengs, sem lagður hefur
verið. Var það hið fræga síma-
skip Monarch, sem lagði tvöfald-
an streng á milli Hawai og San
Francisco, 2200 mílur að lengd.
ARAS HANIMIBALS
Á FUNDI bæjarstjórnarinnar í gær komst Gunnar Thor-
oddsen borgarstjóri m.a. svo aS orði:
ýf ÉG véfengi lagalegan rétt ráðherra til ógildingar
útsvaranna í Reykjavík.
■ýr ÉG mótmæli þeirri aðferð, sem hér er höfð í
frammi, þessari ósvífnu árás á sjálfsforræði bæj-
arfélagsins.
ýf ÉG ákæri ráðherrann fyrir tilraun til þess að tefla
f járhag Reykjavíkurbæjar í tvísýnu og tef ja nauð-
synlegar framkvæmdir hans.
ýf ÉG lýsi ábyrgð á hendur ráðherra á öllu því tjóni
sem af þessum gerðum hans kann að hljótast.