Morgunblaðið - 14.09.1957, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 14.09.1957, Blaðsíða 10
10 MORGVISBL AÐIÐ Laugardagur 14. sept- 1957 Aðalsteino Baldvinsson 60 óra flugsýningunnl í Farnborough AÐALSTEINN BALDVINSSON, bóndi, Brautarholti í Haukadal, varð sextugur nýlega. f því til- efini hefur fréttamaður Mbl. hitt hann að máli. — I>ú ert orðinn sextugur. — Hvað hefurðu um það að segja? Finnurðu nokkuð til aldurs? — Nei, nei, nei! Mér finnst ég vera ungur ennogég vildi gjarna fá að halda þrótti mínum enn um skeið, því ég á margt ógert. í>að er orðin mér allt að því ástríða að byggja og rækta — og hlynna að alhliða framförum. — Þetta er landnámsjörð þín og þinna? — Hérna byggðu tengdaforeldr ar mínir 1908, á eyðiholti, og við hjónin fluttumst hingað árið 1925. — Þá hefur ekki verið blóm- legt hér. Þú fékkst tæpt kýrfóð- ur af túnblettinum. Og núna? — Nú eru komnir í rækt um 16 hektarar og af þeim ættu að fást 16 kýrfóður. — Þið búið hér þrír feðgar? —• Já, Gunnar sonur minn hef- ur reist hér nýbýli og við Brynjólf ur búum enn í sameiningu. (f Brautarholti eru mikil húsa- kynni og góð, svo að nálega sýn- ist þorp frá veginum. Aðalhúsið er stórt íbúðar- og verzlunarhús með 15 herbergjum, nú komið nokkuð til ára sinna, en nýlega endurbætt. Þá er nýtt íbúðarhús úr steinsteypu, nýbýlið, stein- steypt hlaða og fjárhús yfir 200 fjár og í smíðum hlaða og fjós handa 10 kúm, auk annarra bygg- inga. Þarna er auk þess slátur- hús og verkamannabústaður. All- ar eru byggingarnar raflýstar með dieselrafstöð. Snotur trjá- garður er fyrir framan aðalhús- ið, og mikið ber á ræktunarfram- kvæmdum allt um kring). — Þú ert auðsjáanlega að auka við túnið? — Já, það er búið að þurrka upp þó nokkuð mikið af landi, sem bíður eftir frekari fram- kvæmdum. — Þú hefur talsverða verzlun hérna? — Ójá, það er reitingur. Hér er benzínafgreiðsla fyrir tvo ©líufélög og ýmsir skreppa í búð- ina um leið og þeir fá sér benzín. Auk þess verzla innanhéraðs- menn talsvert hér. — Er ræktunarsamband ykkar ©flugt? — Ég er ekki svo kunnugur öðr um ræktunarsamböndum að ég geti gert öruggan samanburð, en ég hygg að það hafi sízt gengið ver hjá okkur em annars staðar. Ég veit það eitt, að þeir sem hafa notfært sér vinnu sambands ins hafa þegar uppskorið ríku- legan ávöxt. Starf þessara félaga flytur ógrynni af blessunarrik- um verðmætum inn í sveitafélög- in. — Hvað segirðu um skógrækt? Heldurðu ekki að ræktunin gæfi meiri arð ef gróðursett væru skógarbelti kringum sáðreitina? — Alveg vafalaust. Og ofur- lítil byrjun hefur þegar verið gerð, með því að gróðursetja í reiti hér og þar. — Hafið þið notað Skerpiplóg- inn hérna vestra. — Já, um tveggja ára skeið nokkuð, og reynist prýðilega. Hann á áreiðanlega framtíð fyrir sér hér. Einn stór kostur hans er, að hann er mjög mikilvirkur og það kemur í góðar þarfir, því hér þarf mikið að vinna. Landið verður að rækta, ef þjóðin á að geta náð þeim þroska og þeirri menningu, sem okkur alla dreym- ir um. Ég lít í anda til þeirrar tíðar, þegar einungis er heyjað og beitt á ræktað og véltækt land, skjólbelti hlífa gróðrinum, skógur heftir uppblásturinn, gróðurreitir skýla vel hýstum og raflýstum heimilum um landið allt. Og garðávexti þarf ekki að sækja til framandi landa. — Þú hefur bókaverzlun hérna, fylgistu vel með í bókmenntum landsins? — Ja, nóg les ég, en sumt af því gamla man ég betur en hið nýja. — Þú varst mikill vinur Stefáns frá Hvítadal? — Já, okkur var vel til vina og mér þykir mjög vænt um ljóð- in hans. — Sátuð þið stundum um næt- ur og rædduð um skáldskap? — Það kom alloft fyrir, raun- ar var ég nú fremur þiggjandi en veitandi í þeim viðskiptum. Hann var skemmtilegur maður, — mjög skemmtilegur. — Og þið voruð ungir. Myndi þig langa til að sitja og rabba við hann eina næturstund núna? — Það held ég. — Ertu hamingjusamur mað- ur? — Já, ég er mikill hamingju- maður, og tel ég það vera fyrst og fremst minni ágætu konu að þakka. Ég hef sjálfsagt ekki ver- ið á öllum sviðum neinn fyrir- myndareiginmaður, en allt hef- ur það verið umborið með ástúð og góðleika. Ég tel það hina mestu gæfu hverjum manni að eiga slík- an lífsförunaut. — Þýzkaland Framh. af bls. 9 landvarnarmálanna. Og það er hvaða áhrif stofnun þýzks hers hefur á konurnar. í síðustu kosn ingum voru atkvæði kvenna meg instyrkur Adenauers. Um 60% allra kvenna greiddu flokki hans atkvæði. Hvaða áhrif hefur það nú á afstöðu þeirra að Adenauer beitti sér fyrir stofnun vestur- þýzks hers? ★ Að lokum er svo vert að minn- ast á eitt atriði í þessari kosn- ingabaráttu. Meðan vestur-þýzk- ar útvcurpsstöðvar hafa gætt fyllsta hlutleysi, varpa austur- þýzkar stöðvar út á sömu bylgju- lengdum. Og þar er ekki verið að gæta hlutleysis. Allan liðlang- an sólarhringinn er þar þrumað yfir þýzku þjóðina áróðri komm- únista. Jafnvel þegar létt lög eru spiluð að næturlagi, koma inn á milli þeirra pólitískir þættir. Allur áróður kommúnista er ein samfelld árás á Adenauer. Hann er kallaður þar öllum hin- um svívirðilegustu nöfnum, svo sem atóm-glæpamaður og morð- ingi. Kommúnistar hafa fyrirskip að fylgismönnum sinum í Vestur-Þýzkalandi að greiða Jafnaðarmönnum atkvæði. Máske fá Jafnaðarmenn þar nokkur atkvæði, en hagnaður þeirra af þessum vafasama stuðningi vegur þó aldrei nema brot upp á móti tapi þeirra af þessum áróðri komm únista. Með þessum árásum og með afskiptasemi Krúsjeffs af innanlandsmálum Þýzkalands hefur aðstaða Adenauers í kosningunum styrkzt stórkost- lega og getur verið að einmitt það verði til að fleyta flokki hans í annað sinni upp í hrein- an meirihluta í sambandsþing inu í Bonn. — Þ. Th. Spjallað við Jóhannes Markússon yfir- flugsfjóra um nýjustu gerðir flugvéla, sem þar voru sýndar DAGANA 3.-5. sept. s.l.^ var haldin hin mikla árlega flugsýning í Farnhorough, skammt frá London. Flugsýn ing þessi er ein hin mesta, sem haldin er í heimi og þyk ir jafnan mikill viðburður og sækja hana flugmenn og þeir sem að flugi standa hvaðan- æva að úr heiminum. Bretar sýna þar alltaf nýjustu gerðir flugvéla sinna og flugvéla framleiðslu af fullkomnustu tegund. Fimm frá Loftleiðum Á flugsýninguna í Farnborough fóru að þessu sinn fimm af starfsliði Loftleiða. Voru það þeir Jóhannes Markússon yfirflug- stjóri, Magnús Guðmundsson, flugstjóri, Ólafur Jónsson, yfir- loftskeytamaður, Baldur Bjarna- sen, yfirflugmaður og Gerhard Olsen vélamaður. Fóru þeir fé- lagar út til Englands á vegum flugfélags síns til þess að kynna sér nýjungar á sýningunni. Mbl. átti nýlega tal við einn þeirra, Jóhannes Markússon yfir- flugstjóra og spurði hann frétta af því sem honum hefði helzt þótt markverðast á sýningunni og einna mest gildi gæti haft fyrir íslenzka flugið. Miklar flugsýningar — Flugsýningunni í Farnbor- ough má skipta í þrjá hluta, sagði Jóhannes. í fyrsta lagi er þar jafnan mikil sýning flugvéla á jörðu. Þá fer fram flugsýning á hverjum degi og hefst hún upp úr hádeginu. Loks er svo yfir- gripsmikil sýning á margs konar tækjum er að flugi lúta, flugsigl- inga- og öryggistækjum o. s. frv Okkur Loftleiðamönnum þótti mikið til flugsýninganna koma. Þar fljúga reyndustu reynslu- flugmenn Breta nýjustu gerðum af þotum og sýna alls kyns listir í loftinu. Þarna voru m. a. sýnd- ar nýjustu orrustuflugvélarnar knúnar þrýstilofts- og eldflauga- hreyflum, og einnig nýjustu far- þegaflugvélar Bréta, „Brittania'' og „Comet“, en verið er að hefja notkun á „Brittania“-vélinni. — Ekki fékkst þó leyfi til þess að fara á þotunum svo hart sem þær komust, rjúfa hljóðmúrinn (ca 1200 km) vegna mótmæla frá íbúum í nálægum byggðum en þá er hávaðinn gífurlegur og rúð- ur brotna í gluggum. En það er óhætt að segja að listhópflugið, sem maður getur séð á flugsýningunni í Farnbor- ough á fáa sína líka og yfirleitt voru flugsýningarnar allar stór- fenglegar. Vél við hæfi fslendinga Mjög margar nýjar gerðir flugvéla voru sýndar á svæðinu. Yrði allt of langt mál að telja þær allar upp, bæði þotur og þrýstihreyfilsvélar, en þarna eru sýndar jöfnum höndum hernað- arflugvélar og farþegaflugvélar. Einna mesta athygli okkar ts- lendinganna vakti lítil farþega- flugvél, sem horfur eru á að geti leyst DS-3 vélarnar af hólrm, Dakotaflugvélarnar svonefndu. sem lengi hafa verið notaðar hér í innanlandsflugi. Það er véhn „Accentant“, sem íélagið Avia- tion Traders hefir nýlega hafið framleiðslu á. Þetta er jafnstór vél og Dakotavélarnar, tekur 28 farþega, og er knúin tveimur Rolls Royce-hreyflum með þrýsti skrúfu (turboprop). Margir hafa reynt að gera nýjar vélar sem leyst gætu hinar gömlu en traustu DC-3 flugvélar af hólmi en engum enn tekizt til fullnustu. Vera má að hér sé loks fund- in lausnin. Góð öryggistæki De Havilland flugvélaverk- ciðjurnar sýndu að þessu sinni Comet-4 farþegavélina, en kunn- asti reynsluflugmaður Breta, Cunningham, hefir flogið þeirri Jóhannes Markússon vél 2000 flugtíma í reynsluflugi. Verksmiðjurnar leggja mikla áherzlu á að sannreyna gæði Cometvélanna eftir hin hörmu- legu óhöpp sem fyrir hinar fyrstu þeirra komu. Enn ný gerð er væntanleg innan skamms frá verksmiðjunum, Comet-4. — Ennþá er þó engin Cometvél í notkun hjá farþegaflugfélagi, að- eins hjá flutningadeild hersins, en gífurlegum fjármunum hefir verið eytt í að byggja og full- reyna vélar þessar. Þá mátti og sjá þarna allmarg- •»r gerðir þyrilvængja, sem sum ar voru knúnar þrýstiloftshreyfl- um og sýndu þær mikla flug- hæfni og virðist þrýstiloftshreyf-, illinn koma að góðum notum 1 þyrilvængjum. Þá vöktu og athygli okkar ís- lendinganna á sýningunni nýjar gerðir siglinga- og öryggistækja, Decca og Marconi, og má segja að miklar framfarir séu í gerð öryggistækja ár frá ári, og allt hnígi þannig að því að gera flug- ið öruggara. Loks má geta þess að Bretar sýndu þarna margt sjálfstýrðra eldflauga til hefnaðarnota og mátti það heita nýjung á sýn- ingunni og vakti sú deild mikla athygli, sagði Jóhannes Markús- son að lokum. Hallbjðrg í Stokkhólmi STOKKHÓLMI, 11. september. — Hallbjörg Bjarnadóttir hélt skemmtun í litla sal Hljómleika- hallarinnar í Stokkhólmi í gær- kveldi. Nefndi hún skemmtunina „One woman show“ og var margt frægra nafna á söngskránni allt frá Benjamino Gigli til Snoddas- ar. Aðsókn var góð, en undirtektir misjafiiar. Blaðadómar eru ærið sundurleitir en yfirleitt viður- kennandi. Listagagnrýnandi Morg ontidningen taldi, að aldrei heíði verið hlegið meira í litla sal Hljómleikahallarinnar en öðrum gagnrýnendum þótti fyndnin of gróf víða. Stælingar þóttu aftur á móti takast vel. Skemmtunin verður endurtekin annað kvöld. — Jón. Leilaði fiik PATREKSFIRDI 12. sept. Norskt skip, „Ice Princesse“, lestaði hér nýlega 10 þúsund kassa af hrað- frystum fiski til Rússland. Hefur gengið mjög greiðlega að losna við fiskinn úr hraðfrystihúsunum upp á síðkastið. Þessi orrustuþota nefnist „English Electric P. 1. B.“ Þetta er nýj- asta gerð brezkra þota, eins manns vél, með Kolls Royce hreyfl- um auk eldflaugarhreyfils, sem taka má í notkun hvenær sem er á fluginu. Þessi orrustuþota er einna hraðfleygust þot- anna í dag. Þetta er vélin „Accountant", sem liklegt er að leysi Dakotavél- arnar af hólmi og væri hentug fyrir innanlandsflug hér. Hún tekur 28 farþega.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.