Morgunblaðið - 14.09.1957, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 14.09.1957, Blaðsíða 9
Laugardagur 14. sept- 1957 MORCUIVBT AÐIÐ 9 Úrslita þýzku kosninganna beðið með eftirvœntingu Heldur Adenauer þingmeirihluta sínum? Skammstafanirnar reyna að veiða kjósendur. En stjórnmála- fiokkarnir þýzku eru allir kallaðir skammstöfunarheiti sínu. A MORGUN, sunnudaginn 15. sept. fara fram í Vestur-Þýzka- landi þingkosningar og má segja að allur heimurinn bíði úrslit- anna með eftirvæntingu. í stórum dráttum hefur þessum kosningum verið lýst svo, að þar kjósi Þjóðverjar milli Austurs og Vesturs. Sigri Adenauer sé borgið samstarfi Þjóðverja við vestræn lýðræðisríki. Tapi hann hins vegar og Jafnaðarmenn vinni sigur, muni það kosta að Þjóðverjar segi sig úr landvarn- arsamstarfi Vestur-Evrópu og stofni hlutlaust ríki. En úrsögn Þjóðverja úr Atlantshafsbandar laginu gæti riðið því að fullu, svo allar varnir vestrænna ríkja gætu orðið einskisnýtar. Þess vegna segja margir að kosning- arnar á morgun séu mikil örlaga- stund, ekki aðeins fyrir Þjóð- verja, heldur fyrir vestræna menningu og friðinn í heimin- um í heild. Það skal strax tekið fram, að í slíkri lýsingu þýzkra stjórnmála í stórum drátt- um er máske nokkuð of- mælt. Það mun ekki vera ætlun þýzkra Jafnaðarmanna, þótt þeir komizt til valda, að rjúfa vestrænt samstarf. Þeir kveðast aðeins hafa í hyggju, að reyna að koma á samein- ingu alls Þýzkalands með því að taka upp teygjanlegri stefnu. Vel geti verið að Rúss- ar yrðu fáanlegri til sam- komulags um sameiningu Þýzkalands, ef Vesturveldin vildu fyrst ræða við þá um afvopnun í Evrópu og mynd- un hlutlauss svæðis. En er ekki einmitt nokkur hætta fólgin í slíkri tilslökun við Rússa. Það er þessi hætta, sem fylgismenn Adenauers benda á og segja, að hér geti sama sagan gerzt eins og víða annars staðar, að Jafnaðar- menn smám saman selji frelsi þjóðarinnar í hendur komm- únistum með einlægum tilslök unum og andvaraleysi. ★ Fjórtán stjórnmálaflokkar bjóða fram við kosningarnar á morgun. Það eru þó varla fleiri en sjö þeirra sem geta vænzt þess að fá þingmenn kjörna, vegna þess, að það skilyrði er sett fyrir veitingu uppbótarþing- sæta, að flokkurinn hafi fengiS 5% atkvæða. Þeir flokkar, sem geta vænzt þess að fá nægilegt fylgi eru taldir hér á eftir, en venjá er í Þýzkalandi, að kalla þá skamm- stöfunarheiti sínu: 1. CDU, sem er Kristilegi flokk ur Konrad Adenauers 2. CSU, — Kristilegi flokkur- inn, sem starfar í Bayern, en er í rauninni aðeins hluti af flokki Adenauers. Forustumaður hans í Bayern er Fritz Schaffer, sem hefur verið fjármálaráðherra í stjórn Adenauers. 3. SPD, — Jafnaðarmanna- flokkurinn, undir forustu Erich Ollenhauers. 4. FDP, — Frjálslyndi flokkur- inn, sem fyrr á árum hafði stjórn arsamstarf við Adenauer en gekk í stjórnarandstöðu eftir að flokk- ur Adenauers náði meirihluta. — Foringi hans er Reinhold Meier. 5. DP, — Þýzki flokkurinn, sem er íhaldssamur flokkur og á stjórnarsamstarf við Adenauer. Hann á aðallega fylgi að fagna í sveitunum. Nokkrir þingmenn frjálslynda flokksins gengu i hann, þegar sá flokkur rauf stjórnarsamstarf við Adenauer. Foringi þýzka flokksins er Hein- rich Hellwege, sem hefur verið forsætisráðherra í héraðinu Neðra-Saxlandi. 6. GB, — Alþýzki flokkurinn, sem við síðustu kosningar nefndi sig Flóttamannaflokkinn og náði þá óvænt svo miklu fylgi, að hann kom mönnum á þing. Vafa- samt þykir nú, að hann hafi nokkru hlutverki að gegna. — Hluti flóttamannaflokksins sam- einaðist Kristilega flokknum, og eru nú taldar fremur litlar lík- ur á að hann nái tilskildum 5% af heildaratkvæðamagni. Al- þýzki flokkurinn styður ákaflega aðild Þýzkalands að NATO og telur það einu leiðina til sam- einingar landsins. Foringi hans heitir Friedrich von Kessel. 7. Að lokum er rétt að telja bandalag nokkurra smáflokka, Föderalistische Union. f því eru aðallega Bæjerski þjóðflokkurinn og Centrum flokkurinn. Samstarf þeirra er síðasta hálmstráið til að halda í þeim lífi. Styðja Jafnaðarmenn það með því að bjóða ekki á móti þeim í nokkr- um kjördæmum. Það er vart hægt að segja, að þessi sam- steypa hafi nokkurn einstakan foringja, en hún hefur von um að komast yfir 5% markið. Aðra flokka er óþarfi að nefna. í þeim hópi eru t. d. Þýzki ríkis- flokkurinn, sem hneigist til naz- isma en þykir hafa litlar líkur með sér. Þar er einnig danski flokkurinn í Slésvík, sem máske kemur að einum manni vegna stuðnings Jafnaðarmanna og sér- stakra ákvæða um þjóðarbrot. ★ f síðustu kosningum haustið 1953 vann flokkur Adenauers þann stórsigur, að ná í hrein- an meirihluta á sambandsþing- inu í Bonn, eða 244 af 487 þing- sætum. Þetta var þeim mun meira þrekvirki, þar sem kosn- ingalögin reyna að hamla gegn meirihlutavaldi með úthlutun uppbótarþingsæta sem bezt sést af því, að Jafnaðarmenn fengu aðeins 45 þingmenn kjördæma- kjörna en hvorki meira né minna en 105 uppbótarþingsæti en það dugði ekki til að fella meirihluta Adenauers. Þegar menn bíða eftir úrslit- um í kosningunum verður því nú aðalega spurt um eitt: Nær hinn Kristilegi flokkur Adenauers aft- ur meirihluta, eða tapar hann honum? — Og ef hann tapar honum, — hvað gerir þá þriðji stærsti flokkurinn, sá Frjálslyndi í oddastöðunni? Mun hann þá máske hefja stjórnarsamstarf við Jaf naðarmenn? Það virðist álit nær því allra Þýzkalandsfréttaritara- að Adenauer muni halda meiri hluta sínum og jafnvel bæta við hann. Þó er rétt að taka slíkum spádómum varlega. — Fréttaritararnir hafa séð með eigin aug im, að aðsókn og undirtektir hafa verið hetri að ræðum Adenauers en Ollen- hauers. En slíkt segir ekki alla söguna. Að sjálfsögðu er vit- að fyrirfram, að Kristilegi flokkurinn er stærri en flokk- ur Jafnaðarmanna. Hitt er ó- víst, að mikil fundarsókn tryggi honum meirihluta. Á Og hvað gerir Frjálslyndi flokk urinn, ef hann kemst í oddaað- stöðu. Foringi hans Reinhold Maier, er persónulegur fjand- maður Adenauers. Eins og áður segir rauf Frjálslyndi flokkurinn stjórnarsamstarf við Kristilega flokkinn eftir kosningasigur þess síðarnefnda. Ástæða þess var að Frjálslyndi flokkurinn hafði tap- að atkvæðum við samstarfið. Hér var einkennandi dæmi um að stóri flokkurinn étur upp fylgi litla flokksins. Menn töldu exnu leiðina til bjargar, að fara í stjórnarandstöðu og taka upp baráttu gegn stóra flokknum. Var Maier valinn formaður flokks- ins til að tryggja að baráttan yrði nógu hörð gegn Adenauer. í kosningabaráttunni hefur Maier aðallega beint brandi sín- um gegn Kristilega flokknum. Hann hefur sakað Adenauer um einræðishneigð og hann hefur snúizt gegn utanríkisstefnu hans. Meginhluti allra ræða hans hef- ur verið árás á Adenauer. En með þessu lætur Maier fylgja þá skýr- ingu, að það sé eðlilegt að hann gagnrýni mest þá sem hafa verið við völd. Þurfi það ekki að sýna, að samstarf yrði útilokað. En hins vegar vita menn, að ef Frjálslyndi flokkurinn fengi oddaaðstöðu, myndi hann setja Kristilega flokknum ströng skilyrði fyrir samstarfi. ★ Þótt undarlegt megi virð- ast eru menn þeirrar skoðun- ar, að Frjálslyndi flokkurinn myndi fremur kjósa samstarf við Jafnaðarmenn. Slíkt virð- ist öfugmæli því að djúp gjá skilur hugsjónagrundvöll flokkanna. En svo vill til, að Jafnaðar- menn hafa fyrir þessar kosning- ar ekki minnst á þjóðnýtingu. Þeir finna að fyrir þjóðnýtingu er enginn áhugi meðal kjósenda. Og ef þeir sleppa algerlega þjóð- nýtingunni, þessum hornsteini sósíalismans, þá fer að vísu veru- lega að mjókka bilið milli þeirra og Frjálslynda flokksins. Fyrir nolckru gekk dr. Deist efnahags- sérfræðingur Jafnaðarmanna jafnvel svo langt, að hann af- neitaði þjóðnýtingu. Hann sagði að flokkur hans hefði engin þjóð- nýtingaráform á prjónunum önn- ur en máske þau, að setja höft á stærstu auðhringana. Á móti þessu hefur Frjálslyndi flokkurinn fært stefnu sína í ut- anríkismálum nær Jafnaðarmönn um. M.a. er hann ekki fráhverf- ur þeirri hugmynd að koma á afvopnun með hlutlausu Þýzka- landi. ★ Þáttur ' Frjálslynda flokksins getur orðið mikill, ef hann fær oddaaðstöðu. Það breytir þó ekki hinu, að kosningabaráttan stend- ur aðallega milli risanna tveggja Kristilega flokksins og Jafnaðar- manna, og þá einkum milli for- ustumanna hans Adenauers og Ollenhauers. Hefur þessi barátta verið full af æsingum og gífur- yrðum. Það er almennt mál fréttarit- ara, sem fylgzt hafa með kosn- ingabaráttunni, að hún hafi mis- tekizt hjá Jafnaðarmönnum. Kenna þeir það einkum og sér í lagi foringja þeirra Ollenhauer. Jafnaðarmenn hafa verið í stjórnarandstöðu. Þess vegna hefðu þeir átt að vera í sókn í kosningabaráttunni. En þetta hef ur farið öðruvísi, því að Kristi- legi flokkurinn hefur verið í sókn. Menn segja, að ef kQsningar hefðu verið sl. ár hefðu Jafnaðar- menn unnið þær. En nú hafa spil in aftur snúizt við. Fyrst og fremst heíur Jafn- aðarmönnum tekizt mjög illa að semja kosningastefnuskrá. Hún er ákaflega loðin og það er varla hægt að kalla hana stefnuskrá, því að nær því ó- mögulegt er að vita af henni hvað flokkurinn ætlar að gera, ef hann kæmist til valda. Til- vonandi fjármálaráðherra hans lýsir því yfir, að hann vilji ekki þjóðnýtingu. Alveg sama er að segja um utan- ríkisstefnuna. Jafnaðarmenn segjst ætla að ræða við Rússa og leggja áherzlu á samein- ingu Þýzkalands. En Rússar eru ákaflega óþekkt stærð og óeðlilegt að byggja stefnuskrá á því sem þeir myndu gera eða ekki gera. í samræmi við þetta hefur það verið ein helzta háðsglósa í garð Jafnaðarmanna, að enginn hafi hugmynd um, hvað þeir ætli að gera. Adenauer hét einn daginn 2000 marka verðlaunum, hverjum þeim sem gæti skýrt að hverju væri stefnt í fjármálastefnu þeirra. Ofan á þetta hefur bætzt, aS Ollenhauer er ekki sérlega hríf- andi né áhrifamikil persóna. Einn helzti brandari fylgismanna Kristilega flokksins er þessi: — Hver sem kýs SPD, — hann kýs Ollenhauer. Og á þetta að sýna að Ollenhauer dragi lítið fylgi að flokki sínum. ★ Gagnstætt þessu hefur Kristilegi flokkurinn fasta stefnuskrá, sem hann birtir kjósendum. Og hann bendir á hina frábæru stjórn á undan- förnum árum. Nú er þýzka markið harðasti gjaldeyrir i heimi og lífskjör almennings betri en nokkru sinni fyrr. Það er nærtækur raunveruleik inn. Þetta er það sem fólkið hefur og vill ekki missa. Það er fólkið sem er að greiða af- borganir af ísskáp, þvottavél, íbúðarhúsi eða Volkswagen, og öðrum lífsins þægindum. Sama er að segja í utanríkis- málunum. Stefna Adenauers og flokks hans er þar skír og ótví- ræð. Samstarf í Atlantshafsbanda laginu og Evrópumarkaðnum og bið sterkra Vesturvelda eftir því að Rússar létti kúgun af Austur- Þýzkalandi. Þar við bætist hinn magnaði persónuleiki Adenauers og snilld í ræðuflutningi, sem heillar á- heyrendur hans. ★ Aðeins eitt atriði getur orðið Adenauer skeinuhætt á sviði Framh. á bls. 10 Þýzka þjóðin unir sér vel í Volkswagen barnakerru Adenauers. Hún hefur líka gnægð leikfanga. Kosningabaráttan hefur verið hörð, stundum fyrir neðan vel- sæmi. Þannig lýsir þýzkur teiknari átökum Adenauers og Olien- howers.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.