Morgunblaðið - 14.09.1957, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 14.09.1957, Qupperneq 6
6 MORGVNBTAÐ1Ð Laugardagur 14. sept. 1957 Frondizi hyggst nó völdum með stuðningi Peronistn S' | TJÓRNLAGAÞING Argen- tínu er saman komið í hinni litlu en sögufrægu borg Sante Fé um 400 km norð- ur af Buenos Aires. Á þeim stað var lýst yfir sjálfstæði Argentínu 1853 og stjórnarskrá fyrir ríkið samþykkt. Stóð hún þar til Peron forseti samdi af sjálfsdáðum nýja einræðisstjórnarskrá. Var hún aldrei lögð undir þjóðaratkvæða greiðslu. 'Með byltingunni 1955 gegn Peron var stjórnarskrá hans lýst ólögleg og gamla stjórnarskráin frá 1853 aftur viðurkennd. En Aramburu bráðabirgðaforseta og fylgismönnum hans er ljóst að hin gamla stjórnarskrá er ófull- komin, eins og sézt hefur, þeg- ar Peron tókst á sínum tíma að koma á einræðisstjórn án þess að þurfa beinlínis að brjóta í bág við stjórnarskrána. Þessu vill Aramburu nú breyta og setja hömlur á ríkisvaldið, en auka sjálfsstjórn hinna ýmsu héraða. Vonar hann að það gæti orðið undirstaða-réttláts lýðræð- isríkis. í þessum tilgangi lét hann efna til kosninga til stjórnlaga- þings þann 28. júlí sl. og situr það nú í Santa Fé. ★ f þessari smáborg komu fyrir skömmu saman 205 þingfulltrú- ar og bjuggu við þröngan kost. Bærinn hefur verið valinn til þinghalds fremur vegna sögulegr ar frægðar, en vegna hentugleika. T.d. skortir gistihús fyrir þing- mennina og verða þeir að búa oft fjórir saman í herbergi í ó- fullgerðu stórhýsi, sem ætlað er fyrir elliheimili. Þó er það enn verra, að end- urskoðun stjórnarskrárinnar mætir harðri mótspyrnu, þar sem þess hefði máske sízt mátt vænta. Það má segja, að skuggi Perons liggi eins og mara yfir þinginu. Ekki svo að yfirvof- andi hætta sé á að Peron sjálf- ur snúi heim og taki við völd- um, heldur fremur vegna þess að einn af fyrrverandi and- stæðingum Perons, sem fyrr á árum þóttist lýðræðissinni, þykist nú sjá sér leik á borði til að ná sömu aðstöðu og Peron áður. Þar sem þessi möguleiki er fyrir hendi hef- ur hann ekki lengur áhuga á lýðræði. ★ Maður þessi nefnist Arturo Frondizi og er honum nú oft lýst sem hinum komandi sterka manni Argentínu. Hann var. áð- ur leiðtogi róttæka flokksins í heild, sem lengst hélt uppi stjórn arandstöðu gegn Peron og reyndi að verja þingræði landsins með hnúum og hnefum. En nú er Frondizi svo langt leiddur, að hann biðlar skefjalaust til stuðn- ingsmanna Perons. Hljóti hann fylgi þeirra í þingkosningum í náinni framtíð er hann næstum öruggur með að ná hreinum meiri hluta. Og til þess er leikurinn gerður. Áður en Peron komst til valda á árum síðustu heimsstyrjaldar voru helztu þingflokkarnir í Argentínu auk Peronista, íhalds- flokkurinn, Róttæki flokkurinn og Jafnaðarmenn. Eftir valda- tíma Perons var íhaldsflokkur- inn þurrkaður út og Jafnaðar- mannaflokkurinn hafði misst nær allt fylgi sitt til Perons. Eini andstöðuflokkur Perons, sem nokkuð kveður að er Róttæki flokkurinn, en hann hefur nú klofnað í tvær fylkingar. Arturo Frondizi var leiðtogi Róttæka flokksins á valdaárum Perons. Hann barðist eftir því sem aðstæður leyfðu gegn vald- níðslu Peronista og beitti stöðugt brandi réttlætisins í baráttunni fyrir viðhaldi þingræðis í land- inu. í forsetakosningum 1951 bauð hann sig fram gegn Peron. Hlaut hann 2,4 milljónir atkvæða gegn 4,7 milljónum atkvæða sem Peron hlaut. ★ . Engir fögnuðu því meir en fylgismenn Róttæka flokksins, Arturo Frondizi þegar einvaldsherranum Per- on var steypt af ‘ stóli. Þótt- ust menn nú eygja upprenn- andi sól lýðræðis yfir landið. Einn af forustu mönnum Rót- tæka flokksins Aramburus hershöfðingi var kjörinn for- seti landsins til bráðabyrgða. Skyldi hann vinna að því að innleiða lýðræðislega stjórnar hætti. En ekki Ieið á löngu þar til á því fór að bera, að hinn gamli leiðtogi Róttæka flokks ins, Frondizi fór að biðla á áberandi hátt til Peronistanna. OIli þetta klofningi í Róttæka flokknum, hann skiptist í Rót- tæka þjóðflokkinn fylgismenn Aramburus, sem eru frjáls- lyndir og hægfara og Óundan- látssama róttæka flokkinn undir forustu Frondizis, sem er orðinn þjóðernissinnaður öfgaflokkur og hallast að gamla Peronismanum. ★ f kosningunum til stjórnlaga- þingsins í sumar skýrðust línurn- ar nokkuð milli flokkanna, því að þær fóru fram algerlega á flokkspólitískum grundvelli. Þótt Peronistar fengju ekki að bjóða fram, mátti einnig sjá styrkleika þeirra, því að þeir höfðu sam- tök um að skila auðum seðlum. Þá kom eftirfarandi í Ijós: Það eru þrír flokkar sem eru öflug- astir. Hinn frjálslyndi flokkur Aramburus hlaut 2,5 millj. atkv. og 75 þingfulltrúa. Flokkur Fron dizis sem fékk 2,2 millj. hlaut þó vegna kosningakerfisins fleiri fulltrúa en Aramburu eða 77. Næstir að styrkleika eru Peron- istar, sem skiluðu 2,1 milljón auðra seðla, en að sjálfsögðu eng- an þingfulltrúa. Önnur þingsæti skiptust flokka. meðal margra smærri Þegar stjórnlagaþingið kom svo saman fyrir nokkru vakti það ekki litla eftirtekt, þegar Frondizi stóð upp og mótmælti því að ný stjórnarskrá yrði sam- in. Hann krafðist þesS að stjórn- arskrá Perons yrði áfram viður- kennd og lýsti þetta stjórnlaga- þing með öllu ólöglegt, þar sem 2,1 milljón Peronista eða um fjórði hluti þjóðarinnar ætti enga fulltrúa á því. Til að sýna að honum væri full alvara, lét Frondizi alla fylg- ismenn sína ganga af þingi. Aramburu-flokkurinn hyggst halda áfram stjórnarbót sinni í samstarfi við smáflokkana. En menn spyrja aðeins, hvort það hafi nokkra þýðingu. Því að hvað gerist í fyrstu almennum þingkosningum? Mun ekki Frondizi studdur af Peronistum ná hreinum þingmeirihluta og ónýta allt starf stjórnlagaþingsins? Sœmileg aflabrögð Skagafirði í sumar HOFSÓSI, 10. sept. — Tíðarfar hefur verið ágætt í sumar og heyskapur gengið vel, nýting heyja ágæt. Talsvert útræði hefur verið frá Hofsósi í sumar. Hafa 10—12 opn- ir vélbátar gengið þaðan og afli verið mjög sæmilegur. Aflinn hef ur fengizt aðallega á línu og handfæri, en nokkrum sinnum hefur verið lagt þorskanetum og hefur verið lagt þorskanetjum og róðri hefur oft verið þetta 600— 900 kg. Fiskurinn er allur lagður upp hjá fiskvinnslustöð Kaupfélags Austur-Skagfirðinga og allur frystur. Hefur þetta verið aðal- atvinnugrein þorpsbúa. Annars háir það Hofsósbúum enn hve hafnarskilyrði eru slæm. Nýlega sbrifar úr daglega lífinu 1 Eymd og volæði ÞESSAR tvær myndir sendi ég Mbl. til birtingar. Ég vil ekki láta nafns míns getið opinberlega, því að það gæti orðið miður þægi- legt fyrir mig. Ég sigldi síðastliðið sumar og meðal annars kom ég til Austur- Þýzkalands og þannig er nú um- horfs þar. Konur og börn vinna erfiðisvinnu jafnt sem fílefldir karlmenn. Áróðursskilti iík þessu, sem myndin er af eru i hundraðatali á húsveggjum.Fólk- ið er svo hrætt að það þorir ekki að segja að því líði illa, nema einstaka maður, sem gerist svo djarfur að segja eins og honum býr í brjósti. Verðlag er alveg ofsalegt og kaup mjög lágt. Einir svartir skór, sem okkur myndi þykja ljótir, kostuðu DM 81, en austur- þýzka markið er nærri því helm- ingi hærra en vesturþýzkt og mundu þessir skór þá kosta á sjö- unda hundrað íslenzkra króna. Vopnaðir lögregluþjónar og varðmenn eru á hverju götuhorni og bera sumir þeirra skammbyss- ur og aðrir stóra riffla með stingj um. Ég fór einu sinni á dansleik og þegar hann var um það bil hálfnaður þrömmuðu þrír ein- kennisklæddir verðir inn á mitt gólf með tvo vélbyssukjafta á undan sér, lituðust um stutta stund og héldu síðan brott. Aldrei fékk ég að vita hvert erindi þeirra var. Ekki virðast þeir alveg hafa strikað Stalín út af dagskrá hjá sér, því að ennþá er til „Stalin- strasse“ o. s. frv. Niður með hernaðaræði V-Þýzkalands. lllllÍS! Konur og börn í erfiðisvinnu. Þeir hafa lítið hirt um að afmá minjar styrjaldarinnar, en það hefur ekkert verið hreyft við húsarústum og slíku og liggur það allt í óhirðu.Það er öðru vísi £ V-Þýzkalandi því þar hefur mik ið verið byggt upp og annað verið alveg jafnað við jörðu og gróður- sett yfir það. Ég hafði ekki trúað mörgu af því, sem mér hafði verið sagt frá ríkjum kommúnista, en eftir að ég hefi séð þetta með eigin aug- um trúi ég öllu. K Bílaþvarg á leikvelli ÆRI Velvakandi! Einn af stærstu leikvöllum bæjarins er á milli Skúlagötu og ^lverfisgötu, fyrir ofan Rauðarár- stíg. Þarna hefur verið útbúinn mjög fullkominn leikvöllur með alls konar tækjum fyrir börn. En einn galli er á gjöf Njarðar. Bílar af öllum stærðum aka um völlinn sýknt og heilagt, og ber mest á bílum, sem eru að koma með og sækja fisk í fiskbúð, sem staðsett er við Hverfisgötu. Búð þessi virð ist stundum véra eins konar mið- stöð fyrir fisksala og þá er lát- laus straumur af bílum til hennar og frá. Óþarft virðist vera að hafa slíka heildsölu á fiski í þétt- býli, og fiski þeim.sem búðin þarf til daglegrar sölu má auðveldlega koma til hennar frá Hverfisgötu. Auk þessara bíla er einnig sæg- ur af öðrum bílum, sem aka um völlin, eins og hann væri ein af umferðaræðum borgarinnar. — Þessi stöðuga þvaga er mikið áhyggjuefni öllum íbúum þessa hverfis, sem eiga börn á leikvell- inum. Það er ótrúlegt en satt, að enn hefur ekki orðið stórslys, og má það kallast guðsmildi, en er ekki þeim mönnum að þakka, sem leika sér að lífi ungra sam- borgara sinna með vítaverðum glannaskap. Þrátt fyrir ítrekuð tilmæli hefur lögreglan ekki lát- ið málið til sín taka, enda skortir hana ef til vill heimild til þess. Eina varanlega lausnin á þessu vandamáli, er að loka leikvellin- um algerlega fyrir allri bílaum- ferð, og vona ég, að þessi orð mín nái eyrum þeirra forráða- manna, sem með þessi mál hafa að gera, áður en það er um seinan. íbúi við Rauðarárstíg. er búið að kanna ástandið í hafn- armálum staðarins og eru breyt- ingar og endurbætur nauðsyn- legar. Einn smáútvegsmaður á Hofs- ósi, Sveinn Jóhannsson gerði til- raun með að leggja ýsunet aust- an megin í Skagafirði. En svo illa vildi til í þetta skipti, að gríðar mikill beinhákarl kom í netin, flæktist í þau og eyðilagði. Net- in voru alveg ný og hefur tjón Sveins af þessu aldrei orðið und- ir 2000 kr. Sveinn kom með þenn an vágest í land, 7% metra lang- an til þess að greiða netin af honum. Að því búnu var bein- hákarlinn dauður dreginn aftur út á fjörð og sökkt þar, því að hann er til einskis nýtur. Kirkja er nú í smíðum á Hofs- ósi, en þar hefur verið kirkju- laust og bærinn átt kirkjusókn að Hofi. Björn Guðnason bygginga- meistari á Sauðárkróki hefur teiknað kirkjuna og séð um smíði á henni. Er hún nú orðin fokheld, en fjárhagsörðugleikar hindra frekari framkvæmdir. Kirkjan er reist að verulegu leyti fyrir sam- skot og gjafavinnu. Um síðustu helgi kom frú Guð- rún Brunborg og sýndi kvikmynd ina Borgarættina að Hofsósi. Lét hún allan ágóða af kvikmynda- sýningunni ganga til kirkjubygg- ingarinnar. Sýningin var í sam- komusal barnaskólans og var mjög fjölsótt. Nýlega hefur verið mælt út fyrir félagsheimili og munu bygg ingaframkvæmdir við það hefj- ast nú bráðlega. Það á að standa vestanvert við barnaskólahúsið. Lillar horlur á að konur gerist presfar STOKKHÓLMI, 11. sept. — Það þykir nú Ijóst að kirkjuþing Sví- þjóðar muni fella með miklum atkvæðamun tillögu um að heim- ila konum að gerast prestar. Til- lagan er lögð fram af kirkjumála- ráðherranum, en hefur ekki ver- ið formuð endanlega sem frum- varp. Kirkjuþing hefur ákveðið vald yfir málefnum kirkjunnar, svo að ef tillaga þessi verður felld á því, getur ráðherrann ekki lagt hana fram á þjóðþinginu. —NTB. STOKKHÓLMI, 11. september. — 26 kvenstúdentar sem lesa guð- fræði við Uppsalaháskóla hafa lýst því yfir, að þær vilji ekki taka prestvígslu. Hafa þær skýrt frá þessu í bréfi til biskupanna og Mrkjuþingsins. Ástæðan er sú, að þær vilja forðast sundrung innan kirkj- unnar sem af vígslu þeirra kynni að leiða. Hins vegar líta þessir væntanlegu kvenguðfræð- ingar svo á, að koma beri á fót innan kirkjunnar starfsemi sem sérmenntaðar konur annist og ekki fer í bága við boð Nýja testamentisins. Nefna þær í því sambandi sálgæzlu, boðun og kristindómsfræðslu. Sú kona sem hlýtur slíka stöðu skal vígj- ast af biskupi og hafa fasta stöðu innan kirkjunnar. — Jón

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.