Morgunblaðið - 14.09.1957, Side 8

Morgunblaðið - 14.09.1957, Side 8
t MORGUWBI AÐIÐ Laugardagur 14. sept. 1957 Httfrlllfrifr Útg.: H.f. Arvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Aðalritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.) Bjarni Benediktsson. Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur. Einar Asmundsson. Lesbók: Arni Öla, sími 33045 Auglýsingar: Arni Garðar Kristxnsson. Ritstjórn: Aðalstrætí 6. Auglýsingar og aígreiðsia: Aðalstræti 6. Sími 22480 Askriftargjald kr. 30.00 á mánuði innanlands. í iausasölu kr. 1.50 eintakið. VALDNIÐSLA GEGN REYKJAVÍK UTAN UR HEIMI // Göteborgsposterí' svarar „Se" AÐFARIR Hannibals félags- málaráðherra gegn Reykj avíkurbæ hafa vak ið undrun og andúð fólks úr öll- um stjórnmálaflokkum í Reykja- vik. Eins og Gunnar Thoroddsen borgarstjóri bendir á í samtali, er birtist hér í blaðinu í gær, er sá „úrskurður" hins fljótfærna félagsmálaráðherra, að niðurjöfn- un útsvara í Reykjavík skuli vera ógild, gersamlega rakalaus. Þær tvær meginástæður, sem fluttar eru fram fyrir ofbeldisverkinu, fá ekki staðizt. Hin fyrri þessarra ástæðna er sú að jafnað hafi verið niður 6,9 millj. kr. fram yfir það há- mark, sem löglegt sé. Borgar- stjóri bendir á að eftir að nið- urjöfnunarnefnd hafði endur- skoðað einstök útsvör og lækk að þau verulega var heildar- upphæð útsvaranna 1,3 millj. kr. lægri en sú fjárhæð, sem allir flokkar bæjarstjórnar- innar viðurkenndu að heimilt væri að leggja á. Félagsmálaráðuneytinu var kunnugt um þetta 5 dögum áður en það kvað upp „úrskurð" sinn. Engu að síður hikaði það ekki við að fremja valdníðslu á Reykjavíkurbæ og skapa bæjar- félaginu margvísleg óhagræði með ógildingu á niðurjöfnuninni, sem raunar verður að telja mjög hæpið að það hafi nokkra heim- ild til. Má ekki nota bókhalds- vélar? Hin ástæða hins einræðissinn- aða félagsmálaráðherra fyrir of- beldisverki hans er sú, að nið- urjöfnunarnefnd hafi ekki jafnað niður eftir efnum og ástæðum vegna þess að útsvör margra gjaldenda hafi verið reiknuð út með sérstökum vélum samkvæmt útsvarsstiga. Gunnar Thoroddsen bendir á það að hér sé um furðulegan mis- skilning að ræða, því að vitan- lega séu útsvör lögð á eftir efn- um og ástæðum þótt notaður sé útsvarsstigi, sem bæði er stig- hækkandi og veitir fjölskyldufrá- drátt. Það sé einnig furðulegt ef félagsmálaráðuneytið ætli að fara að banna bæjarfélögunum að nota bókhaldsvélar í sám- bandi við álagningu bæjargjalda. Óhætt er að fullyrða að enginn ráðherra á íslandi hefði getað byggt „úrskurð" á eins fráleitum og heimskulegum forsendum og Hannibal hefur gert í þessu máli. Svo einstakur er flumbruháttur- inn og ofbeldishneigðin, sem par kemur fram. Veldur alvarlegu tjóni Borgarstjóri vekur athygli á því í samtali sínu við Morgun- blaðið í gær, að hvort sem tekið verði mark á „úrskurðinum" eða ekki, „þá hefir „úrskurður“ Hannibals þegar náð þeim til- gangi að skaða Reykjavíkurbæ „Úrskurðurinn" hlýtur að hafa þau áhrif að tefja og torvelda innheimtu útsvara. En þar sem allar framkvæmdir bæjarfélags- ins byggjast á þeim, þá þýðir þetta um leið að tefja og tor- velda nauðsynlegustu stórfram-1 kvæmdir bæjarfélagsins, svo sem byggingu íbúða, skóla, bæjar- sjúkrahúss, sorphreinsunarstöðv- ar, hitaveitu í Hlíðarhverfinu og undirbúning lóða“. Borgarstjóri bendir að lokum á það að „úrskurður" ráðuneyt- isins þýði ekki lækkun á útsvari eins einasta manns í bænum. — Með honum sé aðeins verið að valda töfum og koma fram póli- tískum hrekkjabrögðum. Stóraukinn fjölskyldu- frádráttur Um útsvarsálagninguna i Reykjavík á þessu ári er annars það að segja, að hún var fram- kvæmd eftir sama útsvarsstiga og í fyrra, en fjölskyldufrádráttur var stórhækkaður til hagsbóta fyrir barnafólk og efnalitlar fjöl- skyldur. í fyrra var veittur 800 kr. frádráttur fyrir hvert barn. Nú var þessi frádráttur hækkað- ur í 1050 kr. fyrir fyrsta barn, 1100 kr. fyrir annað barn, 1200 kr. fyrir þriðja barn, 1300 kr. fyrir fjórða barn, 1400 kr. fyrir fimmta barn og þannig hækkað- ur frádráttur fyrir hvert barn upp í 10 börn. Ennfremur var einstæðum mæðrum veittur 2000 kr, frádráttur á hvert barn. Að sjálfsögðu hafði þetta í för með sér verulega lækkun á út- svörum barnafólks, Sannleikurinn er sá að þótt útsvör hér í Reykjavík séu auð- vitað há, þá eru þau lægri en í flestöllum, ef ekki öllum kaup- stöðum landsins. Það er athyglisvert, að hinn aukni f jölskyldufrádráttur, sem veittur var við álagningu útsvaranna nú, hafði í för með sér hvorki meira né minna en 7 millj. kr. lækkun þeirra. Skattrán vinstri stjórnarinnar En á sama tíma sem Reykja- víkurbær, undir forystu Sjálf- stæðismanna, veitir fjölskyldu- fólki og efnalitlu fólki slíkan af- slátt af þeim opinberu gjöld- um, sem til bæjarins renna, legg- ur vinstri stjórn Framsóknar, kommúnista og Alþýðuflokksins nýjar drápsklyfjar skatta og tolla á almenning. Hinir 300 millj. kr. nýju skattar og tollar, sem vinstri stjómin lagði á um síðustu áramót höfðu í för með sér 9500 kr. útgjaldaauka á hverja einustu 5 manna fjöl- skyldu í landinu. Þessi útgjöld bitnuðu bæði á tekjulágu og tekjuháu fólki. Þau voru lögð á alla. Það kemur því vissulega úr hörðustu átt, þegar slík ríkis- stjórn hefur ofsókn á hendur Reykjavíkurbæ, sem reynt hefur eftir fremsta megni að létta opin- berum gjöldum af hinum efna- minnstu. Frumhlaup Hannibals gegn höfuðborginni, og tilræði hans við nauðsynlegustu umbætur « bænum, svo sem íbúðabygging ar, skóla, sjúkrahús o. s. frv. er fordæmt af öllum almenn ingi í bænum. I því felst póli- tískt hrekkjabragð og ofbeld- ishneigð en ekki minnsta við- leitni til þess að rétta hlut nokkurs manns. VIÐ birtum hér í dálkunum ekki alls fyrir löngu ritstjórnargrein úr sænska vikublaðinu „Se“, þar sem veitzt var að skrifum sænskra blaða um frásögn „Se“ af sænsku konungsheimsókninni til íslands. Var þar einkum höggvið að „Göteborgs-Posten“, en það blað hafði ráðizt harka- lega á frásögn „Se“. Morgunblaðinu hefur nú borizt úrklippa úr „Göteborgs-Posten“ frá 26. ágúst, þar sem ritstjórnar- greinin í „Se“ er gerð að umtals- efni, og fer sú grein hér á eftir í lauslegri þýðingu. Hún hefur fyrirsögnina „Upphafið Stokk- hólmsmál“. Myndablaðið svíður „Myndablaðið Se hefur sýni- lega sviðið undan hinni hörðu gagnrýni íslehdinga og sænskra blaða á frásögn þess af sænsku konungsheimsókninni til íslands. Ritstjórnargreinin í Göteborgs- Posten um þetta mál var harðorð, en ekki of harðorð, og hún hef- ur komið við kaunin á Se. Að sjálfsögðu hefur myndablaðið líka sviðið undan einróma for- dæmingu sænsku blaðanna í heild. Einkanlega hafa ummæli Gunnars Rockséns ræðismanns um ósvífni myndablaðsins í garð íslenzku forsetafrúarinnar farið í taugarnar á ritstjórninni. Að honum er gerð sérstök hríð í rit- stjórnargreininni í Se. Það sem ,.Se“ harmar Gagnrýnin á Se hefur verið svo hörð, að blaðið kemst ekki hjá því að biðjast afsökunar. En það er einkennandi fyrir Se, að það harmar ekki, menn taki vel eftir því, hina þorparalegu blaða mennsku, heldur barmar það sér yfir því, að íslendingar hafi ekki skilið „fínu punktana“ í skrifum blaðsins — þeim hafi sárnað. Ætlunin hafi ekki verið að særa neinn, segir Se. Við skulum vona það Það getur vel verið, að þetta hafi ekki verið ætlunin og að frá- sögnin í Se beri fremur vitni lág kúrulegri blaðamennsku en illu innræti. Eftir yfirlýsingu Se, vonum við umfram allt, að ís- lendingar líti málið þeim aug- um. Nokkrar setningar í skýringu Se verða að varðveitast frá gleymsku. Þær fela í sér hina kynlegu lýsingu herra Rune Moberg á hinum vansæla frétta- manni Se á íslandi, herra Gits Olsson. Þær hljóða svo: Ógleymanlegar setningar — Gits Olsson hefur per- sónulegan stíl, sem fær þokka sinn af hinu létta handbragði, af hinum leikandi samleik milli aukaatriða og aðalatriða, milli djarfra litasamstæðna og stemningarmynda í daufum litum, og umfram allt á eins konar upphöfnu Stokkhólms- máli. Upphafið mál, segja þeir- Hvernig er eiginlega Stokkhólms málið, ef hægt er að líta á is- lenzku kjötbollu-fréttamennsk- una í Se sem „upphafið“ eða göf- ugt mál? Það virðist kominn tími til þess að sænsk blöð og sænskur almenningur rísi upp gegn StokkhólmsmálinU bæði í vikublöðum og útvarpi. Sem bet- ur fer hafa dagblöðin í Stokk- hólmi haldið illgresinu frá síð- um sínum. Þökkum íslendingum Heimsókn sænsku konungs- hjónanna til íslands hefur ásamt mörgu öðru haft þær lofsverðu afleiðingar, að augu okkar hafa opnazt fyrir þeirri. málspillingu og þeirri hættu, sem tungu okk- ar stafar af Stokkhólmsmálinu. íslendingar, sem hafa mikla ást á sígildum norrænum bókmennt- um og eru gæddir öryggi í fram- komu og máli, eiga þakkir okk- ar skyldar fyrir að hafa brugð- izt skynsamlega við hinu upp- hafna Stokkhólmsmáli. Með því að stilla þessu Stokkhólmsmáli gegnt norrænum bakgrunni hafa þeir opnað augu okkar fyrir hættunni“. Bandaríkjamenn hafa nú hafið vopnasendingar til Jórdaníu og hafa þeir sett upp loftbrú tll þess að flýta fyrir afhendingu vopnanna. Myndin var tekin, er fyrsta bandaríska flutningaflugvél- in lenti á flugvellinum við Amman. Út úr henni er ekið vopnaðri jeppabifreið, eins og mynd- in sýnir. Bob Hope, kvikmyndaleikarinn góðkunni, var nýlega á ferð í Vínarborg ásamt konu sinni og 4 börnum, sem þau hafa tekið í fóstur. Við það tækifæri heimsótti hann búðir ungverskra flótta- manna við Klosterneuburg, en þær eru reknar af Rauða krossinum danska. Bob skemmti hinum 120 flóttamannabörnum í búðunum, en alls eru þar 600 Ungverjar. Hann stóð einnig fyrir fjár- söfnun handa flóttamönnunum. Á myndinni er leikarinn að sýna nokkrum barnanna myndabók, en til vinstri er forstjóri búðanna, Östergaard.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.