Morgunblaðið - 05.10.1957, Side 10

Morgunblaðið - 05.10.1957, Side 10
10 MOTtaVHTÍT 4 ÐIÐ Laugardagur 5. okt. 1957 Tilkynning til skattgreiðenda í Reykjavík. Þriðji gjaldagi þinggjalda 1957 var 1. þ. m. og eru þá í gjalddaga fallnir þrír fjórðu hlutar ^seirra samtals, hjá öllum öðrum en föstum starfsmönnum, sem greiða reglulega af kaupi. Hafi þessi hluti gjaldanna ekki verið greiddur í síð- asta lagi 15. þ. m., falla skattarnir allir í eindaga og eru lögtakskræfir, og kemur frekari skipting á þeim í gjald- daga þá ekki til greina. XOLLSTJÓRASKRIFSTOFAN Arnarhvoli. Sigríðar Guðnadóltir Minningarorð í DAG hefði Sigríður Guðnadótt- ir í Skarðshlíð orðið 88 ára, hefði hún lifað, en hún andaðist að heimili Jóns, sonar síns, í Skarðs- hlíð hinn 15. júní sl. og var jarð- sett að Eyvindarhólum 24. s.m. að viðstöddu miklu fjölmenni. Sigríður var fædd að Forsæti í V-Landeyjum 5. okt. 1869, og var faðir hennar Guðni bóndi þar, sonur Magnúsar Torfasonar prests í Eyvindarhólum og konu hans Guðrúnar Ingvarsdóttur frá Skarði, en móðir Sigríðar var Guðrún, dóttir Vigfúsar Torfa- sonar sýslumanns í Strandasýslu og konu hans Ragnheiðar Páls- dóttur amtmanns Melsted. Ekki var Sigríður lengi aðnjótandi ástar og umhyggju foreldra sinna. Faðir hennar drukknaði við sjötta mann milli lands og Eyja 13. júní 1872. Stóð þá móðir hennar ein uppi með 3 ungar dætur sínar, Sigríði elzta, 3ja ára, og var henni þá komið í fóstur til föðursystur sinnar, Ragnhildar Magnúsdóttur og manns hennar, Sigurðar Magnússonar, bónda á Skúmsstöðum í V-Landeyjum, er þar bjuggu stórbúi. Þar ólst svo 77 Eini sjáJfblekungurinn með sjálffyllingu ... án nokkurra hreyfihluta Nú er kominn sérstæður og fullkomlega nýr penni frá Parker — Parker 61. Þessi frábæri penni er með sjálffyllingu og fyllist bleki á aðeins 10 sekúndum, með háræðakerfi ein- göngu! Ennfremur, áfyllingarskaptið er hreint að lokinni áfyllingu ... hreinsar sig sjálft. Parker 61 er vissulega frábrugðinn og dá- samlegur penni ... tilvalin fyrir yður til gjafa handa þeim, sem þér viljið bezt. Beztan árangur gefur Parker Quink i Parker 61. Verð: 61 Heirloom penni: Kr. 866,00. Settið: Kr. 1260.00 61 Heritage penni: Kr. 787,00. Settið: Ki. 1102,00 JSnkaumboðsmaður: Sigurður H. Fgilsson, P. O. Box 283 Reykjavík. Viðgerðir annast: Gleraugnaverzlun Ingólfs Gíslasonar, Skólavórðustíg 5, Reykjavik. CP2-3* Sigríður upp sem barn þeirra hjóna og dvaldist þar unz hún giftist árið 1892 Hjörleifi Jóns- syni frá Eystri-Skógum undir Eyjafjöllum og byrjuðu þau það sama ár búskap að Skarðshlíð í sömu sveit og bjuggu þau þar allan sinn búskap, myndar- og rausnarbúi, þar til Jón, sonur þeirra tók við búsforráðum. Það reyndi fljótt mikið á þrek ungu húsfreyjunnar í Skarðs- hlíð, því brátt hlóðust ýmisleg trúnaðarstörf á Hjörleif, mann hennar. Hann varð hreppsnefnd- aroddviti og var það í 42 ár, sýslunefndarmaður var hann í 40 ár. póstafgreiðslumaður, land- símastöðvarstjóri varð hann, þeg ar síminn kom og m.fl. Fylgdi þessu mikil gestakoma, enda var heimili þeirra í þjóðbraut og á árunum, áður en bílarnir fóru að þjóta um vegina, og reyndar á fyrstu árunum, sem þeir gengu, mun hafa verið fátítt, að enginn næturgestur væri í Skarðshlíð. En það var fleira, sem reyndi á. Fyrsta barn þeirra hjóna andaðist ungt og var það mikið áfall fyrir hina ungu móður, og tvö önnur börn misstu þau í æsku, en fjögur náðu fullorðinsaldri: Guðni hér- aðslæknir í Vík í Mýrdal, en hann dó 1936, 42 ára að aldri, Jón bóndi og oddviti í Skarðshlíð, Guðbjörg, hjúkrunarkona í Reykjavík og Ragnar, bankarit- ari í Reykjavík, en hann andað- ist 1948, 42 ára gamall. Hjörleif, mann sinn, missti Sigríður 1947. Sýnir þetta, að braut Sigríðar var ekki alltaf blómum stráð, en hún sýndi óbilandi kjark og trú í þessum raunum sínum öllum og beið þess að lokum, að hitta þessa ástvini sína í næsta lífi. Sigríður var skapmikil gáfu- kona, hreinlunduð og góðhjört- uð og mátti ekkert aumt sjá, en gat hins vegar verið einörð og ákveðin, ef henni fannst sér eða öðrum gert rangt, og fór hún þá ekki, frekar venju í manngrein- arálit, sagði þá ætíð það, sem henni bjó í brjósti, við hvern, sem í hlut átti. En trygglunduð var hún og átti marga vini og góða og þótti ætíð gaman að hafa þá nærri sér og þeim þótti gott að koma á heimili þeirra hjóna og njóta gestrisni þeirra og fróð- leiks. Eg, sem þessar línur rita, finn vanmátt minn til að skrifa eftir Sigríði látna, svo stórbrotna per- sónu, sem hún var, en ég vil Iáta í ljós þakklæti mitt og minna til hennar fyrir það, sem hún var okkur öllum, sem eftir lifum, og aldrei mun hennar skarð verða fyllt í hugum okkar. Bið ég góðan Guð nú að launa henni það allt. Með Sigríði er nú gengin ein af beztu dætrum þessa lands, en vonandi eiga eftir að alast upp hér konur gæddar slíkum mann- kostum, sem hún var búin, og verður þá framtið þessa lands og þjóðar í öruggum höndum. Guð blessi minningu Sigríðar í Skarðshlíð. Vinur. LOFTUR h.t. Ljósmyiiditsiofaii Ingólfsstræti 6. Pantið tima í sima 1-47-72 EINAR ASMUNDSSON bæstarettariúgvnadui. dafsteinn Sigurðsson hcraðsdómslögmaður. Skrifstota Hafnarstræd 5. Sími 15407. Bæjarkeppni í knattspyrnu á morgun sunnudag klukkan 4 keppa Akurnesingar og Reykvíkingar Verð aðgöngumiða: Fyrir börn kr. 3,00 — Stæði kr. 15,00 — Stúkusæti kr. 25,00. Boftsmiðar verða afhentir til kl. 5 laugardag, eftir þann tíma seldir. IVflótanefndin

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.