Morgunblaðið - 05.10.1957, Side 16
VEÐRIÐ
Suðaustan kaldi,
lítils háttar rigning
225. tbl. — Laugardagur 5- október 1957.
Islenzkunemi í Oxford
Sjá grein á bls. 11
Sex nýjar ostafegundir
frá Flóabúinu
Mjólkurbúið annað stœrsta á Norðurlöndum
að lokinni endurbyggingu
MJÓLKURBÚ FLÓAMANNA hefur nú hafið framleiðslu
sex nýrra ostategunda, sem það hefur fyrir fáum dögunt
sent á markaðinn. Er hér um að ræða mikla framför í ís-
lenzkri ostagerð og á mjólkurbúið þakkir skildar fyrir fram-
tak sitt í þeim efnum, en hér er um ágæta vöru að ræða. í
undirbúningi er að senda enn þrjár nýjar ostategundir á
markaðinn innan skamms. Unnið er nú að endurbyggingu
Mjólkurbús Flóamanna og mun hún kosta 45 millj. kr. —
Verður mjólkurbúið að henni lokinni annað stærsta mjólk-
urbú á Norðurlöndum.
Töðubruni á Héraði
250 hestar brunnu í CunnhHdargerði
Stjórn Mjólkurbús Flóamanna
og mjólkurbússtjórinn, Gretar
Símonarson skýrðu fréttamönn-
um frá þessum miklu fram-
kvæmdum í gær. Fyrir alllöngu
var hafinn undirbúningur að því
að fjölga svo mjög ostategundum
frá mjólkurbúinu, en hingað tii
hafa verið sárafáar tegundir ís-
lenzkra osta á markaðnum eins
og neytendum er kunnugt. Voru
til ostagerðarinnar keyptai nyjar
þýzkar vélar af fullkomnustu
tegund, og danskur ostasérfræð-
ingur hefir að undanförnu dval-
izt á Selfossi og haft umsjón með
ostagerðinni. Er h&nn fyrir
skömmu farinn af landi burt.
Sex tegundir
, Ostarnir komu á markaðinn
fyrir fimm dögum og hefir mjólk
urbúið síðan ekki getað annað
pöntunum.
Er hér um að ræða þessar
teg.: Flóahangikjötsost, rækju-
ins. í viðtali við Mbl. í gær, gat
Grétar Símonarson þess að
Mjólkurbú Flóamanna hefði nú
á þessum fáu dögum framleut
25.000 pakka af ostunum og varð-
andi geymsluþol þeirra, kvað
Grétar þá geymast óskemmda í 6
mánuði við venjulegan stofuhita.
Er hér um lofsvert framtak að
ræða hjá Mjólkurbúi Flóamanna
að gera íslenzka ostaframleiðslu
svo ólíkt fjölbreyttari með einu
átaki, og nýta sem bezt hina góðu
íslenzku mjólk. Og állir eru ost-
arnir hinir gómsætustu.
Eins og getið hefur verið áður
hér í blaðinu, hefur að undan-
förnu staðið yfir endurbygging
Flóabúsins. Er áætlað að búið
fullgert kosti 45 millj. kr. Verður
þá unnt að vinna úx 350 þúsund
mjólkurlítrum á dag eða meir en
þreföldu því mjólkurmagni sem
búið annar eins og sakir standa
Verður þá Flóabúið orðið annað
stærsta og myndarlegasta mjólk-
urbú á Norðurlöndum.
Helgi Mogensen, verkstjóri, stendur hér við suðuvélina í hinni
nýju ostagerð Flóa-búsins. — Ljósm.: Sig. J.
ost, tómatost, grænan alpaost^—
og tvenns konar smurost, mis-
munandi sterkan, Allir ostarnir
eru 45% að fituinnihaldi. Þeir
eru pakkaðir í ákaflega smekk-
legar umbúðir, í 125 gramma
pökkum, en reynslan erlendis frá
hefir sýnt að það er hentugasta
stærðin fyrir neytendur. í -dir-
búningi er framleiðsla á sveppa-
osti, skinkuosti og kjarnaosti.
Allir bera ostarnir einnig heit-
ið Flóaostur, auk tegundarheitis-
NÚ eru skólarnir að byrja og
veldur það miklum breytingqim
á útburðarstarfsliði blaðsins. Má
búast við að þetta valdi nokkr-
um erfiðleikum við að koma
blaðinu til kaupenda a.m.k.
fyrstu daga mánaðarins. En að
sjálfsögðu verður allt gert til að
flýta fyrir úttwrðinum.
Gretar Símonarson
mjólkurbússtjóri
FLJÓTSDALSHÉRAÐI, 4. okt.
— Þegar komið var á fætur í
Gunnhildargerði í Tungu-
hreppi í gærmorgun sást eldur
í allstórri nýbyggðri hlöðu.
Karlmenn voru engir heima en
með aðstoð símans og bíla
tókst á skammri stundu að ná
í 20 karlmenn, sem rifu hið
brennandi hey út úr hlöðunni.
Talið er að um 250 hestar hafi
eyðilagzt af eldi og vatni.
Síðan um miðjan ágúst hafa
verið daufir og stopulir þurrkar
Hafa margir á úthéraði átt hey
úti til þessa, en nú munu flestir
hafa náð þeim inn mjög lin-
þurrum samt og má víða búast
við að í þeim hitni.
Slátrun sauðfjár stendur yfir
og er ekki nærri lokið. Talið er
að 40 þús. fjár verði slátrað af
Héraði og úr Reyðarfirði. Væn-
leiki dilka mun víðast í meðal-
lagi. —Fréttaritari.
Mjög fullkominn jarðbor
brátt fekinn í notkun
i bœjarlandi Reykjavíkur
1 októbermánuði 1956 var gerð , aðilar keyptu í sameiningu stór-
ur samningur milli Reykjavík-
urbæjar og ríkisins um, að þessir
Reynt að tryggja betri
meðterð skólabóka barna
í HINUM nýju lögum um útgáfu
námsbóka er ákvæði, sem miðar
að því að tryggja eftirlit með not-
kun bókanna. Hefur námsbóka-
nefnd nú sett reglur hér að rút-
andi fyrir barnaskólana, sagði sr.
Jónas Gíslason, formaður nefndar
innar í gær er hann ræddi um
útgáfustarfsemina, sem rakin er á
öðrum stað hér í blaðinu.
Samkvæmt þeim á hvert
skólabarn á barnaskólastigi, frá
7 ára aldri til 12 ára
rétt til að fá eitt eintak
ókeypis af hverri námsbók, eða
alls 42 bækur. Ef bók glatast
eða skemmist, er nemandanum
skylt að kaupa nýja bók. Við-
komandj skóli annast sölu slíkra
bóka. Söluverð barnaskólabók-
anna á þessu skólaári hefur verið
ákveðið svo sem hér segir:
Gagn og gaman (litprentuð út-
gáfa) kr. 15,00 eintakið, og allar
aðrar bækur kr. 8,00 eintakið. —
Um nokkurn hluta lestrarbók-
anna, svonefndan 1.—6. flokk,
eða alls 19 bækur, skal þess get-
ið, að skólarnir fá þær ókeypis
til eignar og lána þær nemendum
endurgjaldslaust.
Klukkiiimi
seinkað í nótt
í NÓTT kl. 2 verður klukkunni
seinkað og sumartími afnuminn.
Verður klukkan þá 1 að nóttu í
stað 2.
Varðarkaffi í Valhöll
í dag kl. 3-5 s.d.
SJÁLFSTÆÐISFÓLK! Drekkið
síðdegiskaffið í Valhöll á laugar-
dögum.
Vtvarpsviðgerðir ófram-
kvœmanlegar og ný
viðtœki ófáanleg
Viðgerðarmenn útvarpsins komast ekki
út á land vegna efnisskorts
HEIMILISFEÐUR hundraða nýrra heimila, sem stofnuð hafa verið
í sumar, hafa árangurslaust reynt að kaupa þann „lúxushlut", sem
útvarp nefnist. — Þá er og svo komið að allir varahlutir fyrir
útvarpstæki eru að miklu leyti ófáanlegir. — Allt stafar þetta af
fej aldeyrisörðugleikum ríkisstj órnarinnar.
Sem kunnugt er, hefur ríkis-
fyrirtækið Viðtækjaverzlun ríkis-
ins, eitt leyfi til að annast kaup
á viðtækjum til landsins, svo og
varahlutum til þeirra.
Eftir því sem Mbl. fregnaði í
gær, munu nú vera þrír mánuðir
liðnir frá því að skip losaði hér
í Reykjavík viðtæki og varahluta
birgðir.
Þeir, sem hafa ætlað að kaupa
útvarpstæki til heimila' sinna,
hafa fengið þau svör, að tækin
lægju á hafnarbakkanum, og það
vissi enginn, hvenær þau kæmu
í búðir.
Það er fyrst og fremst skort-
urinn á lömpum í viðtækin, sem
er alvarlegur. Margar tegundir
þeirra eru og hafa um langt skeið
verið ófáanlegar, og svo er um
ýmsa aðra varahluti.
Geta má þess að ríkisstjórnin
lét setja útvarpsviðtækin í hæsta
lúxus-tollaflokk, sem þekkist hér
Einn liður er það í starfsemi
Ríkisútvarpsins að senda viðgerð
armenn út urp, landið á haustm.
Enn hefur ekki verið hægt að
senda slíka viðgerðarmenn héð-
an, sem er bein afleiðing af hin-
um mikla varahlutaskorti hjá
viðgerðastofunni.
virkan jarðbor. Borinn er nú
kominn til landsins, og á að hefja
uppsetningu hans á næstunni.
Með þessu nýja tæki verður
unnt að gera allt að 700 m djúp-
ar holur á gufusvæðum hér á
landi, en þar hafa ekki hingað til
verið boraðar dýpri holur en 220
m. Hinar djúpu holur Hitaveitu
Reykjavíkur eru þrengri én þær,
sem nýi borinn gerir, og ekki bor
aðar á svæðinu, þar sem gufu-
gosa er að vænta. Vonir standa
til þess, að nýi borinn stórauki
möguleika á orkuvinnslu á gufu-
svæðunum á íslandi.
Borgarstjóri gaf skýrslu um
þetta mál á fundi bæjarstjórnar
Reykjavíkur í fyrradag. Nýi bor-
inn er geysimikið tæki og kostar
hingað kominn nærri 12 millj.
króna. Af þessu er aðeins helm-
ingur innkaupsverð borsins í
Bandaríkjunum, eða um 6 millj.
kr. Lán fékkst í Ameríku fyrir
80% af innkaupsverðinu — 4,8
millj. kr. — en afganginn hafa
ríkissjóður og bæjarsjóður þeg-
ar greitt, 600 þús. kr. hvor aðili.
Hinn helmingur kostnaðar-
ins, tæpar 6 millj., eru flutn-
ingsgjöld og kostnaður við
uppsetningu, — en þó að lang
mestiu leyti gjöld í ríkissjóð
og útflutningssjóð. Borgar-
stjóri upplýsti, að gjöldin af
bornum í útflutningssjóð
næmu um 950 þús. kr., en
gjöldin beint í ríkissjóð (toll-
ar, söluskattur o.fi.) um 2,4
millj. kr. alls. Yrðhi þá opin-
ber gjöld um 3,4 miilj. kr.
Hér er verið að gera stórt átak
til að kanna hinar miklu auð-
lindir í iðrum jarðar, sagði borg-
arstjóri, og til að skapa mögu-
leika á nýtingu gufuorkunnar. Sú
orka, sem væntanlega fæst fyrir
starfsemi þessa bors, mundi
skapa þjóðinni ómetanleg verð-
mæti og spara gjaldeyri í stórum
stíl. Það er því óeðlilegt, að af
s;íku nauðsynjatæki séu tekin
gjöld til rikissjóðs, svo að skiptir
milljónum króna.
Af þessum ástæðum hafa bæði
bæjarráð og bæjarstjórn sam-
þykkt að skora á Alþingi og rík-
isstjórn að fella niður eða lækka
verulega gjöld þau, er til ríkis-
sjóðs eiga að fara af þessum jarð-
bor.
Samkv. sameignarsamningi
við ríkiff ákveður Reykjavík-
urbær, hvar borinn verffur
notaffur fyrsta áriff. Kvaffst
borgarstjóri telja sjálfsagt, aff
fyrst yrffi borað í bæjarlandi
Reykjavíkur. Hefur sem kunn
ugt er nýlega fengizt töluvert
vatnsmagn viff Fúlutjörn og
Höfffa. En síffan væri æskilegt
sagffi borgarstjóri, aff borinn
yrffi sendur til Krýsuvikur.