Morgunblaðið - 09.10.1957, Blaðsíða 1
20 síður
Mynd þessi er af Tröllkonuhlaupi í Þjórsá, sem er einn aðalvirkjunarstaðurinn, sem til grein kem-
ur á Suðurlandi.
*
Næsta skrefið: Odýrt raf-
magn frá nýrri sfórvirkjun
Fyisti Varðarfundurinn um from-'
Reykjnvíkur vnr í gærkvöldi
VNDIRBÚNINGUR nýrra raforkuframkvæmda þarf að hefjasl
nú þegar. Til að fá sem ódýrast rafmagn ætti að leggja áherziu
á stórvirkjun — stærri en áður hefur þekkzt hér á landi — sem
seldi hluta af raforkuframleiðslu sinni til nýs iðnaðar.
Þetta eru í fáum orðum niðurstöður Orkumálanefndar Varðar
félagsins, sem lagði fram tillögur sínar á félagsfundi í gærkvöldi.
— Vörður tilnefndi fyrir nokkru nefndir til að kanna og gera til-
lögur um helztu þætti bæjarmálanna. Tillögur nefndanna verða
tæddar á félagsfundum í haust undir samheitinu: Framtíð Reykja-
víkur.
Þessi merka starfsemi hófst í gær, og af því tilefni fluttu ræður
lorvaldur Garðar Kristjánsson formaður Varðar og Gunnar Thor-
oddsen borgarstjóri. Síðan töluðu framsögumenn Orkumálanefnd-
ar: Björgvin Sigurðsson, Eiríkur Briem og Jóhannes Zoéga, og að lok
um voru almennar umræður. Fundurinn var mjög fjölsóttur, enda
ríkir mikill áhugi meðal Sjálfstæðisfólks í Reykjavík fyrir fram
gangi flokksins við bæjarstjórnarkosningarnar í janúar.
Orkumálanefndin gerði einnig tillögur um málefni hitaveitu og
vatnsveitu. Allar tillögur nefndarinnar eru birtar á bls. 2 í blað-
inu í dag, en aðalniðurstöðurnar um tvo síðastnefndu málaflokk-
ana eru þessar:
Bænum verði tryggð aukin hitaorka frá jarðhitasvæðunum. m. a.
úr bæjarlandinu sjálfu. Nýrri tækni verði beitt til að nýta heita
vatnið. Tekjur hitaveitunnar verði auknar með sérstökum við-
skiptum við iðnfyrirtæki um sumartímann.
Endurbótum og aukningum á vatnsveitunni verði hraðað. Gerðar
verði athuganir varðandi sérstaka veitu úr nýjum vatnsbólum
handa vatnsfrekum iðnaði.
Framtíð Reykjavíkur
Þorvaldur Garðar Kristjánsson
sagði í ræðu sinni, er hann setti
fundinn, að Vörður hefði á s.l.
vori skipað 4 nefndir til að fjalla
um ýmsa þætti bæjarmálanna og
skila áliti á félagsfundum. Er
þetta gert til að undirbúa málin
sem bezt, og sá kostur var tekinn,
að hafa ekki í þessum nefndum
fólk úr bæjarstjórnarflokki
Sjálfstæðismanna eða aðra, sem
vinna daglega fyrir bæinn að
þeim málum, sem fjallað er um.
Ættu því að koma fram ný sjón-
armið og nýjar hugmyndir. Skip-
aðar voru nefndir í orku-
skipulags- félags- og atvinnu-
málum. í orkumálanefndinni
voru: Björgvin Sigurðsson héraðs
dómslögmaður (formaður), Eirík
ur Briem rafmagnsverkfræðing-
ur, Hannes Pálsson skipstjóri,
Jóhannes Zoega vélaverkfræð-
ingur, og Páll Þorgeirsson stór-
kaupmaður. Það var þessi nefnd,
sem skilaði áliti og tillögum í
gær, og lauk formaður Varðar
ræðu sinni með því að þakka
henni störfin.
Gunnar Thoroddsen borgastjóri
tók næstur til máls. Hann lýsti
ánægju sinni vegna þessa nýmæl-
is í starfi Varðarfélagsins Síðan
það var stofnað, hefur það verið
allra félaga áhrifaríkast um mál-
efni Reykjavíkur, sagði borgar-
stjórinn. Félagið hefur skipulagt
kosningaundirbúninginn, en
fyrst og fremst látið til sín taka
hinn málaefnalega undirbúning.
Síðan rakti Gunnar Thorodd-
sen þróun málefna Reykjavíkur,
hinar margvislegu framkvæmdir
og framfarir í bænum og þær
vonir, sem Reykvíkingar binda
við framtíðina. Ef hugsjónir og
band flutningaverkamánna í
Bandaríkjunum hefur kjörið
James R. Ho’ffa, forseta sambands
ins. Hlaut hann yfirgnæfandi
meirihluta atkvæða á þingi sam-
bandsins og má geta þess, að
hann hafði þrefalda atkvæðatölu
þess keppinauts sem næst honum
komst.
Forsetakjör fór nú fram vegna
þfss, að stjórn sambandsins
ákvað að reka fyrrverandi for-
seta þess, Dave Beck, er upp
komst að hann hefði framið
margskonar fjársvik og misbeitt
hyggindi haldast í hendur verður
fagur draumur að ljúfum veru-
leika, sagði borgarstjóri að lok-
um í þessari þakkarræðu til
Varðar fyrir nýtt átak til að
vinna Reykjavík til heilla.
Störf Orkumálanefndar
Björgvin Sigurðsson lýsti starfs
háttum orkumálanefndar og verk
efnum. Hann minnti á, hve ómiss
andi er fyrir nútímaþjóðfélag, að
vel sé séð fyrir orkuþörfum þ( ss.
Sogið, aðalorkugjafi Reykvíkinga
er brátt fullnýtt, en undirbún-
ingsvinna og framkvæmdir við
nýjar virkjanir eru tímafrekar,
sagði ræðumaður, og er því tíma-
bært að gera sér nú þegar grein
fyrir, hvar við stöndum. Síðan
las hann tillögur nefndarinnar,
sem birtar eru í Mbl. í dag, en
minnti að lokum á forystu Sjálf-
stæðismanna um framkvæmdir í
orkumálum á undanförnum ár-
um.
Raforkan
Eiríkur Briem flutti síðan ýtar-
lega ræðu um orkumálin almennt,
þá orku, sem fá má á ýmsum
stöðum og úr ýmiss konar orku-
lindum, þörf fyrir hana í Reykja-
vík á næstu árum og helztu ieiðir,
sem til greina koma við vinnsl-
una.
Hann fjallaði fyrst um rafork-
una. Hann sagði m.a.: Jón Þor-
láksson og Steingrímur Jónsson
bentu snemma á, að Sogið gæti
orðið orkugjafi fyrir fleiri en
Reykvíkinga. Þróunin hefur orð-
ið sú, að ríkið hefur gerzt aðili
að þessu fyrirtæki Reykjavíkur
Framh. á bls. 2
valdi sambandsins á vestra hátt.
Fyrir nokkru var Hoffa kvadd
ur fyrir rannsóknarnefnd Banda-
ríkjaþings og kom í ljós við yfir-
heyrslur þar, að ekki væri heldur
allt hreint í poka hans. Þrátt
fyrir það hefur hann nú verið
kjörinn forseti þessa volduga
verkalýðssambands. Sýnir það
svo sterk persónleg áhrif, að hætt
er við að ýmsir fulltrúar séu við
fjársvikamál Hoffas riðnir. Það
er álitið víst, eftir kosningu
þessa, að Bandaríska verkalýðs-
sambandið CIO-AFL muni víkja
sambandi flutningaverkamanna
úr samtökunum.
Hoffa kosánn forseti
Verður sambandi tlufningaverkamanna
vikið úr bandaríska verkalýðssambandinu?
MIAMI BEACH, Florida — Sam-
GervitungUb jbagnar
LONDON, 8. okt. — Radio-skeyt-
in frá gervitunglinu þögnuðu í
morgun. Starfsmenn við opin-
berar rannsóknarstöðvar og radic
áhugamenn hafa hlustað í allar.
dag, en ekkert heyrt. Eru ýmsar
getgátur um, hvernig á þessu
standi.
Það er áhí flestra, að þetta
stafi af þvi að rafhiöður gervi-
tungisins sé j uppcyddar. Max
Planck-rannsóknastöðin í Vest-
ur-Þýzkalandi segir, að þetta
bendi til þess að gervitunglið
hafi vikið frá réttri braut sinni
muni það nú fara að hægja á
sér og falla niður næstu daga.
Enn aðrir halda því fram, að í
gervitunglinu séu radio-móttöku
tæki, sem geri Rússum kleift að
jtjórna útsendingum frá því.
\Iuni þeir nú hafa stöðvað þær
im tíma í tilraunaskyni.
Það var árla morguns á þriðju
dag, sem radio-tónninn frá gervi-
unglinu tók að breytast nokkuð.
í stað stuttra reglulegra hljóða
:om samfelldur en óreglulegur
ónn. Þegar þetta hafði staðið
um stund, stöðvaðist útsending-
in.
Njósnari dæmdur
NEW YORK, 8. okt. — í dag var
Jack Soble dæmdur í 7 ára fang-
elsi fyrir víðtækar njósnir fyrir
Rússa. Hann er innflytjandi frá
Lithaugalandi en giftur rúss-
neskri konu.
Einar Gerhardsen áfram forsætisráðherra
Verkamannaflokkurinn
vann sigur í IMoregi
Fylgishrun kammúnisfa féll fil hans og
hefur hann nú 78 þingsœti
HORSKI Verkamannaflokkurinn vann sigur í þingkosningunum á
mánudaginn. Að verulegu leyti er sigurinn þó fólginn í því að
til hans hefur hrunið um þriðjungur þess fylgis, sem kommúnistar
höfðu í síðustu kosningum 1953.
----•-----
Verkamannaflokkurinn nýtur nú stuðnings 48,3% norsku þjóð-
arinnar, en áður 46,6%. Nemur prósentuaukningin af heildarat-
kvæðum því 1,7%, en það er nákvæmlega jafn mikið og komm-
unistar töpuðu. Fylgi þeirra hrapaði um þriðjung úr 5,3% í 3,4%
at heildaratkvæðum.
Um aðra flokka er það að segja, að Hægrimenn og Bænda-
f'okkurinn bættu við sig atkvæðum og þingsætum en Vinstri
flokkurinn og Kristilegi flokkurinn töpuðu.
í gær var búið að telja í 740 kjördeildum af 744. Voru atkvæða-
'tölur, prósentutölur og þingsæti flokkanna þá sem hér segir sam-
anborið við síðustu kosningar:
1957 1953
Atkv. þús. % þings. Atkv. þús. % þings.
V'erkamnnaf lokkur inn 860 48,3 78 828 46,6 77
Bændaflokkurinn 166 9,4 15 160 9,0 14
Hægri flokkurinn 336 18,9 29 333 18,8 27
Kommúnistar 59 3,4 1 89 5,1 3
Ki-istilegi flokkurinn 182 10,2 12 186 10,5 14
Vinstri flokkurinn 171 9,6 15 177 10,0 15
Kjördeildirnar fjórar sem eftir er að telja í eru á Finnmörk.
Þær eru fámennar og breyta engu.
Það hefur nú komið í ljós, að kjörsóknin í kosningunum var
meiri en ætlað var í gær. Mun hún hafa orðið 0,3% meiri en í
k.osningunum 1953.