Morgunblaðið - 09.10.1957, Side 14

Morgunblaðið - 09.10.1957, Side 14
14 MOnGVlSBl AÐIÐ Miðvikudagur 9. okt. 1957 Hús fil sölu Ágætt hús, sem nota má jafnt sem einbýlishús, sem 2ja íbúða hús, samtals að flatarmáli ca. 120 ferm., á stórri lóð í Kópavogi, er til sölu. Húsið er laust til íbúðar strax. Nánari uppl. gefur Gunnar Þorsteinsson, hæstaréttarlögmaður, Austurstræti 5, sími 1-15-35. Bakarairieísfarafélag Reykjavíkur Fundur verður haidinn fimmtudaginn 10. b.m. kl. 17 í fundarsal félagsins. Fundarefni: Verðlagsmáiin. Stjórnin. Bindindisfélag ökumanna Umferðarvikan Ökuhraði, hemlun, beygjur o.fl. eftir Asbjörn Stefánsson í UMFERÐALÖGUNUM eru á- kvæði um mesta ökuhraða á þjóðvegum og í bæjum. Þó mætti halda að nóg væri að kveða svo á í lögunum, að menn skyldu ætíð gæta varúðar, haga sér eítir aðstæðum og stilla öku- hraða svo í hóf, að menn hefðu ætíð fullt vald á farartækinu. En iöggjaíinn treystir því ekki, að öllum ökumönnum sé ljós sem skyldi eigin geta og hæfni, þess vegna setur hann ákvæði um há- markshraða. Það mælir margt með því að löggjafms hafi hér rétt íyrir sér. Sést það bezt á því, hve mörg umferðarslys stafa af of hröðum akstri. Hraðabá- mark við akstur er ekkert í sum um iöndum, en menn hallast æ meir og meir að því, að nauðsyn- legt sé að setja það. Svo fuli- komnai bílabrautir, að megi kall- ast sem næst öruggar fyrir slys- um, eru óvíða til að verða okkur áreiðanlega ofviða í bráð og lengd. Nýliðarnir meðal ökumanna, einkum unglingarnir, eru oftast haldnir nær óviðráðanlegri löng- un til að aka hratt, og falla líka oft fyrir þeirri freistingu. Þarf enda ekki ökubyrjendur til. En byrjandinn í ökulistinni setur sig vitanlega í sérstaka hættu við hraða aksturinn og lítið verður úr kempunni strax og eitthvað ber út af. Er menn aka á miklum hraða, 90—100 km., verða menn fyrir bæði sálrænum og líkamlegum breytingum. Sálrænu breyting arnar verða oft þær hættulegustu og er hér einkum átt við hina svokölluðu ökuangist („ratpan- ik“), sem getur komið mjög skyndilega í Ijós hjá ökumönn- um sem aka of hratt. Þetta á- stand er oft orsök margra stór- slysa, sem eru kennd því að bíl- stjórinn hafi verið þreyttur, sof- ið við stýrið, jafnvel verið drukk inn o.s.frv. Ástand þetta lýsir sér í því, að ef eitthvað óvænt skeð- ur, er ökumaður er á mikilli ferð, og oft þó ekkert gerist, get- ur hann allt í einu stirðnað upp við stýrið og orðið ósjálfbjarga, jafnframt því sem hann kennir ákafrar hræðslu. Á þessu vill einkum bera, ef menn eru búnir að aka lengi í einu á miklum hraða. Hættulegustu líkamlegu breyt- ingarnar eru í því fólgnar, að sjónsvið manna og sjónskynjun minnkar mjög er upp á mikinn hraða er komið. Við meðalhraða, t.d. 40 km., nær sjónskynjun manna yfir veginn og a.m.k. 90° horn til beggja hliða, en er upp á mikinn hraða er komið, t.d. 90—100 km/t., nær hún lítið ann að en yfir veginn. Dómgreindin minnkar og. Menn hafa ekki svip að því jafngóðan tíma til að bregða rétt við og átta sig. Við miðum hraða bílsins oftast við það, hve langt hann fer á einum klukkutíma (km/t.). Þetta er heppilegt er menn vilja gera sér grein fyrir því, hve lengi menn séu að aka einhverja á- kveðna leið. Hins vegar segir það í rauninni ekki svo mikið um hraðann á veginum á hverju augnabliki. Til þess að gera sér grein fyrir honum er réttara að miða við það, hve langt bíllinn fer á einni sekúndu (sekúndu- hraðinn. m/sek.). Ef við vend- um okkur á að miða hraðann yfir leitt við m/sek., en ekki km/t., og reyndum að gera okkur grein fyrir því, hverjar afleiðingar á- kveðins hraða á m/sek. geta orð ið þá er ekki ósennilegt að við yrðum dálítið aðgætnari al- mennt. Hér er smádæmi, reiknað með 5 metra aukningu á m/sek.-hrað- anum. 5 m á sek. = 18 km á klsé. 10-------------36----------- 15-------------54 — . — 20 — - — — 72 — - __________ Vanalegasta aðferðin við að umreikna km/t. í m/sek. er að deila km/t. með 3,6 (km/t. : 3,6 = m/sek.). Fróðlegt er að athuga, hverju hiaði getur valdið. Hugsum okk ur t.d. að maður aki beint á stein vegg á 40 km. hraða (rúml. 11 m/sek.). Hugsum okkur ennfrem ur að hann væri í opnum bíl og kastaðist út úr honum án þess að reka sig nokkurs staðar í hann. Hve háan og langan boga myndi hann pa kastast í loftinu? Hraði: L bogans: H bogans 40 km. 10 m 2 m 60 — 23 — 3 — 80 — 38 — 5 — Sést af þessu að afleiðingarnar aukast ekki í réttu hlutfalli við hraðann, heldur meira en það. Við getum einnig líkt akstri bílsins á steinvegginn við hrap. Þannig svarar akstur á steinvegg á 40 km/t. til 6 m fallh. 60 — _ 13,5 — — 80 — _ 24 — — 100 — _ 38 _ — eða í síðasta tilfellinu eins og bíll inn hrapaði niður af 10—12 hæða háu húsi. Það er gott fyrir ökumenn að íhuga þetta, ekki sízt fyrir nýlið- ana. Þar sem fólk yfirleitt gerir sér fremur litla grein fyrir hraða á m/sek., má álykta að margir öku menn geri sér heldur ekki grein fyrir þvi, hve oft skortir á að þeir hafi í rauninni fullt vald á bílum sínum. Margir ökumenn gera sér ekki einu sinni grein fyrir því, hve langa leið bíll renn ur frá því að bílstjórinn sér að hann þarf að hemla og þar til í kyrrstöðu er komið, miðað við mismunandi hraða, ýmsar gerðir af vegum og mismunandi færð. Hemlunin skeður ósjálfrátt (auto matiskt), og að hemla vel kem- ur með langri æfingu en lærist ekki við stutt ökunám. En ef lögð væri meiri áherzla á það við ökunám að skýra fyrir nemend- unum og sýna þeim hlutfallið á milli hraða, bremsutíma og á- stands vegar, myndi ökumaður- inn fyrr en ella læra hin réttu viðbrögð og mat, og því bregða oftar, ósjálfrátt, við á réttan hátt. Mjög er 'það áríðandi að öku- maður geti gert sér grein fyrir hraða bílsins og bremsuvega-* lengd er hann ekur á götum eða þar sem mjög mikil umferð er. En margir venja sig á að aka yf- irleitt svo hratt, að þeir tapa með timanum nokkru af hæfni sinni til að gera sér grein fyrir því, hve hratt þeir í rauninni aka. Hafi menn lengi ekið t.d. á 70 km. haða, finnst mönnum varla að þeir mjakist áfram, ef hraðinn er skyndilega minnkaður í 40_____ 50 km. En 50 km. hraði er sama og 13,9 m/sek. og á venjulegum vegi getur bílstjórinn þurft 35— 40 metra frá því að hann sér að Auglýsing Athygli söluskattskyldra aðila í Reykjavík skal vakin á því, að frestur til að skila framtali til skattstofunnar um söluskatt og útflutningssjóðsgjald, svo og farmiðagjald og iðgjaldaskatt samkv. 20.—22. gr. laga nr. 86 frá 1956, fyrir 3. ársfjórðung 1957 rennur út 15. þ.m. Fyrir þann tima bar gjaldendum að skila skattinum fyrir ársfjórðunginn til tollstjóraskrifstofunnar og af- henda afrit af framtali. Reykjavík, 8. október 1957. Skattstjórinn í Reykjavík. Tollstjórinn í Reykjavík. lý tegimd al CHAMPION bilkertum Sannreynf hefir verið að hin nyiu CHAMPION „kraftkveikjukerti" (pow* erfire) gefa endurnýjað bifreið yðar á eftirfarandi hátt: ALLT Á SAMA STAÐ 1. MEIRA AFL Tilraunir, sem verkfræð- ingar hafa gert sanna að bifreiðin eykur afl sitt að mun við notkun nýrra CHAMPION „kraft- kveikjukerta“ (Power- fire). 2. ÖRUGGARI RÆSING Ný 5 grófa CHAMPION „kraftkveikjukerti (Pow- erfire) stytta þann tíma sem fer í að ræsa bílinn. Þannig sparast rafmagn og benzín. 3. MINNA VÉLASLIT Gömul kerti kveikja ekki rétt, eyða benzíninu að ó- þörfu og skemma vélina. CHAMPION sparar yður því einnig viðgerðarkostn að. 4. MINNI KOSTNAÐUR MUNIÐ að skipta þarf Hinaf stórkostlegu nýju um kerti eftir ca. 16.000 „kraftkveikju“ (Power- fire) platínur endast bet- ur en venjulegar. Gjör- nýta afl vélarinnar. km. akstur. Biðjið aðcins um CHAMP ION „kraftkveikju“ (Pow erfire) bifreiðakerti. Laugavegi 118 — Sími 2-22-40 Hf. Egiil Vilhjálmsson Laugavegi 118 Sími 2-22-40

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.