Morgunblaðið - 09.10.1957, Page 20

Morgunblaðið - 09.10.1957, Page 20
VEÐRIÐ Vestan kaldi. Skúrir í göngum Sjá bls. 8. Var hægt oð komast hjá þessu? ÞÓ að það sé sjálfsögð ráðstöfun, skylda hvers og eins, að hafa ljós in á bílnum sínum rétt stillt, er árekstrarhættan ekki úr sögunni. t>essa dagana lesa menn mikið um umferðarmál í blöðunum, svo að það er ekki að undra þó að margt fleira beri á góma í sam- bandi við slysahættuna. Mörg eru þau götuhornin hér í bænum, sem hafa verðui á fulla gát þeg- ar þar er ekið. Mörgum hættir við að líta á rétt sinn á slíkum stöðum þannig að ekki sé nein ástæða til að slá neitt af. — Af þeim sökum hafa orðið ófáir bílaárekstrar. Þessi Volkswagen, sem myndin er af hér að ofan, lenti í árekstri í fyrradag á Flóka götunni. Hann kom fyrir horn, rétt í því að jeppa, sem var í rétti, eins og það er kallað, bar að. Maðurinn í VW sagðist ekki hafa séð til jeppans fyrr en orðið var of seint að forða árekstrin- um. En þegar maður horfir á þessa mynd, vaknar spurningin: Var ekki með neinu móti hægt að komast hjá slíku stórtjóni? A það skal að órannsökuðu máli ekki lagður sérstakur dómur, en í raun og sannleika, skortir mjög á það hjá okkur í umferðinni, að sýna tilhliðrunarsemi, ekki að- eins milli bílstjóra, heldur og milli bílstjóra og gangandi, er nauðsynleg í þessum bæ. T. d. mættu bílstjórar gera meira að því að gefa konum með börn eða börn og barnavagn, oftar tækifæri til að komast yfir götu, en raun ber vitni. — Þjóðleikhús og Sinfóníuhljómsveit bera vott um menningarstig vort, en ekki síður er það menningarvottur aö böðlast ekki áfram í umferðinni, heldur taka ætíð tillit til kring- umstæðnanna. Bandarískur áhrifamaöur r kemur í heimsókn fil Islands f BYRJUN næstu viku mun koma hmgað til lands í tveggja daga heimsókn; einn mesti áhrifa maður í utanríkismálum Banda- ríkjanna. Þetta er öldungadeild- arþingmaðurinn Theodor Francis Green, sem er formaður utanrík- ismálanefndar öldungadeildar- innar. Mr. Green er 91 árs, en þrátt fyrir háan aldur er hann enn í fullu fjöri, skarpur í athugunum og snarpur í störfum. Hann er lögfræðingur að menntun og stundaði nám á sínum tíma bæði í Harvard í Bandaríkjunum og í Þýzkalandi. Hann hefur verið öldungadeildarmaður síðan 1936 fyrir demokrata-flokkinn. Hann er nú að hefja för sína til allra þátttökuríkja Atlants- hafsbandalagsins. Sagði hann við brottförina frá Washington, að hann langaði til að sjá með eígin augum, hverju Atlantshafsbanda- lagið hefði áorkað og hvað gera beri til að styrkja samstarf vest- rænna þjóða. Hann mun dveljast hér á landi í tvo daga, kemur hingað á mánu- dagsmorgun og fer héðan á mið- vikudagsmorgun. Hann mun ganga á fund helztu forráða- manna íslendinga. Einnig mun hann fara til Þingvalla ef veður og aðrar ástæður leyfa. Héðan heldur hann til Osló. Röðull seldi HAFNARFIRÐI. — Röðull seldi í Þýzkalandi (Bremerhaven) í gær 250 tonn fyrir 119 þúsund mörk, en geta má þess, að af afla þessum seldust ekki 45,7 tonn. — Er þetta önnur ferð Röðuls til Þýzkalands að þessu sinni, en sem kunnugt er náði hann metsölu í hinni fyrri. — Hinir hafnfirzku togararnir eru nú á veiðum. Reknetjabátarnir hafa ekki far ið út síðasta hálfan mánuðinn, enda hefir sama og engin veiði verið, og núna síðustu daga ó- hagstætt veður. — G.E. A.5.Í. rœðir viðhorfin til efnahags- og kjaramála MIÐST J ÓRN Alþýðusambands- ins og efnahagsmálanefnd þess, er kosin var á síðasta sambands- þingi, kom saman til fundar hér í Reykjavík 4. og 5. þ.m. Mættir voru fulltrúar úr öllum lands- fjórðungum. Rædd voru viðhorfin í efna- hags- og kjaramálum. Á fundin- um voru ekki fluttar eða sam- þykktar neinar tillögur varðandi þau mál, en fundinum frestað þai til síðar í þessum mánuði. Samþykkt var einróma að fela sömu sex mönnum og kjörnir voru af þessum aðilum sl. vetur að starfa að þessum málum milli funda. Nefndina skipa þessir menn: Eðvarð Sigurðsson; Eggert Þor- steinsson; Hermann Guðmunds- son, Óskar Hallgrímsson; Snorri Jónsson og Tryggvi Helgason. „Ráðstjóniar- «- £• mam ynr Reykjavík GERVIHNÖTTURINN rússneski, | sem fréttastofumenn útvarpsins kalla Ráðstjórnarmánann, en Ameríkumenn Baby Moon, Smá- tunglið og enn aðrir gervitungl- ið, sást héöan úr Reykjavík í Ijósaskiptum í gærmogrun, einnig sást hann frá Keflavíkur- flugvelli, ísafirði og Vestmanna- eyj.um. Hér í Reykjavík voru það starfs menn Veðurstofunnar sem sáu gervihnöttinn klukkan 7, en þá var komin nokkur dagskíma þannig að heita má að þá hafi verið ljósaskipti. Gervihnöttur- inn kom upp á vestnorðvestur lofti, var allhátt á lofti, þó ekki næði hann nærri hvirfilpunkti, og hvarf á vestsuðvestur lofti. Hægt var að sjá hnöttinn með berum augum og taldi einn starfsmannanna, Geir Ólafsson, loftskeytamaður, sig sjá rétt á eftir hnettinum annan depil ílang an í lögun og að það muni hafa verið eldflaugin sjálf. Nokkra stund var fylgzt með hnettinum er hann leið áfram á mikilli ferð. Þá var mjög sæmilega bjart en stundum var eins og hnatt- ljósið dofnaði. Veðurathugunarmenn í Kefla- vík, í Vestmannaeyjum og ísa- firði sögðu Veðurstofunni frá því að þeir hefðu séð til ferða hnattarins. Fjárflutningunum er nú vœntanlega að fullu lokið Fé komið aflur í alla niðurskurðarhreppana FJÁRFLUTNINGUM úr Barða- strandarsýslu og ísafjarðarsýsl- um í Dalasýslu og Strandasýslu er nú lokið. Flutt voru um 12 þús. lömb af Vestfjörðum á þetta svæði. Þessa dagana standa yfir flutningar á fé sem bændur á niðurskurðarsvæðinu kaupa til viðbótar Vestf jarðafénu úr Hvammssveit og Laxárdal og eru það nokkur hundruð. Þar með er f járflutningunum að fullu lokið. Standa þeir ekki fyrir dyr- um næsta ár. — Upplýsingar þessar fékk Morgunblaðið hjá Sæmundi Fríðrikssyni framkv.- stjóra Sauðfjárveikivarna í gær. Flutt í sex hreppa Fjárkaupin voru gerð í Vest- ur-Barðastrandarsýslu ailri, Vest ur-ísafjarðarsýslu og í Norður- ísafjarðarsýslu sunnan Djúps. Þetta fé var flutt á Fellsströnd, Klofningshrepp, Skarðshrepp og Saurbæjarhrepp í Dalasýslu og í hluta Óspakseyrarhrepps eða á fjóra bæi þar og í Bæjarhrepp í Strandasýslu. Sjóleiðis og með bílum Um sjö þúsund fjárins af Vest- fjörðum voru flutt sjóleiðis inn í Hjallanes á Fellsströnd og Skarðs stöð á Skarðsströnd. Var þetta fé af Fjörðunum og úr Djúpinu. Hitt féð, úr Barðastrandarsýslu og Reykjafjarðarhreppi, var bíl- flutt, mestur hlutinn eða um fimm þúsund fjár norður í Bæj- arhrepp og Óspakseyrarhrepp. Flutningarnir gengu sæmilega í flutningum þessum voru 30 bílar og 5 vélbátar. Flutningarn- ir gengu sæmilega eða áfallalaúst. Veður var óhagstætt tvo fyrstu flutningadagana, rigning og hvassviðri. Flutningarnir gengu þó nokkurn veginn eftir áætlun, en veður tafði nokkuð. Nú standa yfir flutningar á nokkr- um hundruðum fjár úr Hvamms- sveit og úr Laxárdal í umrædd- ar sveitir. í Hvammssveit og í Laxárdal var flutt í fyrra fé af Vestfjörð- um. í Dalasýslu og tveim hrepp- um í Strandasýslu, hefur verið fjárlaust í eitt ár. Með þessum síðustu flutningum er væntan- lega að fullu lokið því mikla stríði sem bændur hafa átt í undanfarið, mæðiveikina, og fé aftur komið í alla niðurskurðar- hreppana. Minkur hafði ráðizt á kindirta DYRAVERNDARINN MÓTMÆLIR RLÓÐRAÐI Á SDÐURNESJUM DÝRAVERNDARINN, sem út®--------- kom í gær hefst á greininni Blóð- bað á Suðurnesjum, eftir ritstjór- ann Guðmund Gíslason Hagalín. Er þar sagt frá grindadrápi suður í Njarðvíkum í sumar er leið. Segir blaðið að þar hafi verið höfð í frammi lögbrot, því í íslenzkum lögum sé svo kveðið á að bana skuli öllum dýrum á sem kvalarminnstan hátt. — Við grindardrápið í Njarðvíkum hafi hvorki verið notaðar byssur né grindarsveðjur eins og Færeying- ar nota, heldur hafi allsóvanir menn haft að vopni ljái, beltis- hnífa eða breddur. Hafi menn stungið og skorið af miklum móði en særðir hvalir þeyttu blóð- blöndnum sjóstrókum í loft upp. Átelur blaðið þessar aðfarir harðlega og segir síðan: „Hvernig var það í vetur, þegar sagt var frá hagaleysinu á Austuröræfum? Þá loguðu blaðamennirnir af á- huga fyrir því, að brugðið væri við til bjargar hreindýrunum. En grindhvelin eru sannarlega dýr með heitu blóði og ekki síður næmri tilfinningu en hreindýrin! Þá verður og að krefjast þess af yfirvöldunum, að þau láti ekki blóðbað eins og það, sem fram fór í Njarðvíkunum, vera víta- laust“. Óskar Einarsson læknir heiðurs- féigi S.Í.B.S. f TILEFNI Berklavarnadagsins var Óskar Einarsson, læknir, kjör inn ’heiðursfélagi S.Í.B.S. Óskar var einn af eindregnustu hvata- mönnum að stofnun sambandsins og styrkur stuðningsmaður þess æ síðan. Hann starfaði um margra ára skeið að velferðar málum berklasjúklinga utan og innan heilsuhælis og kom mörgum þeirra á réttan kjöl í lífinu. Hús skemmist af eldi NOKKURT brunatjón varð í gær á húsinu Hrísateig 4 en það er timburhús og kom eldur í stofu í rishæð hússins. Var eldurinn orðinn magnaður er slökkviliðið kom á vettvang. Brunavörðum tókst fljótlega að kæfa eldinn í stofunni, og þaðan breiddist hann ekki út. í stofunni varð tjón á innanstokksmunum, af völdum eldsins, en einnig urðu nokkrar skemmdir í húsinu af vatni og reyk. Eigandi hússins er Haraldur Sigurðsson og býr hann þar. Danskur prófessor í fyrlestrarferð HING A Ð til lands kemur á morgun, 10. þ. m., prófessor dr. theol. Hal Koch í boði Guð- fræðideildar Háskóla íslands. Dr. Koch var skipaður prófessor í kirkjusögu við Kaupmanna- hafnarháskóla árið 1937, en hafði lokið doktorsprófi 1932 með vörn ritgerðar um Origenes kirkju- föður. Hefur hann gefið út ýmis rit kirkjusögulegs efnis, aðallega úr danskri kirkjusögu, auk fjölda ritgerða. Kvæntur er hann Bodil Koch, sem er guðfræðingur að mennt og nú kirkjumálaráðherra Dana. Hér mun hann væntanlega flytja opinberlega einn fyrirlest- ur um Konstantínus mikla mánu- daginn 14. þ. m. kl. 10 f. h., og tvo fyrirlestra um kirkjuna í veraldlegu umhverfi nútímans miðvikudaginn 16. og föstudag- inn 18. þ. m. kl. 10 f. h. Öllum er heimill aðgangur að fyrir- lestrum þessum. (Frá guðfræðideildinni). HOFI, Vatnsdal, 8. okt. — Síðast liðinn sunnudag, þegar smalað var á Hofi, var ein ær alblóðug á kviðnum. Þegar farið var að að- gæta þetta nánar kom í ljós að engu var líkara en að júgur skepn unnar hefði verið margskorið sundur með hníf. Kindinni var slátrað og kom þá í ljós að þetta voru tannaför eftir'. mink. Vitað er að vargur þessi hefur haldið sig við Vatnsdalsá undanfarin ár. Hefur t.d. fuglum fækkað þar mikið, og setja menn það í sam- band við minkinn. Á Blönduósi er sauðfjárslátr- un enn í fullum gangi. Dilkar úr Vatnsdal hafa reynzt óvenju þungir í ár, og er meðal kroppa- þungi víða hér í dalnum 16—17 kg. — Ágúst. Hlutu viðurkenn- in^u fyrir aðgæzlu í akstri EFTIRTALDIR bifreiðaeigendur hafa hlotið viðurkenningu F.Í.B.: R 1010 — eigandi Soffia Classen, Reynistað, Skerjafirði. R 2164 — eigandi Jón Egils- son, Meðalholti 17. R 2737 — eigandi Einar Einars- son, Mánagötu 9. R 2778 — eigandi Svavar Guð- mundsson, Laugaveg 160. R 2805 — eigandi Þórir Þórar- insson, Laugaveg 76. R 5142 — eigandi Guðbjartur Guðmundsson, Njálsgötu 15 A. R 7003 — eigandi Unnur Jóns- dóttir, Eiríksgötu 15. R 8300 — eigandi Björn Ófeigs- son, Vífilsgötu 9. R 8703 — eigandi Bergur Guð- mundsson, Skipasundi 30. R 9173 — eigandi Heiðar Har- aldsson, Tungötu 42. Félag íslenzkra bifreiðaeigenda, óskar þess að réttir eigendur vitji viðurkenninganna á skrif- stofu félagsins að Skólavörðu- stíg 16, en hún er opin alla virka daga nema laugardaga kl. 1—4 eftir hádegi. (Frá F.Í.B.)

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.