Morgunblaðið - 15.10.1957, Page 19

Morgunblaðið - 15.10.1957, Page 19
.Þriðjuífegur 15. október 1957 MO RGUMÍLAfílÐ U 40 þúsurtd skobuðu Ijósmyndasýningu Afmælisháííð Heimis HINNI merku ljósmyndasýningu „Fjölskyldu þjóðanna“ lauk seinni hluta sunnudagsins. Þrátt fyrir geysilega aðsókn að henni var ekki hægt að framlengja hana nema um einn dag, vegna þess að kennsla hófst á mánudag- inn í kennslustofunum sem hún var í. Ljósmyndasýningin sló öll met I aðsókn. Þegar henni lauk höfðu alls 40,866 sýningargestir komið á hana. Er ekki vafi á því, að ef hún hefði getað verið lengur Vegir í V.- Skaftafellssýslu JÓN KJARTANSSON, þingmað- ur Vestur-Skaftfellinga, hefur lagt fram í efri deild tillögu, sem lýtur að breytingum á vegalög- um. Fjallar tillagan um lagningu Péturseyjarvegar og Meðallands- vegar, svo og um vegarstæði Holtsvegar. Leggur flutnings- maður til, að hann liggi af Suð- urlandsvegi austan við Eldhraun um Skaftarbrún vestri að Holti, inn Holtsdal, um Skaftárdal að Búlandi í Skaftártungu. Brunaffón í Kópavogi Á SUNNUÐAG síðdegis varð allmikið tjón að Kópavogsbraut 32, er eldur kom upp í húsinu. Olli hann mestum spjöllum í ris- hæð þess, en tjón varð einnig annars staðar af reyk og vatni. Slökkvilið er ekkert í Kópavogi, en Reykjavíkurliðið sinnir bruna köllum þaðan úr kaupstaðnum. Fór það á vettvang á sunnudag- inn og barðist við eldinn rúma klukkustund, áður en hann varð að fullu slökktur. AKRANESI, 14. okt. — Tveir reknetjabátar lögðu héðan úr höfn um helgina. Annar sneri við, en hin lagði net, en fékk að- eins fáeinar síldar í þau. — O. Félagslíf Handknattleiksdeild KR Æfing í kvöld. Piltar II. og III. flokkur kl. 8,30; stúlkur 9,20. — Piltar, meistara og I. flokkur kl. 10,10. Áríðandi æfing. Mætið vel. hér hefði aðsóknin haldið áfram. Á sýningunni voru rúmlega 500 ljósmyndir víðsvegar að úr heim- inum, sem sýndu atvik úr lífi fólks af öllum kynþáttum. Fyrsfu söluferðir til Bretlands NÚ eru fyrstu togararnir að leggja að staf í söiuferð til Bret- land. Það eru þeir Jörundur sem mun selja afla sinn í Bretlandi á fimmtudag og Karlsefni á föstudag. Það er nú ljóst að siglingar tog- ara á erlenda markaði verða í haust miklu minni en áður. í september var veitt heimild til að selja 10 togarafarma í Vestur- Þýzkalandi. Jafnvel sú heimild var ekki fullnotuð, því að aðeins 7 ferðir voru farnar. Veitt hefur verið heimild til að fara 17 söluferðir til útlanda í október-mánuði og má velja um hvort siglt er til Þýzkalands eða Bretlands. — Svíjb/oð Frh. af bls. 1. flokksins, sem jafnframt er innanríkisráðherra í núver- andi stjórn, lýsti því yfir í dag fyrir hönd flokks sins, að ef jafnaðarmenn gerðu alvöru úr því að bera fram frumvarp um lögfestan ellilífeyri, muni hann og hans flokksmenn slíta stjórnarsamstarfinu. Ef svo færi sem Hedlund boð- ar þýddi það væntanlega, að jafn aðarmenn mynduðu minnihluta- stjórn. Sú stjórn myndi þá leggja fram frumvarpið og þegar það yrði fellt myndi hún rjúfa þing og efna til nýrra kosninga, lík- lega í janúar. Virðist nú sem flokkarnir nema jafnaðarmenn, séu farnir að reikna með kosn- ingum í vetur. SÍÐASTLIÐIÐ laugardagskvöld minntist Heimir, félag ungra Sjálfstæðismanna í Keflavík 10 ára afmælis félagsins með sam- komu í ungmennafélagshúsinu. Var hátíð þessi vel sótt og hin ánægj ulegasta. Formaður félagsins, Kristján Guðlaugsson, setti samkomuna með ávarpi, en Sigurður 'Stein- dórsson kynnti síðan dagskrár- atriði. Ræður fluttu formaður Sjálf- stæðisfiokksins Ólafur Thors, alþm., og Eyjólfur K. Jónsson, lögfræðingur, sem flutti kveðju frá stjðrn Sambands ungra Sjálf- stæðismanna. Var ræðumönnum mjög vel fagnað. Guðmundur Jónsson, óperu- söngvari, söng nokkur lög við undirleik Fritz Weisshappel og Karl Guðmundsson, leikari skemmti með gamanvísum ogj eftirhermum. Að lokum var stig- J inn dans. — Truflanir Frh. af bls. 1. hvorki meira né minna en 60 rússneskar trufiunarstöðvar. Á morgnana eru þær miklu færri, oft um 20 talsins. Rússnesku truflunarstöðvarnar taka yfir mjög breitt svæði á bylgjubandinu, miklu breiðara en venjulegar útvarpsstöðvar Þær nota ekki kallmerki og senda út á bylgjulengdum, sem Rússar hafa ekki leyfi til að nota skv. alþjóðasamkomulaginu um bylgjulengdir. Tekizt hefur að miða sumar stöðvarnar og staðsetja þær ná- kvæmlega og hafa Rússum þá verið send mótmæli vegna starf- rækslu þeirra, en slíkum athuga- semdum hafa þeir ekki svarað. Mun þetta mál verða tekið upp á alþjóða bylgjulengdarráðstefn- unni ,sem haldin verður í júlí 1959. Volvoeigendur Áformað er að efna til félagssamtaka þeirra er eiga Volvo-fólksbifreiðar. Ákveðið hefur verið að boða til stofnfundar á Café Höll, uppi, þriðjudaginn 15. október kl. 8,30 síðdegis. Undirbúningsnefndin — Sljórnin. Sunddeild K.R. Sundæfingar eru í Sundhöllinni í kvöld kl. 7, fyrir börn og 7,30 fyrir fullorðna. Helga Haraldsdótt ir hefur verið ráðin þjálfari í vet ur. — Stjórnin. Skrifstofustúlka vön vélritu nóskas tum þriggja vikna skeið. — Uppl. í síma 15363 eftir hádegi. Knattspyrnufélagið Þróttur Aðalfundur félagsins verður haldinn í skálanum við Ægissíðu, sunnudaginn 20. október kl. 2,00. 1. Venjuleg aðalfundarstörf. — 2. Önnur mál. — Stjórnin. Aðalfundur sunddeildar K.R. verður haldinn þriðjud. 29. okt. k.. 8,45 e.h. í Félagsheimilinu. — Fundarefni: Venjuleg aðalfundar Störf. — Stjórnin. Mínar innilegustu þakkir færi ég eigendum Klæðav. j Álafoss hf., samstarfsfólki minu, skyldmennum og svo i mörgum öðrum, fyrir mjög rausnarlegar gjafir, kveðjur og margvíslega vinsemd og hjáip auðsýnda mér á 60 ára afmæli mínu. Jakobína Jóhannesdóttir, Álafossi. Kaup-Sala 3 notaðar amerískar Linoíype setjaravélar model 8, tvær 2-magasin, ein 3- magasin, með steypumótum og mótastykkjum ásamt rafmótor fyrir víxlstraum, Engilkap bræslu pottur ásamt nýju Polytype létt- málms-magasini, til sölu með sanngjörnu verði, sé samið strax. Svar merkt: K. 21, sendist Wolffs Box, Köbenhavn K. S<nimkoivtur K. F. U. K. — Ad. Fundur í kvöld kl. 8,30. Bjarni Eyjólfsson, ritstjóri talar. — Allt kvenfólk hjartanlega velkomið. Alúðar þakkir til allra, er sendu mér skeyti, blóm og gjafir á sjötugsafmælinu og veitt hafa mér gestrisni og einlægan vinarhug í sumar. Aftur einlægar þakkir til allra nær og fjær. Jón Ólafsson (Stál.) Mínar beztu þakkir sendi ég ykkur öllum vinum og vandamönnum fjær og nær, sem heimsóttu mig á sjötugs afmæli mínu 10. október og á annan hátt glöddu mig með gjöfum, skeytum og hlýju handtaki og gerðu mér daginn ógleymanlegan. Guð verndi ykkur öU. Björg H. Bjarnadóttir. Þakka hjartanlega auðsýnda vinsemd á sextugsafmæli mínu. Franziska Sigurjónsdóttir. Alúðar þakkir til allra þeirra, sem glöddu mig mcð heimsóknum, gjöfum og heillaskeytum á sjötugsafmæli mínu 25. september síðastliðinn. Soffía Jósafatsdóttir. Öllum þeim, sem með heimsókn, dýrum og merkum gjöfum, heillaskeytum og öðrum vinahótum færðu birtu og yl inn í sál mína og inn á heimili mitt 7. október sl., sendi ég hér með mitt innilegasta þakklæti og vinar kveðju. Ég bið algóðan guð að standa vörð um velferð ykltar og launa ykkur, þegar mest á ríður. Lifið öll heiL 10. október 1957. Hannes Guðbrandsson, Hækingsdal, Kjós. Móðir mín JÓHANNA INGIMUNDARDÓTTIB frá Tannanesi, andaðist í Landsspítalanum aðfaranótt 12. þ. mán. Fyrir hönd systkina minna og annarra vandamanna Fanney Guðmundsdóttir. ODDNÝ JÓNSDÓTTIR, Borgarnesi, verður jarðsungin miðvikudaginn 16. október. Húskveðja hefst kl. 13,30. Vandamenn. Útför konu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu INGVELDAR ERASMUSDÓTTUR frá Krossanesi, fer fram frá Fossvogskirkju miðviku- daginn 16. þ. m. klukkan 1,30 e. h. Auðun Jóhannesson, Páll Guðmundsson, Jóna Ólafsdéttir, Guðni Guðmundsson, Sigrún Oddgeirsdóttir og barnabörn. Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför föður okkar EINARS JÓNSSONAR Njálsgötu 69 Fyrir hönd okkar systkinanna Sigurður Einarsson. Innilegustu þakkir færum við öllum þeim, sem auð- sýndu samúð og veittu margvíslega hjálp við andlát og jaarðarför frænku okkar GUÐRÚNAR ÁRNADÓTTUR frá Ölvisholtshjáleigu í Holtum. Guð blessi ykkur og launi ríkulega. Fyrir hönd ættingja. Margrét Árnadóttir, Laugaveg 99.. Þökkum innilega öllum, sem auðsýndu okkur samúð við andlát og jarðarför móður okkar MARGRÉTAR ÞÓRÐARDÓTTUR, frá Mjóafirði, sem lézt að heimili sínu Þórsmörk, Nes- kaupstað, þ. 24. september. Matthildur G. J. Jónsdóttir, og fjölskylda, Þórarinn Jónsson, Borgþór M. Jónsson. Þökkum innilega fyrir auðsýnda vináttu og samúð við fráfall og útför SIGRÍÐAR KORNELÍUSDÓTTUR Óskar Sigurðsson, Jóhanna Óskarsdóttir, Kornelía Óskarsdóttir, Jóhanna Gísladóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.