Morgunblaðið - 18.10.1957, Síða 15
Föstudagur ÍB. októfoer 1957
MORGVISBL 4Ðlb
15
— Gagnfræðanám
Framh. af bls. 11
•itt til að fága háttu unglinga
sinna, brestur oft mikið á, að
það sé gert nógu ýtarlega, og
kerfisbundin kennsla í þessari
grein er sjálfsögð. Undir þessum
kennslulið mætti t.d. taka þér-
ingarnar til meðferðar, en marg-
ir bera nú þunga áhyggju út af
því, að sú góða list sé að líða
undir lok og brenglast á herfi-
legasta hátt. Þessi kennslugrein,
umgengishættir, er vinsæl hjá
flestum nemendum, ekki sizt
þeim, sem komnir eru á þann ald
ur, sem venjulegur er í 4. bekk.
— ÍÞKÓTTIR -
Verklegar gretaar
£g mun ekki hætta mér út &
þann hála is að fara að ræða hér,
hvaða verklegar kennslugreinar
væri þarflegast og mögulegt að
kenna í gagnfræðadeildum,
Saumar ýmiss konar, matreiðsla
og smiðar munu nú vera algeng-
ustu greinarnar, sums staðar
undirstöðutriði í meðferð biívéla,
og þyrfti svo að vera alls stað
ar. Fjölmargar aðrar verklegar
greinar væru efalaust æskilegar,
en víða brestur skólana bæði fé
og húsnæði til mjög fjölbreyttr-
ar verkkennslu.
Ekki hefur heldur verið rann-
sakað til fulls hvaða kennslu
greinar verklegar væri mögulegt
að taka upp í sambandi við helztu
atvinnugreinar á hverjum stað
t.d. sjávarútveginn í útgerðar
bæjum. En full þörf væri á því,
að skólarnir fengu aðstöðu til
þess að vekja áhuga nemenda
sinna á helztu atvinnuvegum átt
haga sinna og fæðingarbæja
kenna þeim undirstöðuatriðin og
gefa þeim beinlínis kost á að
taka þátt í vinnunni á staðnum
nndir tilsögn og leiðbetaingu
verkfróðra manna á þessu sviði.
Víst er um það, að ekki veitti
sjávarútvegi vorum af því, að
uppvaxandi æska vildi rétta hon
um örvandi hönd, en svo virðist
sem hugur ungra manna
standi nú til flestra atvinnuvega
fremur en sjávarútvegs.
Gildi og virðtag
gagnfræðanámsins
Ég hefi gerzt hér svo fjölorður
um gildi gagnfræðanáms og
gagnfræðaprófs, að nauðsynlegt
virðist, að þetta námsstig haldi
sinni fornu virðingu, og það
verður ekki með öðrum hætti bet
ur gert en að kappkosta að nám-
tð verði sem nytsamlegast og eft-
irsóknarverðast í augum góðra
nemenda, sem ná vilja góðri
undirbúningsmenntun og hyggja
ekki á sérnám eða langskólanám.
Skal það þó tekið fram i því
sambandi, að gagnfræðanám er
nauðsynlegur undirbúntagur að
ýmsum greinum séraáms. Það er
nauðsynlegt að benda glögglega
á það, að ungltagapróf og mið-
skólapróf eru ekki lokapróf gagn
fræðaskólanna, heldur gagnfræða
prófið. Það skiptir miklu máll,
að nemendur með gott gagnf ræða
próf gangi fyrir þeim, sem ekkl
hafa lokið gagnfræðaskólanámi
við ýmsar stöðuveitingar, og
skólunum ber þar af leiðandi
skylda til að gera sér far um
að undirbúa gagnfræðtaga þann-
ig, að þeir séu sem eftirsóttastir
starfsmenn til ýmlssar optaberr-
ar þjónustu, skrifstofu- og versl-
unarstarfa, póst- og sámaþjónustu
O. s. frv.
Htas vegar verður að varast of
mikla sérhæfingu í þessu námi.
Fyrst og fremst á gagnfræðanám-
Ið að vera almennur nndirbún-
tagur undir lífið og venjuleg
störf í þjóðfélaginu. Hinura ungu
verður að tanræta, að menntun
ina á ekki að meta til pentaga,
heldur þess þroska og andlegrar
víðsýnl, sem hverjum siðuðum
manni er nauðsynleg til þess að
losna undan þrældómsoki van-
þekkingartanar og fáfræðinnar.
öllum verður að skiljast gildi
hinna fornu spádómsorða: „Sann-
leikurinn mun gera yður frjálsa",
Ragnar Jóhannesson.
BRÉF
sent íþrótfasíðunni
Vel heppnuð för KR
til Helsingör
Íþróttasíðunni hefir bórizt eft-
irfarandi bréf frá Helsingör:
EINS OG FLESTIR sjálfsagt vita
heimsóttu handknattleiksflokkar
KR Helsingör fyrir stuttu. Þetta
var í fyrsta sinn, sem Helsingör
IF átti að taka á móti íslenzkum
gestum og að sjálfsögðu vorum
við mjög eftirvæntingarfullir.
Spurningin var, hvort íslenzk
æska stæði danskri jafnfætis í-
þróttalega séð og hvort islenzka
handknattieiksfólkið myndi
kunna við sig á þeim dönsku
heimilum, sem því var ætlað að
dveljast á, meðan á heimsókninni
stæði.
Meðan á heimsókn KR-inganna
stóð, sáum við strax frá byrjun
að allt myndi fara vel. ísienzka
handknattleiksfólkið, sérstak-
lega kvenfólkið, vann strax hylli
okkar manna, vináttubönd voru
tengd, vinátta, sem ekki tekur
tillit til hinnar miklu fjarlægðar
milli landanna. Við erum þess
fullvissir, að fjöldi meðlima Hel-
singör IF fer til Islands næsta
vor.
Við vorum mjög undrandi yfir
getu KR-inga í handknattleik. —
Þekking okkar á islenzkum hand
knattleik var ekki mikil, þar sem
ísland hefur ekki tekið mikinn
þátt í handknattleik á alþjóða-
vettvangi, en við glöddumst yfir
því, að KR-ingarnir lögðu sama
skilning í leikinn og við. Að vísu
tókst KR-ingunum ekki að sigra
okkur í þetta skipti, en við erum
þess fullvissir, að þeir og þjálf-
ari þeirra, Frímann Gunnlaugs-
son, hafa lært það mikið í för
sinni, að við getum reiknað með
harðri keppni, þegar Helsingör-
liðin koma til Reykjavíkur næsta
sumar. Eftir heimsókn KR til
Helsingör sigruðu þeir 2. deild-
arlið auðveldlega og það sýnir
styrk þeirra. Við reiknum með
góðri frammistöðu íslendinga í
heimsmeistarakeppninni í vetur,
þó að það hói þeim að þurfa að
leika í stærri sal, en þeir eru van
ir.
Nú er nokkur tími liðinn síðan
KR kvaddi okkur hér, en sam-
vinna sú, sem nú er byrjuð milli
landa okkar hefir fengið svo góð
an byr, að vonandi kveðjumst
við ekki oftar öðru vísi en með
orðunum „hittumst heil aftur“.
Hér I Helsingör minnumst við
oft skemmtilegra samverustunda
með vinum okkar frá Sögueyj-
unni, og heimilin, sem hýstu í-
þróttafólkið vilja gjarnan fá svo
góða gesti aftur; og betri með-
mæli getur þetta unga íþrótta-
fólk ekki fengið í þessum bæ.
Ég lýk foréfi mínu með því að
þakka fyrir heimsóknina og vona
að við hittumst heil í maí 1958 í
Reykjavík.
Per Krogh.
— Akureyrarbréf
Framh. af bls. 6
kvæmt niðurjöfnunarskrá greið-
ir það af eigin rekstri harla lítið,
eða nær ekkert.
Búast má við að Olíufélagið
hf. beri um 100 til 150 þús. króna
útsvar, en það greiðir á Húsa-
vík um 40 þúsund og þvi ekki
óeðlilegt að það sé um þrisvar
sinnum hærra hér eða meira sök-
um þess hve sölusvæðiðerstærra.
Greiði svo Tóbakseinkasalan og
Viðtækjaverzlunin í sameiningu
fast að 200 þúsundum, en Kaup-
félagið sjálft útsvarsfrítt. Það má
benda á að félagið hefir milli
20 og 30 verzlanir í bænum, auk
iðnrekstrar, rekstrar gistihúss og
frystihúss og margs fleira.
Er þá furða að öllu þessu at-
huguðu þótt skattborgarar Akur-
eyrar hafi eitthvað út á þetta að
setja og óánægjuraddir heyrist
út af jafnhróplegu ranglæti sem
þessu? — vig.
Fyrirlestur
HAROLD ATKIN, verkalýðs-
málafulltrúi brezka sendiráðsins
í Helsinki, sem jafnframt starf-
ar að þeim málum hjá brezku
sendiráðunum í Noregi og hér á
landi, flytur fyrirlestur í Tjarn-
arbíói á laugardaginn kemur og
talar um verklýðsfélög í nútíma
þjóðfélagi.
Fyrirlesturinn verður fluttur
á ensku, en þýddur á íslenzku.
Að honum loknum verður sýnd
kvikmynd, sem nefnist: Brezkt
verkalýðsfélag. Hefst fyrirlestur'
inn kl. 2 og er aðgangur ókeypis
og öllum heimill.
Félagslíf
DACSKBÍ
fjrrir bandaríska þjálfarann I
körfuknattleik, hr. John S. Nor-
lander. — Tímabilið: 14.—20.
október 1957 —
Föstudagur 18./19. kl. 4,45—6,00
Æfing hjá Iþróttafélag Stúdenta,
Háskóiinn; kl. 6,50—8,30 Æfing
hjá I.R., Hálogalandi; kl. 9,15—
10,30 Fyrirlestur og kvikmynda-
sýning, Laugaveg 13, 5. hæð.
Laugardagur 19./10. Ki. 3,30—
5,10 Æfing hjá GOSA, Háloga-
landi; kl. 6,17—7,00 Æfing hjá
Körfuknattl.fél. GOSA, Melask.
kl. 7,15—9,00 Æfing hjá ÁR
MANN í Iþróttah. J. Þorsteins.
Sunnudagur 20./10. Kl. 10,50—
11,40 Æfing hjá GOSA að Há-
logalandi; kl. 1,20—21,10 Æfing
hjá ÁRMANN að Hálogalandi
kl. 2,40—4,20 Æfing hjá K.R.
K.R.-húsinu; kl. 4,35—5,30 Æfing
hjá I.R. að Hálogalandi.
H afnarfjörður
Unglinga eða eldri mann vantar til að bera blaðið
út í hálfan vesturbæinn. — Hátt kaup.
Talið strax við afgreiðsluna Strandgötu 29.
JPtOfgttltfelstMft
Telpa
getur fengið vinnu við sendiferðir
á skrifstofu vorri.
JHorgunfrlafeifr
(Bókhald ~ Sími 2-24-80)
Beztu þakkir til allra ættingja, vina, félaga og einstakl-
inga, sem sýndu mér margskonar sóma á 60 ára afmæli
minu 8. þ.m. og gerðu mér daginn ógleymanlegan.
Guðlaug Narfadóttir.
Hjartans þakkir til allra sem heiðruðu mig með heim-
sóknum, gjöfum og skeytum þann 13. þ.m. á 60 ára af-
mæli mínu.
Herdís Sigurðardóttir
Smyrilsveg 26.
Hjartanlega þakka ég öllum, fjær og nær, sem með
gjöfum og hlýum kveðjum glöddu mig á áttatíu ára af-
mæli mínu þann 9. þ.m..
Guð blessi ykkur ölL
Sigurlaug Krlstjánsdóttlr,
frá Örlygsstöðum.
Innileg þökk til allra kvenna og karla fyrir bækur eg
blóm, handtök og heiUaskeyti í tilefni afmælis mins 24-
f.m. Sér í lagi vil ég þakka samverkamönnum minum
tollvörðunum, ágætar óskir og afmælisgjöf.
Reykjavík, 11. október
Har. S. Norðdahl.
Minar innilegustu þakkir færi ég öllum ættingjum og
vinum, sem glöddu mig með gjöfum, heimsóknum og
skeytum á 70 ára afmæli mínu 12. þ. m. og gerðu mér
daginn ógleymanlegan.
Guð blessi ykkur ölL
Hafliði Ólafsson,
frá Keflavík.
íbúð tíl söln
miililiðalaust. íbúðin er á hitaveitusvæði á bezta
stað í bænum, 3 herb. og eldhús, ásamt geymslum
í kjallara. Uppl. í síma 24651 eftir klukkan 6.
Atvinna
Tveir bifvélavirkjar, eða menn vanir bílaviðgerð-
um geta fengið atvinnu strax.
Uppl. á Skoda-verkstæðinu við Kringlumýrarveg,
simi 3-28-81.
Röskur sendisveinn óskast nú þegar.
Vinnutími frá 9—6.
JltagtiiiMtiMfc
Stúlka
Dugleg stúlka, óskast til afgreiðslustarfa. — UppL
um menntun og fyrri stikf sendist blaðinu merkt:
„Sérverzlun — Miðbær 3034“.
Innilega þökkum við öllum, sem auðsýndu okkur sam-
úð við andlát og jarðarför
GÍSLA MAGNÚSSONAR
Grænuhlíð, Ólafsvik. — Fyrir hönd aðstandenda.
Anna Guðmundsdóttir.