Morgunblaðið - 24.10.1957, Page 2

Morgunblaðið - 24.10.1957, Page 2
2 MORnrnvnr 4ðið Flmmtudpgur 24. okt. 1957 Oþurrkalán verði gefin eftir Páll Zóphóníaison lelur sveifasfjórnir hafa brugðizf hlufverki sínu í GÆR kom til fyrri umræðu í sameinuðu þingi tillaga þeirra Ingólfs Jónssonar og Sigurðar Ó. Ólafssonar, um að gefin verði eftir að fullu lán að upphæð 10% milljón kr. vegna óþurrka á Suður- og Suðvesturlanái 1955 og enn- fremur allt að 3 millj. kr. lán vegna harðinda og óþurrka á Austur- og Norðausturlandi 1949—1950. Bjargráðasjóði afhent lánin Ingólfur Jónsson mælti fyrir tillögunni. Kvað hann svipaða tillögu, er sömu menn fluttu í fyrra, ekki hafa fengið stuðning stjórnarflokkanna. Hún hefði pó borið þann árangur, að nokkur hluti af hallærislánum til bænda á Auslurlandi var gefinn eftir og að stjórnin aflaði sér heimildar til að mega afhenda bjargráða- sjóði þær skuldakröfur, sem fjall að er um í tillögunni, er nú ligg- ur f.vrir. Hinn 26. apríl i vor ritaði fjár- málaráðuneytið bjargráðasjóði um málið, afhenti honum kröfurn ar, en setti um leið viss skil- yrði. Skyldi þeim lántakendum, er þess óska, veittar ívilnanir um greiðslu vaxta og afborgana, svo sem með því að lækka eða fella niður vexti, lengja lánstímann eða gefa lánin eftir að einhverju eða öllu leyti, ef sjóðsstjórnin telur þess þörf að fengnu áliti hlutaðeigandi sveitarstjórnar. Með þessu bréfi er gengið til móts við þau sjónarmið, er flutn- ingsmenn þingsályktunartillög- unnar hafa í málinu. Hins vegar eru farnar miklar krókaleiðir og stjórn bjargráðasjóðs fengið ill- leysanlegt verkefni. Skuldabréfin eru bjargráða- sjóði lítilsvirði, því að vafalaust munu sveitastjórnir mæla með eftirgjöfum lánanna. Aðferðin, sem beita á, er þó mjög hvimleið, og þarf hennar vegna að fara fram vandasamt mat á aðstæð- um, er leitt getur til misræmis og leiðinda manna á milli. Hafa sveitastjórnir brugðizt skyidum sínum? Páii Zóphóniasson kvaðst telja, að lánsfé þetta gæti komið bjarg ráðasjóði að góðu gagni og að í hópi lántakenda væru margir ríkir bændur. Ingólfur Jónsson benti Páli á, að lánin voru á sínum tíma ekki veitt öðrum en þeim, er sveita- stjórnir töldu, að þyrftu þeirra með. Kvaðst hann ekki vilja Á FUNDI sameinaðs þings í gær var rætt um þingsályktunartil- lögu um brunavarnir (sjá Mbl. 18/10). Flutningsmaður, Benedikt Gröndal, minnti á, að tíð bruna- tjón á atvinnutækjum á síðustu árum hefðu vakið ugg lands- manna. Á árinu 1956 hefðu trygg- ingarfélög greitt um 17 millj. kr. í brunabætur, en á pessu ári hefðu orðið 4 stórbrunar og væru bætur vegna þeirra einna 10—12 millj. kr. Ræðumaður taldi víða vei sóð fyrir slökkviútbúnaði hér á landi, en ráðstafanir til að koma í veg fyrir, að eldur kæmi upp væru hins vegar skemmra á veg komn- ar. í tilefni af fyrrispurn frá Páli Zóphóniassyni upplýsti flutnings- maður loks, að til væri í Hafnar- firði stofnun, kostuð af Bruna- bótafélaginu, er hefði eftirlit með drótta því að sveitastjórnunum, að þær hefðu mælt með lánum til auðugra manna, sem reyndar myndu vart finnanlegir á þess- um svæðum. Páll Zóphóníasson stóð upp á nýjan leik og kvað Ingólf Jóns- son hér tala gegn betri vitund — myndi hann vita, að ýmsar sveita stjórnir í nágrenni við hann hefðu farið eftir öðrum sjónar- miðum en hann talaði um, er þær gerðu tillögur um lánveitingar. Ingólfur Jónsson tók enn til máls og mótmælti harðlega að- dróttunum Páls í garð sinn og sveitastjórnanna. Kvaðst hann ekki þekkja til annars, en sveita- stjórnir hefðu haft þau sjónarmið að leiðarljósi, er hann hafði áður lýst. Bjarni Benediktsson benti á, að þau ummæli Páls Zóphóníasson- ar, að Ingólfur Jónsson hefði tal- að gegn betri vitund væru óþing- leg og ætti forseti að víta þau. Spurði ræðumaður forseta, Emil Jónsson, hvort hann hefði aðra skoðun á því, hvers konar orð- bragð það væri, er Páll viðhafði. Fékkst forseti ekki til að svara, þótt eftir væri gengið. Macmillan liitti Eisenhower í gær- kvöldi WASHINGTON 23. október. — Macmillan er kominn til Was- hington til viðræðna við Eisen- hower forseta. Á flugvellinum tók Dulles utanríkisráðherra á móti Macmilla* og sagði Dulles við það tækifæri, að viðræður næstu daga væru ekki einungis miðaðar við það að verða Bret- landi og Bandaríkjunum heilla- drjúgar — heldur öllum hinum frjálsa heimi. Macmillan sagði, ag markmið Breta og Bandaríkj- anna væri að vernda frelsið í heiminum. Áttu þeir Macmillan og Dulles langar viðræður síðdegis í dag_ og fund þeirra sat einnig brezkí utanríkisráðherrann Selwyn Lloyd, en hann fór með Elíabetu drottningu vestur um haf á dögun um og beið Macmillans á flugvell inum. Mun hann taka þátt i við- ræðunum. f kvöld munu þeir allir hitta Eisenhower að máli. ALEXANDRlA, 23. október. — í Morgun varð árekstur á Siíez- flóa. Annað skipið, 9 þús. lesta, sökk og fórust tvelr af 90 manna áhöfn. þessum málum, en starf hennar væri nær eingöngu fólgið í eftir- liti með slökkvitækjum. Bjarni Benediktsson tók til máls og kvað það skoðun sína, að hér væri mikilsverðu máli hreyft, er skylt væri að veita at- hygli. Þótt talað væri um, að vá- tryggingafélög bættu brunatjón, væri það sjaldan svo, að fullar bætur fengjust, ■— sízt fyrir þau óþægindi, sem af brunum leiddu. Ennfremur væru afleiðingar tíðra bruna, þær að iðgjöld væru ó- eðlilega há og loks stafaði lífi og heilsu fólks mikíl hætta af vanrækslu á sviði eldvarna. Bjarni kvaðst hafa heyrt, að nokkur vandkvæði hefðu verið á því að undanförnu að fá nauð- synlegan vökva á slökkvitæki, en brýn nauðsyn bæri til að útbún- aður sem þessi væri jafnan í góðu lagi. Skoraði ræðumaður því á viðkomandi yfirvöld að sjá til þess, að úr yrði hætt. Slysið á Borgartúni VIÐ áframhaldandi rannsókn á dauðaslysinu á Borgartúni á þriðjudagsmorguninn, hefur það m.a. komið fram að þeir strætis- vagnastjórar sem óku um Borgar- túnið um líkt leyti og vagninn sem maðurinn varð fyrir, telja sig ekki hafa séð hann. í blaðinu í gær misritaðist breidd Borgar- túns. Var gatan sögð 40 m breið, en átti að standa 7—8 m, p.e.a.s. malbikaða svæðið. Götuljósin voru biluð þennan morgun. Mæl- ingar rannsóknarlögreglunnar leiddu I ljós að hemlaförin eftir bílinn voru ekki ýkjalöng, en götulögreglan hafði mælt þau 16 m. Frá Alþingi Fundur var í gær í sameinuðu Alþingi. í upphafi fundar vottuðu þing- menn Ungverjum virðingu sína og samúð í tilefni af ársafmæli byltingarinnar. Síðan var gengið til dagskrár og rætt um eina fyrir spurn og 2 þingsályktunartillög- ur. Er frá þessu sagt annars stað- ar í blaðinu. Fram voru lögð 8 ný þingskjöl, þ.á.m. frumvarp um veltuútsvör flutt af Bimi Ólafssyni og tillaga um endurskoðun laga um bygg- ingarsamvinnufélög flutt af Magn úsi Jónssyni og Jóhanni Hafstein. Fyrirspurnir eru komnar fram um togarakaup frá Sigurði Bjarnasyni, um lántöku til hafn- argerða frá Magnúsi Jónssyni og um framkvæmd tillagna íslenzk- skandínavisku samgöngumála- nefndarinnar frá Magnúsi Jóns- syni. Þingskjalanna verður getið í blaðinu á næstunni. Bærinn kaupir Höfða BÆJARRÁB samþykkti á fundi sínum á þriðjudaginn að kaupa húsið Höfða ásamt lóð þess. Höfði er sem kunnugt er timbur- hús það sem stendur niðri við sjóinn í Höfðavík, fyrir neðan Borgartún, skammt frá skrifstof’U byggingunni við Borgartún 7. Bærinn kaupir húsið því beint í gegnum það verður lögð strand- gata, Sætúnið er það verður fram lengt. Þá hefur sem kunnugt er fundizt heitt vatn beggja vegna húslóðarinnar og hugsazt getur að leitað verði innan lóðarinnar eftir heitu vatni. „Vinnum aldrei með kommún- istum44 LONDON 23. október. — Tals- maður brezka verkamannaflokks ins skýrði svo frá í dag, að flokk- nrinn hafnaði algerlega till. Krú- sjeffs um viðræður flokkanna um ástandið fyrir botni Miðjarðar- hafsins. Sagði hann, að flokkur- inn hefði alltaf tekið það skýrt tram, að samvinna við kommún ista kæmi aldrei til greina. Auk þess gæti flokkurinn sem stjórn- arandstöðuflokkur ekki átt við ræður við stjórnir erlendra ríkja um málefni, sem varðar sam skipti Bretlands á alþjóðavett- vangi við ríkisstjórnir annarra landa. Enda þótt bréf Krúsjeffs sé sent í nafni kommúnistaflokks ins þá megi telja það komið frá stjóminni. í svari, sem jafnaðarmanna- flokkurinn í V Þýzkalandi hefur sent Krúsjeff vegna sams konar bréfs, er Krúsjeff hvattur til þess að standa við hlið annarra þeirra, er vilji draga úr spennunni í lönd unum fyrir botni Miðjarðarhafs- ins. Bætl um brunovurnir ú Alþingi Fréttir i stuttu máli BUENOS Aires, 23. október. — Eðlilegt horf er nú að komast á allt líf í Argentínu eftir að skor- izt hefur í odda með ríkisstjórn- iimi og iðnaðar- og verkamönn- um. Mikil verkföll hafa verið að undanförnu, en í dag hurfu nær allir til vinnu að undanteknum iðnaðarmönnum í mörgum verk- smiðjum. Hermenn aka þó enn strætisvögnum — og hefur ör-' yggislögreglan verið efld eftir að ráðizt var á hermann, sem ók strætisvagni í borginni, og honum veitt banaskár. BEIRUT 23. október. — Arabíska fréttastofan skýrir svo frá, að talsmaður sýrlenzka utanríkis- ráðuneytisins hafi sagt í kvöld, að hermenn hefðu handtekið tvo tyrkneska tóbakssmyglara fjórar mílur frá tyrknesku landamær- unum. Var þar hópur smyglara á ferð, skutu þeir á sýrlenzku hermenninga og köstuðu hand- sprengjum, en hæfðu ekki. Þeir, sem af komust, voru fimm tals- ins. STOKKHÓLMI, 23. október. — Að undanförnu hefur dálítið bor ið á því, að sænskar stáliðnaðar- verksmiðjur hafi átt í erfiðleik- um með að selja framleiðslu sína á erlendan markað vegna vax- andi skorts á erlendum gjald- miðli hjá ýmsum þjóðum. STOKKHÓLMI, 23. október. — Um þessar mundir situr sænski viðskiptamálaráðherrann á fund um með fulltrúum norsku stjórn- arinnar og ræðir fyrirhugaðan sameiginlegan markað Norður- landa. Er aðallega rætt um þær vörur, sem undanskildar verða markaðinum. WASHINGTON 23. október. — Brownell, dómsmálaráðh. Banda- ríkjanna, afhenti Eisenhower for seta í dag lausnarbeiðni sína. ANKARA, 23. október. — 1 kvöld kom til f jöldafunda í Ankara. Hrópuðu menn ýmis slagorð gegn stjórn landsins. Lög- regla tvístraði mannfjöldanum. ISTANBUL, 23. okt. — Orðrómur hefur komizt á kreik um það, að póstbátur, sem hvarf á Bosporus- sundi í fyrra mánuði, hafi flutt í pósti mikilvæg bandarísk leynd- arskjöl. Hafi Rússar stolið skjölunum. Talsmaður banda- ríska sendiráðsins í Istanbul skýrði svo frá í dag, að saga þessi væri uppspuni frá rótum. Leynd- arskjöl væru ekki send með venjlegum póstbáti. CAPE CANAVERAL 23. október. í dag fór fram í tilraunastöð bandaríska sjóhersins í Florída tilraun með flugskeyti af Van- guard gerð, en Bandaríkjamenn ætla að nota það til þess að flytja gervihnött sinn út fyrir gufuhvolf jarðar, eða 500 km út fyrir jör»u. Heppnaðist tilraunin vel. WASHINGTON 23. október. — Bandaríski vamarmálaráðherr ann skýrði frá því í dag, að hluti af Atlantshafsflotanum hefði nú verið búinn kjarnorku djúp- sprengjum. Kvað hann það góða tryggingu gegn ógmun þeirri, er Vesturlöndum væri af hinum mikla kafbátaflota Rússa. Viscount ferst í írlandi BELFAST 23. október. — Vis- countflugvél frá brezka flugfé- laginu BEA fórst í lendingu í Bel fast í kvöld, og með henni sjö manns, fimm manna áhöfn og tveir farþegar, starfsmaður flug- félagsins og kona hans.. Flugvél- in var að koma frá London og átti að fara aukaferð fullskip- uð farþegum frá Belfast til Lon- don í kvöld. Farþegarnir biðu á flugvellinum eftir flugvélinni og sáu þegar hún fórst. Orsök slyssins var sú, að lág- skýjað var mjög og mikil jign- ing — og skyggni slæmt. Lend- ingu var stjórnað úr flugturnin- um í Belfast. Flugvélin kom nið- ur úr skýjaþykkninu í beinni stefnu á flugbrautina, en nam við jörðu alllangt frá brautarend anum — og fórst með þeim afleið ingum, sem fyrr greinir. Flugvélin var ein af nýjustu vélum BEA, af gerðinni Viscount 800, en þær geta flutt 57 farþega. Talsmaður félagsins sagði í kvöld að þetta væri fyrsta slysið, sem orðið hefði á slíkri flugvél. WASHINGTON 23. október. — Talsmaður bandaríska utanríkis- ráðuneytisins bar í dag til baka þá fregn, er birtist í frönsku blaði, að kommúnistum hefði tek izt að ræna mikiivægum skjölum frá Henderson, er hann fór um löndin fyrir botni Miðjarðarhafs til þess að kynna Eisenhower- kenninguna. Henderson hafi engin mikilvæg skjöl haft með- ferðis. — Búdapest Frh. af bls. 1. myrkrið féll á í kvöld stóðu lög- reglumcnn enn inn á milli leið- anna með vélbyssur til taks. O—#—O Rússneskir hermenn sáust lítið í borginni, en þeir voru f jölmenn- ir utan við borgina. 1 stað þess voru hengdar upp myndir af rússneskum hermönnum á götum og gatnamótum og áttu þær að minna borgarbúa á hinn frelsandi mátt þeirra. Þá hefur ungverski kommún- istaflokkurinn gefið út yfirlýs- ingu þar sem segir, að enn sé fjöldi Ungverja, sem ekki viti sannleikann um uppreisnina í fyrra. STRASSBORG, 23. okt. — A fundi Evrópuráðsins í dag var þess minnzt með hátíðlegri at- höfn að eitt ár var liðið frá upp- reisninni í Ungverjalandi. Stóðu fundarmenn á fætur og nokkurra minútna þögn var gerð í virðing- arskyni við þá mörgu, er létu lífið í viðureigninni við Rauða herinn. NEW YORK 23. okt. — Á fundi allsherjarþingsins um afvopnun- armálin í dag, sagði fulltrúi Kan- ada, að stórveldin yrðu að hefj- ast handa um fyrstu skrefin til afvopnunar. Á því ylti líf og framtíð mannkynsins. Sakaði hann Rússa um óheilindi við und angengnar afvopnunarviðræður. Sammála um, að kommúnistar eigi ekki að sitia í stjórn HELSINGFORS, 23. okt. — Allir finnsku stjórnmálaflokk arnir hafa gert grein fyrir af stöðu sinni til stjórnarmynd unar. Eru þeir allir sammála um það, að náuðsyn beri til þess að stjórnin verði mynduð á sem breiðustum grundvelli, en samt án þátttöku kommún- ista. Jafnaðarmenn eru þeirr- | ar skoðunar, að fela beri Tann !er formanni þeirra að mynda stjórn. íhaldsflokkurinn er einnig þeiirar skoðunar. Ekki er enn vitað hvern Kekkonen forseti hyggst biðja að mynda stjórn — eða hvenær, en al- mennt er talið að Tanner verði fyrir valinu. Tanner Seinustu fréttlr: HELSINGFORS 23. október. — Seint í kvöld fór Finnlandsfor- seti þess á leit við Tannei, for- mann jafnaðarmannaflokksins, að hann gerði tilraun til stjórnar- myndunar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.