Morgunblaðið - 24.10.1957, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 24.10.1957, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ Fimmtudagur 24. okt. 1057 RDagbók í dag er 297. dagur ársing. Fim—tudagur 24. aktóber. Veturnætur. Árdegisflæði kl. 6,43. Síðdegisflæði kl. 19,00. Slysavarðstofa Key'javíkur í Heilsuverndarstöðinni er opin all aa sólarhringinn. Læknavörður L.R. (fyrir vitjanir) er á sama stað frá kl 18—8. Sími 15030. ISæturvörður er í Laugavegs- apóteki, sími 24047. Ennfr. eru Holtsapótek, Apótek Austur- bæjar og Vesturbæjarapótek op- in daglega til kl. 8, nema á laug- ardögum til kl. 4. Þrjú síðasttalin apótek eru opin á sunnudögum miili kl. 1 og 4. Carðs-apólek, Hólmgarði 34, er opið daglega kl. 9—20 nema á laugardögum 9—16 og á sunnu- dögum 13—16. Sími 34006. Kópavogs-apótek, Álfhðlsvegi 9 er opið daglega kl. 9—20 nema laugardaga kl. 9—16 og helgidaga kl. 13—16. — Sími 23100. Hafnarfjarðar-apótek er opið alla virka daga kl. 9—21. Laug- ardaga kl. 9—16 og 19—21. Helga daga kl. 13—16 og 19—21. Keflavskur-apótek er 0[. ið alla virka daga frá kl. 9—19, laugar- daga frá kl 9—16 og helga daga frá kl. 13—16. Hafnarfjörður: — Næturlæknir er Eiríkur Björnsson, sími o0235. Akureyri: — Næturvörður er í Akureyrar-apóteki, sími 1032. Næt urlæknir er Bjarni Rafnar. I.O.O.F. 5 = 13810248*4 = 9. 0. 0 Helgafell 595710257 — IV/V — 2. □ MÍM R 595710247 == 2 S^JBruðkaup S.l. þriðjudag voru gefin saman í hjónaband af séra Garðari Svav arssyni, ungfrú Ólöf Erla Jóns- dóttir, Seljavegi 21, og Baldur Bjarnarson, vélvirki, Nökkvavogi 36. — Heimili þeirra verður að Hagamel 20. |Hjónaefni Nýlega hafa opinberað trúlofun sína ungfrú Sigrún Gísladóttir, Melhól, Meðallandi og Sveinn Páll Gunnarsson, Flögu, Skaftártungu. Nýlega opinberuðu trúlofun sína Alda Jóhanssen, Bakka- gerði 2 og Jón Einarsson, Eyjum, Breiðdal. Nýlega hafa opinberað trúlofun sína ungfrú Auður Sæmundsdótt- ir, Akurgerði 21 og Óskar Sigurðs son, Hofsvallagötu 21. Skipin Eimskipafélag Islands h.f.: — Dettifoss fór frá Gautaborg 19. þ. m. til Leningrad, Kotka og Hels- ingfors. Fjallfoss fór frá Ham- borg 20. þ.m., væntanlegur í dag til Reykjavíkur. Goðafoss fer frá Reykjavík í kvöld til Bildudals, — Flateyrar, ísafjarðar og þaðan til N->rður- og Austurlandsins. Gull- foss fer frá Kaupmannahöfn 26. þ.m. til Leith og Reykjavíkur. Lag arfoss fór frá Rvík í gærkveldi, til Vestmannaeyja, Reyðarfjarðar, — Fáskrúðsfjarðar, Akureyrar, Vest fjarða-og Breiðaf jarðahafna. — Reykjafoss er í Reykjavík. Trölla foss fór frá Reykjavík 19. þ. m. til New York. Tungufoss fór frá Ham borg 23. þ.m., til Reykjavikur. ^gjFlugvélar Flugfélag í»lands h.f.: — MiHÍ- Sveinspróf í rafvélavirkjun Sveinspróf í rafvélavirkjun verða haldin í nóvem- ber n.k. Umsóknir ásamt skilríkjum og prófgjaldi kr. 600.00 sendist til Magnúsar Hannessonar, raf- vélaverkstæðinu Volti, Reykjavík fyrir 1. nóvem- ber. Nauðsynlegt er að endurnýja eldri umsóknir. Prófnefndin. SKEMMDUM VERJIÐ TEINIIMUR VDAR og ldtið ekki holui myndast Farið reglulega til tannlæknis og spyrjið hann um Nýtt „SUPER" AMM-I-DENT með hinu undraverða FLUORIDE landaflug: Hrímfaxi er væntanleg ur til Reykjavíkur kl. 17,10 í dag frá Hamborg, Kaupmannahöfn og Osló. Flugvélin fer '! Glasgow og Kaupmannahafnar kl. 09,00. Inn- anlandsflug: 1 dag e. áætlað að fljúga til Akureyrar (2 ferðir), Bíldudals, Egilsstaða, ísafjarðar, Kópaskers, Patreksfjarðar og Vest mannaeyja. — Á morgun er áætl- að fljúga til ' kureyrar, Fagurhóls mýrar, Hólmavíkur, Hornafjarð- ar, ísafjarðar, Kirkjubæjarklaust urs og Vestmannaeyja. Loflleiðir h.f.: — Saga er vænt anleg kl. 19,30 í kvöld frá Ham- borg, Kaupmannahöfn og Osló. — Flugvélin heldur áfram kl. 21,00 áleiðis til New York. FHAheit&samskot Cistiskýli drykkjumania, afh. Mbl. — Frá Sv. Bj. kr. 25,00; Ó M 30,00; ÞJJ 30,00; E K 25,00; •i E 30,00; B Á 25,00. H Félagsstörf Félag héraðsdómara. — Aðal- fundur félagsins hefst í dag kl. 2 síðdegis, í Tjamarkaffi. Fundur- inn stendur yfir í 2—3 daga. Kienfélag Lágafellssóknar. — Handavinnukvöld félagsins verður í kvöld, fimmtudag, í Hlégarði. Kvenfélag Langholtssóknar held ur fund í ur.gmennafélagshúsinu við Holtaveg n.k. föstud. kl. 20,30. Ymislegt Námsflokkur verður starfrækt- ur í vetur, í lífsspeki danska spek ingsins Martinusar. Up: lýsingar gefur Vignir Andrésson, kennari, Egilsgötu 22. Kvenfélag Laugarnessóknar — minnir félagskonur á bazarinn, laugardaginn 2. nóvember. Gistiskýli drykkjuinanna. Fl’am kvæmdanefnd Stórstúku Islands hefur samþykkt að leggja fram kr. 5000,00 til skýlisins. 1 Bandaríkjadollar..— 16,32 1 Kanadadollar .... — 16,86 100 danskar kr........—236,30 100 norskar kr........— 228,50 100 sænskar kr........—315,50 100 finnsk mörk .... — 5,10 1000 franskir frankar .. — 38,86 100 belgiskir frankar.. — 32,90 100 svissn. frankar .. — 376,00 100 Gyllini ..............— 431,10 100 tékkneskar kr. .. — 226,67 100 vestur-þýzk mörk — 391,30 1000 Lírur ...............— 26,02 hvað kostar undir bréfin? InnanDæjar ...... 1,50 Út á land........ 1,75 Evrópa — Flugpóstur: Danmörk ......... 2,55 Noregur ......... 2,55 Svíþjóð ......... 2,55 Finniand ........ 3,00 Þýzkaland ....... 3,00 Bretland ........ 2,45 Frakkland ....... 3,00 írland .......... 2,65 Spánn ........... 3,25 Ítalía ........... 3,25 Luxemburg ....... 3,00 Malta ............ 3,25 Holland........... 3,00 Pólland .......... 3,25 Portúgal ......... 3,50 Rúmenía .......... 3,25 Sviss ............ 3,00 Tyrkland ......... 3,50 Vatikan......... 3,25 Rússland ......... 3,25 Belgía ........... 3,00 Búlgaria ......... 3,25 Júgóslavía ....... 3,25 Tékkóslóvakía .... 3,00 Albanía .......... 3,25 Bandaríkin — Flugpóstur: 1— 5 gr. 2,45 5—10 gr. 3,15 10—15 gr. 3,85 15—20 gl. 4,55 Kanada — Flugpóstur: 1— 5 gr. 5—10 gr 10—15 gr. 15—20 gr. 2,55 3,35 4,15 4.95 'v*' <.< , « Læknar fjarverandi Bjarni Jónsson, óákveðið. Stg Stefán Bjömsson. Garðar Guðjónsson, óákveðið — Stg.: Jón Hj. Gunnlaugsson, Hverfisgötu 50. Hjalti Þórarinsson, óákveðið Stg.: Alma Þórarinsson. • Gengið • Gullverð ísl. krónu: 100 gullkr. = 738,95 pappírskr. Sölugengi 1 Sterlingspund .... kr. 45,70 Myndin er tekin af Kristjáni Davíðssyni í Sýningarsalnum. Sýning Kristjáns Davíðssonar KRISTJÁN DAVÍÐSSON er löngu þjóðþekktur listamaður, sem jafnan hefur verið nokkuð umdeildur meðal almennings, en hefur að sama skapi hlotið við- urkenningu þeirra starfsbræðra sinna, sem ekki hafa látið blind- ast af hleypidómum. Nokkuð langt er liðið síðan Kristján Davíðsson hélt sína seinustu sýningu, en samt hefur hann ekki verið með öllu hulinn listamaður. Hanh hefur oftsinnis tekið þátt í samsýningum og verk hans vakið verðskuldaða eftir- tekt. Það er skemmtilegt að heimsækja sýningu þá, sem nú ’ stendur yfir í Sýningarsalnum í ! Alþýðuhúsinu, en þar er Kristján Unglinga vantar til blaðburðar við Hofteig og Kleppsveg BJorðnnblaíiib Sími 2-24-80 FERDINAIMD Konudagur Davíðsson kynntur á nokkurn annan hátt en áður. Það hafa orðið miklar breytingar í list hans, og ef til vill meiri en hann sjálfur gerir sér ljóst. Samt er auðkennandi fyrir þessi nýju verk Kristjáns það sama og var aðalkostur hinna eldri, þ. e. a. s. hin næma og sterka litsjón mál- arans, sem honum tekst að not- færa á mjög fjölbreyttan hátt. Ég skal viðurkenna það hér, að persónulega finnst mér eins og eitthvað vanti í verk eftir Kristján Davíðsson, þegar hin sterku andlit og hin einkenni- lega teikning mannslíkamans er horfin. Þar hafði hann náð tök- um á myndgerð, sem ég veit ekki til, að nokkur annar íslendingur hafi tíðkað á undan honum. Marg- ir af kunnustu listamönnum þjóðarinnar eru til í útgáfum Kristjáns, og mætti þar nefna margt ágætt listaverk, en er óþarft hér. Þessi sýning er fjölbreytt að efni og vel fyrir komið. Eins og að ofan segir, hefur Kristján los- að sig við andlitin í verkum sín- um og byggir nú eingöngu á litn- um sjálfum og hreyfingum innan myndaflatarins. Verk hans eru unnin á óþvingaðan hátt, og margur leikmaður mun án efa á- líta, að hér sé um tilviljanir að ræða, en ekki hugsuð listaverk. En það er rangt. Kristján gerir mikið fyrir myndir sínar og marg vinnur sumt, þar til hann hefur náð þeim árangri, er hann ætlast til. Myndir hans vaxa frá hugar- fóstri í áþreifanlegan hlut, án þess að missa listrænt gildi. Það er ánægjulegt að sjá, hver þróun Kristjáns er í myndlist. Hann er einn af okkar beztu hæfileika- mönnum á því sviði, og þótt við séum ef til vill ekki alveg sam- mála um listformið, eins og stendur, rýrir það á engan hátt þann árangur, er kemur í ljós á þessari sýningu hans. Að síðustu verður að geta þess, að nokkuð misjöfn verk eru á sýn ingunni, en heildarsvipur hennar er ágætur og fjörlegur með af- brigðum. Hér eru skrítnir hlutir á ferð, en engu að síður ágæt listaverk, sem eiga erindi til okk- ar allra. Valtýr Pétursson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.