Morgunblaðið - 24.10.1957, Side 8

Morgunblaðið - 24.10.1957, Side 8
Fimmtudagur 24. okt. 1957 MOBGVTSBl 4Ð1Ð Mttfrfafrft Cftg.: H.t Arvakur, Reykjavík Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Aðaii'itstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.) Bjarni Benediktsson. Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur Einar Asmundsson. Lesbók: Arni Oia, sími 33045 Auglýsingar: Arnj Garðar Knstinsson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og algreiðsla: Aðaistræti 6 Sími 22480 Askriftargjald kr 30.00 á mánuði mnaniands. t lausasölu kr 1.50 eintakið. DAGUR SAMEINUDU ÞJÓÐANNA IDAG, hinn 24. október, er minningardagur hinna Sameinuðu þjóða. Þann dag minnast hundruð milljóna ihanna þessara víðtækustu al- þjóðasamtaka, sem sagan grein- ir. — Að stofnun samtakanna stóð 51 þjóð. Síðan stofnskrá þeirra var undirrituð í San Francisco eru liðin 12 ár. Nú eru þjóðir hinna Sameinuðu þjóða orðnar 81. Þeim hefur þannig fjölgað um 30 á rúmum áratug. Tak- markið er auðvitað að allar þjóð- ir heims fái upptöku í samtökin. Að bjarga komandi kynslóðum 1 upphafi stofnskrárinnar seg- ir á þessa leið: „Vér hinar Sameinuðu þjóðir, staðráðnar í að bjarga komandi kynslóðum undan hörmungum ófriðar, sem tvisvar á ævi vorri hefur leitt ósegjanlegar þjánipg- ar yfir mannkynið------“ Þeir, sem undirrituðu stofn- skrána fyrir hönd þjóða sinna hétu því ennfremur „að sýna um- burðarlyndi og lifa saman í friði, svo sem góðum nágrönn- um sæmir, að sameina mátt vorn til að varðveita heimsfrið og ör- yggi, og að tryggja með sam- þykki grundvallarreglna og skipu lagsstofnun, að vopnavaldi skuli ekki beitt, nema í þágu sameigin- legra hagsmuna-------“ Stofnskrá Sameinuðu þjóðanna er vissulega byggð á háleitum hugsfónum, sem túlkaðar eru með fögrum orðum í greinum hennar. Bak við þau lá áreiðan- lega einlægur vilji þjóðanna til þess að útrýma hörmungum styrjalda og mannvíga. En alþjóð leg samtök til verndar friði og frelsi hafa áður verið sett á lagg- irnar. Engu að síður hefur villi- dýrsæði styrjaldanna hafizt að nýju og valdið hyldjúpu böli og ógæfu. Merkilegur árangur Sem betur fer sýna þó stað- reyndirnar að merkilegur árang- ur hefur þegar náðst af starfi Sameinuðu þjóðanna. Þær sner- ust til varnar gegn ofbeldisárás kommúnista á Suður-Kóreu og hrundu henni. Þær stöðvuðu styrjöldina um Súez á sl. ári og sendu alþjóðlegar iöggæzlusveit- ir til þess að halda þar uppi friði og reglu. Hinar ýmsu stofnanir þeirra hafa unnið stórkostleg af- rek á sviði heilbrigðis- og menn- ingarmála, ekki sízt í þágu frum- stæðra þjóða. Allt þetta ber vissulega að meta og þakka, enda þótt marg- ir hafi orðið fyrir vonbrigðum af þessum víðtæku alþjóðlegu samtökum. En ofbeldishneigðin og eigingírnin eru svo ríkur þátt- ur í mannlegu eðli að varla er við því að búast, að mannkynið geti á skömmum tíma byggt upp samtök, sem fær séu um að halda þessum hvötum í skefjum. Stefn- an hefur verið mörkuð og allir frelsisunnandi menn verða að styðja Sameinuðu þjóðirnar og gera þær að stöðugt virkara og áhrifameira tæki til þess að vernda heimsfiiðinn og standa vörð um hamingju einstaklinga og þjóða. Stærsta verkefnið, sem nú blasir við er að efla fram- kvæmdavald samtakanna, koma upp öflugu alþjóðlegu gæzluliði, sem fært sé um að halda hvers konar árásar- og ofbeldisöflum í skefjum. SKIPULAGSMÁLIN OG VARÐAR- FUNDURINN I1ITT erfiðasta viðfangsefn- I ið í sambandi við stjórn bæjarfélags,, sem er í jafnhröðum vexti og Reykjavík, er ákvörðun skipulags slíks bæj- ar. Það er sjaldnast unnt að sjá fyrir hvaða breytingar kunna að verða, hvaða ný viðhorf kunna að koma fram og hvaða kröfur framtíðin kann að gera. Þetta á alveg sérstaklega við um Reykja- vík, sem hefur vaxið meira á stuttum tíma, en nokkurn hefði órað fyrir. Skipulagsmálin fela í sér hin margvíslegustu verkefni og sjón- armið, eins og kom fram á Varð- arfundinum í fyrrakvöld. Á veg- um félagsins hafði starfað nefnd, sem lagði fram sérstakar tillög- ur í skipulagsmálunum, sem birt- ar eru á öðrum stað í blaðinu í dag, eins og fundurinn gekk frá þeim. Þar eru t. d. tekin til með- ferðar þau þrengsli, sem menn telja að nú séu í hinum gamla miðbæ, og bent á, að skapa verði þessum kjarna bæjarins mögu- leika til útþenslu í framtíðinni, þar sem nú er flugvöllurinn, en flugþjónustunni verði séð fyrir fullkomnum bækistöðvum ann- ars staðar. Hér er um mjög stórt og vandasamt mál að ræða, sem leysa þarf, að beztu manna yfir- sýn. Þá gera tillögurnar ráð fyrir UTAN UR HEIMI Söngvarinn, sem hefur aldrei lœrt að syngja og hefur ekkert vit á söng ,SPUTNIK‘ þeirra Bretanna, eins og Tommy Steel er kallaður, er eins árs um þessar mundir. Það er sem sé liðið eitt ár síðan hann „fór á loft“, en i rauninni er Tommy 20 ára gamall. En aldur „Sputnika" er talinn frá og með deginum sem þau hafa komizt á loft —- og það hefir vakið mikla undrun þeirra, sem venjulega skrúfa fyrir sjónvarpstækið, þeg- ar Tommy Steel þenur sig þar eins og hann ætti lífið að leysa, að hann skuli hafa haldizt svo ár hefur hann sungið og leikið á guarinn sinn viðstöðulaust í út- varp og á samkomum og viðtök- urnar hafa alltaf verið hinar sömu: Unglingarnir ráða sér vart fyrir hrifningu og þess eru rnörg dæmi, að liðið hafi yfir ungar stúlkur, sem Tommy töfraði á þennan dularfulla hátt. Eldfíaugin Bevan Tommy er frá East End, fátækra hverfi Lundúnaborgar. Hann tal- þeim möguleika, að eigendum húsa í nýjum hverfum verði gef- inn kostur á fullgerðum götum, innan tiltekins tíma, gegn greiðslu í hlutfalli við þá verð- mætisaukningu á húseignum, sem verður við slíkar fram- kvæmdir. Hér er um leið að ræða til að fullkomna gatnakerfið fljótar en unnt hefir verið und- anfarið, með hliðsjón af hinum öra vexti byggðarinnar. Þetta eru aðeins dæmi um til- lögur Varðarfundarins. Sjálf- stæðismenn hafa vakandi áhuga á þessum málum. Hér er um mikil tæknileg og fjárhagsleg vanda- mál að ræða, sem varða aTla bæjarbúa, beint og óbeint. Vörður hefur nú haldið tvo fundi um framtíð Reykjavíkur. Þar hafa komið fram margar nýj- ar raddir sem sýna, að um mál þessi er hugsað af áhuga og vilja j til að gera bæjarfélaginu gagn. j Reykjavíkurbær hefur, undir j stjórn Sjálfstæðismanna, gert stór átök og unnið mikil afrek. Á nýjum. tæknilegum sviðum svo sem í sambandi við stórvirkjan- ir Sogsins og hitaveitunnar, hef- ur Reykjavík rutt brautina. Þannig mun líka verða haldið t áfram, meðan Sjálfstæðismenn hafa stjórn bæjarins í sínum höndum. 20 ára cockney — þjónn á hverjum fingri. lengi á lofti. Er þá bent á það, að „Sputnik“ þeirra Bandaríkja- manna, Presley, hafi dalað miklu fyr og eyðzt, eins og það er kall- að — öllum söngelskum til ó- blandinnar gleði. Enginn venjulegur Sputnik En hvað um það, Tommy Steel hefur nú verið á lofti í eitt ár og vinsældir hans fara sízt dvín- andi. Það má og sjá á pyngju hans, að hann nýtur vinsælda, því að á þessu eina ári hefur hann unnið sér inn sem svarar hátt á þriðju milljón ísl. króna. Og heíur allt hans starfslið — umboðsmenn, auglýsingamenn, hugsuður, hljómlistarmenn og aðrir fengið sinn skerf. í heilt ar cockney og hefur i rauninni aldrei lært að leika á gítar. En hvers vegna skyldi hann hafa á- hyggjur út af því? Hann er fædd ur stjarna — fæddist á þrem mín- útum — fyrir einu ári. Sagan er sú, að mjög vinsæll sjónvarpsmaður féllst á að fyrir þrábeiðni umboðsmanna að leyfa Tommy, sem þá hét Hicks,' en ekki Steel, að spreyta sig, „en aðeins í þrjár mínútur". Og Tommy kom og söng í sjónvarp- inu og daginn eftir bárust hon- um 700 bréf, þar sem honum var spáð miklum frama. Umboðs- mennirnir néru saman höndun- um — og eins og Tommy sagði síðar, þá eru þeir mjög ánægðir með árangurinn, ef 20 manns láta svo lítið að grípa pennann og hripa nokkrar línur. Nú hefur Tommy þrjár stúlkur til þess að annast bréfamóttöku og skrifa ViMip'atkráin VIÐSKIPTASKRÁ þessa árs er nýlega komin út. Þetta er 20. árgangur hennar. Margvíslegar upplýsingar er að finna í bókinni. Þar eru skráð um 7500 nöfn fyrirtækja, einstakl- inga og félaga í Reykjavík og 46 kaupstöðum og kauptúnum ut an Reykjavíkur og fylgja hverju nafni upplýsingar um atvinnu- rekstur, stjórnir félaga og til- gang. Þá eru sex uppdrættir í bók inni, stórir uppdrættir af Reykja vík, Kópavogi og Akureyri í 4 litum með áteiknuðum götunöfn- um, opinberum byggingum o. fl., loftmynd af Akranesi, uppdrátt- ur af Hafnarfirði, íslandskort og vitakort. Fasteignamat fyrir Reykjavík, Akureyri og Hafnarfjörð er þar einnig, svo og skipastóll íslands þar sem skráð eru öll skip 12 rúm lestir og stærri, og greint frá efni við, smíðaári, stærð, vélartegund, vélarstærð og eigendum. Meginkafli bókarinnar er Varn ings- og starfsskrá. Þar eru nöfn allra verzlana, fyrirtækja og ein- staklinga raðað eftir starfs- og vöruflokkum í stafrófsröð. Flest öilum starfs- og vöruheitum fylgja þýðingar á dönsku, ensku og þýzku, og aftan til í bókinni er lykill að þessum útlendu heit- um til þess að útlendingar geti notfært sér bókina. Loks er í bókinni ritgerð á ensku um landafræði, sögu og efnahagsmál fslands: Iceland: A Geographicall Political and Economic Survey. svör. Daglega fær hann fulla póst poka af bréfum, sem flest eru auðkennd með rauðu þrykki af vörum sendanda, því að nær und antekningarlaust eru þau frá stúlkum. Já, og umboðsmennirn- ir settust á ráðstefnu til þess. að ráða ráðum sínum. Einn þeirra, Ian Bevan er öðrum snjallari og segja má, að hann sé eldflaugin, er flutti þennan Sputnik upp í há loftin, því að það er ekki hvað minnst Bevan að þakka, að Tommy hefur eignazt tæpar 3 millj. kr., auk hundruð þúsunda aðdáenda á einu og sama árinu Bevan „sér um sína“ En hver veitir leyfi til fram- leiðslu T. S. (Tommy Steel) buxna, T.S. sápu, T.S. vasaklúta — hver undirbýr T.S. kvikmynd- ir, skipuleggur T. S. hljómleika og hljómleikaferðir, velur T.S. sjónvarpsefni, sér um T. S. hljóm plötuupptökur og útgáfu þeirra, hefur upp á T. S. tónskáldum, hefur umsjón með samningu ævi sögu T.S. og útgáfu T. S. póst- korta? Auðvitað er það Ian Bevan, sem sér um þetta allt — og meira til. Hann veit hvað hann vill’ en ekki meir Það er Bevan, sem Tommy Steel á mest að þakka, að hann er ekki í dag aðeins strákur í East End eins og hann var fyrir einu ári — heldur „Tommy Steel“. Og Tommy Steel er á- nægður. Hann hefur getað veitt sér sitt að hverju, keypt bifreið fyrir sig og nýja íbúð fyrir for- eldra sína. Og hann hefur lært að ferðast að hætti frægra manna. Hann fer til Riviera, oft- ast undir dulnefni — og lætur lítið á sér bera, því að blaða- menn eru á hverju strái. Og allr- ar þessarar auðlegðar nýtur hann vegna þess að hann syngur og spilar, en hefur þó aldrei lært að lesa nótur né syngja — og hann veit yfirleitt ekkert um hljóm- list. Hann getur ekki gert neina grein fyrir því af hverju hann syngur svona en ekki öðru vísi eða hvernig hann fer að því að syngja á þennan sérstæða hátt. Hins vegar getur hann sagt hvað hann vill og vill ekki — og hann er ekkert feiminn við það, því að hann hefur þjónustufólk á hverjum fingri. 2 shillinga og 6 pence Að öðru leyti lifir hann eins og óbcatinn almúgamaður, sparar við sig í mat og drykk og segist aldrei hafa efni á neinu. Þegar fréttamenn spyrja hann spjörun- um úr segir hann þeim að kaupa ævisögu hans, sem nýlega er kom ir út — og hann lætur ekki hjá líða að geta þess, að bókin kosti ekki nema 2 shillinga og 6 pence. Eilífðar-Sputnik Nú er Tommy Steel á leið til S-Ameríku og Ástralíu. Þar ætl- ar hann að syngja og spila eins og annars staðar, en þegar maður spurði hann að því á dögunum, hvort hann gerði sér nokkra grein fyrir því hve lengi hann mundi njóta vinsælda, sagðist Tommy vona, að hann yrði ekki „fallinn" áður en hann kæmist í utanförina. Unga fólkið heldur því hins vegar fram, að hann sé einhver eilífðar-Sputnik, sem aldrei muni falla. En falla ekki allir Sputnink-ar fyrr eða síðar — jafnvel Tommy Steel?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.