Morgunblaðið - 24.10.1957, Qupperneq 11
Fimmtudagur 24. okt. 1957
MORGUWBLAÐIÐ
11
Dagbjartur Bjarnason
fyrrv. stýrimaður 50 ára
DAGBJARTUR frændi minn og
góður samferðamaður, er fædd-
ur á Stokkseyri 24. okt. 1907.
Foreldrar hans Jóhanna Hró-
bjartsdóttir bónda frá Grafar-
bakka í Hrunamannahreppi,
Hannessonar á s. st. Torfasonar
á Gamlahrauni og Bjarni fyrr-
verandi óðalsbóndi á Stokkseyri
og formaður í Þorlákshöfn, Gríms
sonar ríka hreppsstjóra og bónda
í Óseyrarnesi og formanns í Þor-
lákshöfn. Jóhanna móðir Dag-
bjartar er við sæmilega heilsu og
er enn ung í anda. Hún býr nú
með sonum sínum tveim á Reyni-
mel 28 en Bjarni faðir hans and-
aðist 1944.
Eins og sjá.má af framansögðu
er Dagbjartur í báðar ættir af
góðu fólki, sem sýnt hefur dugn-
að í búskap, sjómennsku og
verzlun. Faðir hans og forfeður
voru miklir og aflasælir sjósókn-
arar í hinni kunnu verstöð Þor-
lákshöfn. Það var því að vonum,
að Dagbjartur byrjaði snemma
að fara á sjó, eða um fermingar-
aldur. Eins og venja var margra
ungra manna fyrir austan fjall,
byrjaði hann á opnum skipum og
hertist hann þar við marga raun,
eins og fleiri, fór hann síðan á
mótorbáta og botnvörpunga. Um
20 ára skeið var hann á verzlun-
arskipum, alian tímann á skip-
um ríkissjóðs í innan- og utan-
landssiglingum, eða frá 1932—
1952. Hann útskrifaðist af Sjó-
mannaskólanum í Reykjavík með
verzlunarskipaprófi 1939. Fórum
við upp úr því að hafa náið sam-
band, því þá gjörðist hann stýri-
maður á skipum Ríkisútgerðar-
innar. Hann sigldi sem þriðji
annar og fyrsti stýrimaður og
lengst af tímanum með mér á
m.s. Esju og m.s. Heklu.
Eins og hann á kyn til, var
hann góður og öruggur sjómaður,
hann var hinn mesti garpur og
vel að sér um alla hluti, er að
sjómennsku lýtur. Eins og áður er
sagt þá voru forfeður hans, hin-
ir mestu garpar um sjósókn og
aflasælir menn, og er því að
vonum, að honum kippir í kyn-
ið. Hann er og vinfastur, ætt-
rækinn og fastur fyrir, hefur
ákveðnar skoðanir á hlutunum.
Er hann drengur hinn bezti, væri
vel að sem flestir hefðu þá kosti
til að bera. Hann hefur vit og
vilja til þess að glíma við fleiri
vanda, en sjómennskuna. Hann er
einnig þannig gerður, að hann
sættir sig eigi við að standa
Jeppi til sölu
Bifreiðin J-12, árgerð 1954, er til sölu, ef viðunandi
tilboð fæst. Bifreiðin verður til sýnis í dag og á
morgun milli kl. 1—3 e.h. við verkstæði flugmála-
stjórnarinnar á Keflavíkurflugvelli (Turnerhverfi)
Tilboðum sé skilað í skrifstofu mína í síðasta lagi
mánudaginn 28. þ.m.
Flugvallarstjórinn,
Keflavíkurflugvelli.
Bösk unglingsstúlka
óskast til innheimtu- og aðstoðarstarfa í skrifstofu
vorri. Umsækjendur mæti til viðtals á Vesturgötu
10 milli kl. 3—5 í dag og á morgun,
(Uppl. ekki veittar í síma).
'tjbsksoíiki®^
Aðalfundur
Fiskifélagsdeildar Reykjavíkur verður haldinn í
Fiskifélagshúsinu Höfn, Ingólfsstræti fimmtudag-
inn 7. nóvember kl. 9 síðdegis.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Kosnir 4 fulltrúar á fiskiþing og
jafnmargir til vara.
Stjórnin.
Hjúkrunarkvennaskóli Islands
Eiríksgötu 34, tilkynnir:
Símanúmer skólans eru:
1-81-12 og 2-30-65
Viðtalssími skólastjóra er þriðjudaga og fimmtu-
daga kl. 18—19 og eftir samkomulagi.
lengi í stað og því hefur hann nú
yfirgefið sjómennskuna fyrir
nokkrum árum og er nú meðeig-
andi og meðstjórnandi í verzlun
og öðrum fyrirtækjum bræðra
sinna, þeirra Gríms pípulagninga
meistara, Haralds bygginga-
meistara og Hróbjarts stórkaup-
manns. Allir eru þeir bræður
miklir athafnamenn og þau syst-
kyni.
Það er eftirsjá að mönnum eins
og Dagbjarti, úr sjómannastétt-
inni, en það er sem betur fer
fleiri þörf verk að vinna í voru
þjóðfélagi og hvar sem hann fer
mun hann verða vel hlutgeng-
ur, ef hann heldur heilsu og
kröftum.
Mér er sannarlega ljúft að
minnast hans við þessi tímamót
í ævi hans. Ég þekki hann bezt
sem víking á sjó, sem öruggan
og skemmtilegan félaga og nú
hefir hann lifað hálfa öld og á
eftir mörg ár ennþá, og mörg og
stór verkefni eru framundan,
áhugi hans og atorka mun gefa
honum byr undir báða vængi.
Dagbjartur er giftur Aðalheiði
Tryggvadóttur, hinni ágætustu
konu. Þau hjón eiga þrjá sonu,
elzti sonur þeirra er nú verzlun-
arstjóri á Þingeyri við Dýrafjörð,
hann er útskrifaður frá Verzlun-
arskóla fslands og verzlunarskóla
í London, ber hann nafn Bjarna
afa síns, hinir tveir synir þeirra
hjóna eru enn á unga aldri og
enn í skóla.
Ég árna frænda mínum og vini
Dagbjarti og heimili hans, allra'
heilla við þessi tímamót, vona ég
að hans megi lengi við njóta,
að heilsa hans og atgjörvi megi
haldast svo að honum takist í
félagi við bræður sína, að ljúka
mörgum þörfum verkum við upp-
byggingu og þjóðnýt störf.
Með beztu kveðjum.
Ásg. Sigurðsson.
Útboð
Tilb. óskast í að steypa kjallara blindraheimilis í
Reykjavík. Teikninga og útboðslýsinga má vitja í
skrifstofu félagsins kl. 1—5 e.h., gegn 200 kr. skila-
tryggingu.
BLINDRAFÉLAGIÐ,
Grundarstíg 11, sími 16035.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 36., 38. og 41. tbl. Lögbirtinga-
blaðsins 1957, á hluta í Lækjargötu 8, eign Júlíusar
Evert, fer fram eftir kröfu tollstjórans í Reykja-
vík, Einars B. Guðmundssonar hrl., og bæjargjald-
kerans í Reykjavík á eigninni sjálfri mánudaginn
28. október 1957 kl. 3,30 síðdegis.
Borgarfógetinn í Reykjavík-
Glæsileg 4ra herb. íbúð
fokheld, á jarðhæð í Hálogalandshverfinu er til
sölu. Ibúðin er ca. 130 ferm. að flatarmáli með sér
inngangi og sér hitastiliingu. íbúðin selst á mjög
hagstæðu verði, ef samið er strax. Sparisjóðslán til
10 ára að upphæð 65 þúsund kr. fylgir. Þetta er
einstakt tækifæri.
Sala og samningar
Laugaveg 29 — Sími 16916
Sölumaður: Þórhallur Björnsson, heimasími 15843.
sá bezti, sem framleiddur hefir verið, miðað við verð. 1
hann eru aðeins notuð beztu fáanleg efni . . .
gull, ryðfrítt stál, beztu gæði
og ennfremur frábært plastefni. Þessum efnum
er svo breytt, af málmsérfræðingum, efnafræðing-
um og verkfræðingum í frægasta penna heims . . .
Parker „51“.
Veljið Parker, sem vinargjöf tii vildarvina.
Til þess að ná sem beztnm áraagrt
við skriftir, notið Parker Quiak
í Parker 61 penna.
Verð: Parker ”51“ með gullhettu- kr. 580. — Sett; kr. 846. —
— Parker ”51“ með iustraloy nettu: kr. 496.00. — Sett: kr. 680
Einkaumboðsmaður: Sigurður H. Egilsson, P. O. Box 283 Reykjavík
Viðgerðxr annast: Gleraugnaverzlun Ingólfs Gíslasonar, Skólavörðustig 5, Rvík
*-«*«