Morgunblaðið - 05.11.1957, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 05.11.1957, Blaðsíða 1
20 síður 44. áreangur. 251. tbl. — Þriðjudagur 5. nóvember 1957 Prentsmiðja Morgunblaðsins- Forseti Neðri deildar farinn til Rússlands Rússar skjóta öðrum gerfi- hnetti — hundur inncnhorös i ONDON OG MOSKVA, 4. nóvember. — Laust fyrir kl. 6 á sunnu-’f’ .iagsmorguninn var skýrt frá því í Moskvu, að Rússar hefðu -kotið öðrum gervihnetti út í geiminn — og í nýja gervihnettin- um, Sputnik II., væri hundur. Gervihnöttur þessi er mun stærri en hinn fyrri og segir í Moskvufréttum, að hann sé 508,3 kg að þyngd. Gengur hann umhverfis jörðu á 1 klst. 42 mín. í mun meiri fjarlægð en sá fyrri og talið er, að mesta fjarlægð hans frá jörðu sé um 1400 km. Fyrir réttu ári beitti Einar Olgeirsson forsetavaldi í neðri deild til að hindra umræður um Ungverjalands- málin. Nú er þessi forseti neðri deildar lagður af stað austur til Moskvu til að sitja þar afmælishátíð böðla ungversku þjóðarinnar. Það hefur sem vænta má vakið mikla athygli, að lifandi veru hef ur nú verið skotið út í geiminn til langdvalar þar. Þó vekur það meiri athygli hversu hnöttur þessi er stór, því að rakettan, sem flutt hefur hnöttinn, hlýtur að hafa verið stærri en allar aðr- ar sem áður hefur verið skotið. Engar staðfestar fregnir hafa borizt um stærð rakettunnar, en ýmsar getgátur eru á lofti um þyngd hennar — og vilja vísinda- menn halda því fram, að hún hafi verið allt að 500 lestir að þyngd. V estur-þýzkur vísindamaður hef- ur þó sagt, að hún hafi ef til vill verið 1000 lestir.. — ★ — Hundurinn í gervimánanum hefst við í sérstöku hylki og segja rússneskir vísindamenn, að séð hafi verið fyrir nægilegu súrefni og fæðu til langs tíma. Fæðan Kommúnistar segja fall Zhukovs sönn- un á ágœti alþýðulýðrœðisins LONDON, 4. nóv. — Enn hef- ur engin tilkynning verið gef- in út um það hvaða örlög bíða Zhukovs, fyrrum landvarna- málaráðherra Ráðstjórnar- innar. Honum hefur, sem kunnugt er, verið vikið úr öll- um embættum — sakaður um svik við flokkinn og að hafa reynt að koma á persónu- dýrkun á sjálfum sér. Málgagn tékkneska kommún- istaflokksins, Rude Pravo, sagui í dag, að brottvikning Zhukovs væri ljós sönnun á ágæti alþýðu- lýðræðisins og þess vegna tækju tékkneskir verkamenn fréttinni með næmum skilningi. Sagði blaðið, að skipa mætti Zhukov í flokk með flokksfjendunum Molotov, Malenkov og félögum þeirra, sem hlutu makleg mála- gjöid í júní sl. Málgagn franskra sósíalista sagði í dag, að foringjarnir í Kreml reyndu nú að velta á- byrgðinni af fjölmörgum mistök- um yfir á Zhukov. ★ Af þessu er ljóst, að kommún- istar um alian heim munu taka fregninni um fall Zhukovs með fögnuði og hreyfa engum and- mælum. Hins vegar er nú beðið NEW YORK, 4. nóvember. — Fulltrúi Rússa á fundi stjórn- máianefndar SÞ, lýsti því yfir í dag, að Rússar gætu ekki tekið þátt í störfum afvopnunarnefnd- ar SÞ eins og hún væri nú skip uð. Ekki mundu þeir heldur taka þátt í störfum undirnefndarinnar. PRAG, 4. nóv. — Zapotocky, for- »eti Tékkóslóvakíu, var fluttur í sjúkrahús í dag. Ekki hefur ver- ið skýrt frá því hvað þjáir Zapo- tocky, sem nú er 72 ára gamall. eftir því hverjnm „hæfileikum og kunnáttu" Zhukov er nú talinn búa yfir, því að Krúsjeff hefur sem kunnugt er lýst því yfir, að hann muni hljóta embætti í sam- ræmi við „hæfileika og kunn- áttu“. Almennt er gizkað á það, að Zhukov verði gerður að skóla- stjóra einhvers herskóla í fjar- Iægu héraði. Enda þótt Zhukov og örlög hans hafi að miklu horfið í skugg ánn fyrir Sputnik II., hefur mikið verið rætt um það hvaða afleið- ingar fall Zhukovs kunni að hafa á valdabaráttuna í Kreml. Frétta- ritarar í Belgrad hafa það eftir júgóslavneskum kommúnistafor- ingjum, að sigur Krúsjeffs yfir Zhukov við atkvæðagreiðsluna í miðstjórninni hafi verið mjög naumur. Hafa fréttaritarar það og eftir þessum júgóslavnesku heim ildum, að átökin milli stalinista og andstalinista í miðstjórn kommúnistaflokksins fari nú æ harðnandi. Stalinistar hafi að undanförnu þjarmað mjög að Zhukov og á elleftu stundu hafi Krúsjeff reynt að bjarga þýí litla af heiðri Zhukovs sem bjargað varð með því að bjóða honum málamiðlun þess efnis, að hann héldi virðingarstöðum en léti hins vegar af að móta stjórn- málalega stefnu innan herstjórn- Framh. á bls. 2 er í formi mjög caloríuríks vökva. Er nákvæmlega fylgzt með allri hegðun hundsins, því að í hnett- inum eru tvær sendistöðvar, sem senda út ýmsar upplýsingar um geiminn og líkamlega líðan hundsins. Hundavinir um allan heim risu upp til handa og fóta er fréttin barst út og mótmæltu eindregið því tiltæki Rússa að nota skynlausar skepnur við slík- ar tilraunir. Rússar hafa svarað því til, að nauðsynlegt sé að fá skorið úr um áhrif geimferða á lifandi verur áður en menn verða sendir í slíka för. Margir Rússar hefðu hins vegar boðizt til þess að fara með Sputnik II., en sá kostur hefði verið tekinn að nota hund. í næsta hnetti verða síðan hafðir apar og nagdýr, segja Rússar. — ★ — Hins vegar hafa þeir skýrt frá þvi, að gerð verði tilraun til þess að ná hundinum aftur til jarðar. Enn sé hann við eðlilega heilsu og skorti ekkert. Reynt verði að i.á hundinum aftur á þann hátt, að hylkinu, sem hann er í, verði skotið út úr hnettinum, þegar hann er næst jörðu (um 500 míl- ur) — og síðan svífi það til jarðar í fallhlíf. Þetta muni ekki hafa nein áhrif á gang hnattar- ins og muni hann halda áfram á braut sinni óhindraður eftir það. — ★ — Forseti alþjóðasamtaka dýra- Framh. á bls. 2 Meirihlufi þings hefur heitið Gaillard stuðningi PARIS, 4. nóvember. — Gaillard, sem nú gerir tilraun til stjórnar- myundunar í Frakklandi, kvaðst í dag vera þess fullviss, að þing- ið mundi veita honum og stjórn hans traust. Gaillard er úr hópi róttækra og var hann fjármálaráðherra í síð- ustu stjórn. Hann er ungur að árum, aðeins 37 ára — og á morgun, þegar hann leitar trausts þingsins, er 38. afmælisdagurinn hans. Ef honum gengur allt að óskum verður hann yngsti for- sætisráðherra, sem setið hefur í Frakklandi síðan Napoleon var fyrsti konsúll þrítugur að aldri. ★ í dag hefur Gaillard rætt við leiðtoga allra þeirra flokka, er hann hyggst biðja um stuðning. Segir hann ráðherralistann verða fullgerðann fyrir miðnætti og ætl ar hann að mynda stjórnina með stuðningi mjög margra flokka — allt frá óháðum til sósíalista. — Mollet hefur hafnað tilboði um Hin andlega áþján var óbæriteg sagð' útlagaskáldió Falúdi á Ung- verjalandsfundinum í fyrradag FÉLAGIÐ FRJÁLS MENNING efndi til fundar í Gamla Bíói í fyrradag til að minnast ársafmælis ungversku byltingarinnar. Tómas Guðmundsson skáld setti fundinn, en gaf síðan Gunnari Gunnarssyni rithöfundi orðið. Hann minntist hetjubaráttu Ungverja og þeirra lærdóma, sem af sögu þeirra verður dregnir. Gísli Magnús- son píanóleikari lék ungversk lög að ræðu Gunnars lokinni, en síðan tók ungverska útlagaskáldið George Falúdi til máls. Var hon- um fagnað ákaft af hinum fjölmenna fundi er hann gekk fram á sviðið, sem skreytt var með blómum og þjóðfánum Ungverja og íslendinga. Ræða hans um ungversku byltinguna var myndrík og áhrifamikil, enda tóku fundarmenn með langvarandi lófataki undir orð Kristjáns Albertssonar til Falúdi, er hann þakkaði honum fyrir ræðuna og hvatti fundarmenn til draga af henni rétta lærdóma. „Við ætlum að ráðist á útvarpsstöðina“ Hér verður aðeins getið nokk- urra atriða úr hinni snjöllu ræðu hins ungverska skálds. Falúdi sagði m.a.: Hinn 23. október í fyrrahaust verska rithöfundasambandsins um 30 km utan við Búdapest. Klukkan var farin að ganga 11. Þá hringdi síminn. Það var spurt eftir mér frá Búdapest. Konan mín var í símanum. Hún er blíð- lynd kona, sem venjulega getur var ég staddur í sumarsetri ung- I ekki einu sinni þolað flugna pappír í herberginu hjá sér. Nú sagðist hún vera stödd í miðbæn- um í Búdapest með móður minni, Framh. á bls 2 ráðherrasæti, en talið er, að hinn aldni leiðtogi kaþóiska miðflokks ins, Robert Schuman, sem er 72 ára, skipi embætti utanríkisráð- herra. Sennilega munu allt að 30 menn eiga sæti í stjórninni. Allt er enn á huldu um það hvort Gaillard mun sjálfur taka að sér fjármálaráðherraenibættið, en víst er, að stefna hans í fjár- málunum mun verða ákveðin og skýlaus. Hann miðar að því að ríkisbáknið dragi saman seglin og nýir skattar verði lagðir á þjóðina fyrir árslok, auk þess sem hann mun leita mikilla erlendra lána. Stjórnarkreppan hefur nú staðið í 35 daga og virðast leið- togar sumra flokka vera farnir að örvænta. Níu flokkar íafa þegar heitið Gaillard stuðningi sínum, en þingsæti þessara flokka eru sam- tals 395 af 595 sætum. Ætti Gaill- ard því að hljóta traust þingsins að öliu óbreyttu. SEINUSTU FRÉTTIR: Laust fyrir miðnætti skýrði Gaillard fréttamönnum svo frá, að hann hefði lokið við að semja ráðherralista sinn. Ekki verður listinn birtur fyrr enn á morg- un, en allt þykir benda til þess að Pineau skipi þar enn sæti utanríkisráðherra. Krúsjeff rœðir við ,,hvítu sauðina" i Kreml Svörtu sauðirnir" fá oð horfa á MOSKVA, 4. nóvember. — For- ystumenn deilda kommúnista- flokksins í hinum ýmsu löndum safnast saman í Moskvu þessa dagana til þess að taka þátt í 40 ára byltingarafmælinu 7. nóvem- ber. Talið er fullvíst að Krúsjeff muni reyna að nota tækifærið til þess að efna til ráðstefnu með hinum erlendu kommúnistum til þess að treysta böndin milli flokksdeildanna áður en forsæt- isráðherrar NATO-landanna koma saman í París. Fullvíst er, að „svörtu sauð- irnir“ fá að taka þátt i hátíða- höldunum og muitu þeir Molotov, Kaganovits og Shepilov vera væntanlegir til Moskvu fyrir af- mælið. Hins vegar hefur ekkert heyrzt um Malenkov — og óvíst er talið að Zhukov taki þátt í hátíðahöldunum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.