Morgunblaðið - 05.11.1957, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 05.11.1957, Blaðsíða 9
t>riðjudagur 5. nóvembcr 1957 M O R G V N B I Á Ð l B 9 , Nokkrar huglet&ingar i tilefni af II. 20 ára afmæli íslenzkrar óperustarfsemi bingsálybtanartillagan Fyrir réttum 9 mánuðum (í nóv. — ’56) báru 5 alþingismenn fram mjög svo tímabæra þings- ályktunartillögu varðandi fram- tiðarmöguleika íslenzkrar óperu- starfsemi. Voru þeir svo hóg- værir að miða óskir sínar við þær hámarkskröfur, sem fyrir 20 ár- um voru almennt skoðaðar sem lágmarkskröfur, er gera ætti til hins vætitanlega Þjóðleikhúss. Með fullri virðingu fyrir störf- um hins nýafstaðna þings, virðist það hafa haft öðru þaifara að sinna en þessu yfirlætislausa og cpóiitíska máli, því það var ekk> fyrr en i jan. ’57, sem tillagan var t-il umræðu í sameinuðu alþingi. Flutti framsögumaður tillögunn- ar, frú Ragnhildur Helgadóttir, þá mjög greinargóða ræðu um málið, sem allir hvar í fiokki, sem þeir stóðu, hefðu átt að geta íekið undir. (Birtist ræðan í Mbl. 1. febr. s.l.) Virðist málið hafa verið sett í nefnd og síðan stungið svefn- þorni hins alþekkta tómlætis, þ.e.a.s. dagað uppi a.m.k. hefur ekkert um það heyrzt opinber- lega. Leitað álits Þjóðleikhússstjóra Ef til vill er skýringuna á ör- lögum þess að finna í Tímanum 6. marz s.l. Birtist þar heillar síðu viðtal við Þjóðleikhússstjóra, þar sém hann lýsir óbeinlinis hug sínum til umræddrar tillögu. Athyglisverðast við þetta viðtal er sú staðreynd, að Þjóðleikhúss- stjóri kemst ekki hjá því að stað- festa flest af þeim rökum, sem mæla með samþykkt tillogunnar! Þó er ekki um það að villast, að hann er mjög andvígur þeirri hug mynd, að 5—10 óperusöngvarar öðlist nokkra tryggingu fyrir því, að Þjóðleikhúsið inni af hendi einhverjar lágmarkskröfur um söngleikaflutning. Þar sem hér er um mjög svo einhliða röksemdafærzlu að ræða, get ég ekki stillt mig um að birta nokkur atriði úr viðtalinu. ( Leturbreytingar og athugasemd ir innan sviga eru mínar). í - viðtalinu viðurkennir Þjóð- leikhússstjóri eftirfarandi stað- xeyndir: 1) að ísL leikrit séu ver sótt en skyldi. 2) að dramatisku leikritin er- lendu séu illa sótt. 3) að óperettur reynist bftur til aðsóknar en leikritin. 4) að aðsólinin að óperunni „Töfraflautan” um síðustu ára- mót, hafi verið ágæt. 5) að það dirfskubragð að ákveða strax á öðru starfsári að setja á svið óperuna „Rigolstto“ með ísl. söngvurum nema einum, hafi heppnast mjög veL 6) að síðan hafi verið sýndir einn til tveir söngleikir á ári við mikla aðsókn. Eftir þessa ótvíræðu viður- kenningu á velgengni óperu- og söngleikjastarfsemi Þjóðleik- hússins, verður blaðamanninum á að spyrja hvaða möguicikar séu hér fyrir óperu. í stað þess að vera sjálfum sér samkvæmur og svara á já- kvæðan hátt, snýr Þjóðleikhúss- stjóri alveg við blaðmu; verður skyndilega hinn svartsýnasti og lætur sér vaxa mjög í augum hinn ímyndaði kostnaður. Svar- ar hann spurningunni með eftir- farandi fullyrðingum, sem eru hvorttveggja í senn: lítt rök- studdar og heldur villandi: „Ópera myndi hafa stórfelldan kostnað í för með sér“ — (en hvað um hagnaðinn?) — „þá þyrfti ekki aðeins að fastráða einsöngvara, heldur einnig kór og ballettdansara“. (Það er engu líkara en allar óperurnar s.l. 7 ár hafi verið án kórs og balletts!) — „Meðlimir kórsins fá nú að- eins vissa greiðslu fyrir hvert kvöld, sem kórinn syngur, en yrði hér komið upp fastri óperu, væri vart komizt hjá því að hafa þá fastlaunaða.... Svipað yrði með ballettdansarana.. Fleiri kostn- aður við óperur kemur svo til greina!“ ( engin dæmi nefnd!).. „Af þeim ástæðum verður vart annað viðráðanlegt fyrir okkur að sinni en að halda áfram sýn- ingu söngleikja með svipnðum hætti og undanfarið” (eilíí kyrr- staða í stað sjálfsagðra framfara) — „Það hefur áreiðanlega nnkið menningarlegt gildi. þótt meira væri æskilegra!!“ (Sannarlega ánægjuleg og athyglisverð játn- ing, þrátt fyrir allt). Síðar í viðtalinu verður Þjóð- leikhússstjóra það á að taka bein- línis aftur aðalmótbáruna gegn tillögunni, er hann segir orðrétt: „Margir halda aða aðalkostnað- urinn sé við leikarana (sbr ein- söngvara í óperum), en svo er ekki!!“ Hér komst hann loks að sjálfu efninu, því samkvæmt orðalagi tillögunnar, er aðeins farið fram á það, að rikisstjórnin beiti sér fyrir því að ráðnir verði að Þjóð- leikhúsinu 5—10 einsöngvarar og að þar verði síðan fluttir 3—4 söngleikir á hverju ári.“ Úlfaldinn, sem gerður er úr mýflugunni Hljóta nú flestir að sjá þann úlfalda, sem búið er að gera úr mýflugunni, því að jafnvel þótt söngleikjum Þjóðleikhússins fjölgaði um 1—2 á ári, þá get ég ekki séð, að það þurfi að skapa brýna þörf á að fastráða strax bæði kór og dansara. Hvers vegna þyrfti ráðning 5—10 einsöngvara frekar að breyta viðhorfi Þjóð- leikhússstjóia til kórs og dansara en þegar hann réði á sínum tíma visi að hljómsveit og skönmu síð a:- fastan hijómsveitarstjóia? Auk þess man ég ekki betur en að Þjóðleikhússstjóri hafi -iotað kór og dansara við mörg önnur tækifæri en söngleikjasýningar, án þess að hafa áberandi áhyggj- ur af því, að þeir væru ekki fast- ráðnir. í rauninni er engu likara en að Þjóðleikhússstjóri vilji láta almenning halda, að samþykkt þingsályktunartillögunnar muni hafa einhverja byltingu í för með sér. Sannleikurinn er þó sá, að tillagan fer ekki fram á ueina rót- tæka breytingu, hel.Jur aðeins það, að einhver föst regla eða skipulag komist á söngleikjastarf- semina, en fyrsta skrefið í þa átt er vitanlega sú sjálfsagða ráð- stöfun, að nokkrir af okkar fremstu óperusöngvurum fái ein- hverja tryggingu fyrir því að verða meðhöndlaðir á trann- sæmandi hátt líkt og okkar fresmtu leikarar. Þegar við höfum nú fyrir okk- ur á prenti þau orð Þjóðleikhúss- stjóra, að aðalkostnaðurinn sé ekki við leikarana, (en þar eru fastráðnir 16 á A-samning og miklu fleiri á B- og C-sam.ning) þá ætti það að vera augljóst mál, að ráðning 5—10 einsöngvara á B- eða jafnvel A-samnmg, myndi síður en svo að hafa neinn stór- felidan kostnað í för með sér. Þvert á móti bendir margt til þess, að slík ráðstöfuu myndi spara Þjóðlcikhúsinu ýms óþarfa útgjöld er frá liður. Nánar nm efni tillögnnnar Hér er kannske vert að staldra við stundarkorn og íhuga þá stað- reynd, að s.l. 3 ár (1954—1956) hafa verið sýndir hér 3 songleikir á ári og verða a.m.k. 3 á þessu ári (óperan „Tosca“ nú í sept). Sé þess gætt að aðrir aðilar en Þjóðleikhúsið hafa, þrátt fyrir mi— —13au skilyrði, átt sinn drjúga þátt í því að tala sön0- leikjanna er þetta há, liggur í augum uppi, að Þjóðleikhúsinu, íMv öll sín forríttin.. , nefði vitan lega reynzt auðvelt að annast eitt þessa starfsemi þ.e.a.s. að sýna 3 söngleiki á -ri s.l. 3 ár. En hvað segir tillagan — „að þar ( í Þjóð- leikhúsinu) verði síðan flutt'r 3 — 4 söngleikir á hverju ári“ Með öðrum orðum þá fer tillagan ekki fram á að söngleikjum fjölgi frá því, sem verið hefur s.l. 3 ár, heldur hitt, að þeir komizt allir undir sama þak. Verður varla uin það deilt, að Þjóðleikl úsið, sem er aðalsöngleikjahöll íslands, sé æskilegasti samastaður og mið- stöð ísl. söngleikjastarfsemi. Og þar sem aðsóknin bendir einmitt til þess að söngleikirnir séu frek- ar of fáir en of margir, þá er talan 3—4 söngleikir á ári í raun- inni nokkurs konar trygging fyrir því að söngleikjunum fækki ekki frá því sem nú er. Er það því alger misskilningur ag halda því fram, að þingsályktunarti’.lagan sé óframkvæmanleg af þcssum sökum. Með samþykkt tillögunnar fengi ísL söngleikjastarfsemi fyrst og fremst fast skipulag irman veggja þei: ar stofnunar, sem hef ur langbezt skilyrði allra ir.n- lendra aðiia til slíkrar starfsemi Þyrftu þá hinir ýmsu ahugt- mannahópar væntanlega ekki lengur að gegna því hlutverki Þjóðleikhússins, að fullnægja söngleikjaþörf íslendir.ga, enda yrðu okkar hæfustu einsöngv- arar þá ráðnir við Þjóleikhúsið og sköpuðust þar með skilyrði íil að hagnýta kraftana betur en gert hefur verið. Að sjálfsögðu hefði þetta í för með sér aukna ábyrgð og skyldur fyrir Þjóðleikhússstjóra, en vandi fylgir vegsemd hverri! í þessu sambandi vil ég ítreka það verðskuldaða lof, sem Þjóðleik- hússtjóri á sannarlega skilið fyrir þann stórhug, sem hann sýndi við fyrstu söngleikjasýningar Þjóðleikhússins 1950—1953, en það breytir hins vegar ekki þeirri staðreynd, að 'flestir ísl. tóiiiist- arunnendur hafa orðið fyrir tals- verðum vonbrigðum yfir þeirri hægfara þróun eða kyrrstöðu- stefnu, sem síðan hefur orðið vart hjá Þjóðleikhúsinu ©g hér hefur verið gagnrýnd. Enda þótt hér sé ekki rúm til að geta þeirra mörgu, sem hafa átt sinn þátt í því að gera söng- leikaflutning mögulegan hér á landi, get ég ekki látið hjá því liða að minnast á einn mann. Er það dr. Victor Urbancic, sem hef- ur, að öllum öðrum ólöstuðum borið hitann og þungan af þessari starfsemi og stjórnar nú á þessu hausti sínum 14. söngleik þ.e.a.s. söng- og hljómsveitarstjórn. Þáttur Félags íslenzkra einsöngvara Að undanförnu hafa ýmsir að- ilar margskorað á Þjóðleikhúss- stjóra að láta íslenzka óperusöngv ara sitja íyrir um hlutverk í þeim óperum og óperettum, sem Þjóðleikhúsið tekur til flutnings. Enda þótt Félag íslenzkra ein- söngvara hafi verið þar einna fremst í flokki, virðist það alls engin áhrif hafa haft 4 stefnu Þjóðleikhússstjóra. Þá má geta þess (shr. fram- söguræðu frú Ragnhildar), að for maður Félags ísl. einsö.,gvara, Bjarni Bjarnason læknir, hefur nýlega sent menntamá'ar’.ðherra bréf um áhugamál félagsins og þar m.a. farið fram á að tekinn verði upp söngleikjaflutningur við Þjóð’eikhúsið. Af þessum ástæðum og reyndar mörgum öðrum, er ekki um það að villast, að þingsályktunartil- lagan á rikan hljómgrunn í hug- um flestra íslenzkra hljómlistar- unnenda. Tölur, sem tala sínu máli Samkvæmt framsöguræðu Ragnhildar Helgadóttur, hefur verð aðgöngumiða að söngleikja- sýningum Þjóðleikhússins jafr.an verið mun hæi.„ en að venjul.g leiksýningum. Þrátt fyrir þal> hef ur meðalfjöldi sýningargesta á söngleikjunum s.l. 7 ár verið 568, en séu óperunnar (með ísl, kröft- um) taldar sérstaklega, verður meðaltalið enn hærra eða 582. Til samapburðar má geta þess, að meðalfjöldi allra sýningar- gesta Þjóðleikhússins 1950—55 var aðeins 462, en húsið tekur eins og kunnugt er 661 í saeti. Samkvæmt þessu er það aug- ljóst mál, að söngleikirnir eru langsamlega bezt sóttn verkefni Þjóðleikhússins. Auk þess hefar aðsóknin sízt farið minnkandi t.d. var „Káta ekkjan" sýnd 28 sinn- um hér í fyrra, — og jafnan fyrir fullu húsi( meðalfjóldi 653 á sýningu). Er það svipaður sýning- arfjöldi og var á , Rigoletto" fyr- ir 6 árum, en þá var meðaltal sýningargesta aðeins minna (641), sem þótti þó alveg Crábært. Samkvæmt reikningum Þjóð- leikhússins hafa leikiitin yfirleitt verið sýnd með tapi. Á hinn bóg- inn hefur gengið mun betur með söngleikina, hafa sumir skiiað ótrúlegum hagnaði — eða svo ég noti orð Þjóðleikhússstjóra (Alþbl 13/7-56) um eina óperuna: , frá f járhagslegu sjónarmiðj cin bezta sýning leikhússins, — gaf tugi þúsunda í ágóða.“ Þuifum við yfirleitt frekari vitni? Lokaorð Eins og áður segir, þá er Þjóð- leikhússstjóra manna bezt kunn- ugt um það hve örugg tekjulind söngleikirnir eru. Sézt það kannske bezt á þeim gífurlega kostnaði, sem hann er farinn að leggja í uppfærzlu þeirra, sam- anber t.d. allt búningaskrautið á sýningum „Kátu ekkjunnar”, sem bar óneitanlega nokkurn keim af tízkusýningu. Væri ólíkt æskilegra að Þj óðleikhúsið reyndi frekar að sníða sér siakk eftir vexti og tæki jafntramt upp þjóðhollari stefnu í þessum söng- leikjamálum. Sönn list fer nefni lega ekki eftir því hvort söng- konan er klædd tötrum, venju- legum fötum eða skrýdd hálf- gerðum drottningarskrúða. Það er ekki nóg að stofna Þjóð- leikhús, á þeim forsendum meðal annars, að það eigi að vera lyfti- stöng fyrir ísl. söngleikjastarf- semi — og láta þag síðan af- skiptalaust hvort fyrirheitin reynast tálvonir einar. Ég sé t.d. ekki betur en að ísl. óperusöngv- arar séu enn þann dag í dag sömu olnbogabörnin innan veggja Þjóð- leikhússins og fyrir 5-—6 árum. Það lifir engin söngvari á því náðarbrauði að vera aðeins notað ur sem nokkurs konar skraut- fjöður einu sinni á ári eða við hátíðleg tækifæri svo sem kon- ungskomur o.s.frv. Islenzkir óperusöngvarar hafa margoft sýnt hæfni sína og list- ræna túlkun — og mundu vafa- laust gera það í enn ríkara mæli, ef þeim væru sköpuð nægileg þroskunar skilyrði t.d. eitt hvað svipað því sem ísl. leikarar eiga við að búa. Þar sem reynzl- an sýnir það ótvírætt, að við getum hægiega skapað þeim um- rædd skilyrði þá er það beir.línis skylda okkar, að láta ekki þetta 20 ára afmælisár líða, án þess að sýna ísl. óperusöngvuru.n ein- hverja viðurkenningu í verki. Að lokum vænti ég þess fast- lega, að alþingismenn megi bera gæfu til að sameinast um þetta nauðsynja mál strax á hausti komanda. Slikt myndi ekki að- eins hafa ómetanlegt gildi fyrir hlutaðeigandi söngvara, heldur jafnframt stuðla að eðlilegri þróun íslenzkrar sönginenningar. • 27. ágúst 1957. Jóhann Bernhard. Málflutningsskrifstofa Einar B. Guðmundsson Guðlangur Þorláksson Guðmundur Pctursson Aðalstræti 6, III. hæð. Símar 1200? — 13202 — 13602. EINAR ASMUNDSSON hæsta réttarlögniaðui • Hafsteinn Sigurðsson héraðsdómslögmaður. Skrifstota Hafnarstræi-i 5. Sími 15407. Hurðarnafnspjöld Bréfalokur Skiltagerðin, Skólavölðustíg 8. Stefán íslandi sem Faust í samnefndri óperu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.