Morgunblaðið - 05.11.1957, Page 20

Morgunblaðið - 05.11.1957, Page 20
VEÐRIÐ Norðan kaldi eða stinni \'S- kaldi, léttskýjað. Ungverjalandsfundur Sjá bls. 11. 251. tbl. — Þriðjudagur 5. nóvember 1957 Enn tókst föngum frá Litla-Hrauni á Einn þeirra komst aftur undan í gœr að strjúka laugardag Þessi mynd va rtekin við útför Bjarna Sigurðssonar fyrrver- andi skrifstofustjóra Varðarfélagsins, er fór fram frá Dóm- kirkjunni í gær. Fulltrúar Varðarfélagsins bera kistuna úr kirkju, þingmenn Sjálfstæðisfiokksins báru í kirkju. Séra Bjarni Jónsson vígslubiskup jarðsöng, dr. Páil fsólfsson lék á orgei og Dómkirkjukórinn söng. Fjölmenni var við jarðar- förina. (Ljósm. Mbl.: Ól. K. M.) vtrnn Ivkov öðru sæti Selfossi, 4. nóv. FRÁ því á sunnudaginn hefur fjöldi fólks hér um alla sýslu fylgzt af spenningi með eltinga- leik lögreglu og fangavarða við þrjá strokufanga frá Litla Hrauni. í kvöld þegar talið var að fang- arnir væru komnir undir lás og slá á ný, barst fregnin hingað að einum strokufanganna hefði tekizt að strjúka þá er verið var að flytja þá til fangelsisins. Það vai- um klukkan 6 á sunnu- dagskvöldið sem föngunum tókst að strjúka frá Litla Hrauni. Þá var þar matmálstími. Þeir kom- ust út úr húsinu og að fangelsis- hliðinu, en þar tókst þeim auð- veldlega að losa járnrim úr og voru þeir frjálsir ferða sinna, dimmt var orðið. Þeir komu þá um kvöldið, milli kl. 8—9 að Ragnheiðarstöðum í Gauverjabæjarhreppi, en sá bær er fremsti bærinn í hreppnum. Er þaðan ekki ýkjalangt til sjáv- ar. Einn strokufanganna þekkti bóndann Guðmund Axelsson, sem þar er einn með konu sinni. Hafði þessi fangi verið hjá honum um skeið í vinnumennsku. — Fang- arnir gættu þess á meðan þeir höfðu þar viðdvöl að Guðmundur færi ekki í símann og segi til um ferðir þeirra, enda mun hann ekki hafa reynt það, því fangarn- ir hefðu þá látið höndum skipta við bónda. En þegar þeir voru farnir seint um kvöldið, gerði Guðmundur Axelsson þegar aðvart um að þeir hefðu þar verið. Ekki gat hann þó vitað hvert þeir hefðu farið, því þeir voru á svipstundu- hornir í myrkrinu. Ekki er kunnugt um hvaða ráð- stafanir voru þá gerðar um kvöld ið til þess að hafa hendur í hári strokumannanna, aðrar en þær að lögreglumenn voi'U settir á Ölfusárbrú. Þar var svo höfð varðgæzla alla nóttina og í allan dag. Á sunnudagsmorguninn komu þremenningarnir frá Litla Hrauni gangandi heim að Ragnheiðarstöð um, vel hressir og hvíldir eftir svefn næturinnar í beitarhúsum sem standa nokkuð frá bænum. Þar höfðu þeir grafið sig í heyið. Guðmundur bóndi mun hafa bent þeim á hve tilgangslaust væri fyrir þá að reyna að komast undan. Fékk hann þá til þess að samþykkja það, að aka með hon- um niður að Litla Hrauni. gegn ákveðnu skilyrði sem þeir settu fram. Nú hringdu þeir í sýslu- Fœr vísindastyrk Wageningen 4/11 (Reuter) Á SKÁKMÓTINU í Wageningen er nú lokið 5 umferðum. Vinningar standa þannig að loknum biðskákum úr 4. og 5. umferð: Szabo 5 v., Friðrik Ólafsson 3'/£ vinning., Uhlman og Larsen 3 v og 1 biðskák, Donner og Trifunovio 3 v., Duckstein v. og biðskák. Úrslit í 5. umferð sem tefld var á sunnudaginn, urðu þessi: Friðrik og Trifunovic: jafntefli. Troianescu vann Alster. Szabo vann Donner. Dúckstein og Uhlmann: bið. Hriíning á fónleikum Sleinunnar S. Briem HÚSFYLLIR var á píanótónleik- um ungfrú Steinunnar S. Briem í Þjóðleikhúsinu s.l. sunnudag. Var hinni ungu listakonu afburða vel tekið. Auk þeirra verka sem voru á hljómleikaskrá henn- ar varð hún að leika tvö aukalög. Var hún köliuð fram hvað eftir annað, bæði eftir einstök verk og i lok hljómleikanna. Einnig barst henni fjöldi blóma. Meðal áheyr- «nda voru forsetahjónin. Hanninen og Orbaan: jafnt. Teschner og Clarke: biðskák. Stáhlberg vann Linblom. Kolarov vann Ivkov. Larsen og Niephaus: biðskák. í gær voru tefldar biðskákir úr 4. og 5. umferð. Úrslit urðu þessi: Friðrik vann Ivkov. Trifunovic vann Niephaus. Teschner vann Lindblom. Donner vann Alster. Teschner og Clark: jafntefli. Orgaan og Dúckstein: jafntefli. Skák Larsens og Niephaus fór aftur í bið. AKRANESI, 4. nóv. — Einn rek- netabótur, Júlíus Björnsson frá Dalvík, fór héðan út í dag. Ægir var ekki tilbúinn fyrr en i morg- un og fór hann þá út til síldar- leitar. FYRIR nokkrum dögum var til- kynnt í Kaupmannahönf að ís- lenzki læknirinn Ólafur Bjarna- son hefði hlotið styrk úr sjóði I. C. Möllers til rhnnsókna á krabbameini í legi. Nemur styrk- urinn til Ólafs 10.000 dönskum krónum. Ólafur Bjarnason læknir er 43 ára að aldri. Hann lauk embættis prófi í læknisfræði við Háskóla íslands árið 1940 og gerðist það sama sumar aðstoðarlæknir við rannsóknastofu háskólans í meinafræði. Hefur hann unnið þar síðan, og er nú 1. aðstoðar- læknir. Ólafur dvaldist við fram- haldsnám við Korolinsku stofn- unina í Stokkhólmi 1945—1947 og í London 1949—1950. I. C. Möller sjóðurinn ber nafn stofnandans, sem er danskur iðn- rekandi. Úr honum eru veittir styrkir til ungra vísindamanna í Danmörku, íslandi og Svíþjóð og hefur einn íslendingur áður not- ið styrks úr sjóðnum. Er það Ein- ar G. E. Sæmundsen skógfræð- ingur, sem hlaut hann íyrir árum. Að þessu sinni hreppti danskur vísindamaður, Jens Nielsen að nafni, styrk ásamt Ólafi Bjarna- syni. Fæst hann einnig við krabbameinsrannsóknir. Er tilkynning um styrkveiting- una var birt, var og sagt frá um- mælum Níelsar Dungal prófess- ors um Ólaf. Kvað prófessorinn hann vera „sjálfstæðan og athug- ulan rannsóknarmann og ágætan starfsmann“. mannsskrifstofuna hér á Selfossi. Þeir kváðust mundu koma í bíl Guðmundar á Ragnheiðarstöðum niður að Litla Hrauni án allrar fyrirhafnar fangelsisvarðanna, gegn því að refsing þeirra yrði milduð. Um þetta var ekki hægt að gefa nein ákveðin loforð. Þá ventu þeir kvæði sínu í kross og skyldi yfirvaldið vissulega þurfa mikið fyrir því að hafa, að flytja þá aftur í fangelsið. Með það ruku fangarnir á dyr á Ragnheiðar- stöðum og gengu upp Mýrar eins og það er kallað. Sást til ferða þeirra frá hverjum bæ og með þeim var stöðugt fylgzt. Hér á Selfossi voru sendir tveir bílar af stað mannaðir röskleika mönnum, til þess að hefta för strokufanganna. Segir ekkj af ferðum fyrr en síðdegis í dag. Þá komu fangarnir til ívars bónda í Saurbæ. Hann er þar einn á jörð- inni sinni. Er bær þessi ekki í vegasambandi, um V2 tíma gang- ur af veginum. Þar voru þeir er Selfyssingarn- ir komu og handtóku þá. Fang- arnir eru ailir ungir menn. —- Mun einn þeirra hafa tekið þátt í öllum þeim flóttatilraunum sem gerðar hafa verið á Litla Hrauni nú í haust og vetur. Þegar komið var niður að Litla Hrauni í kvöld með fangana og verðirnir voru að taka við þeim, komst einn þremenninganna und an á flótta á nýja leik. Þetta var í rökkurbyrjun og misstu fanga- verðirnir af manninum. Hér var um að ræða þann hinn sama og þrisvar áður hafði flúið, en hann er norðan frá Akureyri þessi maður. Hann hafði ekki náðst þá er síðast fréttist. Var í kvöld aftur kominn lögreglumaður á Ölíusár brú, til þess að hefta för fangans ef hann myndi reyna að komast vestur ýfir ána t.d til Reykja- víkur. — G. G. Gamla húsið í Þjósár- túni brann til ösku í gœr Nýja húsið stórskemmdist Selfossi og Mykjunesi í Holtum, 4. nóv. GAMLA TMBURHÚSIÐ í Þjórsártúni brann í morgun til ösku. Miklar skemmdir urðu á nýja bæjarhúsinu. Þetta er þriðji stór- bruninn sem orðið hefur milli Þjórsár og Rangár síðustu vikui-nar. Það var um klukkan 11 að eld- urinn kom upp í húsinu. Þá var strekkingur, og heimilisfólkið, Hvað er framundan í efnahagsmálunum! * Olafur Björnsson talar um efna- hagsmál á aðalfundi Varðar í kvöld LANDSMÁLAFÉLAGIÐ VÖRÐUR heldur aðalfund í Sjúlfstæðis- húsinu í kvöld kl. 8,30. Á fundi þessum fara fram venjuleg aðal- fundarstörf. Þá mun prófessor Ólafur Björnsson, alþingismaður, flytja ræðu: — Hvað er framundan í efnahagsmálunum? Um fátt er nú meira talað og hugsað af öllum almenningi en um efnahagsmálin. Og menn spyrja að vonum, hvað sé fram undan í þeim efnum. Það er því að líkum, að Varðarfélagar muni ekki sitja sig úr færi með að hlýða einmitt á Ólaf Björnsson í kvöld. Verður vafalaust mjög fróðlegt að heyra hann skýra þessi mál og t yfja til mergjar. F.ftir ræðu prófessorsins mun hann svara fyrirspurnum, er fund- armenn geta beint til hans um þessi mál. Olafur Bjönisaou 2 ! fékk ekki neitt við eldinn ráðið. Kallað var á slökkviliðið á Sel- fossi. Gamla húsið, en það reisti Ól- afur Isleifsson læknir árið 1904, var brátt alelda. Slökkvistarfið var mjög erfitt og torsótt og að eftir að slökkviliðið á Selfossi var komið á vettvang, tók um eina klukkustund að koma dæl- unni í gang. Mun þessi gang- tregða hafa stafað af frostinu og kulda. Á meðan á þessu gekk brann gamla húsið að mestu og eldurinn læsti sig í þak nýja bæjarhússins, sem stendur fast við gamla hús- ið. Brann um helmingur þaksins, áður en tekizt hafði að kæfa eld- inn. Innanstokksmununum tókst að mestu að bjarga út úr bænum, en aðrar skemmdir á bæjarhús- inu urðu af vatni og reyk. Ölver bóndi Karlsson bóndi í Þjósártúni, sem þar hóf búskap 1943, hefur á þessum árum stór- lega bætt jörðina og rekur hann I mikið bú þar. Meðan hús hans er óhæft til íbúðar mun hann halda til með konu sína og fimm börn þeirra og fullorðna konu að Þjótanda hjá Ólafi bónda. Eldsupptök urðu þau að gamla húsið hefur verið notað sem kart- öflugeymsla a.m.k. hluti af því og vegna frosthættu hafði verið lagt í eldavél, en út frá henni kviknaði. Það bjargaði nýja bæjarhúsinu að brunadælunni tókst loks að koma í gang. Orðsending frá Morgunblaðinu VÉGNA inflúenzutaraldurs vantar börn til blaðburðar. Meðan þannig stendur a þarf blaðið að fá börn og unglinga til að hlaupa í skarðið og taka að sér btaðburð Börn þau, sem vilja hjálpa til eru vinsamlegast beðin að hringja til afgreiðslu Morgun- blaðsins, simi 2?480, eða koma og tala við afgreiðsluna Aðal- stræti 6.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.