Morgunblaðið - 20.11.1957, Síða 2
2
MORCTJMiL 4 ÐIÐ
Miðvikudagur 20. nóv. 1957
ENDUHSKIPULAGNING NATO
Nánari samvinna — Aukin verkaskipting
LONDON, 19. nóvember. — Full-
trúar Bretlands og Bandaríkj-
anna hafa að undanförnu setið á
rökstólum og gert áætlun um
endurskipulagningu herstyrks
NATO.
Áætlun þessi mun nú fullgerð,
en enn hefur samt engin opinber
tilkynning verið gefin út um
hana. Fréttamaður AFP í Londor.
þykist þó hafa áreiðanlegar heim
ildir fyrir því að hér sé um mjög
víðtækar breytingartillögur að
ræða og sé gert réð fyrir að
stofnsetja sameiginlegan her
bandalagsins og auk þess verði
yfirstjórn allra herja bandalags-
ríkjanna meira í höndum her-
stjórnar bandalagsins en áður.
M. a. er talið, að áætlað sé,
að sjóher Norðmanna og Dana
verði undir einni stjórn. — Þá
er gert ráð fyrir nánari sam-
vinnu bandalagsríkjanna á vís-
indasviðunum og jafnframt
verkaskiptingu. Bandaríkin eiga
að framleiða langdræg kjarn-
orkuskeyti og vetnissprengjur, en
Bretar eiga að leggja aðal-
áherzlu á framleiðslu flugskeyta,
sem minna flugþol hafa. Bæði
löndin láta kjarnorkuvopn af
hendi við önnur bandalagsríki,
sé þess óskað og birgðir af slík-
um vopnum verða fluttar til
bandalagsríkjanna undir umsjá
Breta og Bandaríkjamanna. —
Frakkar og V-Þjóðverjar verða
beðnir um að framleiða skamm-
dræg og meðallangdræg flug-
skeyti, en kjarnorkuhleðslan í
þau verður einungis framleidd i
Bretlandi og Bandaríkjunum.
Forsetakjörið
kom á óvart
PRAG, 19. nóv.
Einkaskeyti frá Reuter.
ANTONIN NOVOTNY, aðalritari
kommúnistaflokksins tékkneska,
var í dag kjörinn forseti Tékkó-
slóvakíu. Hafði miðstjórn flokks-
ins stungið upp á honum sem
forsetaefni og var hann kosinn
einróma í tékkneska þinginu. —
Novotny er 52 ára að aldri, sat
í fangabúðum Þjóðverja á styrj-
aldarárunum, en hefur gegnt
aðalritaraembættinu í flokknum
í fjögur ár. Hann mun ekki láta
af því embætti, en gegna því
jafnhliða forsetaembættinu.
Almennt hafði verið búizt við
því að forsætisráðherrann, Sir-
oky, mundi verða fyrir valinu í
forsetaembættið og kom kjör
Novotnys mjög á óvart. Lét Sir-
oky svo um mælt í þinginu 1
dag, að þar sem kommúnista-
flokkurinn væri eina skapandi
aflið í landinu væri sérlega vel
til fallið, að aðalritari hans
gegndi einnig forsetaembætti.
Von Brentano til við-
rœðna við Dulles
Washington, 16. nóv.
Einkaskeyti frá Reuter.
DULLES utanríkisráðherra tjáði
blaðamönnum í dag, að von
Brentano, utanríkisráðherra V-
Þýzkalands, mundi koma flug-
leiðis vestur um haf í lok vik-
unnar og ræða við Dulles um
ýmis þau mál, er tekin verða til
umræðu á ráðherrafundinum í
París í næsta mánuði. Kvað Dull-
es þá Adenauer kanslara og von
Brentano mundu fara til Lond-
on í næstu viku til viðræðna við
brezka ráðamenn og þess vegna
væri mjög heppilegt að þeir von
Brentano ræddust við nú. Ekki
vildi Dules svara spurningum
blaðamanna um það hvort fyrir-
hugaður væri sameiginlegur
fundur utanríkisráðherra Bret-
lands, Frakklands og Banda-
ríkjanna.
Sukselainen gefst upp
— illar horfur
Helsingfors, 19. nóv.
Einkaskeyti frá Reuter.
SUKSELAINEN gekk í dag á
fund Kekkonen forseta og skýrði
honum svo frá, að hann hefði
gefizt upp við tilraunir til mynd-
unar meirihlutastjórnar í Finn-
landi. Hefur Sukselainen reynt
að mynda stjórn með þátttöku
sósíaldemókrata, bændaflokks-
Evrópumarkaður
London, 19. nóv.
Eínkaskeyti frá Reuter.
NEÐRI DEILD belgiska þingsins
samþykkti í dag aðild Belgíu að
Evrópumarkaðinum og Euratom.
Efri deildin mun nú fjalla um
málið. Frakkland, V.-Þýzkaland
og Ítalía hafa þegar fullgilt aðild
sína að báðum þessum bandalög-
um. Búizt er við að Holland og
Luxemburg afgreiði málið einnig
iunan skamms.
— Eldflaugastöðvar
Frh. af bls. 1.
í dag, eftir að hann hafði átt fund
með Eisenhower forseta, að
Bandaríkin mundu geta látið
meðallangdræg flugskeyti af
hendi við bandalagsríkin í Ev-
rópu fyrr en búizt hefði verið
við. Hér er um að ræða flugskeyti
sem hægt er að skjóta 2,400 km
vegalengd. Af öryggisástæðum
kvaðst hann ekki geta sagt ná-
kvæmlega hvenær Bandaríkin
mundu tilbúin til þess að afhcnda
skeytin, en ekki mundi það verða
þegar í stað.
ins og finnska og sænska þjóð-
flokksins. Bað Kekkonen hann
þá að reyna að mynda stjórn með
þátttöku sex flokka — kommún-
ista og íhaldsflokksins auk hinna
fjögurra fyrrnefndu.
Fulltrúar íhaldsflokksins og
sænska og finnska þjóðflokksins
gerðu Sukselainen þegar grein
fyrir því að þeir vildu ekki ganga
til stjórnarsamstarfs við komm-
únista — slíkt kæmi aldrei til
grelna.
Kommúnistar tilkynntu og, að
þeir vildu ekki eiga aðild að sex
flokka stjórn.
SlÐUSTU FRÉTTIR
Mikillar óánægju gætir meðal
finnskra stjórnmálamanna með
misheppnaðar tilraunir Sukse-
lainen til þess að mynda stjórn
Fullvíst er talið, að þingmenn
hafi rætt það í dag sín á milli
hvort ekki væri happadrýgst að
slíta þingi og efna til nýrra kosn-
inga. Finnlandsforseti kvaddi
leiðtoga þingmannaflokkanna til
fundar í kvöld, en ekki hafði
frétzt neitt af viðraoðum hans við
þá seint í kvöld.
Lílil síldveiðl
É Akureyrarpolli
AKUREYRI, 19. nóv. — Síldveiði
hefur verið mjög lítil hér á Akur-
eyrarpolli sl. þrjá daga. Skipin
hafa þó leitað talsvert og lóðað
á síld en hún stendur svo djúpt,
að ekki er hægt að ná henni. Að-
eins mjög lítið magn barzt á land
í dag. Veður er hér enn gott.
Fjölmenni á kirkju-
lónleikunum
HAFNARFIRÐI. — Á mánudags-
kvöldið voru haldnir hér í Þjóð-
kirkjunni orgeltónleikar til að
minnast þess að liðin eru 250 ár
frá dauða Buxtehude. Orgelleik-
ari kirkjunnar, Páll Kr. Pálsson,
lék nokkur helztu verk hins
mikla meistara, og Kristinn Halls
son söng sólókantötu með undir-
leik strengjasveitar og orgels. —
Áður en Páll hóf flutning orgel
verkanna, flutti Páll ísólfsson
erindi um Buxtehude. — Kirkjan,
sem tekur um 550 manns, var nær
fullskipuð.
Hljómleikar þessir voru haldn-
ir á vegum Fél. íslenzkra organ-
leikara, en það mun einnig efna
til kirkjutónleika í Reykjavík
um mánaðamótin, þar sem leik-
in verða verk eftir Buxtehude.
Ný embætti
auglýst
í GÆRKVÖLDI voru auglýst tvö
ný embætti hjá ríkinu, sem for-
seti íslands veitir, og verður í
þau skipað frá og með 1. jan.
1958, en umsóknarfrestur er út-
runninn um miðjan næsta
mánuð.
Hér er um að ræða sýslu-
mannsembættið í Strandasýslu
og héraðslæknisembættið í Kefla
vík.
RÓM 16. nóvember — Mágur
Mussolinis hefur verið dæmdur
í tveggja ára fangelsi fyrir að
hafa birt blaðagreinar, sem voru
móðgandi fyrir ítalska forsetann
og ríkisstjórn landsins.
Bæjarstjóm Akureyrar:
IJmræður um atvinnumál
og fjölda vörubíla
Akureyri, 19. nóv.
í UPPHAFI bæjarstjórnarfundar á Akureyri í gær minntist forseti
Jón Sólnes, látins fyrrverandi bæjarfulltrúa. Var það Lárus Thor-
arensen er nýlega andaðist í Reykjavík í hárri elli. Lárus var bæj-
arfulltrúi á Akureyri á árunum 1917—1919 og var ávallt mikill
áhugamaður um velferðarmál bæjarins. Risu fulltrúar úr sætum
til virðingar við hinn látna. Síðan var gengið til fundarstarfa.
Á fundinum urðu nokkrar um-
ræður um atvinnumálin i bænum
og var tilefni þeirra samþykkt
bæjarráðs um að fela bæjarstjóra
að skrifa varnarmálanefnd bréf
og fara þess á leit, að 25 manna
flokkur frá Akureyri, ætti kost
á varnarliðsvinnu.
Engin sérstök tillaga kom fram
í málinu en samþykkt bæjarráðs
gaf ekki tilefni til ályktunar.
Voru það einkum kommúnistarn-
ir í bæjarstjórninni, sem gerðu
þetta mál að umtalsefni og töldu
samþykkt bæjarráðs óviður-
kvæmilega.
Settur bæjarstjóri, Þorsteinn
Stefánsson, kvað þessa samþykkt
til orðna fyrir tilmæli sín, enda
væri talið að bænum væri skylt,
að gera allar tiltækar ráðstafan-
ir til þess að útvega bæjarmönn-
um atvinnu. Talið hefði verið
eðlilegt, að leita til varnarmála-
nefndar til þess að geta að fengnu
svari frá henni vísað mönnum
á þessa atvinnu.
Nýlokin atvinnuleysisskráning
í bænum hefði sýnt að 30 karl-
menn hefðu verið atvinnulausir
þar af 17 einhleypir.
Þá urðu nokkrar umræður um
takmörkun fjölda vörubíla í bæn-
um en vörubílstjórafélagið Val-
ur hafði með erindi farið þess
á leit við bæjarstjórn að fjöldi
Tillaga Albaníu felld
New York, 19. nóv.
Einkaskeyti frá Reuter.
TILLAGA sexveldanna um fjölg-
un meðlima í afvopnunarnefnd
S. Þ. hefur nú verið lögð fyrir
Allsherjarþingið. Fylgdu fulltrú-
ar Japans og Bandkaríkjanna
tillögunni úr hlaði og er þar gert
ráð fyrir að meðlimatalan í
nefndinni aukist verulega — og
verði hér eftir 25. Meðal þeirra
ríkja, er lagt var til að sæti
skyldu eiga í nefndinni voru
Tékkóslóvakía og Pólland.
Sem kunnugt er hafa Rússar
neitað að sækja fundi nefndar-
innar nema að gengið yrði að til-
lögu þeirra um að öll ríki S. Þ.,
82 að tölu, fengju sæti í nefnd-
inni. Báru Vesturveldin þá fram
fyrrgreinda miðlunartillögu.
Fulltrúi Albaníu á Allsherjar-
þinginu hefur nú borið fram
breytingartillögu við tillögu sex-
veld.anna — þar sem gert er ráð
fyrir að enn verði fjölgað um
sjö ríki í afvopnunarnefndinni —
og ríkin verði þá 32. Telur alb-
anski fulltrúinn, að Austurríki,
Búlgaría, Indónesía, Rúmenía,
Súdan, Finnland og Ceylon eigi
að fá selu í nefndinni.
í kvöld lýsti rússneski full-
trúinn á Allsherjarþinginu því
yfir, að Rússar mundu sætta sig
við þær úrbætur, sem gerðar
yrðu á starfsemi nefndarinn-
ar, ef breytingartillaga Albaníu
yrði samþykkt.
Allsherjarþingið samþykkti í
kvöld tillögu sexveldanna um
að aðildarríkjum afvopnunar-
nefndarinnar verði fjölgað í 25.
þeirra skyldi takmarkaður við
45. Hins vegar hafði bæjarráð
samþykkt að fjöldi þeirra skyldi
vera 50 og var það samþykkt í
bæjarstjórn með 7 atkv. gegn 2,
atkvæðum kommúnista.
Niðiurjöfnunarnefnd
Þá kaus bæjarstjórn niðurjöfn-
unarnefnd og hlutu kosningu
Gunnar H. Kristjánsson, Hallur
Sigurbjörnsson, Sigurður M.
Helgason og Þorsteinn Jónatans-
son. Varamenn voru kosnir Jón
H. Þorvaldsson, Arngrímur
Bjarnason, Torfi Vilhjálmsson og
Björn Jónsson.
Breyting kosningalaga
Að síðustu var borin fram til-
laga frá fulltrúum Alþýðuflokks-
ins, Þjóðvarnarflokksins og
kommúnista um að skora á Al-
þingi að breyta gildandi kosn-
ingalögum til Alþingis og sveita-
stjórna þannig, að kosningum
skuli lokið fyrir kl. 10 á kjör-
degi. Ekki var borin fram tillaga
um áskorun um að banna full-
trúum flokka setu í kjördeild-
um svo sem gert var í bæjar-
"stjórn Reykjavíkur. Kom þetta
fram í umræðum um málið og
sagðist talsmaður flutningsmanna
Marteinn Sigurðsson, ekki hafa
athugað það mál. Samþykkt var
tillaga bæjarstjóra, að vísa mál-
inu til bæjarráðs. —vig.
Dauflegt í
þingsölum
ENGINN fundur var í efri deild
Alþingis í gær. Mun ástæöan
vera sú, að ekkert mál lá þannig
fyrir, • að forseti deildarinnar
teldi unnt að taka það á dag-
skrá.
Fundur var hins vegar í neðri
deild. Þar var eitt mál á dag-
skrá, komið frá efri deild. Var
það frumvarp um að breyta bú-
fjárræktarlögunum á þann veg,
að forðagæzlumenn skuli kjörn-
ir af sveitarstjórnum, en ekki
með almennum kosningum. Eng-
inn þingdeildarmaður kvaddi sér
hljóðs, og var frumvarpinu vís-
að til nefndar og 2. umræðu.
Lauk síðan fundinum og hafði
hann þá staðið rúmar 4 mínútur.
Skákmótið i Wageningen eftir 13 umferðir
1 T H 5 b 7 8 9 1Q 1L n 13 LL 75 15 7JL 15 Röp 'imm
1 Uhlmann É / / 0 0 / 1 t /z 'h h 'h 'h /
2 2)onn£R ■ 0 « 0 1 / 1 0 1 'h / 'h / /
5 Alster 0 0 'h h 0 Vz 0 'h 'h 0 / / 0
H SlADO / / /z m / 7 / 'h / 'h / / / /
5 núCKsre/N / 0 'h 0 Wé /• 0 0 'h / / 0 h 0
b MANN/NEN 0 0 1 0 0 >//M 0 0 'h 'h 'h 'h 'h 0
7 TESCH N£TZ 0 0 •h 0 / / ift 'h 0 'h / h / /
8 STÁ-HLDER& 0 1 / 'h / I ÍÉ4 0 /z 'h h / / /
Q lVKOV 'h 0 'h 0 JL Wa /z 'h 'h 0 0 / h 1
/o Trifijnovic /z 'h 'h /% 'h É 'h t 'h 'h / / / 7z
// EARSEN 'h 0 / / 'h 'h P / / / / 0 / /
12 N/EPHAUS 'h h /z 'h 'fz 0 0 w 0 'h 'h / / 0
n FRIDRlK 'h 'h / 'h 7 'h 0 1 il / / / / /
m KoiaRov 0 'h 'h Zz / 'h 0 'h 0 / 7z, /2 0
J5 A/NDBlom 0 0 JL 0 0 O 0 0 Jáj 0 a / Yz
/(> flABKK 0 0 / 'h !h 0 /z 0 / 0 0 'h 0
/7 ORDgan 0 0 0 'h 'h 0 0 0 0 0 0 0 'h
/8 TRotnnfscu 0 0 / 0 / / 0 'h 0 / 0 / 'h *