Morgunblaðið - 19.12.1957, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 19.12.1957, Qupperneq 2
2 Fimmtudagur 19. des. 1957 MORCUXBLAÐIÐ Að undanförnu hafa líkön og uppdrættir af hinu nýja skipuiagi Kringlumýrar- og Háaleitissvæð isins verið til sýnis í glugga Morgunblaðsins við Aðalstræti. Skipulagsdeild bæjarins hefur nýlega gengið frá skipulagi þessa svæðis. Það takmarkast að vest- an af byggðinni, sem nú er í ofan verðum Hlíðunum, að norðan af Suðurlandsbraut, að austan af Grensásvegi og byggðinni í smá- íbúðahverfinu og að sunnan af Bústaðavegi. Á myndinni hér að ofan sést hverfið frá norð-austri. Suður- landsbrautin er lengst til hægri, húsin efst til hægri eru hjá bezín stöð Shell. Breiðgatan, sem ligg- ur gegnum hverfið frá austri til vesturs, er Miklabrautin, sem verður ein af aðalumferðaræðum borgarinnar. fest á myndinni liggur gata þvert á Miklubraut- ina. Er það Kringlumýrarbraut, önnur aðalgata hverfisins. Við þessar götur verður breitt óbyggt belti og þær skipta svæðinu í 4 hluta. Má segja, að hver þeirra sé skipulagður sem eining með sína sérstöku barnaskóla, sérverzlan- ir, leikvelli og dagheimili. Ofan- verðar Hliðarnar verða hluti af hinum vestari fjórðungum svæð isins. Við skipulagninguna var lögð sérstök áherzla á gatnakerfið. Er gert ráð fyrir sem minnstri um- ferð utan aðalgatnanna af þeim, sem ekki eiga sérstök erindi í hverfið. Göturnar skiptast. í ]búða götur og dreifingargötur, sem engin íbúðarhús eru við. Skóium er fyrir komið á opnum svæðum milli íbúðarhúsanna, og verzlan- ir eru þannig staðsettar, að hægt er að komast í búðir eftir sérstök stökum gangstígum án þess að fara þurfi yfir götur. í byggðinni skiptast á há fjöl- býlishús og lægri hús, bæði ein- býlishús, raðhús og sérstæð, tví- lyft hús. Á öllu svæðinu eru 3400 íbúðir, en á Háaleiti er stórt svæði, sem ætlað er fyrir verzl- unar- og viðskiptahverfi. Verða þar meiri háttar verzlanir, skrif- stofur, samkomuhús, skólar, hó- tel o.fl. Næst Suðurlandsbrautinni,' í framhaldi af iðnaðarhverfinu við Ármúla og Síðumúla allt að Lækj arhvammi, eiga að risa iðnaðar- og verzlunarhús. Við Grensásveg austanverðan, milli Suðurlands- brautar og Miklubrautar, verður byggt svokallað „iðnaðarhús“ Er það reyndar hverfi með 6 þrílyftum iðnaðarhúsum ásamt skrifstofum, matstofum og kyndistöð. Þarna verður á ein- um stað ýmiss konar smærri iðn- aður, sem ekki þarf mikið hús- næði eða stóra rlóðir. Greiddi tæpa millj ón á 2 dögum HAPPDRÆTTI Háskóla íslands hóf greiðslu vinninga í 12. flokki á þriðjudaginn. Greiðslan fer fram í Tjarnarbíói kl. 2—4 í dag og á morgun, en eftir það á aðal skrifstofunni í Tjarnargötu 4 milli kl. 2 og 3. Fyrstu tvo dagana sem greitt var út, komu margir til að fá vinninga sína — jólaglaðninginn — greidda. Hafa þegar verið greiddir út yfir 1100 vinnings- miðar í Reykjavík, að upphæð tæp 1 milljón króna. Fólki er ráðlagt að sækja vinn inga síná meðan greiðslan fer fram í Tjarnarbíói því þar geng- ur afgreiðslan miklum mun bet- ur en í þröngu skrifstofuhús? næðinu. Tregur afli PATREKSFIRÐI, 18. des. — Ekki gengur þýzku togurunum neitt betur að fiska en hinum íslenzku. Ég hefi haft fregnir af einum hinna stóru togara Þjóð- verja, sem farinn er af stað heim með 1800—2000 körfur, — en hann lestar alls um 6000 fulllest- aður. Hafði togari þessi verið að veiðum á Hornbanka í 21—23 daga. — Karl. Kvikmyndirnar enn mikilvægori hér ó londi en erlendis Frá umræðum á þingi um tekjuöflun í menningarsjóð „Islenxk bygginej" bók með frásögn og myndum af starfi Cuðións Samúelssonar, húsameistara í GÆR kom á bókamarkaðinn fyrsta bókin, sem gefin er út um íslenzka byggingarlist. Hún fjallar um ævi og starf Guðjóns Samúels sonar sem um nær 30 ár var húsameistari ríkisins., Norðri gefur þessa vönduðu bók út, en hana prýða 200 myndir og teikningar af húsum hérlendis eða teikningar af hugmyndum húsameistarans sem aldrei voru framkvæmdar. I GÆR urðu allmiklar umræður i í neðri deild Alþingis um fjár- öflun til menningarsjóðs. Þrjú frumvörp, sem það mál varða, komu til umræðu. Eitt þeirra var stjórnarfrv., sem samkv. grein- argerð á að gera það ótvírætt, að 1 kr. gjald skuli lagt á miða að öllum kvikmyndasýningum og 2 kr. gjald á miða að dansleikum, nema þeir séu haldnir til ágóða fyrir góðgerðar- og líknarstarf- semi. Sjálfstæðismenn fóru fram á, að frumvarp þetta væri ekki afgreitt, fyrr en könnuð hefur verið afstaða deildarinnar til tveggja frumvarpa, sem Bjarni Benediktsson flytur. Fjalla þau um, að þessi gjöld skuli uiður felld en í stað þeirra komi hluti af nettóágóða áfengisverzlunar- innar. Þessum tilmælum Sjálf- stæðismanna sinnti stjórnarliðið ekki ,og var frumv. ríkisstjórnar- innar afgreitt sem lög á tveim fundum. Frumvörpum Bjarna Benediktssonar var vísað til 2. umræðu og nefndar. — Taka á af áfengisgróðanum Eins og sagt var frá í Mbl. á þriðjudaginn, hófust umræður i neðri deild um þessi mál sl. mánudag. í gær svaraði Bjarni Benediktsson ræðu menntamála- ráðherra, sem flutt var þá. Sagði Bjarni, að meginatriði þessa máls væri það, að réttara væri að afla fjár til menningarsjóðs með því að taka það af gróða af áfengis- sölu en hæta því á verð aðgöngu- miða að kvikmyndasýningum. — Sú röksemd, að það jafngildi því að taka féð úr ríkissjóði, ef þess er aflað með skatti af áfengis- sölunni, stenzt ekki, sagði Bjarni Ég geri að vísu ráð fyrir að taka 3% af þeim gróða, sem nú fer í ríkissjóð, en vel mætti hækka áfengið að sama skapi eða leggja sérstakt fast gjald á hverja flösku, ef mönnum finnst það betra. Ég vil ítreka, að það, sem ég legg til að tekið verði af á- fengisgróðanum, er aðeins brot af því, sem hann hefur farið fram úr áætlun á undanförnum árum. Gildi kvikmynda Það gladdi mig, sagði Bjarni ennfremur, að menntamálaráð- herrann er sammála mér um gildi kvikmyndanna. Við erum á öndverðum meiði við 2 þingmenn Framsóknarflokksins, sem talað hafa um áfengismál hér í þinginu nýlega. En ég sé, að okkar skoð- un hefur nýlega fengið eindreg- inn stuðning í Skinfaxa, tímariti ungmennafélaganna. Þar er und- irstrikað að kvikmyndirnar hamla mjög gegn því að ungl- ingar leiti annarra skemmtana, sem leiða beint til áfengis- neyzlu. En fyrst við menntamálaráð- herra erum svona sammála um gildi kvikmyndanna, hlýt ég að undrast, að hann skuli beita sér fyrir því, að á þær er lagður skattur, sem er verulega tilfinn- anlegur fyrir f jölskyldur, þar sem margir unglingar eru. Svo var ráðherrann að tala um, sagði Bjarni, að skemtmanaskatt- ur af kvikmyndum væri lægri hér en í nágrannalöndunum. — Hvað ætli það geri til, þó að til sé skattur, sem ekki er jafnhár hér og annars staðar? Þetta er engin röksemd, sízt þegar þess er gætt, að hér á landi eru allt aðrar aðstæður að því er varðar skilyrði æskunnar til að njóta skemmtana. Veðurfar og aðrar aðstæður valda því, að hér er fólk lokað inni í húsum verulegan hluta ársins. Kvikmyndirnar verða því með öllum sínum göllum mun þýðingarmeiri skemmtun hér en er annars staðar, þar sem úr mörgu fleiru er að velja. Frekari umræður Eftir þetta urðu allmikil orða- skipti milli Bjarna Benediktsson ar og Gylfa Þ. Gíslasonar. Taldi Bjarni, að meirihluti þingmanna væri því hlynntur að menningar- sjóður fengi tekjur af áfengis- gróða, en fengi ekki fyrir mennta málaráðherra og þó sérstaklega fjármálaráðherra að greiða at- kvæði með þeirri tilhögun. Ekki vildi Gylfi kannast við þetta. Menntamálanefnd deildarinnar hafði ekki orðið sammála um afstöðuna til frumvarps rikis- stjórnarinnar. Stjórnarliðar vildu samþykkja það, og gerði Bene- dikt Gröndal grein fyrir þeirri afstöðu. Sjálfstæðismenn vildu fresta afgreiðslunni, eins og fyrr segir. Ragnhildur Helgadóttir vai framsögumaður minnihluta nefndarinnar. í ræðu sinni lagði hún áherzlu á, að frumvarpinu um fjáröflun í menningarsjóð Framh. á bls. 23. Brautryðjandi Jónas Jónsson hefur samið texta bókarinnar, en Benedikt Gröndal hefur annazt ritstjórn og efnis- og myndaval. Jónas frá Hriflu fékk til þess heimild í erfðaskrá Guðjón Samúelssonar að gefa út slíka bók. Benedikt Gröndal skýrði svo frá í gær að það væri eðlilegt og sjálfsagt að byrjað væri á Guðjóni Samúelssyni er ákveðið væri að gefa út bók um húsa- gerðarlist. Hann var að vissu leyti mjög umdeildur maður, en vissir hlutir skapa honum sérstöðu sem húsameistara. Gott tækifæri Guðjón Samúelsson fékk ein- stakt sögulegt tækifæri. Er hann kom frá námi var þjóðin að byrja Kápumynd bókarinnar að byggja steinsteypt hús. Hann sezt í embætti húsameistara rík- isins nýkominn heim og fær tæki færi til að teikna svo mikið af stórum byggingum að ólíklegt má teljast að nokkrum öðrum húsameistara gefist slíkt tæki- færi. Byggingarstíll hans setur svip á bæ og byggð ef svo má að orði komast. Maður sem fer til vinnu sinnar í miðbiki Reykjavíkur hefur að meira eða minna leyti fyrir augum 10—15 hús sem Guðjón Samúelsson hef- ur teiknað. Stíllinn Stíll Guðjóns Samúelssonar er fjórþættur. Fyrst teiknar hann á þann hátt sem skólinn mótaði hann (Reykjavíkurapotek, Lands bankinn) eftir sannkölluðum Evrópustíl. Síðan leitar hann að nýjum stíl íslenzkum og færir gamla torfbæjastílinn i fast, steinsteypt form. (Laugarvatns- skólinn, Þingvellir). Þessi stíll hlaut ekki byr. Síðar kemst hann undir bein áhrif frá náttúrunni og mótar það sem hann sjálfur kallaði „Hamrastíl- inn“ sem ýmist prýðir byggingar hans innanhúss eða utan, (Þjóð- leikhúsið, Laugarneskirkja o. fl. o. fl.). Loks er fjórða stílteg- undin sem Jónas frá Hriflu kall- ar „Lýðveldisstílinn" hreinar lí:n ur og óbrotnar (Akureyrarsjúkra húsið o. fl.). Guðjón getur þess að ýmislegt er hann sá í náttúrunni hafi orð- ið fyrirmynd hans í byggingum. T. d. tindarnir í öxnadal sem eru fyrirmynd teikningar hans að Hallgrímskirkju. í bókinni er og að finna ýmsar hugmyndir arkitektsins, sem eru frumdrög að byggingum — þar sem hugmyndaflug hans fær að leika laust, áður en samningar við byggjendur og takmarkaðir sjóðir gerðu strik í reikninginn áður en bygging húsa hófst. í heild er bókin hin merkilegasta og eigulegasta. Vetrarhjálpin býsl við miklum fjölda hjálparbeiöna VETRARHJÁLPIN hefur nú starfað tæpar þrjár vikur. — Alls liafa borizt um 600 beiðnir um að- stoð, bæði frá einstaklingum og fjölskyldufólki. Gera má ráð fyrir að ennþá berist margar beiðnir, og mun Vetrarhjálpin reyna að veita sem flestum einhverja úr- lausn. Það hefur komið - ljós í hvert sinn, sem Vetrarhjálpin hef ur byrjað sbarfsemi sína, að marg- ir eru hjálparþurfi, hér í þessum bæ, og margir bæjarbúar eru ör- látir, þegar leitað er til þeirra að rétta nánunganum hjálparhönd. Stjóm Vetrarhjálparinnar vill þakka hinum mörgu bæjarbúum, sem þegar hafa stutt starf hennar að þessu sinni, einnig skátasveit- unum, sem fóru um bæinn á veg- um Vetrarhjálparihnar og veittu viðtöku framlögum bæjarbúa. Fá S.jórnendur Vetrarhjálparinnar seint full-þakkað gkátunum þeirra ágæta starf. Enn er vika til jóla, og jólaund- irbúningurinn er að ná hámarki sinu hjá flestum. Það eru erfið spor hjá mörgum að þurfa að leita hjálpar, en oft verður ekki hjá því komizt. Að þessr sinni virð ist þörfin mjög brýn hjá mörgum. Þeir, sem hafa í hyggju að styrkja Vetrarhjálpina, og hafa enn ekki gert það, ættu að gera það sem fyrst úr þessu. Úthlutun Vetrar- hjálparinnar fer eftir örlæti bæj- arbúa. Úthlutað er ávísuaum á matvæli og mjólk, og nokkru af fatnaði, eftir þvi sem hann berst, og sérstakar ástæður eru fyrir hendi. Hér er auðvitað ekki um mikið að ræða, heldur um ofurlít- inn glaðning, sem þó hefur oft komið sér vel. Góðir samborgarar! Vetrarhjálp in reynir að koma gjöfum yðar til þeirra, sem helzt þurfa þeirra með. Það er takmarkið, að sem flestir þurfandi fái einhvern glaðn ing um jólin. Boðskapur jóianna slær á beztu strengina í hjörtum mannanna. Þeir, sem gleðja aðra um jólin, njóta sjálfir bezt jóla- gleðinnar. Með beztu jóla- og nýársóskum til allra þeirra, sem styðja starf- semi Vetrarhjálparinnar eða njóta hjálpar hennar. — FJi. stjómar Vetrarhjálparinnar. Óskar J. Þorláksson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.