Morgunblaðið - 19.12.1957, Qupperneq 23
Fimmtudagur 19. des. 1957
MORGVNBLAÐIÐ
23
Vörður við
stöðumæla
SÚ nýbreytni hefir verið tekin
upp af tveim verzlunum hér í
miðbænum, Regnboganum og
skóverzlun Lárusar G Lúðvíks-
sonar, að hafa vörð við stöðu-
maelana fyrir utan verzlanirnar
til að sjá um greiðslu í stöðu-
mælana, viðskiptavininum að
kostnaðarlausu ef þeim verður
tafsamt við jólainnkaupin í verzl
unum þessum.
Ekki er að efa, að margur við-
skiptavinurinn verður þessari
þjónustu mjög feginn. Þá þarf
ekki að hafa áhyggjur af sektum
vegna of langrar viðstöðu ef
mönnum dvelst við innkaupin.
Þjónustu þessa veita verzlanirn-
ar viðskiptavinum sínum í jólaös
inni.
Edensjúkur
LUNDÚNUM, 18. des. — Sir Ant
hony Eden, fyrrum forsætisráð-
herra Breta, hefur enn einu sinni
lagzt sjúkur, og er með háan
hita. Hann liggur á heimili sínu
Morval House í Cornwall.
Það er nú um eitt ár síðan
hann varð alvarlega veikur. í
aprílmánuði s.l. var hann skorinn
upp í Boston, en hann hefur allt
af verið heldur heilsutæpur síð-
an. Þegar hann kom heim til Eng
lands eftir uppskurðinn, sagði
hann: Ég er mjög hamingjusamur
yfir því að fá að lifa enn um
stund. — Eden er sextugur.
Mikil inflúenza
IðnaðarlóSnm
útlilntaS
Á FUNDI bæjarráðs er haldinn
var var á þriðjudaginn var lagð-
ur fram uppdráttur um lóðaskipt-
ingu iðnaðarsvæðis við Suður-
landsbraut, austan Lækjar-
hvamms. Hér er um níu lóðir að
ræða og var samþylckt að út-
hluta þeim til þessara aðila:
Kr. Kristjánssonar h.f. S.l.S.
H. Benediktsson h.f. Emils Hjart
arsonar og Karlssonar Bíla-
skálans h.f., Barðans h.f., fsl.
ítalska verzlunarfélagsins, Egils
Hjálmarssonar, Bifreiða & land-
búnaðarvéla og til Sveins Björns
sonar og Ásgeirssonar h.f.
Ákveðið var að við út-
hlutun þessa skuli hafa fyrirvara
varðandi hús og herskála á sum-
um lóðum.
Yfirlýsing
AÐ gefnu tilefni skal tekið fram,
að vinnutími afgreiðslustúlkna í
lyfjabúðum er háður samningi
milli vinnuveitenda og Verzlun.
armannafélags Reykjavíkur.
Eigendum lyfjabúða er því al
gjörlega óheimil breyting frá því
sem kveðið er á um í þeim samn
ingi.
Verzlunarmannaf. Reykjavíkur.
í Japan
TÓKÍÓ, 18. des. — Fréttir frá
Tókíó herma, að 573 skólabörn
hafi til þessa dáið úr hinni nýju
inflúenzúbylgju, sem herjar í Jap
an með fullum krafti. Hér er
einnig um að ræða svonefnda
Asíuinflúenzu.
J apösku heilbrigðisyfirvöld-
in segja, að margar milljónir
Japana hafa fengið inflúenzuna
og liggi nú. Af þeim eru yfir
milljón skólabörn. Nauðsynlegt
hefur verið að loka alveg yfir
3000 skólum.
TREET
(Til Torgeir Anderssen-Rysst)
Med bod om brorskap,
með bþn om fred,
det lyser atter,
várt joletre.
Pá islandsk jordgrunn
det kastar glans.
Ein vakker tanke.
Vár sendemanns.
Han let det reisa
kvart enda ár
til vern om venskap
der venskap rar.
— Og om det visnar,
várt joletre,
sá dþyr det aldri
som ánd, idé.
— Ivar Orgland.
— Kvikmyndirnar
Frh. af bls. 2
hefði verið hraðað mjög gegnum
þingið í fyrra á mesta annatíma
þess, og myndu fæstir þingmanna
hafa átt þess kost að gera sér
grein fyrir málinu svo vel sem
vera ætti. Hún kvaðst þá hafa ver
ið og vera enn fylgjandi þeirri
{járöflunarleið, sem Bjarni Bene-
diktsson bendir á, og sagði, að
það væri mjög óheppilegt, er
efnalitlu fólki væri gert erfiðara
að greiða aðgöngumiða að kvik
myndahúsum fyrir börn sín.
Innilegar þakkir til allra þeirra, er heiðruðu mig með
gjöfum, heimsóknum og skeytum á sjötugsafmæli mínu
11. desember sl.
Sigurður Björgólfsson.
G ardíimstengurnar
komnar
Sími 15500
Ægisgötu 4
Frœgasta alfrœðibók heimsins
24 bindi — 41000 greinar — 23000 myndir
Fæst nú gegn afborgunum. Talið við okkutr
sem fyrst. —
Bókaverzlun
Sigfúsar Eymundssonar hí
o
V»'a
'1°'
Ætíð fyrirliggjandi í mjög miklu
úrvali í hinar ýmsu gerðir FORD-
bifreiða.
FOBID - umbo5ið
Kr. Krisfjáeisson hf.
Laugaveg 162—170
Sími 2-44-66 (5 línur)
Maðurinn minn
GUÐMUNDUR KJARTANSSON
verður jarðsettur að Ytri-Skógum undir Eyjafjöllum, laug
ardaginn 21. des. kl. 11 f.h.
Kveðjuathöfn fer fram í Fossvogskirkju kl. 9 f.h. föstu-
daginn 20. desember.
Margrét Bárðardóttir.
Móðir mín
GUÐLAUG ÓLAFSDÖTTIR
frá Árbæ andaðist 17. þ.m. Minningarathöfn fer fram að
Langholtsvegi 187 í dag kl. 11 f.h. Jarðarförin verður á-
kveðin síðar.
Fyrir mína hönd, systkina minna og annarra vandamanna
Svanur Jónsson.
Útför móður okkar
GUÐBJARGAR PÉTURSDÓTTUR
sem lézt 8. þ.m. fór fram frá Fossvogskirkju þriðjudag-
inn 17. þ.m.
Hjartans þökk fyrir auðsýnda samúð.
Ingibjörg Jóhannsdóttir,
Ragnheiður Jóhannsdóttir.
HÓLMFRlÐUR SAMÚELSDÓTTIR
frá Gröf, Miðdölum, andaðist að Elliheimilinu Grund 18.
þ.m.
Aðstandendur.
Jarðarför okkar kæra eiginmanns og fósturföður
SIGURÐAR GUÐMUNDSSONAR,
Þórukoti Ytri-Njarðvík, fer fram laugardaginn 21. des.
og hefst með húskveðju á heimili hans kl. 12 á hádegi.
Jarðsett verður frá Keflavíkurkirkju.
Guðrún Þorleifsdóttir,
Þorleifur Björnsson.
Jarðarför konu minnar, móður, tengdamóður og ömmu
INGIBJARGAR INGIMUNDARDÓTTUR SÍVERTSEN
fer fram frá Fossvogskirkju föstudag 20. þ. m. kl. 10,30.
Athöfninni verður útvarpað.
Anton Sívertsen,
börn, tengdabörn og barnabörn.
Faðir okkar
PÉTUR HAFLIÐASON
beykir,
sem andaðist 14. desember, verður jarðsunginn frá Dóra-
kirkjunni föstudaginn 20. desember kl. 11 f. h.
Blóm eru vinsamlegast afbeðin.
Börn hins látna.