Morgunblaðið - 28.12.1957, Side 8
8
MORGVNBLAÐIÐ
Laugardagur 28. des. 1957
tJtg.: H.í. Arvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfus Jónsson.
Aðairitstjorar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Bjarni Benediktsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Einar Asmundsson.
Lesbók: Arni Ola, simi 33045
Auglýstngar: Arni Garðar Knstinsson.
Ritstjórn: Aðalstrætj 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Askriftargialrí ki. 30.00 á mánuði innaniands.
í lausasölu kr. 1.50 eintakið.
FRAMBOÐSLISTI SJALFSTÆÐIS-
FLOKKSINS í REYKJAVIK
^PHfclITAN IÍR HEIMt
Onassis á vettvangi tízkunnar
— Maugham vill vera hrukkóttur
Ingríd Bergmann I hIutverki
Krist'mar Lafranzdóttur?
REYKVÍKINGAR hafa nú
séð framboðslista Sjálf-
stæðismanna við bæjar-
stjórnarkosningarnar, sem fram
eiga að fara í lok næsta mánaðar.
Urðu Sjálfstæðismenn fyrstir
hinna pólitísku flokka til þess
að leggja fram lista sinn. Aður
hafði farið fram prófkosning með
al flokksmanna am skipan list-
ans. Hefur niðurstaða hennar að
sjálfsögðu ráðið uppbyggingu
hans og svip.
Það er athygiisvert að minni-
hlutaflokkarnir í bæjarstjórn
Reykjavíkur öfunda Sjálfstæðis-
menn mjög af hinum lýðræðis-
legu aðferðum við framboð
þeirra. Viku eftir viku hafa mál-
gögn þessara flokka reynt að
gera prófkosningarnar tortryggi
legar. En sú iðja hefur engin áhrif
haft önnur en þau, að auka áhuga
fólksins í Sjálfstæðisflokknum
fyrir þátttöku í undirbúningi
kosninganna.
Skinaður dueandi og
firiálslvndu fólki
Framboðslisti Sjálfstæðis-
manna við þessar bæjarstjórnar-
kosningar er eins og jafnan áður
skipaður dugandi og frjálslyndu
fólki úr öllum stéttum bæjarfé-
lagsins. Þetta fólk þekkir hags-
muni bæjarbúa og hefur góð skil-
yrði til þess að vinna af fyrir-
hyggju og dugnaði að framfara-
málum þeirra. Nokkrir nýir
menn eiga sæti í efstu sætum
listans. Hefur það jafnan verið
háttur Sjálfstæðismanna að end-
urnýja forystulið sitt í bæjar-
stjórn höfuðborgarinnar nokkuð
við hverjar kosningar. Þannig
hafa ný sjónarmið komizt að með
nýjum mönnum um leið og þeir,
sem unnið hafa langt og gott starf
hafa dregið sig í hlé. Felst í þessu
mikill styrkur fyrir flokkinn og
á sinn rika þátt í þeirri frjáls-
lyndu og lífrænu stefnu, sem
hann hefur jafnan fylgt í stjórn
málefna höfuðborgarinnar. Það
hefur og stuðlað mjög að því að
skapa Sjálfstæðisflokknum vin-
sældir meðal bæjarbúa, að hann
hefur jafnan haft á að skipa
mönnum úr öllum stéttum bæj-
arfélagsins til að starfa að opin-
berum málum. Þannig hafa iðn-
aðarmenn, sjómenn, verzlur.ar-
menn, menntamenn, verkamenn,
bifreiðarstjórar og opinberir
starfsmenn átt fuiltrúa í hópi
bæjarfulltrúa Sjálfstæðismanna.
Reykvíkip^ar kiósa heil-
bripft stiórnarfar
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
haft hreinan meirihluta í bæj-
arstjórn Reykjavíkur um nokk-
urra áratuga skeið. Ástæða þessa
mikla trausts og fylgis flokksins
er tvímælalaust sú, að hann hef-
ur stjórnað bæjarfélaginu vel,
haft forystu um stórfelldar fram-
farir og unnið skynsamlega og
af frjálslyndi og víðsýni að bæj-
armálefnunum yfirleitt. Auðvit-
að er hægt að gagnrýna eitt og
annað í stjórn bæjarfélagsins.
Enginn stjórnmálaflokkur er al-
fullkominn og víxlspor hljóta
óhjákvæmilega að vera stigin í
stjórn opinberra mála eins og í
daglegu starfi einstaklinganna.
En það mun almennt viðurkennt,
einnig af andstæðingum Sjálf-
stæðismanna, að þeir hafi stjórn-
ao Reykjavík af dugnaði og ár-
vekni.
Traustur fíárhagsgrund-
völlur
Sjálfstæðismenn hafa jafnan
lagt á það megináherzlu að fjár-
hagslegur grundvöllur bæjar-
félagsins væri traustur. Slíkan
grundvöll hefur þeim tekizt að
skápa. Þess vegna hefur höfuð-
borgin getað leyst þau stórbrotnu
verkefni, sem að hafa kallað inn-
an vébanda hennar.
Það er Sjálfstæðismönnum um
land allt hið mesta gleðiefni, að
einmitt undir stjórn Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík hefur ver-
ið ráðist í farmkvæmd mar'gra
merkilegra nýmæla, bæði í verk-
legum efnum og á sviði menn-
ingar- og heilbrigðismála.
Reykjavík hefur þannig haft for-
göngu um hagnýtingu vatnsafls
og jarðhita til sköpunar atvinnu
og lífsþægindum, ekki aðeins
fyrir sína eigin ibúa heldur fyr-
ir þúsundir annarra landsmanna.
í skólamálum hefur bærinn
haft forgöngu um byggingu full-
kominna og glæsilegra mennta-
stofnana og lagt áherzlu á aukið
verknám og hagnýta fræðslu
fyrir æskuna.
Á sviði heilbrigðismála er bygg
ing og rekstur hinnar fullkomnu
heilsuverndarstöðvar eitt stærsta
og merkilegasta sporið, sem stig-
ið hefur verið.
Nauðsvn samhuga
hairáttr
Sjálfstæðismenn í Reykjavík
hafa að mörgu leyti góða vig-
stöðu í þessum bæjarstjórnar-
kosningum. Þeir hafa unnið bæj-
arfélagi sínu vel, njóta forystu
vinsæls borgarstjóra og bjóða
fram framboðslista, sem skipað-
ur er vel metnu og duglegu fólki,
sem bæjarbúar þekkja og
treysta. í landinu situr auk þess
ríkisstjórn, sem er mjög óvin-
sæl og hefur brugðist flestum
þeim fyrirheitum, er hún gaf við
valdatöku sína.
Þrátt fyrir þessa góðu vígstöðu
má enginn Sjálfstæðismaður
'iggja á liði sínu í þeirri kosn-
ingabaráttu, sem nú fer í hönd.
Þar verða allir að leggjast á eitt
um að gera hlut Sjálfstæðis-
flokksins sem mestan. Með því
sr heill og hag Reykjavíkur bezt
borgið. Andstöðuflokkarnir
munu leita allra bragða til þess
að svipta bæjarfélagið meiri-
hlutastjórn Sjálfstæðismanna.
En þeim má ekki takast það,
hvorki með breytingu kosn-
ingalaga, takmörkun kosninga
réttarins eða öðrum brögðum.
Þess vcgna verða Sjálfstæðis-
memn og aðrir frjálslyndir
menn, sem unna framtíð
Reykjavíkur að standa saman
í órofa fylkingu um D-list-
ann.
ARISTOTELES Onassis, hinn
ævintýrale.ga auðugi milljóna-
mæringur, virðist ekki hafa nóg
að starfa við sín mörgu olíuflutn-
ingaskip og fyrirtæki sín í dverg
ríkinu Monaco. Franska blaðið
France-Soir heldur því ákveðið
fram, að nú ætli hann einnig að
láta til sín taka í París — og þá
auðvitað á vettvangi tízkunnar.
Víðfrægasta tizkuhús í heimi
Sagt er, að Onassis hafi keypt
öll hlutabréfin í tízkufyrirtæk-
inu Jean Desses og ætli sér að
skapa úr því víðfrægasta tízku-
hús í heimi. Eiginkona Onassis
mun eiga hugmyndina að þess-
um kaupum, og sagt er, að hún
fylgist af miklum áhuga með
þessum framkvæmdum. Frú
Onassis er talin vera mjög fögur.
Vafalaust hefir Onassis séð sér
leik á borði, þar sem Christian
Dior er nýlátinn, og énn bólar
ekki á neinum, sem líklegt er, að
skipi hans sess.
Onassis sá sér leik á borði —
★ fc fc
Sá gamli, góði ritháfundur
Somerset Maugham er einn
þeirra, sem hafa mikla ánægju
af því að láta taka myndir af sér.
Hann fór í jólaheimsókn til Lund
úna og notaði tækifærið m. a. til
að. láta jósmyndarann Dorothy
Wilding taka af sér fjölmargar
myndir — Maugham í baðslopp,
Maugham í jakkafötum, Maug-
ham í frakka, Maugham í
kjól og hvítu. Ljósmyndarinn
hafði vissulega nóg að gera. Ætla
mætti, að sú ánægja, sem Maug-
ham hefir af því að láta taka af
sér myndir, bæri framar öllu
vott um hégómagirni, en það er
þá a. m. k. mjög sérkennileg teg-
und hégómagirni.
Afmá hrukkurnar?
Þegar myndatökunni var lokið
spurði Dorothy rithöfundinn:
— Og svo er það frágangurinn,
herra Maugham? Eigum við ekki
að afmá eitthvað af hrukkunum?
Afmá hrukkurnar? spurði
Maugham skelfingu lostinn. En
kæra ungfrú Wilding, þér megið
ekki gleyma því, að það hefir
tekið mig rúmlega 80 ár að afla
þeirra — Og nú ætlið þér að afmá
þær á nokkrum mínútum! Það
má aldrei verða!
★ ★ ★
Fjölmargar skrítlur hafa verið
s:gðar af John Brown, skozka
þjóninum, sem gegndi því virðu-
lega starfi að vera þjónn Viktoríu
Englandsdrottningar. Eins og
kunnugt er, var John Brown tals
I vert fyrir sopann. Drottningin
| var yfirleitt mjög ströng í þess-
um efnum, en hún fyrirgaf sínum
Það hefir tekið mig rúmlega 80
ár að afla þeirra ....
kæra John alltaf þennan veik-
leika og reyndi jafnvel að breiða
yfir þennan löst, þegar hún mogu
lega gat.
Viktoría drottning fann
landskjálftakipp
Eitt sinn á jólunum hafði John
Brown fengið sér svo rækilega
neðan í því, að hann valt um
koll á hallargólfinu.
Vakti þetta óþægilega eftir-
tekt, en Viktoría drottning reyndi
að koma John Bro_w til hjálpar
hið bráðasta og sagði:
— Já, svei mér ef ég held ekki,
að ég hafi orðið vör við land-
skjálftakipp!
★ ★ ★
Mel Ferrer hefir í hyggju að
kvikmynda skáldsöguna Kristinu
Lafranzdóttur eftir norsku skáld-
konuna Sigrid Undset. Kveðst
hann vonast til þess, að Ingrid
Bergmann vilji taka að sér aðal-
hlutverkið. Eins og kunnugt er,
gerist skáldsagan í Noregi á 14.
öld. Flestir vinir Ferrers hafa
ráðið honum eindregið frá að
reyna þetta og telja enga von til
þess, að slík kvikmynd takist vel.
Mel Ferrer heldur þó enn fast
við þessa fyrirætluri sina.
Síðustu verk Diors
Enn einu sinni hefir „einn síð-
asti módelklæðnaðurinn, sem
Christian Ðior lauk við“ komið
fram í dagsljósið. Þeim virðast
engin takmörk sett. í sl. viku
var það svartur pels, en nú er
það kjóll, sem Ingrid Bergmann
á að klæðast í kvikmyndinni
„Indiscret“. Þetta er satínkjóll
skreyttur með minkaskinni og
perlum. Þetta er samt ekki allra
„síðasti kjóllinn, sem Dior lauk
við.“
Svo kann að fara, að síðustu
kjólunum, sem Dior hefir lagt
hönd á, megi einna helzt líkja við
þá óteljandi ferhyrndu smábúta
úr hvítu efni, sem kaþólskir
menn víða um heim eiga í fórurn
sinum. Hver smábútur á að vera
úr nunnuklæðnaði heilagrar
Theresíu. Allir þessir smábútar
samanlagðir hefðu nægt til að
klæða nokkrar nunnur.
★ ★ ★
Svo er að sjá, sem Ingrid
Goude, er hlaut titilinn „Ungfrú
Svíþjóð“ sl. sumar, verði ein af
þeim fáu fegurðardrottningum,
sem byrja kvikmyndaferil sinn
í Hollywood mjög glæsilega. Ingi
Ingrid Goude og James Cagney
ríður fagra hefir fengið sitt
fyrsta aðalhlutverk í myndinni
„Never steal anything small“, og
þar leikur hún á móti James
Cagney, sem er með henni á
myndinni hér að ofan.
Þessum liíla plastbát er hægt að koma fyrir með hægu móti
á bílþaki, og er því mjög handhægt að taka hann með í
skemmtiferðir. Báturinn vegur 28 kg. Verður báturinn til sýnis
á bátasýningu, sem innan skamms verður haldin í Lundúnum.
Segja framlciðendur, að báturinn sé þannig útbúinn, að hann
geti ekki sokkið, þó að leki komi að honum. Þessir litlu plast-
bátar eru framleiddir í Englandi, og var fyrsti báturinn seldur
kvikmyndastjörnunni Petula Clark, er reynir sjóhæfni hans
á myndinni hér að ofan.