Morgunblaðið - 28.12.1957, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 28.12.1957, Qupperneq 14
14 # ngibjörg Minningarorð „Mínir vinir fara fjöld feigðin þessa heimtar köld. Eg kem eftir, kannske í kvöld ÞANNIG kvað Bólu-Hjálmar. Þetta er karlmannlega mælt, en þó með nokkrum sársauka. Vinir og frændur fara nú hver af öðrum, menn og konur sem settu svip sinn á okkar sveit, Vatnsnesið, á manndómsárum sínum, fólkið, sem háði sína lífs- baráttu án allra þeirra lífsþæg- inda, sem nútíminn veitir og auk þess gekk þá yfir landið eitt mesta harðindatímabil nítjándu aldarinnar frá 1881—1888. Þetta fólk er nú flestallt farið þá leið, sem Hjálmar frá Bólu talar um í þeim ljóðlínum sem tilfærðar eru hér að framan. Og nú þann 22. okt. sl. hefir vinkona mín og frænka, Ingibjörg Árnadóttir húsfreyja á Bergs- stöðum á Vatnsnesi orðið að hlýða kallinu mikla á 95. aldurs- ári, og hafði þá verið húsfreyja 75 ár í þessari sveit. Ingibjörg Árnadóttir á Bergs- stöðum var fædd að Neðri-Þverá í Vesturhópi 25. ágúst 1863. For- eldrar hennar voru hjónin Árni Arason og Marsibil Jónsdóttir og stóð að þeim báðum traust bændafólk í ættir fram. Er Ingi- björg var á fyrsta ári fluttist hún með foreldrum sínum að Sigríð- arstöðum í sömu sveit, þar sem foreldrar hennar bjuggu mest allan sinn búskap og komu upp stórum barnahóp. Af 13 börnum þeirra hjóna náðu 11 fullorðins- aldri. Fjögurra ára gömul flutt- ist Ingibjörg til föðursystur sinn- ar, Guðríðar Aradóttur er bjó á Sauðadalsá á Vatnsnesi og var hjá henni til 18 ára aldurs, en gekk þá að eiga Teit Halldórsson smið frá Reynhólum í Ytra- Torfustaðahreppi. Reistu þau bú í Dalkoti vorið 1882 en fluttust þaðan að Skarði í sömu sveit vorið 1888 og bjuggu þar til árs- ins 1897 að þau fluttust að Bergs- stöðum, þar sem þau bjuggu til ársins 1920 en það ár missti Ingi- björg mann sinn. Eftir það dvaldist hún hjá Pétri syni sín- um á Bergsstöðum og konu hans, Vilborgu Árnadóttur. Þeim Teiti og Ingibjörgu varð 15 barna auðið, sem öll komust til fullorðinsára. Af þeim eru 10 enn á lífi. Þessi þurra upptalning á ártöl- um og dvalarstöðum segir lítið um hið langa óg merka ævistarf Ingibjargar Árnadóttur því vil ég sem sveitungi hennar og nágranm í meira en hálfa öld reyna í fáum orðum að lýsa að nokkru ævi- starfi hennar. Þegar Ingibjörg og maður hennar flytja að Dalkoti í maí 1882 má svo að orði komast að vetur væri genginn í garð, þótt komið væri fram á sumar. Þá voru komin hafþök af ís fyrir öllu Norðurlandi og allir flóar og firðir að fyllast og lá þessi ís meira og minna landfastur til höfuðdags. Það hefur því verið köld að- koma ungu konunnar með fyrsta barn sitt nýfætt að afdalabýlinu Dalkoti þetta vor, þar bíða henn- ar engin lifsþægindi í hálfhrund- um bæjarkofum. Þetta er fyrsti áfangi Ingibjargar út í hina erf- iðu lífsbaráttu, sem framundan var. Unga konan gengur örugg og ókvíðin á hólm við erfiðleik- ana, hún trúir á lífið og fram- tíðina og hún reynist köllun sinni trú. Bústofninn er sáralít- ill og eignir sínar í dauðum mun- um gat hún borið með sér þegar hún hélt til síns nýja heimilis. Hún verður ein að sjá að mestu um heimilið utanbæjar sem inn- an, því maður hennar verður að vinna sem flesta daga utan heim- ilis til þess að hægt sé að afla sér brýnustu lífsþarfa, en kaupið var lítið þótt vinnudagurinn væri langur. Börnunum fjölgar svo að segja með hverju ári og eru orðin fimm er þau flytja frá Dalkoti 1888. Þessi sex búskaparár þeirra í Dalkoti sagði Ingibjörg mér að M ö R C U TS Ti T/4 Ð1Ð L'augar'dagur 28. des. 1957 Frá „Hússtjórnar“-brunanum. Myndin sýnir er framhlið hússins er alelda og eldtungurnar leita út yfir götuna. Ljósm.: Birgir Gunnarsson. Árnadóftir hefðu verið erfiðustu árin á sinni löngu ævi. Fátæktin á þessu af- dalakoti var svo mikil að því verður tæplega með orðum lýst og margan daginn mun ekkert hafa verið til að næra börnin á nema litill mjólkursopi og ma nærri geta hvernig þau móður- kjör hafa verið þegar börnunum fjölgaði, en móðurást Ingibjarg- ar og umhyggja öll fyrir börnum sinum svo mikil, að þeirra vegna hefði hún gengið eins nærri sér og mannlegur máttur leyfir. Með einstakri fórnarlund og einbeitt- um vilja komst hún yfir þennan erfiðasta kafla ævinnar, enda var þrek hennar andlegt og líkam- legt og skapgerð öll svo traust að fágætt er. Vorið 1888 flytja þau hjónin Ingibjörg og Teitur með börn sin frá Dalkoti að Skarði í sömu sveit. Þar búa þau til vorsins 1897. Öll þessi ár er lífsbaráttan hörð, jörðin kostarýr og enn stækkar barnahópurinn, svo þau eru orðin ellefu er þau fara frá Skarði. Fyrstu árin í Skarði er bústofninn ein kýr og ein hryssa, en nokkrar kindur eru þau búinn að eignast þegar þau fara þaðan. Þrátt fyrir sára fátækt og í alla staði erfið lífs- kjör með sinn stóra barnahóp á lélegu býli mun aldrei hafa sorfið eins fast að og á árunum í Dal- koti. Eins og áður varð Ingibjörg að annast heimilið utanbæjar og innan vegna fjarveru manns síns við vinnu utan heimilis og varð þá að fara sjálf langar kaup- staðarferðir gangandi með eitt hross í taumi til aðdrátta fyrir heimilið. I hinni ágætu afmælisgrein Helga Tryggvasonar kennara, sem hann skrifaði um Ingibjörgu er hún var 90 ára, segir hann meðal annars: „Marga kaupstað- arferð þurfti Ingibjörg að fara gangandi utan af Vatnsnesi og alla leið inn fyrir Hrútafjörð áð- ur en verzlun hófst á Hvamms- tanga laust fyrir aldamótin. — Hún kunni naumast að hlífa sér við neitt verk, hvernig sem hún var fyrirkölluð.“ Á seinni árum þeirra í Skarði þurfti Teitur mað- ur hennar að koma upp fjárhús- kofa, var þá ekkert árefti til og sótti Ingibjörg á einu hrossi hell- ur upp á fjall, svo hægt væri að koma þaki á kofann. . Eftir að þau hjón komu að Bergsstöðum á Vatnsnesi vorið 1897 má segja að færi að rofa fram úr mestu erfiðleikunum. Bæði fluttu þau á betra býli, bú- stofninn stækkaði, elztu börnin fóru að vinna heimilinu og að- staða til að fá málsverð úr sjó var þar fyrir hendi. Allt þetta hjálpaði til þess að afkoma öll var önnur en áður var og lífsbaráttan ekki eins tví- sýn og hörð eins og í Dalkoti og Skarði. .Og seinasta áratuginn, sem þau bjuggu, má segja að afkoma heimilisins væri orðin allgóð. Þegar það er haft í huga, sem að framan er sagt er það sann- kallað afrek að koma upp hin- um stóra barnahóp án nokkurrar opinberrar hjálpar. — Þarna var lífið fórn, oft blandin gleði og hamingju, sem bægði skugga skorts og erfiðleika frá. Ingibjörg var ein af þeim konum, sem vaxa í erfiðleikunum við hverja raun. Henni var mikið gefið í vöggu- gjöf og hún ávaxtaði pund sitt vel. Hún gaf öðrum mikið en krafðist lítils sjálf. Hún var börn- um sínum fórnfús og ástrík móð- ir, enda elskuðu þau hana mjög. Okkur samferðamönnum hennar gaf hún mikið og þeim mest er kynntust henni lengst. Lífsgleði og léttlyndi Ingibjargar var ó- venjulegt. Eg held að engin hafi hitt Ingibjörgu öðru vísi en með bros á vörum og gamanyrði, hvað erfið sem lífskjörin voru. Það var alltaf gleði og birta í kring- um hana og af þessum fjársjóði sínum miðlaði hún öllum þeim mörgu, sem hún mætti á lífsleið- inni. Hún stráði gleði og birtu inn í líf margra sem virtust vera meira sólarmegin í lífinu. Mér fannst eg alltaf fara frá henm meiri og betri maður er eg kvaddi hana. Það eru þessar gjafir sem við samferðamenn hennar fáum seint fullþakkað. Þótt Ingibjörg léti af búskap eftir langan og erfiðan vinnudag sat hún ekki auðum höndum. Nú má segja að nýtt tímabil byrj- aði í ævi hennar. Allir sem þekktu hana, vissu hver hagleiks- kona hún var. Þar fór saman listfengi og vandvirkni við allt sem hún lagði hendur að. Nú var það íslenzka tóvinnan, sem hún helgaði krafta sína. Hún spann og prjónaði úr ís- lenzku ullinni meira og minna á hverju ári fram á tíræðisald- ur. Fyrir rúmum þremur árum sýndi hún mér hvítt þelband tvinnað og var hespan 7—8 lóð. Oft sá eg Ingibjörgu á seinni árum spinna þelkembur á rokk- inn sinn og fannst mér sem vinnugleðin geisla frá henni er hún þeytti rokkinn og teygði úr kembunum. Þá var það ekki síður listrænt sem hún prjónaði úr sínu hárfína bandi tvinnuðu og þrinnuðu. Þar gat að líta alls konar útprjón. Ekki vann Ingibjörg þetta til að hafa það sem söluvöru, nei, hún gaf þetta vinum og vanda- mönnum og margir hafa þeir ver- ið, sem hún gaf eitt eða annað af því sem hún hafði unnið, því löngun hennar til að gleðja aðra var svo ríkur þáttur í skapgerð hennar. Eitt er það sem eg get ekki látið hjá líða að minnast á í þessum fátæklegu minningarorð- um og það er gestrisni þeirra hjóna, Ingibjargar og Teits. Kom eg oft að Bergsstöðum á búskaparárum þeirra og mætti þar sem aðrir óvenjulegri gest- risni. Var þá oft veitt af meiri rausn en efnin leyfðu. Þó var það annað og meira en það sem fram var borið, það var viðmót- ið, viðtökur allar og alúð, sem lýstu því að gesturinn var vel- kominn og segja mátti oft að „gleðigyðjan frjáls, gengi þar um beina." Gestrisni á heimili þeirra hjóna hlýtur að hafa orðið fleir- um minnisstæð en mér. Ingibjörg var kona bókhneigð, las mikið á seinni árum og fylgd- ist vel með öllu. Hún myndaði sér rökfasta skoðun á hverju því sem hún ræddi um og hélt fast á sinni skoðun, ef því var að skipta. Hún hélt sjón og heyrn til síð- ustu stundar, þó hvort tveggja væri nokkuð farið að daprast síð- ustu árin. Ævikvöld hennar var friðsælt og bjart, þar sem hún naut ástúðar og umhyggju barna sinna og annarra vandamanna. Börn þeirra Ingibjargar og Teits eru: 1. Davíð, dó ógiftur á fertugs- aldri, stundaði smíðar. 2. Helga Marsibil, húsfrú á Hvammstanga, gift Ólafi Ólafs- syni. 3. Daníel, bjó á Bergsstöðum, dáinn 1923, giftist Vilborgu Árna- dóttur. 4. Anna Guðríður, ekkja, bú- sett í Reykjavík, giftist Þórólfi Jónssyni. 5. Sigurbjörn ógiftur smiður á Hvammstanga. 6. Hólmfríður Margrét dó ógift á þrítugsaldri. 7. Einar dáinn 1932. giftist Sig- ríði Ingimundardóttur. Stundaði smíðar. 8. Friðrik vélsmiður í Reykja- vík giftur Karitas Bergsdóttir. 9. Jóhannes verkstjóri giftur Guðrúnu Magnúsdóttir búsettur í Garðahreppi. 10. Pétur bóndi og smiður á Bergsstöðum giftur Vilborgu Árnadóttir. 11. Baldvin dó ógiftur á þrí- tugsaldri. Stundaði smíðar. 12. Guðrún María aðstoðarkona við ljóslækningar í Keflavík. 13. Jakobína Kristín húsfrú á Höfða í Kirkjuhvammshreppi gift Páli Guðmundssyni. 14. Karl lausamaður ógiftur á Bergsstöðum. 15. Haraldur búsettur í Reykja- vík giftur Sigurbjörgu Kristjáns- dóttur. Það er einkennandi fyrir þennan stóx-a barnahóp, hvað þau hafa öll erft verklagni og hagleik foreldranna, svo að bræð urnir hafa flestir verið fjölhæfir smiðir og svo ríkt er þetta í ætt- inni að barnabörnin hafa erft þessa kosti í ríkum mæli. Nú munu niðjar Ingibjargar vera um eitt hundrað. Það er alltaf gott að eignast góða sam- ferðamenn á lífsleiðinni, hvort sem hún er löng eða stutt. Við samferðamenn Ingibjargar eigum henni mikla skuld að gjalda fyrir hennar löngu og góðu samfylgd og við kveðjum hana með virð- ingu og þakklæti fyrir hennar mikla göfuga og fórnfúsa ævi- starf. Blessuð sé minning þín. Illugastöðum í nóv. 1957. Guðm. Arason. Til leiklistarnáms UNGUR Reykvíkingur lagði í gærkvöldi upp í langa utanför. Fór hann áleiðis til Los Angeles á vesturströnd Bandaríkjanna, en þar mun hann stunda leiklistar- nám — og býst við að hafa allt að tveggja ára útivist. Þessi ungi maður heitir Reynir H. Oddsson. I rúmt ár hefur hann stundað nám við leiklistarskóla Ævars Kvarans, en nú innritast hann í Pasadena Playhouse í Los Ang- eles, en það er mjög frægur leik- skóli, sem á m. a. útvarps- og sjónvarpsstöð auk fjögurra leik- húsa. Vikulega koma nemendur skólans fram í sjónvarpsþáttum — og einnig hafa þeir á hendi minni hlutverk í leikhúsunum." Leikskólinn hefur á sínum snær- um marga fræga leikara og um þessar mundir ber þar hæst John Barrymore jr. og Margaret O’Brien. Þetta er ekki fyrsta utanför Reynis H. Oddssonar, því að hann er einn þeirra fáu íslend- inga, sem stigið hafa á ástralska grund. Hann hefur meira að segja farið yfir þvera Astralíu, ýmist fótgangandi eða á vörubílspalli. Það eru liðlega tvö ár síðan hann fór í hálfs árs utanferð með kunn ingja sínum héðan úr Reykjavik. Gistu þeir þá auk Ástralíu m. a. Egyptaland og Arabíu — og unnu í ferðinni fyrir fæði og fari bæði á sjó og landi. Reynir er því þaulvanur ferðalangur — og fylgja honum óskir um árang- ursríka för.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.