Morgunblaðið - 28.12.1957, Side 15
L.augardagur 28. des. 1957
MORGUNBLAÐIÐ
15
Jafnaðarmenn hafna
samstarfi við kommúnista
BONN, 27. des. — Jafnaðar-
mannaflokkurinn í V-Þýzkalandi
vísaði í dag á bug tilmælum
a-þýzka kommúnistaflokksins
þess efnis, að flokkarnir tveir
hæfu samstarf, sem miðaði að því
að hindra að kjarnorkuvopnum
yrði komið fyrir í Þýzkalandi.
Tilmæli þessi voru send stjórn
v-þýzka jafnaðarmannaflokksins
bréflega á aðfangadag — og var
bréfritarinn enginn annar en
Walter Ulbricht. Sagði hann í
bréfinu, að æskilegt væri að
flokkarnir tveir tækju höndum
saman og ýttu undir og efldu
kröfur þýzkrar alþýðu um að
kjarnorkuvopn yrðu ekki stað-
bjóða rúblur
hverjum, sem hafa vill
KAIRO, 27. des. — Þessa dag-
ana er haldin í Kairó ráðstefna
sem fulltrúar frá ýmsaim Asíu
og Afríkuríkjum auk komm-
únistaríkja í Evrópu sækja.
Á fundi í dag bauð rússneski
fulltrúinn öilum Asíu og Afríku-
ríkjum, sem hafa vildu, rúss-
neska efnahagsaðstoð skuldbind-
ingalaust. Sagði hann, að Banda-
ríkjamenn hefðu boðið ýmsum
rikjum aðstoð, en skilyrðið hefði
jafnan verið þátttaka í árásar-
bandalögum Bandaríkjamanna.
Sýrlenzki fulltrúinn bar jafn-
framt fram tillögu þess efnis á
þinginu, að öll lönd, sem gert
hefðu samninga við lýðræðis-
löndin um olíuvinnslu, segðu
samningum upp þegar í stað
og öll arðbær mikilvæg fyrirtæki
yrðu þjóðnýtt.
Ráðstefnunni barst kveðja frá
Voroshilov þar sem hann hvatti
til nánara samstarfs við Ráð-
stjórnarríkin, efnahagslega og
menningarlega.
Rætt var og um hvort hag
kvæmt mundi að koma á fót iðn
aðarbandalagi Asíu og Afríku-
ríkja svo og tollabandalagi til
þess að vega upp á móti væntan-
legu markaðsbandalagi Evrópu.
sett I Þýzkalandi. Talsmaður
v-þýzka jafnaðarmannaflokksins
sagði í kvöld 1 svari sínu, að
kröfurnar væru þegar háværar
og það mundi einungis skaða
málstaðinn, ef hinu ósvífna til-
boði Ulbrichts yrði tekið. Þess-
ar kröfur okkar munu að lokum
sigra, enda þótt Ulbricht reyni
að lóta líta svo út, sem hann sé
talsmaður þess fólks, sem kröf-
urnar ber fram — og hann reyni
að notfæra sér þetta sem efni í
„sameiginlega hagsmuni“
sagði v-þýzki jafnaðarmaðurinn.
Ég þakka innilega öllum vinum og vandamönnum, sem
heimsóttu mig eða glöddu mig með gjöfum og heillaskeyt-
um á sjötugsafmæli mínu 26. desember sL
Guð blessi ykkur öll.
Tómas Guðmundsson
frá Stað í Grunnavík.
PILTAR %
EF ÞlO EICIÐ UNMUSTUNA /f/
ÞA Á ÉG HRINCrANA //V/
Aför/Jn tís/M//MfcÍon\
vrétft S ■
Hafnarfj’örður
Herbergi og eldhús óskast
sem fyrst. Tvö í heimili. -
Uppl. i síma 50135. —
Þýzk guðsþjónusfa
ÞÝZK guðsþjónusta verður flutt
í Dómkirkjunni á morgun (sunnu
dag) kl. 2 e.h. Sr. Jón Auðuns,
dómprófastur, prédikar og annast
altarisþjónustu. Dómkórinn syng-
ur undir stjórn dr. Páls ísólfs-
sonar. Öllum er að sjálfsögðu
heimill aðgangur.
— Á Akureyri
Frh. af bls. 2.
útgerðin myndi hafa náð saman
endum, ef aflamagn hefði verið
jafn mikið og gert var róð fyrir
í rekstrargrundvelli rikisstjórn-
arinnar um s. 1. áramót. Helgi
sagði að takast myndi að koma
togara þeim, sem hér liggur nú
bundinn, út annað kvöld. Hins
vegar væri allt óvíst um hvernig
hægt yrði að koma næstu skip-
um á vpiðar. Þá gat hann þess
að álit rannsóknarnefndar myndi
liggja fyrir um áramótin og
myndi að langmestu leyti sam-
komulag um álitið meðal nefnd-
armanna. Jón Sólnes (Sj) og
Stefán Reykjalín (F) bentu á að
nauðsyn væri að fyrir lægju
ákveðnar tillögur frá stjórn Ú. A
áður en mál þetta yrði tekið til
frekari umræðu innan bæjar-
stjórnarinnar. Nokkrar frekari
fyrirspurnir voru gerðar varð-
andi nokkur atriði fjárhagsáætl-
unarinnar.
•Samþykkt var till. frá Stein-
dóri Steindórssyni og Guðmundi
Jörundssyni að halda sérstakan
fund um útgerðarfélagsmálin.
Upphaflega var í tillögunni að
fundur þessi skyldi lokaður, en
ákveðið að fresta að taka um það
ákvörðun þar til í byrjun þess
fundar.
Samþykkt var tillaga frá full-
trúum allra flokka í bæjarstjórn-
inni um að heimila yfirkjörstjórri
að hafa tvo kjörstaði í bænum, í
Gagnfræðaskólanum og Oddeyr-
arskólanum.
★
Ákveðið var að breytingartill.
við fjárhagsáætlunina skyldu
vera fram komnar fyrir 15. jan.
n. k. og síðari umræða verði 21.
janúar. —vig.
IR
JólatréSiaynauur
IR
fyrir börn félagsmanna og gesti þeirra verður í Silfur-
tunglinu fimmtudaginn 2. janúar kl. 3—6*
DANSLEIKUR
um kvöldið kl. 9 fyrir IR-inga og gesti þeirra. Mætið
stundvíslega.
Aðgöngumiðapantanir í Silfurtunglinu mánudaginn
30. desember kl. 10—4.
STJÓRN ÍR.
Silfurtungliö
Dansleikur í kvöld
klukkan 9
Óli Ágústsson og Edda Bernhards syngja
með hljómsveitinni.
Aðgöngumiðar seldir eftir klukkan 5.
Útvegum skemmtikrafta, símar 19611, 19965 og 11387.
Góðtemplarahúsið
Jólatrésskcmmtun í húsinu klukkan 2,30.
Nokkrir miðar við innganginn.
ÖIl börn velkomin.
Ungfemplararáð
SparisJóðsdeiEd
vor verður lokuð dagana 30. o;» 3
n.k. vegna vaxtaútreiknings.
Verzlunarsparisjóðurinn
Búnaðarbanki Isiands
verður lokaður 2. janúar 1958. Víxlair,
sem falla 30. des. 1957 verða að greiðast
fyrir áramót, ella verða þeór afsagðir.
Búnaðarbanki Islands
Hjartans þakkir til barna minna og barnabarna, skyld-
fólks og vina sem glöddu mig með gjöfum á 75 ára afmæli
mínu 22. þ.m.
Guð blessi ykkur öll.
María Guðniundsdóttir.
Forstöðumanni Áhaldahúss Reykjavíkurbæjar og starfs
liði hans, þakka ég höfðinglegar gjafir á 70 ára afmæli
mínu 22. des. sl. Einnig systkinum mínum, börnum, tengda-
börnum og barnabörnum.
Ragnar Guðmundsson,
Ásvallagötu 40.
tss
GUÐRÚN BJARNADÓTTIR,
húsfreyja að Vallá, Kjalarnesi lézt í Landsspítalanum 26.
desember. Jarðarförin auglýst síðar.
Aðstandendur.
Móðir okkar og tengdamóðir
JÓNFRÍÐUR HELGADÓTTIR,
Grettisgötu 31, andaðist í Landakotsspítala á jóladag.
Inga Gestsdóttir, Bjarni Gestsson,
Ásta Gestsdóttir, Helena Gestsdóttir,
Gústaf Gestsson, Jóhanna Ásgeirsdóttir.
Fósturfaðir minn, bróðir og frændi
JÓN ÓLAFSSON,
Króksfjarðarnesi, andaðist á heimili sínu á jóladag.
Haukur Friðriksson,
Bjarney Ólafsdóttir,
Ólafur E. Ólafsson.
Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar og tengdafaðir
GUÐJÓN KR. JÓNSSON,
Nýlendugötu 22, andaðist á Landakotsspítala 26. þ. m.
Ágústa Jónsdóttir,
börn og tengdabörn.
Útför eiginmanns míns og sonar okkar
GUNNARS HLÍÐAR,
stöðvarstjóra í Borgai’nesi, fer fram frá Dómkirkjunni
mánudaginn 30. desember kl. 11 árdegis.
Jarðsett verður í Fossvogskirkjugarði.
Ingunn H. Hlíðar.
Guðrún og Sigurður E. Hlíðar.
Minningarathöfn um móður mína
SIGRIÐI HALLDORSDÖTTUR
frá ísafirði, sem lézt 17. þ.m. fer fram í Fossvogskapellu,
mánudaginn 30. þ.m. kl. 1.30 e.h.
Jarðsett verður á Patreksfirði.
Sigríður Guðjónsdóttir.
JAKOB STEFÁNSSON
Brekkugötu 13, Akureyri, sem andaðist 16. desember var
jarðsettur 21. desember.
Friðrik Jalcobsson,
Lilly Jakobsson, Ingibjörg Friðriksdóttir.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim mörgu, fjær og
nær, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og
jarðarför eiginmanns míns, föður og tengdaföður
JÓNS JÓHANNESSONAR
bifreiðarstjóra, Laugateig 17. — Sérstaklega þökkum við
Bifreiðastjórafélaginu Þrótti, fyrir góða aðstoð og hlut-
tekningu.
Anna Benediktsdóttir,
Sæmundur R. Jónsson, Loftur H. Jónsson,
Hrafnhildur Jónasdóttir.