Morgunblaðið - 17.01.1958, Síða 2

Morgunblaðið - 17.01.1958, Síða 2
2 morctiv nr, aðtð Fostudagur 17. jan. 1959 Rekstrarútgjöld ar 1957 urðu en áætlað Reykiavíkurbæj- ægri var Rekstrarafgangur varð 54,8 milljónir og var varið til byggingar íhúða, skóla, bæjarsjúkrahússins o.fl. Úr rœðu borgarstjóra í gœr Gunnar Thoroddsen borgar- stjóri lagði í gær fram á fundi bæjarstjórnar áætlun um rekstr- arreikning bæjarsjóðs fyrir árið 1957. Eru á reikningnum til- færðar tekjur og gjöld eins og þau voru áætluð í fjárhagsáætl- un ársins 1957 og síðan er til- fært, hvernig niðurstaðan hefur orðið á reikningum bæjarins. Er þetta yfirlit birt á öðrum stað í blaðinu. Skv. þessu yfirliti hafa t e k j u r farið 14,5 millj. fram úr áætlun. Gjöldin hafa hins vegar staðizt mjög vel áætlun. Framlög til skólanna hafa far- ið 1,5 millj. kr. fram úr áætlun og gatna og holræsagerð 600 þús. kr. og heilbrigðismál um 1 millj. kr. Nokkrir aðrir liðir hafa orðið'lægri en áætlað var. Heildarútkoman á gjöldum er sú að þau reyndust 361 þús. kr. 1 æ g r i en áætlað hafði verið. Niðurstaðan er því sú, að afgangur verður á rekstrar- reikningi, sem nemur 54,8 millj. kr. en áætlað hafði ver- ið að afgangur yrði 39,9 millj. kr. Þessum mismun hefur öll- um verið varið til verklegra framkvæmda, til byggingar raðhúsa, fjölbýlishúsa við Gnoðarvog, skólabygginga, Bæjarsjúkrahúss, leikvangs í Laugardal, sorpeyðingarstöðv ar o. fl. Borgarstjóri gat þess að lokum að yfirlit um eignabreytingar gæti ekki legið fyrir svo snemma árs en greiðslujöfnuður muni verða hagstæður á árinu. Þegar borgarstjóri hafði lagt þetta yfirlit fram, urðu ekki um það neinar umræður, nema hvað Magnús Ástmarsson (A) gat þess, að bæjarstjórnarmeirihlutinn gerði áætlanir sínar um tekjur fullvarlega. Annað höfðu bæjar- fulltrúar minnihlutans ekki um reikninginn að segja, en hann sýnir betur en flest annað, hve f járstjórn bæjarins er í traustum höndum. Mun það sennilega eins dæmi í þjóðfélagi voru, eins og stend- ur, að lagður sé fram slíkur opinber reikningur, sem sýni að gjöld hafi staðizt svo vel áætlun, eins og hér kemur fram. Það er eins með fjárhags- legt öryggi Reykjavíkurbæj- ar eins og einstaklingana, að það er undir því komið, hvernig hinn fjárhagslegi grundvöllur er. Það er vitaskuld fullkom- lega útilokað að hugsa sér, að rekstur Reykjavíkurbæjar og f járhagur hans væru í sliku horfi, ef fjórir sundurleitir og höfuðlausir flokkar hefðu bæjarfélagið, stofnanir þess og sjóði að bitbeini. Þetta skilja Reykvíkingar og þetta kunna þeir að meta. Kjósenda- handbókin VIÐ síðustu kosníngar gaf Heimdallur F.U.S. út kosninga handbók, KJÓSENDAHAND- BÓKINA, sem hlaut þá miklar vinsældir fyrir fróðlegt efni og vandaðan frágang. Heimdallur hefur nú gefið út Kjósenda- handbók fyrir bæjarstjórnar- kosningarnar, sem er ómiss- andi fyrir hvern, sem vill fylgj ast með kosningaúrslitunum. f bókinni er mikill fjöldi upp- lýsinga þ.á.m. úrslit alþingis- kosninga og bæjar- og svjgitar stjóranarkosninga frá 1942 ásamt hlutfallstölum nm kjör- fylgi flokkanna í þeim kaup stöðum, sem eru kjördæmi og atkvæðatölum, eins og þær voru lesnar í útvarpinu við undanfarnar bæjarstjórnar- kosningar. Þá eru í bókinni kaflar úr grein eftir Gunnar Thoroddsen, borgarstjóra um Sjálfstjórn bæjar og sveitar- félaga, sem allir ættu að lesa. Kindunum bjargað úr Meðalfelli VALDASTÖÐUM, 14. jan. — Kindunum, sem að undanförnu hafa verið tepptar í klettum í Meðalfelli, var bjargað s.l. laug- ardag eftir að búið var að fá nógu langan vað til þess. Þarna voru kindurnar búnar að vera fimm vikur frá því þeirra varð fyrst vart og lengst af við þröngan kost. Voru þær því eðlilega orðnar magrar og mjóslegnar. Þrjár þeirra voru frá Eyjum en ein frá Hjarðarhoiti. BÍLDUDAL, 15. jan. — Lokið er að mála félagsheimilið hér á Bíldudal, hátt og lágt, að innan samkomusalinn og önnur her- bergi, svo að nú er mjög skemmtilegt inn að koma og um að litast. Hefur þetta verk verið unnið algjörlega í sjálfboðaliðs- vinnu, en efni verið útvegað. Hef ur Halldór Helgason, forstjóri, formaður félagsheimilisnefndar haft yfirumsjón með verkinu. Borgarstjóri hefur falið skipulags- stjóra að gera hið bráðasfa skipu- lagsuppdrátt af Breið- holtshverfi og Blesugróf Reksfrarreikmntpir bæjarsjóðs Reykjavíkur (Aætlun) Fj árhagsáætlun T e k j u r : 1957 Reikningur þús. kr. þús. kr. Tekjuskattur 203.200 Fasteignagjöld 7.400 Vmsir skattar 1.000 Arður af eignum 3.550 3:550 Arður af fyrirtækjum 3.905 3.905 Ýmsar tekjur 400 204.910 219.455 G j ö 1 d : Stjórn kaupstaðarins 11.575 Löggæzla 10.050 10.400 Brunamál 4.160 4.188 Fræðslumál 17.898 19.281 Listir, íþróttir og útivera .... 6.966 7.601 Heilbrigðismál 18.755 19.722 Félagsmál 54.176 52.097 Gatna- og holræsagerð 33.200 33.800 Fasteignir 5.005 2.705 800 580 Önnur gjöld 1.450 1.700 Framlag til SVR 1.000 1.000 165.010 164.649 Mismunur, færður á eignabreytingu, til raðhúsa, fjölbýlishúsa við Gnoðarvog, skólabygginga, Bæjarsjúkrahúss, leik- vangs í Laugardal, sorpeyðingarstöðv- ar o. fl................................ 39.900 54.806 204.910 219.455 GUNNAR THORODDSEN, borgarstjóri, skýrði frá því á bæjar- stjórnarfundi í gærkvöldi, að hann hefði fyrir nokkru falið bæjar- verkfræðingi og skipulagsstjóra að láta hið fyrsta gera mælingar og skipulagswppdrátt af Breiðholtshverfi og Blesugróf. þetta mál við skipulagsstjóra, unz hann ritaði svohljóðandi bréf fyr ir nokkru. Til bæjarverkfræðings: Málið kom til umræðu í sam- bandi við tillögu, sem Alfreð Gíslason kom fram með í gær, að láta gera skipulagsuppdrátt af Breiðholtshverfi og að öllum húsum í þessu hverfi skuli veitt lóðarréttindi til 25 ára. Borgarstjóri kvaddi sér hljóðs. Hann sagði að þetta mál hefði verið rætt marg sinnis áður í bæjarstjórn. Á þeim tíma hefði verið leitað umsagnar skipulags- nefndar ríkisins og samvinnu- nefndar um skipulagsmál og hefði hún andmælt því að lóðar- réttindi væru veitt meðan Svæðið væri óskipulagt. Enn kvaðst borg arstjóri margsinnis hafa rætt — Hér með er lagt fyrir yður að láta hið fyrsta gera mælingar af Breiðholtshverfi og Blesugróf til undirbúnings skipulagsupp- dráttar af svæðinu. Til skipulagsstjóra Reykjavík- urbæjar: — Hér með er yður falij að láta hið fyrsta gera skipulagsupp drátt af Breiðholtshverfi og Blesu gróf. Uppdráttinn skal miða við, að íbúðarhverfi verði á svæðinu og enn fremur skal svo sem auðið Hörð gagnrýni lýð- ræðissinna á kosn- ingafundi Dagsbrúnar í GÆRKVELDI var haldinn hinn svonefndi kosningafundur í verkamannafélaginu Dagsbrún, en á þeim fundi eru til umræðu störf og framkvæmdir stjórnar félagsins í hagsmunamálum þess á umliðnu ári. Fundurinn var fjölmennur, og var deilt harka- !ega á dáðleysi stjórnarinnar við framkvæmd ýmissa nauðsynja og hagsmunamála félagsmanna. Hörðust var gagnrýnin á aðgerðar- leysi stjórnarinnar þó af hálfu stuðningsmanna og frambjóðenda B-listans í stjórnarkosningum þeim er standa fyrir dyrum í félaginu. er, taka tillit til varanlegra mann virkja, sem þar eru, svo sem húsa, holræsa, vatnslagna o. s. frv.“ Utankjorsfaðakosning ÞEIR, sem ekki verða heima á kjördegi geta kosið hjá sýslu- mönnum, bæjarfógetum og hreppstjórum og í Reykjavik hjá borgarfógeta. Erlendis er hægt að kjósa hjá íslenzkum sendiráðum og ræðismöimum, sem tala íslenzku. Kosningaskrifstofa borgarfógetans í Reykjavík er í póst- húsinu, gengið inn frá Austurstræti. Skrifstofan er opin ftá kl. 10—12 f. h., 2—6 og 8—10 e. h. daglega. Kosningaskrifstofa Sjálfstæðisflokksins, Vonarstræti 1, veitir allar upplýsingar og aðstoð í sambandi við utankjör- fundaratkvæðagreiðslu. Skrifstofan er opin frá kl. 10—i0 daglega. Símar skrifstofunnar eru 1 71 00, 2 47 53 og 1 22 48. I upphafi fundarins fluttu full- trúar framboðslistanna tveggja hálfrar klukkustundar framsögu- ræður, en að þeim loknum hóf- ust almennar umræður. Af hálfu B-listans talaði Þorsteinn Pét- ursson. Rakti hann ýtarlega ó- fullburða fálm kommúnista- stjórnarinnar í Dagsbrún í kjara- málum félagsins, sérstaklega þó auðsveipni hennar í samningum við núverandi ríkisstjórn. Af hálfu A-listans talaði Guðmund- ur J. Guðmundsson, skrifstofu- maður Dagsbrúnar. Að framsöguræðunum loknum tóku allmargir menn til máls, og var það einkennandi í þeim umræðum, hversu óánægja Dags- brúnarmanna með stjórn félags- ins er mikil og eftirtektarvert, að ræðumenn kommúnista forð- uðust í ræðum sínum málefna- legar umræður. Þeim var líka vorkunn, þar sem rökfesta einkenndi allan málflutning stuðningsmanna B-listans, sem flettu vægðar- laust ofan af svikum og sofanda- hætti Dagsbrúnarstjórnarinnar í meðferð félagsmála. Meðal ræðumanna, sem deildu á stjórnina voru Guðm. Niku lásson, Magnús Hákonarson, Jó- jiann Sigurðsson, sem benti á, að öll störf núverandi stjórnar fé- lagsins virtust beinast að því einu að tryggja valdastöðu kommúnista í ríkisstjórninni, Kristínus Arndal o. m. fl. Meðal lýðræðissinnaðra félags manna ríkir nú bjartsýni um, að takast megi að velta kommún istum úr valdasessi sínum í fé- laginu, og að frambjóðendur B-listans verði kjörnir til stjórn- arstarfa í kosningum félagsins n.k. laugardag og sunnudag. Að þessu tvennu kvað borgar- stjóri nú vera unnið. Hins vegar sagði hann, að það væri ekki eðli leg vinnubrögð, sem lagt væri til í tillögu Alfreðs, að veita fyrst lóðarréttindi og síðan að skipu- leggja hverfið. Þvert á móti væri það eðlilegt að gera fyrst skipu- lagsuppdrátt, sem yrði hagað þannig, að sem allra flest hús kæmust inn á hann og síðan að veita þeim húsum lóðaréttindi, sem féllu inn í skipulagið, Það væri ekki hægt að vænta þess, að hvert einasta hús félli inn í skipu lagið, heldur myndu einhver þeirra verða að víkja eða flytjast til m.a. vegna gatnagerðar. Nokkrar umræður urðu um mál ið. Kvaðst Alfreð óánægður með þessa afgreiðslu í málinu. Hélt hann fast við, að hann vildi fyrst láta veita lóðaréttindi og síðan skipuleggja hverfið. Var þó um það talað á fundinum, að Al- freð myndi aldrei hafa komið fram með slíka tillögu nema af þeirri ástæðu einni að aðeins 10 dagar eru til kosninga. Ingi R. Helgason þakkaði borg- arstjóra hins vegar fyrir að hann hefur nú falið viðeigandi yfir- völdum að skipuleggja þetta hverfi hið bráðasta. Fagnaði hann þeirri ákvörðun, en var um leið fylgjandi tillögu Alfreðs. ★ Björgvin Frederiksen tók einnig til máls. Hann kvaðst ekki skilja undirtektir Alfreðs undir það að málið fær nú þá afgreiðslu að ákveðið er að gera skipulag af hverfinu. Hitt taldi hann ekkl vera til umræðu að sinni, hvað bæj- arstjórn gerði til að leysa vanda manna, þegar að því kæmi að framkvæma skipu- Iag hverfisins. Bæjaryfirvöld- in munu þegar þar að kem- ur reyna að leysa vanda þeirra á sem farsælastan hátt. Þau skildu að þetta væri við- kvæmt mál, það fjallaði um það, hvort heimili ættu að fá að standa í sinni mynd eða flytjast. Á slíkum málum yrði ætíð að taka varlega, og það væri ekki réttmætt hjá einum minnihlutaflokkanna að fara að gera slík fjölskyldumál að áróðursefnl á alröngum grund velll.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.