Morgunblaðið - 17.01.1958, Síða 10

Morgunblaðið - 17.01.1958, Síða 10
10 MORCUWBLAÐIÐ Fðstnrlasiir 17. jan. 1958 fJtg.: H.f. Arvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri: Sigfus Jónsson. Aðairitstjórar: Vaitýr Stefánsson (ábm ' Bjarni Benediktsson. Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur. Einar Asmundsson. Lesbók: Arm Ola, sími 33045 Auglýsingar: Arni Garðar Knstinsson. Ritstjórn: Aðaistræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. Askriftargjalri kr. 30.00 á mánuði mnaniands. í lausasölu kr. 1.50 eintakið. SVAR REYKJAVÍKURBÚA "ST'\ RÁSÖGN Morgunblaðsins af hinni „gulu bók“ ríkis- * stjórnarinnar í húsnæðis- isálunum og frumvarpinu um húsaleigu, sem var afturkallað, hefur að vonum vakið hina mestu athygli. Er nú naumast um arinað meira talað í allri Reykjavíkurborg en þessi tíðindi. Það var fyrir löngu vitað að ýmsar ráðagerðir hafa verið uppi um það meðal stjórnarliðsins, hvernig koma mætti Reykjavík og Reykvíkingum á kné, en „gula bókin“ og það, sem henni fylgir, er einn þátturinn í þeim ráðagerðum. Illviljinn í garð Reykjavíkur skin út úr þessu „gula“ plaggi hins svokallaða vinstra liðs. Handa Reykvíkingum á að nægja „þokkaleg þriggja herbergja íbúð“. Ríkið á að fá yfirráð yfir öllum íbúðarhúsabyggingum. Öllu fjármagni „verði ráðstafað af einni stofnun, sem starfi á ábyrgð ríkisstjórnarinnar og í samræmi við vilja hennar og óskir“. Það má nærri geta, hvernig hlutur Reykjavikurbúa yrði í slíku kerfi. Samkvæmt „gulu bókinni" á ekki að hugsa um einstaklingana, þeir eiga að sitja á hakanum en opinber byggingastarfsemi á að njóta „forgangsréttar um opinbert lánsfé“. Svo á að taka ráðin af mönnum, ef þeir vilja selja fast- eign. Það á „fasteignasölunefnd“ að sjá um. Ef menn vilja leigja fasteign á líka að taka ráðin af þeim, sem eignina eiga og allir leigusamn- ingar milli einstaklinga skulu bannaðir. Leigan á svo að vera ákveðin af „sérfræðingum". Þarna sjá menn andann sem svífur yfir þessum vötnum. Það á að kreppa að mönnum, ef þeir vilja byggja og taka ráðin af þeim, ef þeir vilja selja eða leigja. Stefna „gulu bókarinnar" er í fáum orðum sú að svipta ein- staklingana möguleikum til að byggja yfir sig og hrifsa yfirráð eignanna undir ríkið. Þetta er boðskapurinn. Eins og tilfært er í blaðinu í gær segir svo á einum stað í „gulu bók- inni“: „Með þessu er gengið nokkuð langt inn á eignarréttinn". „Nokk uð langt“, segja þeir herrar! Reykvíkingar munu fella sinn dóm um það, hversu langt þeim finnst gengið. Og Reykvíkingar munu sjálfir skera úr um það, I hvort stjórnarfylkingin þorir að láta til skarar skríða gegn þeim, eins og stofnað er til í þessum tillögum „gulu bókarinnar". Bæjarstjórnarkosningarnar munu skera úr um það, hvort fram- kvæmt verður það tilræði, sem fyrirhugað er. Ef Reykvíkingar fylkja sér nú um Sjálfstæðis- flokkinn og sýna stjórnarherrun- um þannig hug sinn, munu þeir ekki þora að halda eignaráni og rangindum „gulu bókarinnar" til streitu og þá munu þeir einnig sjá sitt óvænna og gefast upp við annað ráðabrugg gegn bæj- arbúum, sem verið hefur uppi á teningnum að undanförnu. Glæsilegur sigur, stærri meiri- hluti Sjálfstæðismanna en nokkru sinni áður við kosningarnar ann- an sunnudag, er. sú ráðning, sem Reykvíkingar munu veita stjórn- arliðinu — og hún nægir. GLÆSILEGUR SIGUR ER TAKMARKJÐ „VIÐ KJÓSUM góða bæjarstjórn og fellum slæma ríkisstjórn“, voru orðin, sem seinast voru töl- uð á fundi Sjálfstæðisfélaganna í fyrrakvöld. Þessi orð urðu eins konar heróp Sjálfstæðis- manna á þessum fundi. Fund- urinn í fyrrakvöld var svo fjölmennur sem húsrúmið gat frekast tekið á móti, og kom þar fram á margan hátt, að Sjálfstæðismenn standa saman og eru einhuga í að vinna nú hinn glæsilegasta sigur. Menn gerðu sér ljóst, að „orrustan um borg- ina er hafin“, eins og einn ræðu- manna komst að orði. Öllum er það einnig ljóst, að Sjálfstæðismenn verða að halda vel vöku sinni. Áróðurinn gegn þeim er nú ef til vill magnaðri úti um bæinn, en nokkru sinni fyrr. Þar ganga nú erindrekar ríkisstjórnarinnar og vinstri flokkanna um og villa um fyrir fólki. Jafnframt því, sem þessir menn beita hinum magnaðasta áróðri, læða þeir því inn hjá fólki, að engin hætta sé á, að Sjálfstæðismenn tapi meirihluta sínum í bæjarstjórn. Með þessu á að svæfa Sjálfstæðismenn og vela kjósendur, sem annars hafa íylgt Sjálfstæðismönnum að mál- um við bæjarstjórnarkosningar, til að kjósa nú gegn þeim. Nú geri það ekki til, því Sjálfstæðis- menn séu svo öruggir! Á þessum og þvílíkum áróðri þurfa allir Sjálfstæðismenn og aðrir kjós- endur, sem þeim fylgja, að vara sig nú fyrir kosningarnar. Tíminn til kjördags styttist. Það er margt hægt að gera á þeim dögum, sem eftir eru, en ekki þýðir lengur að fresta því til morguns, sem hægt er að gera í dag. Sjálfstæðisflokkurinn kallar nú á alla krafta til starfa, sem leggja vilja fram verk fyrir kjör- dag. Sjálfstæðismenn ættu að fylgjast með auglýsingum frá flokknum um þessi efni. Enn sem fyrr leitar Sjálfstæð- isflokkurinn til allra hugsandi Reykvíkinga um stuðning. Við fyrri bæjarstjórnarkosningar hef ur fjöldi manna og kvenna fylgt flokknum að málum, sem ananrs telja sig ekki til flokksmanna hans. Sjálfstæðismenn kalla enn á ný á þessa bæjarbúa, sem setja hag Reykjavíkurbæjar ofar öll- um þröngum flokkssjónarmiðum. Ef allir standa saman, sem vilja að bænum verði stjórnað næsta kjörtímabil af einum, samstillt- um flokki, þá er Reykjavík borg- ið við kosningarnar annan sunnu dag. Sigur D-listans er sigur Reykja víkur Það er ekki hægt að segja, að þetta séu fullkomnustu aðferðir við þreskingu — en ef til vill þær nýjustu. Indverski flakkarinn, sem hafði mesfan áhuga á olíukyndingu GUSTIP MULTANI er Indverji, 27 ára gamall. Um margra ára skeið hefur hann setið á skóla- bekk í heimalandi sínu — og fyrir nokkrum árum lauk hann embættisprófi í ensku og sögu. En þá var hann búinn að fá nóg af skólalífinu í bili. Hann lang- aði til þess að skoða sig um í heiminum áður en hann hæfi kennslu^törf — og ákvað því að fara umhverfis hnöttinn. Keypti hann sér gott bifhjól og í októ- bermánuði 1955 lagði hann af stað frá Nýju Dehli og hefur ver- ið á stöðugu flakki síðan, en á samt langan veg ófarinn áður en hann kemst aftur til heimalands- ins. Multani hefur á ferð sinni unnið sér inn smáskilding með því að skrifa stutta ferðapistla fyrir blöð og tímarit — og hér birtist útdráttur úr einum, sem hann ritaði fyrir eitt Kaupmanna h afnarblaðanna. Rússneskur læknir Frá Nýju Dehli, Bombay, þaðan sjóleiðis til Khuramshehar í Iran. Ók hann síðan um íran og komst til Teheran, en í erfiðri ferð yfir hálendið hafði hann hlotið kal á annarri hendi. Leitaði hann til sjúkrahúss til þess að fá aðhlynn- ingu. Af tilviljun kynntist hann þar rússneskum lækni, sem sagði honum, að hann gæti ekki talizt hafa séð allan heiminn án þess að komast til Rússlands. Multani taldi litla von til þess að komast þangað, en læknirinn sagðist skyldu reyna að útvega honum vegabréfsáritun. Hann yrði bara að hafa þolinmæði. Indverska blaðið og olíu- kyndingin björguðu Multani hélt síðan ferð sinni áfram — og hafði stöðugt sam- band við rússneska lækninn. í Bonn í Þýzkalandi sat hann eitt sinn í veitingahúsi og las ind- verskt blað. Lítil stúlka, sem sat með eldri systur sinni við næsta borð, virtist hafa mikinn áhuga á indverska blaðinu — svo að þau tóku tal saman. Kom það upp úr kafinu, að Multani hafði aldrei séð olíukyndingu á ævi sinni — og langaði mikið til þess að fara ekki úr Evrópu án þess að sjá þetta undratæki. Varð það úr, að eldri systirin bauð honum heim, því að á heim ili hennar var einmitt olíukynd- mg. Nú kynntist Multani foreldr- um stúlkunnar og heimili, en svo fór þó að lokum, að hann fékk meiri áhuga á stúlkunni en olíukyndingunni — og þegar hann sagði henni, að hann væri að hugsa um að reyna að komast til Rússlands, sýndi hún fyrstu merki þess, að hún hafði einnig fellt hug til hans: Hún varð ótta- slegin. Störðu eins og naut á nývjrki Nú barst Multani orðsending þess efnis, að hann mundi fá vegabréfsáritun til Rússlands í Varsjá. Lagði hann upp frá Bonn og ók áleiðis til Póllands. Gustip Multani var ekki hálfn- aður í hnattferðinni, er hann hafði krækt sér í konu. Allt gekk að óskum — og síðan segir Multani: — Strax og ég var kominn inn fyrir rússnesku landamærin varð ég þess var, að fólk starði á mig ems og naut á nývirki — starði á þennan undarlega mann, sem kom aleinn til Rússlands. Því hafði fólk ekki vanizt. Sama var að segja um bifhjólið mitt, sem var víst mun glæsilegra og betra, en fólkið átti ^>ar að venjast. All- ir, sem færi fengu á, rannsökuðu það hátt og lágt . . . Multani fékk uppgefna leið, er hann mátti aka eftir til Moskvu, en í öðrum ferðapistli, er hann ritaði í enskt blað fyrir skemmstu skýrði hann svo frá, að ströng viðurlög hefðu legið við því að víkja út af þessari leið, sem hon- um var heimilað að aka. Sex fjölskyldur um sama eldhúsið v Hann komst brátt að því, að lít- ið mundi upp úr Rússlandsferð- inni að hafa, án þess að hafa túlk. Leitaði hann fyrir sér í því skyni og fékk loks kennslukonu, sem gift var verkfræðingi, til þess að fara með sér um Moskvu og leiðbeina sér. Segir hann svo: „Hún var mjög glöð yfir því að fá tækifæri til þess að rifja upp og viðhalda enskukunnáttu sinni. Ég var boðinn heim til hennar, en þau hjón bjuggu með þrjú börn sín í tveggja herbergja í- búð. Ég snæddi hjá þeim einu sinni, maturinn var mjög góður, en hvar hún bjó hann til gat ég ekki skilið. Hún var treg til að segja mér það, en loksins kom það upp úr kafinu, að þau höfðu aðgang að eldhúsi ásamt fimm öðrum fjölskyldum. Hræðilegt, viðurkenndi hún“. Rækur — eini munaðurinn „Og heimilið? Hreint og þrlfa- legt, en án alls munaðar og hlý- leika. Útvarpstækið var æva- fornt og virtist jafnvel heimatil- búið. En bækur voru margar. Bókaskápurinn var spegilmynd af fólkinu, sem ég var þarna í heimsókn hjá. Það voru góðar bókmenntir — og eini munaður fjölskyldunnar, ef hægt er að kalla bækur munað á annað borð“. „Enn virðist fólk ekki hafa efni á að lifa fjölskyldulífi. í þess stað sækja allir klúbbana — börn og gamalmenni. Munurinn á glæsilegum opin- berum byggingum og íbúðar- hverfunum er slíkur, að ótrúlegt er“. Bílar gernýttir Multani segir frá því, að á ein- um stað hafi hann séð einkenni- legar aðferðir við kornþreskingu. Bændurnir þöktu steypta þjóð- vegi með þroskuðu korni og not- færðu sér bílaumferð til þess að brjóta hýðið utan af kjarnanum. Einnig höfðu þeir stóra vörubif- reið, sem þeir óku fram og aftur yfir kornið. Var hismið síðan blásið burt — og kornið rakað saman með hrífum og sett í poka. Einkennilegar aðfarir það. Það mikilvægasta hefur gleymzt Indverski ferðalangurinn tek- ur sérstaklega til þess hve fólk er vinnusamt í Rússlandi. AIls stað- ar sá hann konur að verki með karlmönnum, við hin erfiðustu störf, sem enginn kvenmaður léti bjóða sér í Vesturlöndum. M.a. Framh. á bls. 19.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.